Morgunblaðið - 18.04.1998, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Er grunnurinn heilbrigður?
Á ALÞINGI hefur verið lagt
fram stjórnarfrumvarp um gagna-
gnmna á heilbrigðissviði. Safn
upplýsinga um heilsufar þjóðarinn-
ar hefur lengi verið mikilvægt tæki
til að miðla upplýsingum, bæta
heilsufar og til þess að stýra stór-
um hluta ríldsútgjaldanna skyn-
samlega. Knýjandi er að verja
framlögum til heilbrigðismála sem
best, en til þess þarf sem fyllst og
aðgengilegast safn þeirra upplýs-
inga sem aflað er í heilbrigðiskerf-
inu. Nú er vel framkvæmanlegt að
koma upp slíkum tölvuvæddum
gagnagrunni og þegar hann er
kominn í gagnið getur hann örugg-
lega leitt til þess að heilbrigðis-
þjónusta verði hagkvæmari og
betri. Stóri þröskuldurinn er að
koma upp gagnagrunninum, til
þess þarf milljarða króna. Þær er
vart hægt að sækja í ríkissjóð,
a.m.k. ekki ef aðrar leiðir eru fær-
ar.
Ríkisstjórnin hefur komið auga á
leið sem birtist í áðumefndu laga-
frumvarpi, en þar er líka ýmislegt
sem vekur spurningar: 1) Hver á
að kosta gagnagrunn-
inn? 2) Hver á að hafa
gagnagrunninn með
höndum? 3) Er verj-
andi að safna miklu af
persónuupplýsingum í
einn stað? 4) Eru
mannréttindi brotin
með framsali á per-
sónuupplýsingum? 5)
Er hægt að veita
einkaleyfí á upplýsing-
um í þjóðareign? 6)
Utilokar einkaleyfi að
aðrir fái eðlilegan að-
gang að upplýsingum
um heilsufar, t.d. Ólafur S.
vegna mikilvægra vís- Andrésson
indarannsókna?
Margt af þessum spurningum og
þeim svörum sem heyrst hafa er
byggt á misskilningi eða á getgát-
um um atriði sem bíða þess að
verða útfærð hjá heilbrigðisráðu-
neyti og tölvunefnd. En lítum á
hverja spurningu íyrir sig:
1) I reynd er það ríkisvaldið sem
kostar gagnagrunninn með því að
framselja upplýsingar og í staðinn
er byggt upp kerfi
sem gætir nafnleynd-
ar þegar höndlað er
með upplýsingar frá
einstaklingum. Ríkis-
valdið er ekki réttur
aðili til að markaðs-
færa ónafntengdar
upplýsingar um sjúk-
dóma o.fl. Það er verk-
efni sérhæfðra fyrir-
tækja í samvinnu við
ríkisvaldið.
2) Það er ekki meg-
inatriði hver starfræk-
ir gagnagrunninn
heldur hver hefur að-
gang að honum og
hvemig eftirliti er
háttað. I frumvarpinu eru sett
ströng skilyrði um hvernig gagna-
grunninum verður háttað. Frekari
útfærsla og eftirlit verður í hönd-
um þeirra aðila sem best geta gætt
réttar almennings og einstaklinga,
tölvunefndar og vísindasiðanefnd-
ar. Færa má rök fyrir því að þeir
sem eiga hlutfallslega mestra hags-
muna að gæta, þ.e. fyrirtækið sem
ISLEIVSKT MAL
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
949. þáttur
NOKKRAR breytingartillög-
ur með innskotum og útúrdúr-
um:
1) I stað þess að segja „inni-
bera“ komi fela í sér. Dæmi:
Kenningin felur það í sér, en
ekki: Kenningin? inniber. Hið
síðara er hrá danska. Enn vitna
ég til Halldórs Klljans Laxness
sem sýndi fram á ótrúlega mikil
skandínavísk áhrif á mál okkar
nú síðustu áratugi. Og sam-
kvæmt kenningu hans eru ís-
lendingar orðnir svo vondir í
dönsku að þeir vita ekki hvenær
þeir sletta henni. Halldór sagði
að um síðustu aldamót hefðu all-
ir íslenskir blaðamenn verið svo
góðii* í dönsku, að þeir vissu
hvernig átti að varast hana og
slettu henni ekki.
