Morgunblaðið - 18.04.1998, Page 1
96 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
87 TBL. 86. ÁRG.
LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tillaga um víðtækan viðskiptasamning
Evrópusambandsins við Bandaríkin
Andstaða Frakka
hindrar áformin
Brussel. Reuters.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins, ESB, gaf sterk-
lega til kynna í gær að hörð and-
staða Frakka gæti leitt til þess að
ekkert yrði úr viðræðum um víð-
tækan og metnaðarfullan viðskipta-
samning milli ESB og Bandaríkj-
anna, sem framkvæmdastjórnin
hefði lagt fram tillögu um.
Martine Reicherts, aðaltalsmað-
ur framkvæmdastjómarinnar,
greindi frá þessu í kjölfar óvæginn-
ar gagnrýni franska forsetans
Jacques Chirac á tillöguna um
„Nýjan Atlantshafsmarkað"
(NTM), sem Sir Leon Brittan, sem
fer með viðskiptamál í fram-
kvæmdastjóminni, hafði haft for-
göngu um.
„Verkefni af þessu tagi geta þá
aðeins komizt í framkvæmd að öll
aðildarríkin standi á bak við þau,“
tjáði Reicherts fréttamönnum í
Bmssel, er hún var spurð hvort
andstaða Frakka við áformin á ráð-
herrafundi um málið síðar í þessum
mánuði myndi koma í veg fyrir að
nokkuð yrði úr þeim.
Tillaga Brittans gengur út á að
ESB og Bandaríkin hefji viðræður
sem miði að því að fjarlægja tækni-
legar hindranir í vöraviðskiptum,
að fríverzlun verði tekin upp á sviði
þjónustu og að lengra skuli gengið í
frelsisátt á sviði opinberra útboða,
hugverkaréttar og fjárfestinga.
Chirac sagði, í sjónvarpsræðu á
fimmtudag, tillöguna „ósiðlega" og
„fáránlega11 og hann hefði þegar
skýrt Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands sem nú er í forsæti ESB,
og Jacques Santer, forseta fram-
kvæmdastjórnar ESB, frá að
franska stjórnin myndi ekki geta
fallizt á að tillagan yrði tekin á dag-
skrá fundar ESB-leiðtoga með BUl
Clinton Bandaríkjaforseta í
London 18. maí næstkomandi.
Reuters
Dúman hafnar forsætisráðherraefni Jeltsíns forseta öðru sinni
Kíríjenkó senni-
lega samþykkt-
ur í næstu viku
Moskvu. Reuters.
NEÐRI deUd rússneska þingsins,
Dúman, hafnaði í gær öðra sinni
Sergei Kíríjenko, sem Borís Jeltsín
forseti hefur tilnefnt í embætti for-
sætisráðherra. Jeltsín tilnefndi hann
umsvifalaust aftur og í næstu viku
fer fram úrslitaatkvæðagreiðsla um
tUnefninguna. Forseti Dúmunnar,
Gennadíj Selezníjov, sagðist telja lík-
legt að þá yrði tilnefning Kíríjenkos
samþykkt.
Samkvæmt stjórnarskránni verð-
ur að leysa upp þingið og boða til
kosninga verði Kíríjenko hafnað í
þriðju atkvæðagreiðslunni í röð. Sel-
ezníjov sagði að þingmenn myndu
heldur sættast á Kíríjenko en þá
óvissu sem skapast myndi ef þingið
yrði leyst upp.
Jeltsín til Japans
Tæpur mánuður er nú liðinn síðan
Jeltsín vék ríkisstjórninni frá og til-
nefndi Kíríjenko. Forsetinn hélt í
gær til Japans í opinbera heimsókn
þar sem hann mun ræða við Ryut-
aro Hashimoto forsætisráðherra.
Brottfor Jeltsíns skapar stjórnskip-
unarlegt óvissuástand í Rússlandi,
þar sem stjórnarskráin gerir ráð
fyrir að forsætisráðherrann fari með
forsetavaldið að honum fjarstödd-
um. Stjórnskipunardómstóllinn hef-
ur hins vegar úrskurðað að Kíríj-
enkó geti ekki gegnt þessu hlutverki
nema hljóta samþykki þingsins.
Kíríjenko sagði í gær að hann tæki
höfnunina ekki nærri sér, og heim-
ildamenn í Kreml sögðu að Jeltsín,
sem fylgdist með atkvæðagreiðsl-
unni frá bústað sínum skammt frá
Moskvu, hefði heldur ekki látið nið-
urstöðuna raska ró sinni.
Stjórnarandstæðingar eru í meiri-
hluta í Dúmunni, og er Selezníjov I
þeirra hópi. Hann sagði í gær að
með því að hafna Kíríjenko aftur í
næstu viku myndi Dúman dæma
sjálfa sig til upplausnar. „Forsetinn
myndi þá stjórna með tilskipunum
og engin vissa væri fyrir því hvenær
kosið yrði á ný,“ sagði hann.
