Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ekki hugleitt
að óska eftir að
þeir víki af lista
INGIBJÖRG Sóh-ún Gísladóttir
borgarstjóri segir það af og frá að
hún hafí hugleitt að óska eftir því
við Helga Hjörvar og Hrannar B.
Amarsson, frambjóðendur Reykja-
víkurlistans, að þeir vikju af listan-
um í framhaldi af þeim ávirðingum
sem á þá hafa verið bornar.
„Ef menn teldu þá vera seka um
refsivert athæfi þá geta þeir sem
svo telja kært þá,“ sagði Ingibjörg.
„Þá horfir málið öðruvísi við en
ekkert slíkt hefur komið fram og
ég sé því enga ástæðu til að óska
eftir því að þeir víki.“ Aðspurð
hvort þeir hafi skuldað vörslu-
skatta í apríl sagðist Ingibjörg
hafa gengið eftir því hvort þeir
skulduðu vörsluskatt núna og að
svo væri ekki. „Eg gekk sérstak-
lega eftir því við þá að fá að sjá
gögn sem staðfestu það og það er í
raun það eina sem mér kemur við.
Aðrar ávirðingar sem bornar eru á
þá gefa ekkert tilefni til að telja þá
vanhæfa,“ sagði hún.
Yfirlýsing frá Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
hefur sent frá sér eftirfarandi yfir-
lýsingu vegna þessa máls:
,Að gefnu tilefni vil ég lýsa af-
stöðu minni og Reykjavíkurlistans
til sögusagna sem bomar hafa ver-
ið út um tvo af frambjóðendum
listans. Þegar eftir að DV birti nið-
urstöðu skoðanakönnunar sem
sýndi gott fylgi við Reykjavíkur-
listann tók mér að berast tölvu-
póstur, Ijósritaðir pappírar og
dreifirit með aðdróttunum í garð
Helga Hjörvar og Hrannars
Bjöms Amarssonar. Þetta gerist
hálfum mánuði fyrir borgarstjóm-
arkosningar og í mínum huga er
hér vart um einskæra tilviljun að
ræða.
Eg hef af þessu tilefni tekið mér
tíma til þess að fara yfir þær ávirð-
ingar sem bomar hafa verið á þessa
frambjóðendur í áðumefndum
plöggum og fengið til þess aðstoð
virts lögfræðings sem lagt hefur
mat á málsefni. Niðurstaða mín efl>
ir þessa athugun er sem hér segir:
1. Sjö ár em liðin frá því að Helgi
Hjörvar gekk úr sameignarrekstri
fyrirtækisins Amarsson og Hjörv-
ar og hefur hann gert full skil á
þeim ábyrgðum sem hann var í
vegna þess rekstrar. Ég hef geng-
ið úr skugga um að fullyrðingar
þess efnis að hann skuldi vörslu-
skatta eiga ekki við rök að styðj-
ast. Að mínum dómi er árásin á
Helga Hjörvar fullkomiega tilefn-
islaus og þarfnast ekki frekari um-
fjöllunar.
2. Eins og áður hefur komið fram
opinberlega hefur Hrannar Bjöm
Amarsson átt við fjárhagslega erf-
iðleika að stríða. Ekkert nýtt hefur
komið fram í því efni. Bú Hrann-
ars Bjöms og fyrirtækis hans var
tekið til gjaldþrotaskipta í maí
1994. Gjaldþrotaskiptunum lauk
með þvi að Hrannar Bjöm náði
nauðasamningum við lánardrottna
sina í nóvember 1995. Þá samn-
inga hefur hann efnt að fullu. Mál
hans hafa verið til opinberrar um-
fjöllunar og til skoðunar hjá skatt-
yfirvöldum eins og títt er við slíkar
aðstæður. Fullyrðingar um að
Hrannar Bjöm skuldi vörsluskatta
eiga ekki við rök að styðjast.
Á Reykjavíkurlistanum er fólk
af ýmsum vettvangi með fjölbreyti-
lega reynslu að baki. Þannig fólk
vil ég hafa á listanum. Ég harma að
gripið skuli hafa verið til óvandaðra
meðala í þeirri kosningahríð sem
nú stendur. Það kemur þó ekki al-
veg í opna skjöldu vegna þess að
enn hafa ekki allir gleymt ófræg-
ingarherferð sem sett var af stað
fyrir fjórum ánim á hendur fram-
bjóðendum Reykjavíkurlistans,
borgarfúlltrúunum Alfreð Þor-
steinssyni og Sigrúnu Magnúsdótt-
ur, hálfum mánuði fyrir borgar-
stjómarkosningar. Slík vinnubrögð
hefur Reykavíkurlistinn ekki við-
haft og mun ekki viðhafa."