2) í stað „eignaraðilar" fs-
lenskrar getspár, komi eigendur
í.g. Þetta þarfnast ekki skýr-
inga. Menn hljóta að sjá hvað
hið síðara er fallegra.
3-4) Með sömu rökum breytist
„sóknaraðilar“ og „varnaraðilar“
í sækjendur og verjendur.
5) „Innkoma" breytist í tekj-
ur. Á skömmum tíma hefur út-
lenda orðið „innkoma" í þessari
merkingu breiðst út með ógnar-
hraða. Tekjur og gjöld höfum
við sagt og dugir vel. Eigum við
kannski að stíga sporið til fulls
og segja ?innkoma og ?útkoma?
Því má bæta við, að orðið inn-
koma er ekki félegt í beygingu.
Hvernig er eignarfall fleirtölu?
Við getum vandræðalaust talið
okkur eitthvað til tekna og rætt
um mismun gjalda og tekna. En
teljum við okkur eitthvað til
?innkoma, eða ?innkomna. Er
mismunur ?innkomna og út-
gjalda?
6) Koma breytist í vera, þegar
skýrt er frá uppruna fólks. Ey-
steinn Jónsson var frá Djúpa-
vogi, því að þar ólst hann upp.
En því aðeins „kom“ hann frá
Djúpavogi, að hann væri á ferð
þaðan. Hans van den Broek er
frá Hollandi, en „kemur“ ekki
þaðan, nema sérstaklega standi
á.
7) Öðruvísi er atviksorð og
krefst framhalds. Það er rangt
að segja að þetta sé „öðruvísi
ferð“ og sleppa en hvað. í stað
hins er rétt að segja sérstæð eða
óvenjuleg.
8) Við förum ekki „niður til
Evrópu“. Við erum í Evrópu. En
við gætum sem best farið suður
á meginland Evrópu (megin-
landið).
9) í stað sagnarinnar að
„funda“ sem er í stíl við að
„hesta“ eða „bíla“ skulum við
segja hittast, þinga, ræðast við
eftir atvikum. Netanyahu og
Arafat hittust að máli.
10) í staðinn fyrir að „skíða“
samber „hesta“ og „bíla“ getum
við sagt margt, eftir því hver
skíðaíþróttin er. í skíðagöngu
ganga menn, skíða ekki. í bruni
bruna menn eða renna sér,
skíða ekki. í svigi renna menn
sér, skíða ekki. í skíðastökki
stökkva menn, skíða ekki, og
hvernig væri annars í sambandi
við svigið að búa til annaðhvort
sterku sögnina svíga - sveig -
svigum - svigið eða veiku sögn-
ina sviga - svigaði - svigað? Eða
nota jafnvel sveigja?
Að fara á skíðum styttir stund,
stúlku fríða spenna mund,
sigla um viði húna hund,
hesti ríða slétta grund.
(Hagkveðlingaháttur)
Höfundur þessarar vísu hefði
aldrei stytt sér stundir við að
„hesta“, né heldur „skíða“.
★
Samruni (contaminatio)
Kæra Tryggvina, tefðu nú grátinn,
þó hann Týri í Brekku sé látinn
eða riðinn á Kjalveg,
því kannski hefði hann alveg
yfirgefið þig eina upp á bátinn.
(Steinvör á Keldum)
★
tír prófunum. Ritgerð á
landsprófi undir fyrirsögninni
Hrognkelsi. Leturbreytingar
hefur umsjónarmaður gert:
„Hrognkelsinn er meindýr af
skolpdýraættinni. Hann hefur
einn maga, en út úr honum
ganga níu botnlangar. Þegar
hann verður fyrir árás spýr
hann frá sér dökkleitum vökva,
og verður þá óvinurinn svartur í
framan.“
★
Við notum orðið skopstæling
um það sem heitir á grísku par-
odeia. Það hefur verið skilgreint
á ensku: „A song sung alongside
another," það er „söngur sung-
inn meðfram eða til hliðar við
annan.“ Ég held að það sé best
að sýna þetta strax með dæm-
um.
Ég lít í anda liðna tíð
sem leynt í hjarta geymi.
