Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 ÚR VERINU Dagpeningar áttu að vera undan- þegnir tekjuskatti Fyrrverandi starfsmenn á Kamchatka undirbúa málsókn á hendur ÍS FYRRVERANDI starfsmenn ís- lenskra sjávarafurða hf. á Kamchatka hafa boðað til fundar vegna skattalegrar meðferðar dag- peningagreiðslna, eins og það var orðað í auglýsingu í Morgunblaðinu sl. sunnudag. Fram kemur að starfsmennimir fyrirhugi málsókn á hendur IS vegna blekkinga og vanefnda og munu auk þess ræða aðgerðir gegn skattyfirvöldum vegna ójafnræðis í meðferð dagpen- ingamála eftir starfsstéttum. „Þetta snýst um að þegar starfs- menn voru ráðnir til vinnu við verk- efnið á Kamchatka voru launakjörin kynnt þannig að menn fengju föst mánaðarlaun og því til viðbótar dag- peninga þann tíma, sem þeir störf- uðu fyrir fyrirtækið utan Islands. Þessir dagpeningar áttu að áður- fengnu áliti sérfræðinga um skatta- mál að vera undanþegnir tekjuskatti sem var meginforsenda þess að menn réðu sig upp á þessi kjör. AfU ur á móti var ákvæði í ráðningar- samningnum um að hann væri trún- aðarmál milli samningsaðila. Mönnum var neitað að vera í stéttarfélögum og því var alfarið hafnað að menn greiddu í lífeyris- sjóð og á orðalagi samningsins mátti skilja að okkur var alls ekki ætlað að bera hann undir neinn annan,“ sagði Öm Gunnlaugsson, talsmaður starfsmannanna, í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Sá hóp- ur, sem hefur tekið sig saman um að fá leiðréttingu hjá skattayfirvöld- um, telur 21 aðila, en um 45 manns munu hafa starfað á Kamchatka í það heila á árunum 1996 og 1997. 15% dagpeninga undanþegin skatti Að sögn Amar hafa starfsmenn- imir verið að kljást við skattayfir- völd vegna þessa máls í undanfarna sjö til átta mánuði og m.a. leitað á náðir ríkisskattstjóra og fjármála- ráðuneytis, en án árangurs. „Ríkis- skattstjóraembættið upplýsti okkur um það að þessi ákvæði samnings- ins hefðu aldrei verið lögð fyrir það, eins og hefði átt að gera til að ganga tryggilega úr skugga um að máUð væri vaxið eins og IS var að gefa væntingar um. Komin er endanleg niðurstaða frá ríkisskattstjóra sem kveður á um að dagpeningamir skuli skattlagðir eins og um tekjur séu að ræða að undanskildum 15% sem hann telur vera hæfilegt upp í þann kostnað, sem við höfum orðið fyrir. Við höfum aftur á móti borið okkur saman við flugliða, sem fara út að morgni og koma heim að kvöldi án þess að bera nokkum kostnað en njóta dagpeninga, sem viðurkenndir em að fullu af ríkis- skattstjóra og era þar af leiðandi án tekjuskatts. Við teljum okkur ekki vera meðhöndluð á jafnræðisgrund- velli gagnvart skattayfirvöldum miðað við aðra þegna landsins og nú hefur ríkisskattstjóri sent bréf til allra skattstjóra og fyrirskipað þeim að meðhöndla alla þá, sem þátt tóku í verkefninu, á sama hátt.“ ÍS myndi taka að sér að leysa ágreining Á hinn bóginn segir Öm að höfð- að verði dómsmál á hendur IS vegna þáttar þess í málinu og á fundinum komi í ljós hve margir fyrrum starfsmenn kærðu sig um að taka þátt í því. „Það vora hreinar blekkingar og svik af hálfu IS að kynna þetta svona fyrir okkur. Þeg- ar um þessi atriði var spurt á kynn- ingarfundi á Grand Hótel Reykja- vík á sínum tíma gengu yfirmenn IS jafnvel svo langt að segja að ef upp kæmi ágreiningur við skattayfir- völd, myndi fyrirtækið taka að sér að leysa þann ágreining. Við teljum að ÍS beri skylda til þess að borga skatta af dagpeningagreiðslunum ef skattayfirvöldum er stætt á því að skattleggja þær þar sem starfs- mennirnir hefðu verið ráðnir á þeim forsendum að dagpeningamir væra skattfrjálsir