Morgunblaðið - 18.04.1998, Page 2
!
2 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
GENGUR Á MEÐ SKÚRUM
Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur
Matvæla-
framleiðsla
stöðvuð
HEILBRIGÐISEFTIRLIT
Reykjavíkur hefur samþykkt
að banna framleiðslu á við-
kvæmum matvælum í eldhúsi
Myndlista- og handíðaskólans
þar sem aðstaðan í eldhúsinu
er talin ófullnægjandi.
Árný Sigurðardóttir, hjúkr-
unarfræðingur hjá heilbrigð-
issviði Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, sagði í samtali
við Morgunblaðið að litið hefði
verið á staðinn vegna kvart-
ana um silfurskottur.
Þótt silfurskottur hefðu
ekki fundist við athugun hefði
ýmislegt þótt vanta upp á að-
stöðu til að framleiða við-
kvæm matvæli í eldhúsinu.
Ekkert þætti á hinn bóginn
mæla gegn venjulegum
„sjoppurekstri" í húsnæðinu. í
eldhúsinu hefur verið elduð
súpa, smurt brauð og útbúinn
annar matur sem talinn er
viðkvæmur. Meindýraeyði
hefur verið falið að kanna silf-
urskottumál eldhússins og
skólanum veittur frestur til
úrbóta og kvaðst Árný eiga
von á að leyfi yrði veitt fljót-
lega aftur.
Utanríkisráðherra ræddi við varautanrikisráðherra Bandarfkjanna
Vilja viðhalda
óbreyttu varnar-
samstarfí
„ÞETTA var gagnlegur fundur þar
sem rætt var um samstarf á norður-
slóðum, umhverfísmál, nýtingu auð-
linda hafsins og vamarsamstarfíð,“
sagði Halldór Asgrímsson utanrík-
isráðherra um viðræður sínar við
Thomas R. Pickering, varautanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, sem
fram fóru í Washington í gær. Sagði
ráðherra að Pickering hefði staðfest
að fullur vilji Bandaríkjastjórnar
væri til þess að varnarsamstarf
ríkjanna yrði óbreytt.
„í viðræðum um varnarsamstarf-
ið kom fram að það er fullur vilji
Bandaríkjamanna að vinna að þeim
málum á sama grundvelli og í dag.
Við sögðumst gera okkur grein fyr-
ir þvi að mikilvægt væri að minnka
kostnað við rekstur stöðvarinnar i
Keflavík sem við höfum unnið að og
þeir lýstu því yfir að þeir myndu
vilja viðhalda þessu samstarfi með
sama hætti og verið hefði á grund-
velli varnarsamningsins," sagði
Halldór Ásgrímsson.
„Það sem var að mínu mati mikil-
vægast á þessum fundi er áhugi
sem verið hefur fyrir því að halda á
íslandi árið 2000 ráðstefnu um rétt-
indi kvenna á Norðurlöndunum,
Eystrasaltsríkjunum og Rússlandi.
Við buðumst til að halda fundinn og
hefur komið til tals að Hillary Clint-
on, forsetafrú Bandaríkjanna, stýri
fundinum, og teljum við það æski-
legt.“
Áhersla á stuðning við
Eystrasaltsríkin
Varðandi samstarf á norðurslóð-
um sagði utanríkisráðherra að rætt
hefði verið um samstarf við Eystra-
saltsríkin og kvaðst hann ánægður
með hvernig Bandaríkjamenn hafa
tekið á því. „Þeir leggja áherslu á
þátt íslendinga og við erum sam-
mála um að vinna að aðild þessara
ríkja að Atlantshafsbandalaginu en
það mun taka einhvern tíma,“ sagði
ráðherrann. Kvað hann Bandaríkja-
menn leggja áherslu á að Islending-
ar héldu áfram aðstoð við Eystra-
saltsríkin í samvinnu við hin Norð-
urlöndin.
Þá ræddu ráðherrarnir um stöð-
una eftir Kyoto-samkomulagið og
kvaðst utanríkisráðherra hafa
kynnt þá afstöðu Islands að nýta
áfram endurnýjanlegar orkulindir.