Jevgení Jasin, settur ráðhen-a,
sem staddur er í Washington, tók í
sama streng í gær og kvaðst telja
líklegt að tilnefning Kíríjenkos yrði
samþykkt í næstu viku.
Leynileg kosning eykur mögu-
Icika Kínjenkos
Kíríjenko þarf stuðning að
minnsta kosti 226 fulltrúa af 450.
115 greiddu atkvæði með honum í
opinni atkvæðagreiðslu í gær, en í
atkvæðagreiðslunni í síðustu viku,
sem var leynileg, gerðu það öllu
fleiri eða 143.
Fréttaskýrendur segja að miklu
skipti hvemig atkvæðagreiðslunni
verður háttað í næstu viku. Sel-
ezníjov kvaðst telja að hún yrði
leynileg, og það yki möguleika Kíríj-
enkos því þingmenn ættu auðveldara
með að víkja sér undan flokkslínum.
Rúmt ár er þangað til kjósa þarf
til þings, og yrðu kosningar nú
kostnaðarsamar og óvíst um úrslit.
Pví væri það slæmur kostur fyrir
Jeltsín. Hættan á að missa þingsæt-
ið og öll þau hlunnindi sem því fylgja
gera kosningar einnig að afarkost-
um fyrir þingmenn.
Reuters
SERGEI Kírfjenkó, skipaður forsætisráðherra Rússlands (t.v.), ræðir
við ónafngreindan þingmann í Dúmunni í gær.
Náttúru-
hamfarir í
- Nashville
ELLEFU menn að minnsta kosti
týndu lífi í miklu fárviðri í Suð-
urríkjum Bandaríkjanna í fyrra-
kvöld og fyrrinótt. Verst var
veðrið í Kentucky, Alabama, Ge-
orgíu og Tennessee, en þar fór
skýstrokkur yfir Nashville. Var
miðborgin eins og vígvöllur yfir
að líta á eftir, ófært um götur
fyrir brotnu gleri og slitnum raf-
magnslínum. Þessi kirkja eða
það, sem eftir er af henni, er í
austurhluta Nashville, en veggir
hennar sprungu og þakið féll.
Þykir það með ólfldndum að eng-
inn skyldi láta lífið í borginni, en
a.m.k. 150 manns slösuðust.
■ Skýstrokkar/22
Líða ekki
þvinganir
Færeyings
MIMI Jacobsen, leiðtogi
danskra Miðdemókrata, segir
flokk sinn ekki munu líða að
færeyski þingmaðurinn Joann-
es Eidesgaard þvingi fé út úr
dönsku stjórninni gegn kröfu
um stuðning við hana.
Jafnaðarmaðurinn Eides-
gaard hefur sagt að stuðningur
sinn við stjórn danskra flokks-
bræðra sinna sé háður því að
Færeyingar verði sáttir við
niðurstöðu Færeyjabankamáls-
ins. I samtali við Berlingske
Tidende í gær segir Jacobsen
að Miðdemókratar muni sjá til
þess að Eidesgaard knýi ekki
fram kosningar, eins og rætt
hefur verið um, vegna þess hve
tæpt stjómin stendur.
Morð í Belfast
Belfast. Reuters.
MAÐUR var skotinn til bana í
Belfast í gærkvöld, en lögregla taldi
þá of snemmt að kveða upp úr um
hvort skotárásin væri hluti af átök-
um andstæðra fylkinga mótmæl-
enda og kaþólikka. Ef svo var, þá
var þetta fyrsta pólitíska morðið frá
því sögulegt samkomulag náðist um
frið á Norður-írlandi fyrir viku.
Fórnarlambið var skotið niður við
leigubílastöð í hverfi kaþólikka í
Vestur-Belfast og lézt af sárum sín-
um á sjúkrahúsi.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, reyndi í gær að sefa ótta
mótmælenda á Norður-írlandi um
að friðarsamkomulagið gæti stefnt
sambandi héraðsins við Bretland í
hættu.
Blair lagði í viðtali á sjónvarps-
stöðinni BBC áherzlu á að hægt
yrði að útiloka fulltrúa Sinn Fein,
helzta stjórnmálaflokks kaþólskra
lýðveldissinna, frá því að taka sæti á
fyrirhuguðu þingi Norður-írlands,
ef hinn vopnaði armur flokksins,
Irski lýðveldisherinn (IRA), sver
ekki af sér allt ofbeldi.
„Ef IRA heldur áfram uppi
merkjum vopnaðrar baráttu (...), þá
eru ákvæði fyrir hendi sem gera
það kleift að útiloka menn eða
svipta þá embætti," sagði Blair.
Leiðtogi stærsta flokks sam-
bandssinna á Norður-írlandi, David
Trimble, tekst í dag á við það erfiða
verkefni á sérstöku flokksþingi í
Belfast að eyða fyrirvöram sem
nokkrir flokksmanna hans hafa
gegn friðarsamkomulaginu vegna
þess að þeim finnst það opna fyrir
að fulltrúar Sinn Fein komist í
valdaembætti án þess að IRA af-
vopnist.
■ Afdrif samningsins/22