Morgunblaðið - 08.04.1998, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.04.1998, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Reykjavíkurborg og Eignarhalds- félag Kringiunnar Samstarf um framkvæmd- ir við Kringluna BORGARRÁÐ staðfesti í gær vilja- yfírlýsingu Reykjavíkurborgar og Eignarhaldsfélags Kringlunnar um samkomulag og samstarf um framkvæmdir við tengibyggingu milli Borgarleikhúss og Kringl- unnar, nýtt torg og bdastæði og nýjan sal fyrir Borgarleikhúsið. Þá samþykkti borgarráð einnig breytingu á deiliskipulagi Kringl- unnar, en skipulags- og umferðar- nefnd samþykkti tillögu um þetta á mánudag. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki haustið 1999, eða á sama tíma og 9.500 fm stækkun Kringlunnar á að ljúka. Viljayfirlýsingin felur í sér að byggð verði millibygging milli Kringlunnar 8-12 og Kringlunnar 4-6, sem áður var Borgarkringlan. Þar er gert ráð fyrir útibúi Borg- arbókasafns í þeirri byggingu sem tengir saman Borgarleikhús og Kringluna, og mun safnið standa við hið nýja torg. Jafnframt verð- ur mögulegt að innrétta síðar nýj- an 450 fm sal við Borgarleikhúsið sem rúmar um 250 manns. Ekki hefur verið ákveðið í hvað salurinn verði nýttur að sögn Sigurðar Gísla Pálmasonar stjórnarfor- manns Hagkaups. Torgi við Kringluna verður breytt og það endurbyggt. Bfla- stæði á horni Listabrautar og Kringlunnar eystri verða nú á tveimur pöllum, sá lægri verður niðurgrafinn en umhverfi þar verður fegrað með gróðri. Bfla- stæðið mun rúma 400 bfla. Að- koma að bflastæðum verður ann- ars vegar af Listabraut og hins vegar af Kringlunni eystri. í viljayfirlýsingunni kemur fram að Eignarhaldsfélagið Kringlan muni annast allar framkvæmdir og fjármagna þær til ýmist 5 til 15 ára og tekur auk þess það rými sem ætlað er fyrir leikhússai á leigu fyrst um sinn. Reykjavíkur- borg greiðir auk kostnaðar við bókasafn, hlutdeiid í endurgerð bflastæða og fegrun á torgi og nánasta umhverfi. f tengslum við breytinguna verða aðstæður gang- andi bættar bæði að og frá Versl- unarskóla íslands og fyrir Kringl- una eystri. Ingibjörg Sólrún Gísiadóttir borgarstjóri Reykjavíkur sagði á NÝBYGGING Kringlunnar verður þijár hæðir, eða um 9.500 fermetrar. blaðamannafundi, þar sem við- byggingin og stækkunin var kynnt, að heildarkostnaður borg- arinnar við verkefnið yrði um 140 milljónir króna á næstu fimm ár- um. Kostnaður við útibú Borgar- bókasafns yrði 40-50 milljónir króna á næstu 15 árum. Eins og fyrr segir er um viljayf- irlýsingu að ræða en búist er við að tillaga, sem báðir aðilar muni fallast á, verði tilbúin til undirrit- unar 20. aprfl. Ný útilífs- og sportvöruverslun Samhliða framkvæmdum við tengibyggingu verður unnið við stækkun Kringlunnar um 9.500 fm. Með tilkomu nýbyggingar- innar bætast við 7 þúsund fm af verslunar- og veitingarými. Þetta rými er nú um 25 þúsund fm. Helstu nýmæli í nýbyggingunni verður 2 þúsund fm útilífs- og sportvöruversiun. Einnig verða þar þrjár stórar versiunareining- ar, en erlendar verslunarkeðjur hafa sýnt áhuga á að fá rými í Kringlunni í samstarfí við inn- lenda aðila að sögn Sigurðar Gísla. I viðbyggingunni er gert ráð fyrir tveimur nýjum fjöl- skylduveitingastöðum og skyndi- bitastöðum verður íjölgað. Sigurður Gísli sagði að mark- mið með framkvæmdum væri að styrkja Kringluna i' sessi í kjölfar komandi samkeppni í Smára- hvammslandi í Kópavogi. Hann sagði markaðskannanir sýna fram á að eftirspurn væri eftir stærra verslunarhúsnæði í borg- inni og benti á að hugsanlegir leigjendur væru komnir í bróður- part viðbyggingarinnar. Einar I. Halldórsson fram- kvæmdastjóri verkefnis um stækkun Kringlunnar sagði að hafist yrði handa við fram- kvæmdir við vesturhluta Kringl- unnar í maí og þeim yrði lokið f haust. Framkvæmdir við austur- hlutann hæfust í byijun næsta árs og væri gert ráð fyrir að sá hluti yrði tilbúinn í lok árs 1999. Einar sagði að áætlaður kostn- aður Eignarhaldsfélags Kringl- unnar um stækkun og viðbygg- ingu næmi vel á annan milljarð króna. Fmnur Ingólfsson viðskiptaráðherra krefst svara um rangar upplýsing- ar vegna laxveiðiferða frá bankaráði Landsbanka íslands Misræmi sem tæpast verð- ur skýrt með mistökum HELGI S. Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbanka íslands, sagði í gær að hann ætti í dag von á svörum við bréfi Pinns Ingólfsson- ar, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, til bankaráðsins þar sem spurt er hvernig á því standi að hann hafi fengið rangar upplýsingar um lax- veiðiferðir bankans og með hvaða hætti. Sigurður Þórðarson ríkisendur- skoðandi kveðst eiga von á að skýrsla embættisins vegna rann- sóknar á laxveiðiferðum á vegum Landsbanka og dótturfélaga bank- ans verði skilað á morgun, skírdag, gangi það starf á eftir áætlun. Ríkisendurskoðun ákvað að taka fyrir alla laxveiði á vegum Lands- bankans og dótturfélaga í kjölfar þess að Sverrir Hermannsson bankastjóri óskaði eftir úttekt á meintum kaupum bankans á veiði- leyfum í Hrútafjarðará. I framhaldi af því óskaði bankaráðið eftir að embættið athugaði einnig allan risnukostnað bankans frá 1994 til 1997, svo og allan ferðakostnað inn- anlands og erlendis og bifreiða- og aksturskostnað. „Vinna er einfaldlega í fullum gangi vegna þessa máls og við stefnum að því að ljúka skýrslunni ekki seinna en á fimmtudag og þá fer hún fyrir bankáráð Lands- banka,“ segir Sigurður. Hann segir að embættið muni ekki tjá sig um innihald skýrslunnar fyrr en bankaráðið hafí tekið hana til um- fjöllunar. Leita skýringa á röngum upplýsingum Finnur sendi bankaráðinu bréfið á mánudag og þá kallaði Helgi ráðið saman og kvaddi þrjá starfsmenn bankans á fundinn. „Við báðum þá um að taka saman þær upplýsingar, sem beðið er um í bréfi ráðherrans, og láta okkur hafa þær,“ sagði hann og bætti við að hann vonaðist til að fá svörin í hend- ur í dag. „A þessu stigi snýst málið um það hvað gerðist, þetta er ekki spuming um ábyrgð." Bankastjórinn, sem falið var að safna saman upplýsingunum, er Halldór Guðbjamason. Helgi sagði að hann væri eini bankastjórinn, sem væri til taks um þessar mundir. Björgvin Vilmundarson bankastjóri væri veikur og Sverrir Hermanns- son bankastjóri erlendis. Ræðir ekki vangaveltur Helgi vildi ekkert segja um vangaveltur um það að línur væra farnar að skýrast varðandi skýrslu ríkisendurskoðunar. „Eg svara þessu algerlega opin- berlega á þann hátt að ég vil ekki ræða neitt um þetta mái í heild sinni fyrr en ég fæ skýrsluna í hendur," sagði Helgi. „Þá er það réttur allra stjórnenda bankans að þeir fái að tjá sig um [málið] og við höfum það í heiðri. Ég vil ekkert gefa í skyn í þessu.“ Auk Halldórs sér forstöðumaður innri endurskoðunar og forstöðu- maður fjárhagsdeildar um að leita svara við fyrirspum Finns. Helgi kvaðst ekki telja óeðlilegt að Hall- dór leitaði svara við spumingum viðskiptaráðherra á meðan banka- stjórar Landsbankans lægju undir ámæli. „Þetta er nú ekki á því stigi,“ sagði Helgi. „Mér finnst ekki hægt að ræða þetta með þessum hætti.“ Finnur Ingólfsson sagði að það væri bankaráðsins að leggja mat á það hverjir ættu að svara bréfi til sín, hann ætlaði ekki að gera það. Bréf viðskiptaráðherra til bankaráðs I bréfi viðskiptaráðuneytisins er vísað til bréfs, sem bankaráðið sendi því 2. apríl, þess efnis að „komið hefði í ljós að upplýsingar sem bankastjórn Landsbanka Is- lands [hefði] veitt ráðherra vegna fyrirspurnar á Aiþingi væru ekki fullnægjandi". Af bréfi bankaráðs hefði verið ljóst að fyrri upplýsinga- gjöf til ráðherra hefði verið röng í öllum meginatriðum. Ekki aðeins hefði kostnaður verið vantalinn, heldur