Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 11
FRÉTTIR
Opinber heimsókn forsetahjónanna
til Vestur-Skaftafellssýslu
Búið að auðlegð
nýrra tækifæra
„ÞIÐ getið öll haldið í myndina og
við skulum segja saman 1, 2, 3. Um
leið og við segjum 3 erað þið búin
að gefa okkur myndina," stakk
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Islands, upp á þegar leikskólabörn
í Suður-Vík afhentu forsetahjón-
unum málverk eftir hópinn á síðari
degi opinberrar heimsóknar for-
setahjónanna í Vestur-Skaftafells-
sýslu sl. laugardag. Hin opinbera
heimsókn þótti takast vel og ekki
spillti heldur hversu veðrið lék við
forsetahjónin í heimsókninni.
Ólafur Ragnar ávarpaði Vestur-
Skaftfellinga á fjölbreyttri hátíðar-
dagskrá í Kirkjuhvoli á Kirkjubæj-
arklaustri að kvöldi fyrri dags
heimsóknarinnar. Hann tók fram
að ný viðhorf hefðu breytt mati á
auðlindum. Stórfljót og eyðisandar
sem áður hefðu verið farartálmar
væra nú segull sem drægi að
ferðalanga frá fjarlægum löndum.
Afskekktar byggðir byggju að
auðlegð nýn-a tækifæra, einmitt
vegna einangranar sem áður hefði
verið hindran en væri nú aflvaki
nýrrar þróunar.
„Það er ánægjuefni að finna í
heimsókn okkar Guðrúnar Katrín-
ar hvernig þið hafið öðlast djúpan
skilning á þessari breyttu heims-
mynd, hvernig þið hyggist halda til
móts við nýja öld með vii-ðingu fyr-
ir umhverfi og náttúragæðum að
vegarnesti," sagði hann og þakkaði
að lokum veglegar móttökur og
fróðlega leiðsögn, hlýhug og vin-
áttu sem þau Guðrún Katrín hefðu
fundið fyrir í heimsókninni.
Ungir og gamlir
sóttir heim
Leikskólaböm í Suður-Vík, 100
ára gömlu höfðingjasetri, tóku vel
á móti Ólafi Ragnari og Guðrúnu í
leikskólanum. Börnin sungu full-
um rómi nokkur lög og færðu for-
setahjónunum listaverk með hand-
ar- og fótarfórum sínum að gjöf.
Eftir stutta viðkomu í kirkjunni í
Vík og heimsókn á dvalarheimilið
var haldið á atvinnuvegasýningu í
Leikskálum. Þar kynntu ýmis fyr-
irtæki, t.d. Fagradalsbleikja, Vík-
urplast og Víkurprjón, framleiðslu
sína. Forsetahjónunum vora við
sama tækifæri færðar tvær peysur
frá Víkurprjóni að persónulegri
gjöf.
A leiðinni í Skóga var komið við
í Ketilsstaðaskóla. Þar kynnti Kol-
brún Hjörleifsdóttir, skólastjóri,
Evrópuverkefnið Byggð í skóli
eldfjalla, fyrhr forsetahjónunum og
nemendurnir 13 sungu nokkur lög.
Heimsókninni lauk með heimsókn
og kvöldverði í byggðasafninu í
Skógum.
Morgunblaðið/Kristinn
ÞAU fengu viðurkenninguna „Hvatning forseta íslands til ungra íslendinga“: (f.v.) Hugborg Hjörleifsdóttir,
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Ragna Björg Arsælsdóttir, Saga Sigurðardóttir, Svavar Helgi Olafsson,
Vignir Þór Pálsson, Vignir Snær Vigfússon og Þórunn Sigurðardóttir.
8 hlutu
hvatn-
ingar-
verðlaun
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for-
seti íslands, veitti átta ungum V-
Skaftfellingum viðurkenningar-
skjalið „Hvatning forseta Islands til
ungi-a íslendinga" á hátíðarsam-
komu á Kirkjubæjarklaustri á fyrri
degi opinberrar heimsóknar for-
setahjónanna í Vestur-Skaftafells-
sýslu.
Fyrsta kallaði Ólafur upp til sín
Hugborgu Hjörleifsdóttur, 14 ára.
Hugborg er góður íþróttamaður og
var kosin efnilegasti íþróttamaður
Ungmennasambands Vestur-
Skaftafellssýslu árið 1997. Hún er
góður námsmaður og syngur í
Bamakór Víkurskóla.
Jóhanna Friðrika Sæmundsdótt-
ir, 18 ára, hefur náð góðum árangri
við félagsstörf og íþróttir. Jóhanna
var foiTnaðm- nemendafélags Víkur-
skóla og stóð sig með mikilli prýði.
