Morgunblaðið - 18.04.1998, Side 64

Morgunblaðið - 18.04.1998, Side 64
64 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ $3® ®\®v °a, A r t u n ns/e; ■'kur Vagnhöfða 11, sími 567 4090 og 898 4160. Gömlu og nýju dansarnir Tríó Þorvaldar: Harmonika, hljómborð og söngur Húsid opnað kl. 22.00 Matreiðslunámskeið \lndverskir grœnmetisréttir Sykur-, ger-, hveiti-, gluten- og mjólkurafurðalausir. Mánudagana 20. apríl og 26. apríl frá kl. 19-22 og mánudagskvöldið 11. maí frá kl. 19-22 Námskeið á góðu verði. Skráning hjá Shabönu í símum 899 3045, 5541609 og 581 1465. í KVÖLD, danshúsinu glæsibæ 20.30 BARNATONLEIKAR 21.15 Hatiðartonleikar 23.00 Harmonikuball ársins KYNNING OG TILBOÐ Á BRANDONI, DELICIA OG PIGINI HARMONIKUM, SOLTON OG AA CRAAFT HLJÓÐKERFUM. FRUMSÝNING Á VEF ALMENNU U M BOÐSSK RIFSTOFUNNAR Miðaverð: KR. 1 .200 Á TÓNLEIKA OG BALL KR. 900 EFTIR KL. 23.00 FRÍTT FYRIR BÖRN YNGRI EN 12 ÁRA Á TONLEIKA JLdttw jje-ttd- ÚÚLÍ fívrtx, frtífw, fvjtíj/ér Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur FOLK I FRETTUM Pólitískt bull í fjölmiðlum PÁSKARNIR liðu án sérstakra hreta utan sýslumannshretsins og Landsbankahretsins, sem hefur síðan slegið flest met í anarkí. Nú eiga Jóhanna og alþýða landsins að ráða, stefna sjúkum manni eins og DV iagði til af alkunnum mannkærleika sínum og loka Al- þingi og öðrum stjórnstofnunum sem leyfa sér að halda uppi risnu og dirfsku í símakostnaði. Fyrst búið er að benda á Strandir sem heppilegt Gulag mætti losna við úr hófi, en af því yfirleitt þýðir ekki að opna fyrir neina fjölmiðla á helgihátíðum eins og Páskum öðruvísi en sé verið að öskra á mann úr einhverjum lítt kunnum óperum sem dagskrársérvitring- ar hafa fundið rykfallnar í London - París eða Róm, er betra að halla sér að vídeósjón- varpinu. Líklega verðum við að búa við videó-fátæktina þangað SJÓNVARP Á 1Lír LAUGARPEGI mikið af kansellífólki þangað, að ekki sé talað um hvað heppilegt er að hafa Gulag eftir að dómstóll götunnar er tekinn til starfa. Af sjónvarpi er ósköp lítið að frétta innan um öll hin tíðindin, þótt minnast megi á nokkra þætti, sem voru afbrigðilega skarpir miðað við venju, eins og Dagsljós á þriðjudagskvöldið, þar sem fjár- hagshorfur borgarinnar bentu til þess að leggja verði blátt bann við frekari barnsgetnuðum. Yrði Reykjavík óðara með ríkari borg- ríkjum ef fólk reyndi að hafa hemil á sér á getnaðarsviðinu, en í Dagsljósi mátti heyra um hinn gífurlega vanda sem stafar af lausagöngubörnum í borginni. Pá gengur iila að fækka bflum í um- ferðinni þótt við liggi að kominn sé strætisvagn á mann. Þeim er bara keyrt tómum sinn veg. A Páskadag voru tvær myndir sýndar á Stöð 2 sem vel mátti eyða kyrriátu kvöidi í að horfa á. Að vísu voru þær ekki kristilegar urum hvað sem þeir ásamt dag- skrárfólki kunna að hafa gaman að því að deila og drottna, heldur eru þau rekin til að mennta fólk og skemmta því og halda uppi hinum íslenska hiut í dagskránni. Það gerir nær enginn nema Omar Ragnarsson, og þótt hann sé stundum með mikrófóninn oní koki á fólki um hundrað ára aldur fer hann aldrei erindisleysu. Sjónvörpin verða að kunna að eyða peningum í stað þess að efla hag umbjóðenda erlendra kvik- mynda. Þrátt fyrir þetta var nokkur skemmtun að myndunum Fyrirbærinu með Travolta og Akvörðun á æðstu stöðum með Kurt Russel. Að vísu hafði bar- dagahundurinn Segal verið boð- aður til leiks en hann lék eigin- lega ekki í myndinni og sparaði það umtalsvert af blóðvatni. Rúsínan í samanlagðri sjón- varpadagskrá um Páskahelgina var leikritið Konur skelfa