Morgunblaðið - 12.05.1998, Qupperneq 1
112 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
105. TBL. 86. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR12. MAÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Hörð viðbrögð vegna kjarnorkuvopnatilrauna Indverja
Bandarjkín íhuga
refsiaðgerðir
Njqu Deihi. Reuters.
Norður-
írar fá 12
milljarða
aðstoð
London. Reuters.
GORDON Brown, fjármálaráðherra
Bretlands, mun tilkynna 100 millj-
óna punda efnahagsaðstoð, sem
nemur um 12 milljörðum ísl. kr., við
Norður-írland er hann heimsækir
svæðið í dag. Þetta var haft eftir
talsmanni Tony Blairs, forsætisráð-
herra Bretlands.
Féð á að nota til samgöngubóta, til
byggingar flugvallar, til upp-
byggingar skóla, rannsóknar- og
þróunarstarfs auk þess sem byggja á
vísinda- og skemmtigarð og ýta und-
ir komu ferðamanna. Þá verður 50
milljónum punda, um 6 milljörðum
ísl. kr., varið til að draga úr atvinnu-
leysi á Norður-írlandi.
Ekki háð samþykki
friðarsamninga
Bresk stjórnvöld vona að með
þessu takist að laða fjárfesta til
Norður-írlands og þar með draga úr
því mikla atvinnuleysi, sem er á
Norður-írlandi. Fullyrti talsmaður
Blairs að aðstoðin væri ekki háð því
að Norður-írar samþykktu friðar-
samkomulag það sem náðist um
páskana í atkvæðagreiðslu hinn 22.
maí nk.
Heimsókn Browns til Norður-ír-
lands í dag markar tímamót, því
breskur fjármálaráðherra hefur ekki
farið þangað frá því að átök kaþ-
ólikka og mótmælenda hófust árið
1969.
■ Sinn Fein styður/23
MADELEINE Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, mun fresta
fyrirhugaðri Evrópuför sinni og eiga
fund með Benjamin Netanyahu, for-
sætisráðherra ísraels, í Washington
á morgun. Að sögn talsmanns utan-
ríkisráðuneytisins ræddu Albright
og Netanyahu saman í síma í gær og
komu sér saman um fund til þess að
reyna að ná samkomulagi um fram-
hald friðarumleitana fyrir botni Mið-
jarðarhafs.
Deila ísraela og Palestínumanna
stendur fyrst og fremst um það
hversu miklu landi á Vesturbakkan-
um þeir fyrrnefndu skili í hendur
Estrada
spáð sigri
FILIPPSEYSK börn setja upp and-
litsgrúnur í líki Joseps Estrada,
fyrrverandi kvikmyndastjörnu, sem
spáð er sigri í forsetakosningunum
þar í landi sem fram fóru í gær.
Kosningamar einkenndust af miklu
ofbeldi eins og jafnan áður en að
minnsta kosti sjö manns týndu lífi á
kjördag og alls 41 frá því kosninga-
baráttan hófst. Ekki er gert ráð
fyrir að úrslit verði Ijós fyrr en að
hálfum mánuði liðnum.
■ Estrada líklegur/24
heimastjómar Palestínumanna til
viðbótai' því sem þegar hefur verið
afhent. Tillaga Bandaríkjamanna
hljóðar upp á 13% og hafa Palestínu-
menn fallist á hana, en ísraelar hafn-
að henni. Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti hafði boðið Netanyahu og Yass-
er Arafat, forseta Palestínumanna,
til fundar í Washington í gær, en
ekki varð af honum þar eð Netanya-
hu kvaðst ekki myndu mæta. Arafat
sagði í gær að með því að hunsa boð-
ið væri Netanyahu að reyna að nið-
urlægja Bandaríkjastjóm.
■ ísraelar hafi 2-4%/22
INDVERJAR tilkyuntu í gær, öllum
að óvörum, að þeir hefðu sprengt
þrjár kjarnorkusprengjur í tilrauna-
skyni skammt frá pakistönsku landa-
mærunum. Hefur tilkynning þeirra
vakið mikla reiði á meðal nágranna-
ríkja þeirra og á Vesturlöndum og
íhuga bandarísk stjórnvöld að grípa
til refsiaðgerða gegn Indverjum.
Pakistönsk stjórnvöld hafa gefið til
kynna að þau kunni að feta í fótspor
Indverja, og styður það yfirlýsingar
sérfræðinga um að tilraunimar
kunni að hrinda af stað vopnakapp-
hlaupi. Bandaríkjamenn munu mót-
mæla tilraunasprengingum Indverja
formlega og verða þær ennfremur
ræddar á fundi átta helstu iðnríkja
heims, sem haldinn verður í Bret-
landi um næstu helgi.
Kjamorkusprengjumar þrjár
vom sprengdar um 100 metrum und-
ir yfirborði jarðar í Rajastan-héraði
um miðjan dag í gær að staðartíma.
