Morgunblaðið - 18.04.1998, Side 42

Morgunblaðið - 18.04.1998, Side 42
42 LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ FORVARNIR OG FORELDRAFRÆÐSLA FORVARNIR virðast vera lausn á hvers kyns vandamálum sem steðja að í þjóðfélag- inu. Petta á t.d. við um fíkniefnavandann. Merking orðsins er stundum óræð og ekki auðvelt að átta sig á við hvað er átt. Hug- myndin, að hægt sé að koma í veg fyrir að vandamál verði til, er fyrst og fremst póli- tísk í eðli sínu, því hún felur í sér að hægt sé hafa áhrif á aðstæður sem skapa vandamálin. Hugtakið er víða að finna í lögum og almennur vilji virðist vera fyrir forvarnastarfi. Hinsvegar sést það á aðgerðunum hvort um raunverulegan vilja er að ræða. eða hvort hugtakið þjónar sem friðþæging. Á sviði félagsvísinda er gerður greinarmunur á hugtakinu forvörn- um eftir því á hvaða sviði þjóðfé- lagsins þær fara fram. Fyrsta stigs forvamir miðast við að breyta upp- byggingu þjóðfélagsins og þróun til að koma í veg fyrir að vandamál verði til. Aðgerðirnar beinast þá oft að þjóðinni sem slíkri t.d. gegnum aðgerðir í efnahagsmálum og vinnumarkaðsmálum. Annars stigs forvamir beinast að þeim sem era skilgreindir í áhættu og gætu þróað með sér vandamál, t.d. unglingar sem flosna úr skóla og atvinnulaus ungmenni. Tillögur Umboðsmanns bama um opinbera fjöl- skylduráðgjöf fyrir for- eldra, sem í hyggju hafa að skilja eða slíta sambúð, og börn þeirra er dæmi um annars stigs forvöm. Þriðja stigs forvamir snúast um að koma í veg fyrir að vandamál, sem þeg- ar hafa orðið til, versni. Aðgerðirnar era þá yf- irleitt einstaklingsmið- aðar og getur verið erfitt að draga mörkin milli þess hvenær forvamir hætta og meðferð hefst. Þarfir barna Forvörn gegn fíkniefnum og ýmis konar félagslegum vanda, sem bæði er einföld í framkvæmd og gæti skilað sparnaði fyrir þjóð- arbúið, er að veita foreldrum leið- sögn í foreldrahlutverkinu á öllum þroskastigum barna. Hvernig til tekst að sinna þörfum barna fyrir varanleg náin tengsl, ástúð og ör- yggi fyrstu æviárin hefur áhrif á allt líf þeirra. Það má segja að á fyrstu áranum sé „forritið“ hannað sem ákvarðar hvernig einstakling- urinn skynjar sjálfan sig og um- hverfi sitt alla lífsleiðina. Elín Elísabet Halldórsdóttir sálfræð- ingur kemur inn á þetta í grein sinni (Mbl., 28.03.1996): „Ef brest- ur verður á að tillitssöm tengsl geti myndast á milli foreldra og barns höfum við þegar lagt grann að tilfinningavanda barnsins. Ef foreldrinu hefur ekki tekist að spegla sig í lífsgleði barnsins og fullnægja framþörfum þess er lagður grannur að neikvæðri til- finningareynslu barnsins. Með þessa reynslu fer barnið út í heim- inn og túlkar hann, góðan, vondan, fallegan, ljótan, réttlátan eða ósanngjarnan. Fjölmargar sál- fræðilegar rannsóknir á ungbörn- um hafa verið birtar síðustu ár sem benda á að s.k. snemm- skemmdir verði á fyrstu þremur áram barnsins og verður barnið að lifa við afleiðingarnar það sem eft- ir er“. Þessi vitneskja gefur til kynna mikilvægi þess að þarfir barna séu ávallt í fyrirrúmi. For- eldrahlutverkið þarf að fá verð- skuldaðan sess í þjóðfélaginu. Veita þarf foreldram greiðan að- gang að leiðsögn við uppeldi barna sinna, óski þeir þess. Þá er ekki átt við að sérstök vandamál þurfi að vera til staðar heldur ætti að koma í veg fyrir að eðlilegir erfiðleikar verði að vandamálum. Foreldrarnir mikilvægastir Foreldrar eru mikilvægastir allra í lifi barna og unglinga. Þeirra þáttur í forvörnum gegn fíkniefnum er stór hvort sem um löglega eða ólöglega vímugjafa er að ræða. Foreldrar eru fyrir- myndir barna sinna og bera ábyrgð á þeim samkvæmt lögum. Þeir eru best í stakk búnir til að uppfylla þarfir þeirra. Foreldrar finna þessa