Morgunblaðið - 18.04.1998, Side 8

Morgunblaðið - 18.04.1998, Side 8
8 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Rafrænn OROPAR Laugaveji 27 * Rayk|avík Kimxsbraut 112 • Kópavogi 3 B w i Þessi fyrirtæki veita öllum sem greiða með VISA kreditkorti rafrænan afslátt Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt FRÍÐINDAKLÚBBURINN www.fridindi.is • www.visa.is www.mbl.is/fasteignir Breytt fundarsköp rædd í borgarstjórn Tækifæri verði til andsvara KYNNTAR voru í borgarstjórn sl. fimmtudag tillögur um breytingar á samþykkt um stjóm borgarinnar og fundarsköpum. Meðal hug- mynda er að leyfa strax andsvör við ræðum borgarfulltrúa í stað þess að menn þurfi að skrá sig á mæl- endaskrá sem þýðir að margir gætu hafa rætt ýmis önnur málefni en þau sem borgarfulltrúar vilja svara. Guðrún Ágústsdóttir, borgarfull- trúi Reykjarvíkurlistans, og Árni Sigfússon, borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins, endurskoðuðu sam- þykktina og lögðu til nokkrar breytingartillögur. Sögðu þau horft til fundarskapa Alþingis þegar lagt væri til að leyfa andsvör við ræðum borgarfulltrúa áður en næsti maður á mælendaskrá fer í pontu. Telja borgarfulltrúarnir að með því yrði umræðan líflegri og markvissari og tóku aðrir borgarfulltrúar undir það í umræðum um málið. Þá er lagt til að tveggja mánaða hlé geti verið á fundum borgarstjórnar yfir sumarið eins og hefur verið en að það sé ekki bundið við mánuðina júlí og ágúst eins og nú er. Þá lagði Pétur Jónsson til að breytt yrði þeirri hefð sem verið hefur við umræður í borgarstjórn að ekki séu rædd málefni frá borg- arráði sem frestað hefur verið þar. Töldu sumir borgarfulltrúar að nauðsynlegt væri einmitt að ræða mál sem borgarráð hefði til með- ferðar áður en þau væru afgreidd þar. Hnika megi til fundardögum Þá kom fram sú hugmynd að hnika mætti til fundardögum borg- arstjórnar sem ákveðnir eru fýrsta og þriðja fimmtudag hvers mánað- ar. Fundir falla niður ef þessa daga ber upp á almennan frídag. Töldu borgarfulltrúar of langan tíma geta liðið milli funda og gæti það tafið afgreiðslu brýnna mála, ekki síst ef margir fundir lentu á þessum frí- dögum. Ognir við undirdjúpin Þrávirk, lífræn efni í gildru á Norðurhjara? DOKTOR Össur Skarphéðinsson al- þingismaður, líf- fræðingur og ritstjóri, flyt- ur síðasta fyrirlesturinn í röð slíkra á vegum Sjávar- útvegsstofnunar í tilefni af ári hafsins, i sal 4 í Há- skólabíói í dag klukkan 13.15. Fyrirlestur Össurar nefnist Ógnir við undir- djúpin þar sem hann mun fjalla um mengun hafsins og blikur á lofti þar að lút- andi. „Hið merkilega er þegar maður skoðar mengun hafsins að viðbrögð okkar beinast einkum að dramat- ískum og sýnilegum at- burðum. Mengun af völd- um slysa á olíuflutninga- skipum er eitt dæmi en hún er innan við 5% af allri olíu- mengun hafanna. Dagleg losun af völdum umferðar olíuskipa á höf- unum veldur á hinn bóginn 19-20 sinnum meiri mengun en oh'uslys- in. Þetta hlutfall er mjög sláandi.“ - Hvað arwað ógnar hafínu en olíumengunin? „Olían er auðvitað skelfilegur mengunarvaldur en hún er þó líf- rænt efni sem brotnar niður. Fimm alþjóðlegir samningar, sem miða að því að takmarka mengun úti á höfunum fi-á skipaumferð, hafa verið gerðir en almenn meng- un í hafi er einungis fimmtungur af því sem höfin sæta. Um 80% koma frá landstöðu og enginn bindandi alþjóðlegur samningur hefur verið gerður um slíkt ennþá.