Sú ljúfa minning, létt og hljótt
hún læðist til mín dag og nótt,
svo aldrei, aldrei gleymi.
(Halla Eyjólfsdóttir á Laugabóli)
Églítíandaliðnatík
sem lést úr miltisbrandi.
Sú Ijósmórauða loðna tik,
hún lenti út í Bolungaivík
og lifði í hundastandi.
(Okunnur skopstælandi)
Þetta nýtur sín enn betur sem
„song sung alongside another".
Eða þá:
Við hafið eg sat fram á sævar-bergs stall
Og sá út í drungann,
Þar brimaldan stríða við ströndina svall
og stundi svo þungan.
(Steingr. Thorsteinsson)
Við hafið ég sat fram á sævar-bergstall
og smámeyjan hjá mér.
Þá kom upp úr hafinu há-há-hákall
og át hana frá mér.
- Og stundi svo þungan.
(Okunnur stælandi)
Beri menn svo að síðustu
Geggjaðan ástaróð Birgis Svans
Símonarsonar saman við Ljóða-
ljóðin:
tennur þínar einsog röð hvítra fólk-
svagna
hörund þitt einsog eftir hvítan storm-
sveip
augu þín tær einsog lakk á nýbónuðu
tryllitæki
fætur þínir smart hannaðir
bijóst þín einsog ís í brauði
ást mín heit einsog nýsteiktur hamborg-
ari
kossar þínir sætari en kók
skaut þitt einsog sæti í Citron delux
Tryggir vinir þessa þáttar þreyta sína
ferð.
Ýmist dagar eða náttar;
er sú skipan gerð.
Gleðilegt sumar, og þökk fyr-
ir veturinn.
Gagnagrunnurinn
ásamt möguleikum á
tengingum við erfða-
upplýsingar, segir Olaf-
ur S. Andrésson, mun
efla vísindastarf á heil-
brigðissviðinu.
útvegar fjármagnið, muni best
reka gagnagrunninn.
3) Gagnagrunnurinn verður ekki
notaður til að afla upplýsinga um
einstakar persónur, upplýsingam-
ar eru ekki tengdar nöfnum.
Einmitt þess vegna er verjandi að
safna saman upplýsingum um stór-
an hluta þjóðarinnar. Þar að auki
mun almenn notkun á dulkóðunar-
tækni strax við fyrstu tölvuskrán-
ingu auka persónuvemd frá því
sem nú er.
4) Engar nafntengdar upplýs-
ingar verða færðar í gagnagrann-
inn. Hver og einn mun eftir sem
áður geta óskað eftir að engar upp-
lýsingar um sig verði framseldar.
Menn geta jafnframt velt því fyrir
sér hvort það er ekki siðferðileg
skylda einstaklingsins að veita
heilbrigðisyfirvöldum upplýsingar
sem geta varðað almannaheill,
a.m.k. undir nafnleynd.
5) Einkaleyfið takmarkast við
það sem um semst við heilbrigðis-
ráðuneyti og heilbrigðisstofnanir
og hlýtur að miða við það sem
hægt er að markaðsfæra, hvort
sem það er hluti af upplýsingum
eða hugbúnaður gagnagrannsins.
Sala upplýsinga er notuð til að
kosta gagnagranninn. Hætt er við
að sú sala geti verði endaslepp ef
samkeppnisaðilar geta selt sömu
upplýsingar fyrirhafnarlítið.
Þannig er einkaleyfið ekki á upp-
lýsingunum heldur á sölu þeirra
eða hluta þeirra.
6) I framvarpinu kemur skýrt
fram að aðgangur annama að heil-
brigðisupplýsingum verður ekki
skertur, nema hvað varðar leyfi til
sölu á upplýsingum. Þvert á móti
mun aðgangur stjómvalda og
þeirra sem stunda vísindarann-
sóknir verða betri að upplýsingum
gagnagrannsins en persónutengd-
um upplýsingum sem vistaðar era
á ótalmörgum stöðum.