ábyrgð og vilja búa börnum sínum góð uppeldisskil- Mikíá úrvai af fialiegum rúfflffltnaái SkóbvðrðusHg 21 Sámissi 4050 Rcykiavik. ►borgarbókasafn REYKJAVÍKU R Afmætisdagskrá í Tjarnarsal Ráðhússins 19. apríl kl. 13:00 ^ júlfkvarteltinn leikur. ^ Ávörp Anna Torfadóttir borgarbókavörður og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri ^ Reykjavfk í bókmenntum Rithöfundarnir Steinunn Sigurðardóttir, lllugi Jökulsson, Ingibjörg Haraldsdóttir og ÓlafurGunnarsson tesa úrverkum sínum. ^Stúlknakór Reykjavíkur syngur ^Smásagna- og Ijóðasamkeppni barna og unglinga Afhending viðurkenninga Borgarbókasafns. ^Borgarafundur Hvernig vil ég hafa bókasafnið mitt? Börn og unglingar segja álit sitt og sitja fyrir svörum ásamt starfsmönnum safnsins um það hvernig bókasafn þau vilja. ► Veitingar BORGARBÓKASAFN REYKjAVÍKUR Aðalsafn, Borgarbókasafnið f Gerðubergi, Bústaðasafn, Foldasafn og Sólheimasafn verða opin frá 15:00-17:00. í ( tilefni dagsins bjóða söfnin upp á veitingar, skírteini eru endurgjaldslaus og dagurinn er sá fyrsti í sektalausri viku. Þórhildur G. Egilsdóttir yrði. Þeir vilja stuðla að því í upp- eldinu að börnin fari út í lífið sem ábyrgir og hæfir einstaklingar. Þær aðstæður sem fjölskyldur búa við i þjóðfélaginu hafa áhrif á hvaða hátt þeim er gert fært að annast börn sín. Aðstæður hafa breyst frá því að konurnar helg- uðu sig fjölskyldunni nær ein- göngu og sinntu uppeldishlut- verkinu, karlarnir öfluðu tekna og ömmurnar voru innan seilingar til þess að hjálpa til með börnin ef með þurfti. Nú til dags eru báðir foreldrar oft útivinnandi með kröfu um starfsframa og meiri áhersla er lögð á efnisleg gæði en nokkru sinni. Ekki þykir jafn- sjálfsagt að ömmur og afar séu tiltæk að leggja hönd á plóginn og áður var. Því er ekki óalgengt að barnafjölskyldur séu meira eða minna á eigin vegum án utanað- Foreldrar eru mikil- vægastir allra í lífi barna og unglinga, seg- ir Þórhildur G. Egils- dóttir. Þeirra þáttur í forvörnum gegn fíkni- efnum er stór. komandi stuðnings. Nú eru svo- kallaðar ofurkonur byrjaðar að tjá sig um álagið við að sinna öll- um verkefnum sem þær hafa tek- ið ábyrgð á bæði innan fjölskyld- unnar, í starfi og félagslífi. Álagið er talið heilsuspillandi þegar til lengdar lætur. Börn á Islandi eru ætíð velkomin í heiminn, en sex mánaða fæðingarorlof segir nokk- uð um þann veruleika sem þeim er boðið upp á. Opinber stefna er að börn séu vistuð hjá dagmæðr- um og á leikskólum. I þessu sam- bandi er gjarnan talað um rétt barna til vistunar á leikskóla sem í lögum hefur verið skilgreint sem fyrsta skólastigið og sumir telja að eigi að hefjast strax að fæðing- arorlofi loknu. Að foreldrar velji að annast börn sín sjálf fyrstu ár- in innan veggja heimilisins er þó lífseigt form, þótt ekki sé um sömu forsendur að ræða og áður var. Foreldrar sameinast um upp- eldið og leitast við að aðlaga að- stæður sínar í starfi fjölskyldulíf- inu. Það hefur hlotið misjafnar undirtektir að veita opinbera við- urkenningu á því að foreldrar sinni ungum börnum sínum heima með greiðslum, hliðstæðum við niðurgreiðslur sveitarfélaganna til dagmæðra og leikskóla. Virðist gæta hræðslu við að með þessu sé horfið aftur til fortíðar og þannig vegið að þátttöku kvenna í at- vinnulífinu. Eftirtekt vekur að ekki er litið á málið út frá hags- munum barnanna sem hagnast á sem mestri samveru við foreldra sína. Almennt eiga foreldrar í vök að verjast úti á vinnumarkaðin- um. Þrátt fyrir að nú sé sums staðar í orði lögð áhersla á sveigj- anlegan vinnutíma fyrir barnafólk er hann í mjög litlum mæli á borði. Hvaða tilhögun foreldrar kjósa í þessum efnum hlýtur að miðast við forsendur hverrar fjöl- skyldu. I þessu sambandi