“ - Hvaða hættur steðja helst að Norðurhöfum? „Eitt af því sem við íslendingar óttumst er geislavirk mengun frá Sellafield. Sesín 137 mælist í Norðurhöfum og fiskinum þar og því mun ég ræða flutningsleiðir hingað. Síðan mun ég fjalla sér- staklega um nýtt efni, teknisíum, sem farið er að sleppa í talsverðu magni frá Sellafield og virðist ber- ast hraðar norður á bóginn. Það er frábrugðið sesíni að því leyti að vera algerlega manngert efni og gríðarlega lífseigt. Helmingunar- tími þess er 213 þúsund ár og mað- ur veit ekki hvaða áhrif það kann að hafa í framtíðinni. Vitað er hins vegar að það mun vera með okkur svo að segja til eilífðar." - Hvað fleira mun koma til með að hafa éhrif á lífríki hafsins? „Þynning ósonlagsins kann að hafa áhrif í framtíðinni en aðalmál- ið sem varðar Island og ég mun fjalla um er þrávirk lífræn efni á borð við DDT og PCB-efni. Þau eru lífseig og rokgjörn, gufa upp þegar hlýnar og berast með straumum, og þegar kólnar falla þau til jarðar aftur. Einhvern tím- ann munu þau berast með vindum inn á kaldari svæði, til dæmis Norðurhjarann eða Norðurhöf. Falli þau niður fyrii- norðan Island eru þau komin inn á svæði þar sem hlýnar aldrei nóg til þess að ferða- lagið haldi áfram og safnast þar saman. Þetta er kallað -------------------- kuldagildra Norður- Fólk kann að hafanna.“ verða hrætt - Hvaða afleiðmgar -- fi k , getur það haft fyrir Vl° T'SKneyslU samfélög þar? Össur Skarphéðinsson ► Össur Skarphéðinsson fæddist í Reykjavík árið 1953. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík árið 1973, BS- prófi í líffræði frá Háskóla ís- lands árið 1979 og doktorsprófi í lífeðlisfræði frá háskólanum í Austur-Anglíu árið 1984. Að því búnu stundaði hann framhalds- rannsóknir á vaxtar- og kyn- hormónum laxfiska í Lundúnum. Össur hefur gegnt starfi sem rit- stjóri Þjóðviljans og Alþýðu- blaðsins og er núna ritstjóri DV. Hann var lektor við Háskóla Is- lands eitt ár, aðstoðarforsljóri Reykvískrar endurtryggingar og náði lyöri til Alþingis árið 1991. Össur var umhverfisráð- herra árið 1993. Hann er kvænt- ur dr. Árnýju Erlu Sveinbjörns- dóttur og eiga þau hjónin dótt- urina Birtu Marsilíu. „Þar sem þessi efni brotna ekki niður flytjast þau upp fæðukeðj- una; frá þörungum í svifkrabba- dýr, sem eru fæða fiska. Þeir verða selum að bráð sem sjálfir eru étnir af tannhvölum og ís- björnum. Á toppi fæðukeðjunnar trónir maðurinn í sumum tilvikum. í ljós hefur komið að hvergi í heiminum hafa mælst jafn gríðar- lega há gOdi af þessum efnum og í spendýrum Norðurhjarans. Enn er miklu minna af þessum efnum í fiski hér við strendur en úti í heimi. Við borðum hins vegar meiri fisk en aðrir og í móðurmjólk íslenskra kvenna hafa fundist af- leiður þessara efna í þriðjungi hæira magni en í Evrópu þar sem mengunin ætti þó að vera meiri. Þetta eru váleg tíðindi. Vitað var að þessi eftii gætu vald- ið alls kyns sjúkdómum, bilun í ónæmiskerfi, örvað krabbamein, aukið ofnæmissvörun og fleira en nú hefur nýlega komið í Ijós að þús- und sinnum minna magn þeirra en áður var talið hættulegt getur vald- ið öðruvísi skaða. Fóstur manna og dýra virðast til dæmis mjög næm fyrir mjög lágu magni þessara efna, sem valda að vísu ekki beinum sjá- anlegum skaða en hafa áhrif á taugakerfi og heila. Einnig hafa þau verið tengd ófrjósemi. Við íslendingar þurfum að berj- ast mjög harkalega gegn þessu, meira en við gemm í dag, á al- þjóðavettvangi. Árangurinn mun kannski ekki sjást fyrr en eftir áratugi eða aldir en það er engu að síður mjög mikilvægt. Mikil um- ræða um þessi heilsu- spillandi áhrif, sem til dæmis hefur verið í Bandaríkjunum, kann að leiða til þess að fólk “verði hrætt við að borða fisk. Ef fólk áttar sig á því að þessi efni muni safnast saman á Norðurhveli kann að draga mikið úr fiskneyslu. Því þarf að svara með vöktun á umhverfinu svo alltaf séu til reiðu upplýsingar sem sýna að fiskurinn okkar er laus við geislavirkni og að minna sé af þrá- virkum lífrænum efnum hér en annars staðar.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.