Hún hefur ætíð stundað íþróttir og
verið fyrirmynd vegna reglusemi
sinnar.
Ragna Björg Arsælsdóttir, 13
ára, hefur sýnt ágætis árangur í
söng og tónlistarleik. Hún syngm'
með Barnakór Víkurskóla og kór
Víkurkirkju. Ragna Björg er einnig
góður námsmaður.
Saga Sigurðardóttir, 11 ára, er
góður námsmaður og einstakur
bókmenntaunnandi. Hún metur
mikils góð bókmenntaverk, fornsög-
ur og skáldrit. Hún hefur prúð-
mannlega framkomu og er til fyrir-
myndar í skólanum.
Svavar Helgi Ólafsson, 11 ára, hef-
ur vegna sjúkdóms þurft að borða
annan mat en skólafélagarnir og
verður að neita sér um marga hluti.
Þrátt fyrir það er hann alltaf já-
kvæður, glaður og bjartsýnn.
Vignir Þór Pálsson, 15 ára, hefur
sýnt góðan árangur í skák, ágætis
námsárangur og góðan félagsþroska.
Vignir Snær Vigfússon, 18 ára, er
góður tónlistarmaður, á 7. stigi í
klassískum gítarleik í Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar og hefur
lokið 3. stigi á píanó. Hann hefur
einnig getið sér gott orð í íþróttum
og m.a. orðið skákmeistari Suður-
lands. Þá er hann agaður og skipu-
lagðm' námsmaður.
Þórunn Bjamadóttir, 17 ára, hef-
ur unnið afrek í íþróttum, unnið til
fjölda verðlauna í frjálsum íþrótt-
um, t.d. á meistaramóti íslands 15
til 18 ára, bikarmóti 16 ára og yngri
og unglingamóti UMFI. Þórunn á
héraðsmet í kúluvarpi, hástökki,
spjótkasti og 100 m hlaupi. Þórunn
var kjörin besti nýliðinn í
körfuknattleik kvenna á síðasta
keppnistímabili en hún spilar í
meistaraflokki kvenna með IR. Þór-
unn var valin íþróttamaður ársins
hjá USVS árin 1995 og 1996.
Morgunblaðið/Kristinn
BÖRNIN í Suður-Vík færðu forsetahjónunum listaverk
með handar- og fótarförum sínum.
VÍB OG ALVÍB BJÓÐA ÞÉR
Á NÁMSTEFNU UM LÍFEYRISMÁL
Á Grand Hótel Reykjavík, þriðjudagskvöldið 12. maí næstkomandi kl. 20:00.
DAGSKRA:
Námstefnustjóri verður Brynjólfur Bjamason,
forstjóri Granda og stjómarformaður ALVIB.
Aukið valfrelsi og nýir möguleikar í lífeyrismálum.
Hvaða leiðir henta best fyrir einstaklinga?
Margrét Sveinsdóttir, forstöðumaður hjá VÍB.
Viðbrögð ALVIB við nýjum lögum um lífeyrissjóði.
Gunnar Baldinnsson, forstöðumaður hjá VÍB.
Hvað næst? Hvað á að gera?
Sigurður B. Stefánsson, framkvcemdastjóri hjá VÍB.
Þátttaka er ókeypis en fjöldi sceta er takmarkaður.
Boðið verður upp á kaffi og veitingar.
ALVIB ER FJOLMENNASTI SEREIGNAR-
LÍFEYRISSJÓÐURINN Á ÍSLANDI
Það er mikilvæg undirstaða fyrir öflugan rekstur
og góða ávöxtun.
ALVIB býður sjóðfélögum sínum að velja á milli
þriggja verðbréfasafna, Ævisafna I, II og III. Sjóðfélagar
geta valið sér safn, ýmist eftir því hversu mikla áhættu
þeir vilja taka eða eftir aldri.
ALVÍB hentar sérstaklega vel fyrir sjálfstæða atvinnu-
rekendur sem ekki greiða í neinn lífeyrissjóð og fyrir
aðra þá sem sem geta valið sér lífeyrissjóð.
Sjóðfélagar geta fengið aðgangsnúmer og alltaf séð
nýjustu upplýsingar um inneign sína ALVIB á vefnum.
Takmarkaður sætafjöldi.
Fundarsalurinn tekur aðeins
300 manns í sæti og þeir sem
fyrstir skró sig hafa forgang.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Kirkjusandi • 155 Reykjavík • Sími 560 89 00 • Myndsendir: 560 89 10
Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is
Tilkynna þarf þáttöku
• síma 560-8900,
T*° * (vib@vib.ij
fyrir lcl. 16:00
mónudoginn 11. moí.