skipta þjóðfélagsaðstæður og viðhorf einnig máli. Mikilvægt er að um raunhæft valfrelsi sé að ræða. Forsenda þess hlýtur að vera að KRINGLUNNI 1. HÆO SÍMI 533 7355 BOMULLAR- NÆRFÖT FYRIR HERRA almennt sé vel staðið að málefn- um barnafjölskyldna. Foreldrafræðsla Að leiðbeina og styðja foreldra í uppeldi barna sinna er ódýr og öfl- ug forvörn. I lögum um heilbrigð- isþjónustu er kveðið á um að landsmenn eigi að njóta heilbrigð- isþjónustu til verndar andlegu, lík- amlegu og félagslegu heilbrigði. Meðal helstu greina heilsuverndar era heilbrigðisfræðsla í fyrir- byggjandi tilgangi, félagsráðgjöf, þ.m.t. fjölskyldu- og foreldraráð- gjöf, svo og geðvernd, áfengis- og fíknefnavarnir. Þetta er þjónusta sem á að veita á heilsugæslustöðv- um eða í tengslum við þær. Fyrsta stigs forvörn væri að fá félagsráð- gjafa með sérmenntun í fjöl- skyldumeðferð og fjölskylduvinnu til þess að halda námskeið á heilsugæslustöðvum. Til dæmis væri hægt að tengja fræðslutilboð- ið því ungbarnaeftirliti sem heilsu- gæslan hefur með höndum nú þeg- ar fyrir alla nýbakaða foreldra. Annars stigs forvörn væri fræðslu- þjónusta og ráðgjöf af sömu aðil- um, sem foreldrar gætu leitað til út frá þörfum fjölskyldunnar á hverjum tíma, óháð aldri og þroskastigi barnanna. Þriðja stigs forvörn væri að veita foreldum sem eiga í erfiðleikum með uppeld- ishlutverkið markvissa fræðslu, t.d. með sérstakri viðtalsmeðferð sniðinni að sérþörfum þeirra. Sam- kvæmt lögum um barnavernd ber að veita þeim leiðbeiningar um uppeldi barna og aðbúnað. Þeir sem ekki hafa fengið gott atlæti sjálfir, og t.d. alist upp við áfengis- og fíkniefnamisnotkun foreldra sinna, vita oft ekki til hvers er ætl- ast af þeim í foreldrahlutverkinu. Þeir hafa ekki reynslu af eðlilegu heimilislífi og finna sig oft van- máttuga og óöragga í foreldrahlut- verkinu. Allir foreldrar vilja börn- um sínum það besta. Yfirleitt er hægt að ganga út frá því að sé spurt á réttan hátt beri hver og einn svörin innra með sér. Þetta þarf þó ekki alltaf að eiga við. Öll börn eiga rétt á góðu atlæti. Börn eru ekki þrýstihópur sem barist getur fyrir réttindum sín- um heldur gæta foreldrar hags- muna þeirra. Fræðsla foreldrun- um til handa í uppeldinu myndi skila sér til barnanna. Lögð væri áhersla á að veita foreldrum leið- sögn og handleiðslu í uppeldis- málum með því að hjálpa þeim að finna eigin lausnir og leiðir. For- eldrar styðjast gjarnan við þær uppeldisvenjur sem tíðkuðust í þeirra eigin uppeldi. Margt af því nýtist vel en þó þarf ekki allt að vera gagnlegt sem úr foreldra- húsum kemur. Samræma þarf mismunandi áherslur á milli for- eldra. Mikilvægt er að foreldrar gefi því gaum hvaða þætti úr eigin uppeldi þeir styðjast við, hverju þeir vilja breyta og hvernig. Tím- arnir breytast, þjóðfélagið breyt: ist og áherslur í uppeldismálum. í dagsins amstri er stundum brugð- ist við eftir gamalli forskrift og foreldrar finna þörf fyrir nýjar leiðir. Flestir notast við brjóstvit- ið i þessum efnum en það getur verið af hinu góða að skoða tengslin í fjölskyldunni með óháð- um aðilum, menntuðum í fjöl- skyldufræðum. Foreldrar hafa einnig mikilvægri reynslu að miðla hver til annars undir slíkri handleiðslu. Námskeið fyrir for- eldra um uppeldi er forvörn sem mun efla hin mikilvægu tengsl milli foreldra og barna. Þau tengsl eru brúin milli kynslóð- anna. Samkvæmt lögum eiga for- eldrar rétt á fjölskyldu- og for- eldraráðgjöf. Það er á ábyrgð stjórnvalda að sjá til þess að lög- unum sé framfylgt. Markviss for- eldrafræðsla í forvarnaskyni er fjárfesting í framtíðinni og skilar umtalsverðum sparnaði til lengri tíma. Höfundur er félagsráðgjafí.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.