Ekki verður annað séð en að
gagnagrannurinn ásamt möguleik-
um á tengingum við erfðaupplýs-
ingar muni efla vísindastarf á heil-
brigðissviðinu. Ríkisstjórnin hefur
sýnt þá framsýni að leggja grann
að framföram í heilbrigðisþjón-
ustu, stjómsýslu og vísindum með
tillögum að rammalöggjöf um
gagnagranna á heilbrigðissviði. Nú
er það löggjafans að gera fram-
kvæmdavaldinu kleift að breyta
möguleikanum í veruleika. I kjölfar
lagasetningar taka við vandasöm
verk sem munu taka drjúgan tíma
og þau þarf að hefja sem fyrst.
Höfundur vinnur að rannsóknum
við Tilraunastöð HÍ í meinafræði á
Keldum.
Lax og
lærdómur
ENN einu sinni
berast fregnir af lax-
veiðikostnaði ríkis-
bankanna. Nú kemur í
ljós, ef allt er með
talið og eftir nokkuð
óöiyggi í útreikning-
um bankastjóra, að
laxveiðikostnaður hjá
Landsbankanum ein-
um hafi verið rúmlega
8 milljónir króna að
jafnaði sl. 5 ár.
Fjárveitingar til
menntamála
Til samanburðar
hafði Þróunarsjóður
grannskóla menntamálaráðuneyt-
isins 8,3 milljónir til ráðstöfunar
fyi-ir skólaárið 1996-1997. Úr
sjóðnum vora veittir styrkir til 24
þróunarverkefna sem samtals 28
skólar og fleiri aðilar stóðu að. Ný-
lega fékk Rannsóknastofnun upp-
eldis- og menntamála um 5 millj-
ónir til að vinna nánar úr TIMSS-
könnununum, en ekki voru ætlað-
ar neinar fjárveitingar til verksins.
Fyrir 8 laxveiði-milljónir hefði ver-
ið hægt að fá ritþjálfasett og
kennslugögn í 10 skóla eða kaupa
margmiðlunartölvur í öll bókasöfn
í grunnskólum Reykjavíkur auk
margmiðlunarefnis.
TIMSS og hvað svo?
Hvernig hefði staðan verið eftir
nokkur ár hefðum við ekki fengið
niðurstöður úr TIMSS-könnun-
inni? Niðurstöður komu þó fæstum
á óvart. Nokkur sveitarfélög hafa
bragðist skjótt við. Sum hafa sett
fram áætlanir og boðið upp á end-
urmenntun í stærðfræðikennslu
fyrir grannskólakennara og önnur
hafa sent skólastjóra til að kynna
sér hvemig aðrir náðu góðum ár-
angri í könnuninni. Vonandi verð-
ur miklum fjármunum varið til að
bæta stöðuna og veitir þá heldur
ekki af að kanna hvaða aðferðir
gefa bestan árangur.
Forgangsröðun fjár-
muna
Nú þegar dregur að
sveitarstj órnarkosn-
ingum kemur það
óneitanlega upp í hug-
ann hvernig stjórn-
málamennimir, sem
við kjósum, fara með
skattpeningana okkar.
Þeir geta að vísu ekki
skammtað sér digra
sjóði til að fjárfesta í
námi eins og banka-
stjóramir gerðu í laxi
Örn en það skiptir máli
Guðmundsson hvemig þeir forgangs-
raða þeim fjármunum sem þeir
hafa til ráðstöfunar. Þó mikið sé
látið með það af hálfu sveitarfé-
lagsins Reykjavík að fjárátlát til
grannskólans séu einn stærsti
Opinber útgjöld til
fræðslumála eru með
því lægsta sem gerist
í Evrópu, segir Örn
Guðmundsson, þrátt
fyrir að á Islandi
búi ein yngsta þjóð
Evrópu.
málaílokkurinn þá era opinber út-
gjöld til fræðslumála samt með því
lægsta sem gerist í Evrópu þrátt
fyrir að á íslandi búi ein yngsta
þjóð álfunnar. Er ekki kominn tími
til að við breytum forgangsröð-
inni? Sveitarstjómarmenn - það
er í ykkar höndum hvemig fjár-
munum til skólamála er varið. Ef
vel tekst til eru miklar líkur á að
bankastjórar framtíðarinnar geti
reiknað rétt út hina ýmsu kostnað-
arliði bankanna.
Höfundur á sæti ísijórn SAMFOKS.