hefði ekki verið fyllilega greint frá því í hvaða ár hefði verið farið hvert hinna tilgreindu ára, 1993 til 1997, auk þess, sem félög, sem bankinn hefði keypt af veiði- leyfi á tímabilinu hefðu verið vantal- in. Vísað er til bréfs, sem er dagsett 3. mars, og sagt að í fyrri svörum bankans hafí komið fram að farin hefði verið að jafnaði ein ferð í hverja á, sem tilgreind hefði verið fyrir hvert ár, auk þess sem greint hefði verið frá því að tilefni ferð- anna hefði verið að viðhalda og afla nýrra viðskiptasambanda með því að bjóða innlendum og erlendum viðskiptamönnum bankans í veiði- ferðir. Verulegt misræmi „Umfang veiðiferða og kostnaður vegna þeirra gefur tilefni til að ætla að þessar upplýsingar og skýiingar hafi heldur ekki verið fullnægj- andi,“ segir í bréfi Finns til banka- ráðsins. „Hér er um veralegt mis- ræmi að ræða sem tæpast verður alfarið skýrt með því að um mistök hafi verið að ræða.“ Með hliðsjón af þessu óskaði ráð- herra eftir því við bankaráðið að það veitti „nánari skýringar á því að fyiTÍ upplýsingar sem bankastjórn veitti vora rangar" auk þess, sem veittar yrðu „upplýsingar um innra eftirlitskerfi bankans með tilliti til þessa og mat bankaráðs á því“. í bréfi viðskiptaráðherra er vitn- að til þess að bankaráðið hafi sagt að óskað hafi verið eftir því við rík- isendurskoðanda að sannreyndar yrðu aðrar upplýsingar, sem við- skiptaráðheraa hefðu verið gefnar og vörðuðu starfslqör, risnu, bif- reiða- og ferðakostnað bankastjóra, þegar greint var frá því að við- skiptaráðherra hefði fengið rangar upplýsingar: „Viðskiptaráðherra telur brýnt að bankaráðið fjalli um málið í heild sinni þegar niðurstöður ríkisendurskoðanda liggja fyrir og að ráðherra verði gerð grein fyrir málinu í heild og afstöðu bankaráðs til þess um leið og þær niðurstöður liggja fyrir.“ Ekki ríkisstjórnarmál Ríkisstjómarfundur var haldinn í gærmorgun, en þetta mál var ekki rætt þar. „Þetta er ekki ríkisstjórnarmái," sagði Finnur Ingólfsson í gær og bætti við að hann hefði aðeins eitt svar við öllum spurningum um það: „Ég segi ekki meira um bankamálið en ég gerði þegar ég tjáði mig um það á þinginu. Ég hef engar frekari forsendur til að segja meira og bíð eftir frekari upplýsingum." Hringvegnr um Fossárvík Fjögur tilboð bárust í verkið FJÖGUR tilboð bárust í vegagerð á hringveginum um Fossárvík í Berafirði og áttu S.G.-vélar efh. á Djúpavogi lægsta tilboðið. Hljóðaði það upp á 63.076.947 kr. en kostnað- aráætlun Vegagerðarinnar var 82.573.390 kr. Öll tilboðin sem bárust í verkið vora undir kostnaðaráætlun. Hér- aðsverk ehf. á Egilsstöðum vai- með næstlægsta tilboðið og bauð 70.411.720 kr. í verkið. Ólafur Hjaltason efh. átti þriðja lægsta til- boðið og bauð 73.664.300 kr. í verldð og Sigurður H. Jónsson efh. og fleiri á Mælivöllum í Jökuldals- hreppi var með hæsta tilboðið og buðu 74.446.149 kr. Brú yfir Laxá Eitt tilboð barst Vegagerðinni í breikkun brúarinnar yfir Laxá í Miklaholtshreppi. Guðlaugur Ein- arsson á Sauðárkróki átti tilboðið og bauð hann 12.992.680 kr. i verk- ið. Kostnaðaráætlun Vegagerðar- innar var hins vegar lægri eða 11.746.774 kr. ---------------- Tuttugu Sauð- krækingar án bílbelta LÖGREGLAN á Sauðárkróki sektaði um tuttugu manns í gær fyrir að nota ekki bílbelti eins og kveðið er á um í umferðarlögum. Ails voru um þrjátíu sektaðir vegna ýmissa umferðarlagabrota hjá lög- reglu á Sauðárkróki í gær. Sektir fyrir að nota ekki bílbelti era á milli 2.500 og 3.500 krónur, þannig að sektargreiðslur vegna þessa gætu numið á milli 50 og 70 þúsund krónur. Jafnframt beinir lögreglan þeim tilmælum til for- ráðamanna barna að þeir reyni að gæta þess að eldri börn og ungling- ar, sem era á hjólum, noti hjálma til að skýla höfðinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.