eftir Hlín Agnarsdóttir, sem virðist skæður leikritahöfundur og leik- stjóri. Leikritið gerist á kvennaklósetti á veitingastað í miðborg Reykjavíkur. Fimm kon- ur leika, þær Anna Elísabet Borg, Asta Arnardóttir, María Elling- sen, Steinunn Olafsdóttir og Val- gerður Dan. Auk fyi-rgreindra lék Kjartan Guðjónsson eina karl- hlutverkið. Það er auðséð á þessu leikriti að konur eru hættar að ganga með svuntur, sjóða fisk á mánudögum, skamma krakka og hella úr koppum. Mikið er gaman að þeim í því nýja, upprétta og bjarta hlutverki, sem þær boða í þessu verki, kjaftforar eins og verstu karlmenn og kröfuharðar fyrir sjálfra sín hönd. Frelsið á kvennaklósettinu virtist ná til allra helstu eðlisþátta mann- skepnunnar, líka kynlífs, sem lengi hefur verið hjúpað einhverri nítjándu aldar feimni. Kannski konur séu orðnar „liherated". Þótt um hálfgerðan ærslaleik hafí verið að ræða á köflum, þá léku allir leikararnir mjög vel. Helst var að María Ellingsen bæri af og var stundum eins og hún ætlaði að rífa karlpeninginn á hol. María Ellingsen hefur nokkra leik- reynslu bæði á sviði og í kvik- myndum, þótt kvikmyndaleikur kenni fólki svo sem ekki neitt vegna fábrotinnar leikstjórnar. í leikritinu, Konur skelfa, fór María Ellingsen á kostum og lék stjörnuleik. Ahorfendur urðu raunar vitni að því að stjarna fæddist. Indriði G. Þorsteinsson I jflfe n mm 1 Vettvangur fólks I fasteignaleit V® - mbl.is/fastelgnir LEIKRITIÐ „Sitt sýnist hvetj- um“ var flutt af þeim Agnari Benediktssyni, Perlu Sigurðar- dóttur (sem liggja) og Eyþóri Stefánssyni og Ola Stefánssyni. SÝNDUR var frumsaminn, stældur og stolinn „Spice Girls“ dans af þeim Lindu Kjartans- dóttur, Steinunni Sigurðardótt- ur og Perlu Sigurðardóttur. UTSRLR R ÚTLITS- GÖLLUÐUM VÖRUM UM HELGINR Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Um helgina geturðu gert kjarakaup í IKEA því við bjóðum útlits- gallaðar vörur á frábæru verði í verslun okkar við Holtagarða. HLLT FRR 30 - 70% RFSLRTTUR sem veltur á galla vörunnar. Komdu og notfærðu þér þetta einstaka tækifæri til að gera frábær kaup. OPIÐ OLLfi DflGfl 10 100 - 18:30 VlftKR OftOft 10:00 - 17:00 LftUGftftDftOft 13:00 - 17:00 SUNNUDftOft Dansar og músagangur -fyrir alla muni ► NEMENDUR Skjöldólfsstaða- skóla héldu árshátíð sína nýiega. Hátíðin var með fjölbreyttu efni svo sem tónlist, leiklist, dansi og söng. Þrír stuttir leikþættir voru fluttir sem hétu, „Sitt sýnist hverjum" og „Gildran". Einnig var á dagskrá leikþátt- urinn Músagangur sem er frum- samið verk eftir einn nemanda skólans, Hrafnkötlu Eiríksdóttur, sem verður tíu ára í maí næst- komandi. Nemendur í Tónlista- skólanum fluttu tónlistaratriði undir stjórn skólastjóra Tónlista- skólans, Julian Edward Isaacs. Léku krakkarnir á flautu og pí- anó auk þess sein bjöllukór lék nokkur lög. Heitustu dansarnir voru sýndir svo sem frumsamdir dansar í anda Snaranna og Spice Girls. Arshátíðinni lauk með því að krakkarnir sungu skólasönginn við texta Oddbjargar Sigfúsdótt- ur undir stjórn Þórðar Sigvalda- sonar söngkennara. Leikstjóri krakkanna var Þórunn Jóseps- dóttir, kennari við skólann, og skólastjóri Skjöldólfsstaðaskóla er Sverrir Kristinsson. Að lokitm var gestum boðið upp á kaffí og meðlæti. Að síð- ustu var seldur aðgangur í ýmiss konar leiktæki, þar sem langvin- sælast var að skjóta í mark með skammbyssum og rifflum að skotbökkum er nemendur liöfðu sjáifír undirbúið. I skotkeppninni komu í ljós margar efnilegar refa- og hreindýraskyttur fram- tíðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.