Sagði hann Bandaríkjamenn hafa
heitið samstarfi um þá afstöðu.
Einnig var rætt um nýtingu auð-
linda hafsins og kvaðst Halldór Ás-
grímsson hafa greint frá því hvem-
ig fiskveiðistjóm hefði verið byggð
upp hér. „í framhaldi af því spunn-
ust umræður um seli og hvali og ég
tjáði þeim að við myndum vilja nýta
þá stofna í framtíðinni á vísindaleg-
um grundvelli og ég tel að hann hafi
sýnt mikinn skilning á því. Okkur er
hins vegar ljós viðkvæmni þess
máls í Bandaríkjunum en ég tjáði
þeim að við myndum ekki komast
hjá því að nýta þessa stofna eins og
aðra í framtíðinni þannig að Banda-
ríkjamönnum er það vel ljóst.“
Eiturefni hugsan-
lega á reki í
sjónum við ísland
Fólk
hvatt til
varfærni
HOLLUSTUVERND ríkisins
beinir þeim tilmælum til al-
mennings að gæta varkárni
vegna hugsanlegs reka við
strendur landsins, en um er
að ræða tunnur og flöskur
með hættulegu efni sem notað
er í lyfjagerð.
Davíð Egilsson hjá þeirri
deild Hollustuverndar sem fer
með mengunarvamir sjávar
segir möguleika talinn á að
þessar umbúðir geti rekið til
landsins eða komið í veiðar-
færi. Rekist einhver á umrætt
efni, er viðkomandi beðinn um
að tilkynna fundinn án tafai’ til
Landhelgisgæslu eða heil-
brigðiseftirlits sveitarfélaga.
Um 7,8 tonn
fóru í hafið
Bryndís Skúladóttir hjá eit-
urefnasviði Hollustuverndar
segir að fyrir seinustu helgi
hafi stofnuninni borist til-
kynning um að rekið hafi á
land í Skotlandi brúna flösku
með 200 grömmum af efninu
3-(klórmetýl)pýridín hýdrók-
lóríð.
„Samkvæmt upplýsingum
frá framleiðanda er um hvítt
efni að ræða sem er notað í
lyijagerð og því ekki á al-
mennum markaði. Efnið er
ertandi fyrir húð, augu og
öndunarfæri, auk þess sem
grunur er um að það sé
krabbameinsvaldandi. Það
leysist hins vegar upp í vatni
og brotnar þá niður í hættu-
minni efni,“ segir Bryndís.
Hún segir að við eftir-
grennslan hafi komið í ljós að í
desember síðastliðnum hafi
tveir gámar týnst á siglinga-
leiðinni milli Evrópu og
Bandaríkjanna, sem innihéldu
um 130 tunnur sem hver
geymir um 60 kíló af um-
ræddu efni í duftformi, eða
alls um 7,8 tonn. Að auki voru
í einni tunnu 19 flöskur eins
og sú sem fiskimaður fann við
Skotland. Fundurinn var til-
kynntur skoskum yfirvöldum
3. apríl síðastliðinn.
„Helsta hættan sem ég sé í
sambandi við þetta mál er að
tunnumar eða flöskumar reki
á land og óvitar eða aðrir slíkir
opni þær og annaðhvort snerti
efnið eða lykti af því. Við
þekkjum skelfilegar afleiðing-
ar þess þegar t.d. tréspíritus
hefur reldð á land og fólk ekki
gætt varúðar. Að öðm leyti er
eiginleg mengunarhætta á haf-
inu hverfandi af völdum þess-
ara efna, enda um fremur litlar
einingar að ræða,“ segir Davíð.
ÞAR SEM
STRAUMAR
MÆTAST OG
DRAUMAR
RÆTAST
Listahátíð í Reykjavík 1998
norrænir
MENN A
GRÆNLANDI
US«B
BÖRN ÍTÆLENSKUM SKÓLUM
nwg - BMBi psgjBSBBBB
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
íþróttir
Nökkvi Már Jónsson úr leik
vegna meiðsla/B1
Verða tvennir íslandsmeistarar
krýndir um helgina?/B1, B2, B4