Mældust sprengingamar um 4,7 stig
RICHARD Holbrooke, sérlegur full-
trúi Bandaríkjastjómar, átti í gær
fund með Slobodan Milosevic, forseta
Júgóslavíu, sambandsríkis Serbíu og
Svartfjallalands, til að reyna að koma
í veg fyrir að stríð brytist út í
Kosovo-héraði í Serbíu. Holbrooke
ræddi við Milosevic og fulltrúa Al-
bana í Kosovo um helgina og varð lít-
ið ágengt, sagði mikið bera í milli.
Hann ræðir að nýju við Ibrahim Ru-
gova, leiðtoga Albana, í dag.
Atök serbneska hersins og að-
skilnaðarsinnaðra Albana hafa nú
Óttast að tilraun-
irnar hrindi af
stað vopna-
kapphlaupi
á Richter. Forsætisráðherra lands-
ins, Atal Behari Vajpayee, boðaði til
blaðamannafundar í skyndingu í gær
og sagði þar að sprengingarnar
hefðu sannað getu Indverja til
vopnaframleiðslu. Sagði hann að
engin geislun hefði mælst í andrúms-
lofti í kjölfar sprenginganna, sem
em fyrstu kjarnorkutilraunir Ind-
veija frá árinu 1974.
Stjórn Vajpayees tók við völdum
fyrir sjö vikum en hún hafði lýst því
yfir að smíði kjamorkuvopna kæmi
til greina til að tryggja öryggi lands-
ins. Það varð til þess að Pakistanar
sögðu hið sama eiga við hjá sér og
gerðu tilraunir með langdrægar eld-
færst nær höfuðborg Kosovo, Prist-
ina. Grikkir hafa miklar áhyggjur af
átökunum og sagði vamarmálaráð-
herra þeirra í gær að breiddust þau
út, gæti brotist út stríð, hálfu verra
en Bosníustríðið, sem kostaði um
200.000 manns lífið.
Erlendir sendimenn á Balk-
anskaga telja að tilraunir Hol-
brookes til að fá Serba og Albani í
Kosovo til að setjast að samninga-
borði séu líklega síðasta vonin til
þess að hægt verði að hindra að
borgarastyrjöld brjótist út.
flaugar fyrir mánuði. Þrívegis hefur
komið til átaka á milli Pakistans og
Indlands.
Mike McCurry, talsmaður Banda-
ríkjaforseta, lýsti í gær yfir miklum
vonbrigðum Bandaríkjamanna
vegna sprenginganna. Sagði hann
þarlend stjómvöld íhuga refsiað-
gerðir auk þess sem óvíst er að verði
af Indlandsheimsókn Bill Clintons
Bandaríkjaforseta síðar á árinu.
Hvatti MeCurry Pakistana jafn-
framt til að feta ekki í fótspor Ind-
verja en pakistönsk stjórnvöld sögð-
ust í gær myndu gera allt til þess að
tryggja vamir landsins, hvort sem
væri gegn kjamorkuógn eða hefð-
bundnum vopnum.
Indverjar hafa neitað að undirrita
alþjóðasáttmála um bann við kjarn-
orkuvopnatilraunum og afvopnunar-
sáttmála á þeim forsendum að í þeim
sé nokkrum þjóðum leyft að eiga
kjai-norkuvopn en öðram sé fyrir-
skipað að losa sig við þau.
Blair ver íhlutun
í Sierra Leone
„Réttum“
manni var
hjálpað
London. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, svaraði í gær ásökunum
þess efnis að embættismenn í
breska utanríkisráðuneytinu hefðu
heimilað ólöglega sölu vopna til Si-
erra Leone fyrr á árinu og lagði
áherslu á að Bretar hefðu aðstoðað
við að koma Ahmad Tejan Kabbah,
forseta landsins, aftur til valda eft-
ir valdarán herforingja.
Robin Cook utanríkisráðherra
hefur neitað því að hann eða að-
stoðarráðherrar hans hafi sam-
þykkt vopnasöluna til Sierra Leo-
ne, en á þessum tíma höfðu Sam-
einuðu þjóðimar bannað sölu
vopna til landsins.
Blair sakaði breska fjölmiðla um
að gera of mikið úr málinu og sagði
að þeir settu það ekld í rétt sam-
hengi. „Sameinuðu þjóðirnar og
Bretland voru að reyna að hjálpa
þjóðkjömum forseta," sagði hann.
„Eftir að hafa lesið blöðin síðustu
daga gætu menn haldið að því væri
öfugt farið.“
Forsætisráðherrann lagði hins
vegar áherslu á að rangt hefði ver-
ið staðið að aðstoðinni ef vopna-
sölubann Sameinuðu þjóðanna
hefði verið brotið.
Menzies Campbell, talsmaður
Frjálslyndra demókrata, sagði að
Blair væri að halda því fram að til-
gangurinn helgaði meðalið. „Slík
kennisetning er mjög hættuleg,
einkum í utanríkismálum," sagði
hann.
■ Útilokar ekki/24
ALBANSKUR drengur í Kosovo horfir í gegnum skotgat á rúðu strætisvagns.
Reuters
Albright fundar
með Netanyahu
Washington, Bmssel. Reuters.
Urslitatilraun
gerð í Kosovo
Belgrad. Reuters.