Morgunblaðið - 08.04.1998, Síða 21
MORGUNB LAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1998 21
ERLENT
Nýjustu rannsdknir á mannlífí steinaldar
Var hlutverkaskipting
kynjanna allt önnur?
HUGSANLEGT er að hlutverka-
skipting kynjanna á steinöld hafi
verið allt öðni vísi en menn hafa
gert sér í hugarlund fram að
þessu, ef marka má nýjar kenn-
ingar bandarískra fornleifafræð-
inga, sem byggðar eru á rann-
sóknum á steinaldarminjum frá
Tékklandi.
Ef hinar nýju kenningar reynast
réttar munu þær óhjákvæmilega
kollvarpa viðteknum hugmyndum
um hlutverk karla og kvenna á
steinöld, en þær ganga út á að
karlmennirnir hafi valsað um beiti-
lendur mammúta og veitt þá með
frumstæðum vopnum og harðfylgi
hins hugaða villimanns, en konum-
ar sátu heima í kofa eða helli og
sinntu bömum og matargerð,
skinnasútun og handavinnu.
í Dolni Vestonice í Tékklandi
hafa fornleifafræðingar grafið upp
margvíslegar mannvistarleifar frá
steinöld (Paleolithikum, fyrir
29.000 til 22.000 ámm), þar á meðal
mammútabein í miklu magni,
spjótsodda úr steini og litlar leir-
styttur sem líkjast mest Venusar-
eða Freyjulíkneskjum.
Bandaríski fomleifafræðingur-
inn Olga Soffer, prófessor í slav-
neskum fræðum við háskólann í 111-
inois, hefur dregið aðrar ályktanir
af þessum leifum. í nýjasta hefti
Der Spiegel er sagt frá því, að á
leirplötubrotum frá fundarstaðnum
í Tékklandi hafi Soffer fundið för
eftir ofna þræði, sem sannar að
steinaldarmenn gengu ekki aðeins
um í dýraskinnum, heldur ófu utan
á sig klæði. A leirplötum fann Sof-
fer, með fulltingi annars banda-
rísks fomleifafræðings, James
Adovasio, einnig afsteypur af hnút-
um, sem dæmigerðar þykja fyrir
netagerð.
Mammútar veiddir í net
Kenning Soffer, sem kollvarpa
myndi viðteknum hugmyndum um
TVÖ lykilatriði í lífi steinaldar-
manna: „Venuarlíkneski“
og mammútur.
kynjahlutverkin, byggist fyrst og
fremst á því að hún telur að stein-
aldarmennimir hafi gert sér net,
sem þeir veiddu hina risavöxnu
mammúta í. Með slíkri veiðiaðferð
hefðu allir meðlimir hvers ætt-
bálks, jafnt karlar sem konur, tekið
þátt í að reka dýrið í gildru, þar
sem netið luktist um það. Þegar
það var einu sinni flækt í netið var
auðvelt að ganga frá því og krafðist
ekki karlmannlegra krafta.
Loks hefur þriðji bandaríski
fomleifafræðingurinn, Linda
Owen, bætt við einu atriði sem
breytt gæti hugmyndum um hlut-
verkaskiptingu steinaldarmanna.
Hún telur að steinaldarkonur hafi
eytt miklum tíma í að safna rótum,
berjum og villikomi til að fjörefna-
bæta mammútakjötskostinn. Með
þessu og þátttökunni í veiði hafi
konur aflað ættbálknum allt að
tveimur þriðju þeirra hitaeininga,
sem meðlimir hans neyttu. Ef
þetta reynist rétt væri ímynd hins
foma villimanns, sem aflaði fjöl-
skyldunni næringar, fallin. Og
þessir sömu fornleifafræðingar
vinna nú einnig að því að svipta
hinn hugprúða steinaldarkarlmann
þeim heiðri, að hafa verið listamað-
ur ættbálksins, sem mótaði hin
eggjandi Venusarlíkneski.
Soffer hefur með aðstoð keram-
ik-sérfræðings við Smithsonian-
stofnunina í Washington komizt að
því, að „99,99%“ allra þekktra
Venusarlíkneskja væra sprungin á
sama hátt. Með tilraunum hefði
komið í ljós, að þessar spmngur
næðust aðeins fram á ákveðinn
hátt við háan hita í ofni. Líkneskin
hafa því að öllum líkindum þjónað
helgisiðahlutverki; spáð hafi verið í
framtíðina með því að skoða hvern-
ig leirlíkneskin sprungu við bakst-
urinn.
Með þessa vitneskju í huga hafa
verið settar fram hugmyndir um að
konur haíi jafnvel verið eins konar
prestastétt steinaldarsamfélagsins.
Ef rétt er að steinaldarkonur
hafi veitt, safnað, eldað og jafnvel
séð ættbálknum fyrir andlegri leið-
sögn - hvert var þá hlutverk karl-
mannsins? spyr Spiegel. Olga Sof-
fer svarar spumingunni svona:
„Þeir hefðu haft sömu þýðingu og
nú á dögum - verið (...) þægilegur
félagsskapur yfir kvöldverðinum.“
Rafrænn
Kaupgarður
I MJÚDD
Þönglabakka i, Mjódd • Reykjavík
IPiZZA M
NMtðmm ii
lif ####
Fjarðargötu 11-13 * Hafnarfirði
NÝHERJI
Nýherjabúðin • Skaftahlið 24 * Reykjavík
H.J
WATCH
HERMANN JONSSON
Veltusundi 3 • Reykjavík
Bílavörubúðin
ÆÖPMM.
Skeifunni 2 • Reykjavík
Grensásvegi 11 • Reykjavík
Garðatorgi 3 • Garðabæ
FLUG HÓTEL
Hafnargötu 57 • Keflavík
1 r
dOÍ & 3cdid
Fjarðargötu ua Hafnarfirði
Þessi fyrirtæki veita öllum sem
greiða með VISA kreditkorti
rafrænan afslátt
Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt
©
FRIÐINDAKLUBBURINN
www.fridindi.is • www.visa.is
NÓATÚN
ÍSLENSK
Drottningar
skinka
Tilbúin stórveisla á
aðeins 30 mínútum
Soðid, úrbeinað
svínaiæri
Verslanir Nóatúns eru opnar
til kl. 21, öll kvöld.
NOATUN
NÓATÚN117 • ROFABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP.
• ÞVERHOLTI 6, M0S. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68