UMHVERFISNEFNDIR sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu
stóðu fyrir Umhverfisdögum
um síðustu helgi í samvinnu við
Samtök sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu. Boðið var upp á
fjölbreytta dagskrá þar sem
fjölskyldum og öðrum íbúum
gafst kostur á að kynnast nánar
Náttúra höfuð-
borgarsvæðis-
ins skoðuð
útivistarstöðum og náttúruperl-
um á höfuðborgarsvæðinu.
í boði voru ýmiss konar
Morgunblaðið/Þorkell
gönguferðir í leiðsögn fróðra
manna, skógrækt var kynnt og
leiðbeint um trjárækt. Fugla-
skoðun og kynning á jarðsögu
tiltekinna svæða stóðu einnig til
boða auk ýmissar annarrar
fræðslu og skemmtunar.
Á myndinni skoða áhugasam-
ir lífnld Álftanessfjörunnar.
Árni Sigfússon
Aðalatriðið er að hið
sanna komi í ljós
ÁRNI Sigfússon, oddviti Sjálfstæð-
isflokksins í borgarstjóm, segir fá-
ránlegt að saka Sjálfstæðisflokkinn
um að standa að baki þeim ávirðing-
um sem bomar hafa verið á tvo
frambj óðendur Reykj avíkurlistans,
þá Helga Hjörvar og Hrannar B.
Arnarsson. I viðtali við Guðrúnu
Pétursdóttur, frambjóðanda Sjálf-
stæðisflokksins, í síðasta tölublaði
Mannlífs, segist hún vilja sjá borg-
arstjóra í betri félagsskap.
Ámi segir ljóst að Ingibjörg Sól-
rún hafi stigið fram og gefið ýmis-
legt í skyn um hverjir hafi dreift
upplýsingum um fjárhagsstöðu
frambjóðendanna tveggja. Ýmist að
frambj óðendur Sj álfstæðisflokksins
eigi þar hlut að máli eða einhverjir
aðrir sjálfstæðismenn. „Þetta eru
fáránlegar ásakanir að ætla Sjálf-
stæðisflokknum að hafa gert þetta,“
sagði hann. „Mér sýnist ljóst að
þama komi að í umfjölluninni menn
sem bæði hafa verið kjósendur R-
lista og D-lista. Um þessar upplýs-
ingar á enginn að vera bundinn
þagnarskyldu. Aðalatriðið er þá að
hið sanna komi í ljós.“
Betri félagsskap
í viðtali við Guðrúnu Pétursdótt-
ur, einn frambjóðanda Sjálfstæðis-
flokksins til borgarstjórnar, í síð-
asta tölublaði Mannlífs, er haft eftir
Guðrúnu að Ingibjörg sé einn öflug-
asti stjórnmálamaður landsins en að
hún vildi sjá hana í betri félagsskap.
Guðrún bendir á að ef menn sækist
eftir starfi við fjármálastjóm, eins
og frambjóðendur séu að gera, þá
verði þeir að kunna fótum sínum
forráð í fjármálum. Það segi
ákveðna sögu að hafa verið í stjóm
og stjórnarformennsku aftui' og aft-
ur hjá fyrirtækjum, sem lýst hafa
verið gjaldþrota, með tilheyrandi
vangoldnum skuldum við fjölda
fólks.
„Þetta kalla ég skort á fjármála-
viti - og ég veldi ekki svona menn
til að fara í stjórn stærsta fyrirtæk-
is á Islandi. Ekki frekar en ég veldi
mann til að keyra skólarútu sem ít-
rekað hefði lent í alvarlegum um-
ferðarslysum,“ segir Guðrún í fyrr-
nefndu viðtali.
Hrannar B. Arnarsson
Ekki langt síðan vörslu-
skattar voru greiddir
HVORKI Hrannar B. Amarsson né
Helgi Hjörvar, frambjóðendm-
Reykjavíkurlistans til borgarstjóm-
ar, hafa hugleitt að víkja af listanum
vegna þeirra ávirðinga, sem bomar
hafa verið á þá. Hrannar segist hafa
vitað að þessi mál gætu komið upp
þegar hann gaf kost á sér í framboð
og því gæfu þau ekki tilefni til að
hann hugleiddi afsögn. Hann segir
að ekki sé langt síðan hann lauk síð-
ustu greiðslu á gömlum vörsluskött-
um. Helgi Hjörvar segist ekki hafa
hugleitt að víkja af listanum.
Ekki hugleitt að víkja
„Það er ýmislegt sem flýgur um
hugann í svona stórsjó," sagði
Hrannai' B. Arnarsson en hann er í
3. sæti á lista Reykjavíkurlistans,
þegar hann var spurður hvort hann
hefði hugleitt að víkja af framboðs-
listanum vegna þeirra ávirðinga sem
á hann hafa verið bomar um
ógreidda vörsluskatta, gjaldþrota-
skipti og nauðasamninga. „Ég vissi
það svo sem þegar ég gaf kost á mér
í þetta að þessi mál gætu og myndu
koma til umfjöllunar enn einu sinni.
Þess vegna er það eitt og sér ekki til-
efni til að ég hugleiði afsögn.“
Hann sagðist vitanlega hafa
áhyggjur af því að þetta gæti skaðað
listann og stöðu hans í kosningabar-
áttunni. „En á meðan ég verð ekki
var við þann skaða þá trúi ég að það
verði ekki,“ sagði hann. Aðspurður
um greiðslu á vörsluskatti benti
Hrannar á að erfitt væri að henda
reiður á þeirri umræðu allri saman.
„Mér finnst satt að segja óeðlilegt
að verið sé að krefja menn svara um
hvenær einstakar greiðslur vora
greiddar. Það sem skiptir máli er að
ég skulda ekki vörsluskatta og það
hafa ekki verið neinar aðgerðir af
hálfu skattayfirvalda gagnvart mér
vegna þeirra siðan árið 1996,“ sagði
hann. „Ég borga vörsluskatt í hverj-
um mánuði þannig að á ýmsum tím-
um er ég í skuld, annaðhvort lítilli
eða stórri. En eins og allir vita hef ég
verið að vinna mig út úr gömlum
fjárhagsvanda og það er rétt að ekki
er langt síðan ég lauk síðustu
greiðslu á mínum gömlu vörsluskött-
um.“
Treystir dómi kjósenda
„Ég hef ekki hugleitt að víkja af
listanum," sagði Helgi Hjörvar þeg-
ar hann var spurður hvort hann hafi
hugleitt að draga sig í hlé vegna
þeirra ávirðinga sem á hann hafa
verið bornar en hann skipar 1. sæti
á Reykjavíkurlistanum. „Ég vil
þvert á móti þakka félögum mínum
á Reykjavíkurlistanum, sem hafa
sýnt mikla eindrægni og samstöðu í
þessari gerningahríð." Helgi sagði
að sér fyndist þessi málatilbúnaður
í lok kosningabaráttunnar ógeð-
felldur. „En eins og allir aðrir fram-
bjóðendur verð ég að treysta dómi
kjósenda," sagði hann.
Yfirlýsing frambjóðenda
Sj álfstæðisflokksins
FRAMBJOÐENDUR Sjálfstæð-
isflokksins sendu í gær frá sér
eftirfarandi yfirlýsingu:
„Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins til borgarstjórnar
Reykjavíkur lýsa furðu á við-
brögðum Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur við framkomnum upp-
lýsingum um meinta fjármála-
óreiðu tveggja fi'ambjóðenda R-
listans. Ingibjörg Sólrún leitast
við að draga athygli frá efnisatrið-
um og staðreyndum málsins.
Upplýsingar um málið koma frá
tveimur nafngreindum einstak-
lingum sem báðir störfuðu á sín-
um tíma við bóksölu fyrir Helga
Hjörvar og Hrannar B. Arnars-
son. Þær upplýsingar sem þeir
birta um fjármálaferil Helga og
Hrannars era í meginatriðum
skjalfestar hjá Héraðsdómi
Reykjavíkur, Sýslumanninum í
Iíeykjavík, Gjaldheimtunni,
Firmaskrá, vanskilaskrá og Lög-
birtingablaðinu. Þessar upplýs-
ingar snúast um fjármálaóreiðu
fimm fyrirtækja, gjaldþrot,
nauðasamninga, vanskiladóma og
árangurslaus fjárnám allt fram á
síðasta ár.
Ingibjörg Sólrún fullyrðir að
kjósendur í Reykjavík hafi lengi
haft vitneskju um fjármálaferil
þeiraa félaga. Þessar fullyrðingar
hennar eru rangar. Almenningur í
Reykjavík vissi ekkert um þennan
fjármálaferil vegna þess að upp-
lýsingarnar hafa hvergi áður birst
með svo heildstæðum hætti. Ef
Ingibjörg Sólrún hefur haft vit-
neskju um hann í langan tíma
vekur athygli að hún skuli ekki
hafa tjáð sig fyrr um málið en
með yfirlýsingu sinni frá 10. maí
síðastliðnum.
Augljóst er að ástæðan fyrir því
að þetta alvarlega mál er á dag-
skrá nú er sú staðreynd að Helgi
Hjörvar og Hrannar B. Arnars-
son era í framboði til borgar-
stjórnar Reykjavíkur og skipa 1.
og 3. sæti á R-listanum. Ef R-list-
inn heldur meirihlutanum í borg-
arstjóm munu þeir taka sæti í
borgarráði, sem fer með fjármála-
stjórn borgarinnar.
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins vilja að fram fari hlut-
laus rannsókn á meintri fjármála-
óreiðu þessara frambjóðenda R-
listans. Tillaga okkar er sú að full-
trúar D-lista og R-lista komi sér
saman um einn aðila til að fara yf-
ir gögn málsins og skila niður-
stöðu. Kjósendur eiga rétt á því
að fá vitneskju um allar stað-
reyndir málsins."