peningar," segir Öm. Rök fyrir einu ganga í berhögg við annað Starfsmennirnir hafa enn ekki greitt tekjuskatt af þeim dagpen- ingum, sem þeir hafa fengið, heldur hefur þeim borist í hendur bréf frá skattayfirvöldum, þar sem fram kemur að fyrirhugað sé að gera fyrmefndar breytingar á framtölum þeirra vegna ársins 1996, en varlega áæætlað telur Örn að um 35 milljón- ir kr. sé að ræða vegna 1996. Auk þess megi starfsmennirnir eiga von á svipuðum glaðningi vegna ársins 1997 síðar. „Rök ríkisskattstjóra ganga út á það að við höfum flutt til Kamchatka. Á sama tíma vill hann meina að við eigum að borga skatta til íslands. Rök, sem lögð era fyrir einu, ganga í berhögg við annað. Vinnubrögð skattayfirvalda er best lýst eins og hegðun blóðþyrstra villidýra inni í miðjum framskógi. Þegar hungrið segir til sín, fara þau út og leita sér að fómarlambi, sem er líklegt að þau ráði við. Það er ástæðan fyrir því að ráðist er á starfsmennina, en ekki Islenskar sjávarafurðir, sem áttu skv. túlkun skattayfirvalda að draga af okkur staðgreiðslu af dagpeningunum," segir Örn. Tjáum okkur ekki Sæmundur Guðmundsson, að- stoðarforstjóri ÍS, vildi ekki tjá sig um málið í samtali við Verið í gær. „Við munum ekki tjá okkur um mál- ið, enda teljum við enga ástæðu vera til þess.“ Boðað hefur verið til fundarins í Félagsheimili Seltjam- amess nk. sunnudag kl. 14.00. Sj ávarútvegsráðherra Sri Lanka í heimsokn SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Sri Lanka, herra Mahinda Ra- japaksha, dvaldi hér á landi í síð- ustu viku í boði sjávarútvegsráð; herra Þorsteins Pálssonar. I sendinefnd ráðherrans voru þrír embættismenn og fímm fulltrúar úr sjávarútveginum þar í landi. Að undanfömu hafa íslenskir aðil- ar starfað við ráðgjöf varðandi sjávarútveg á Sri Lanka, einkum varðandi gæðastjórnun í fisk- vinnslu. Erindi sendinefndarinnar var að kynna sér íslenskan sjávarútveg. í því skyni átti nefndin fund með sjávarútvegsráðherra og kynnti sér m.a. starfsemi Fiskistofu, Haf- rannsóknastofnunarinnar, Land- helgisgæslunnar og Rannsókna- stofnunar fiskiðnaðarins. Þá heim- sótti ráðherrann og sendinefnd hans sjávarútvegs- og þjónustufyr- irtæki á höfúðborgarsvæðinu og í Vestmannaeyjum. Á þriðjudag gekk ráðherrann á fund forseta íslands, herra Ólafs Ragnars Grímssonar. _____________________MORGUNBLADIÐ NEYTENDUR HJÓLREIÐAHJÁLMAR *) Tilboö til 13.maí '98 **) Tilboðsverð Tegund Framl.land Seljandi Verð kr. Stærðir ATLAS Baby Svíþjóð Hvellur hf., Smiðjuvegi 4c, Kópav. Bykó, Kópavogi og Hafnarfirði Hjá Ása, Bæjarhrauni 22, Hafnarf. Leikbær, Faxafeni, Þönglabakka og Firðinum, Hafnarfirði Húsasmiðjan, Skútuvogi 3-5, Rvík Intersport, Bíldshöfða 20, Rvík Esso, Geirsgötu, Rvík HaokauD. Krinalunni oa Skeifunni 2.968 2.690 2.650 1.995 3.134 2.860 2.570 2.495 45-52 cm 45-52 cm 45-52 cm 45-52 cm 45-52 cm 45-52 cm 45-52 cm 45-52 cm ATLAS Eagle Svíþjóð Hjá Ása, Bæjarhrauni 22, Hafnarf. Bykó, Kópavogi, Hafnarfirði og Byggt og búið, Kringlunni, Rvík Húsasmiðjan, Skútuvogi 3-5, Rvík Útilíf, Álfheimum 74, Rvík HaakauD. Krinalunni oa Skeifunni 2.950 2.790 3.134 3.090 2.695 53-58cm/54-60 cm 53-58 cm 53-58 cm 53-58cm/54-60 cm 53-58 cm ATLAS Hardtop Svíþjóð Hvellur hf., Smiðjuvegi 4c, Kópav. Bykó, Kópavogi, Hafnarfirði og Byggt og búið, Kringlunni, Rvík Hjá Asa, Bæjarhrauni 22, Hafnarf. Leikbær, Firðinum, Hafnarfiröi Leikbær, Þönglabakka 6, Rvík Húsasmiðjan, Hafnarfiröi Húsasmiðjan, Skútuvogi 3-5, Rvík Leikbær, Faxafeni 11, Rvík Esso, Geirsgötu, Gagnvegi, Stóra- hjalla, Skógarseli og Ægisíðu Intersport, Bíldshöfða 20, Rvfk Versl. Slysav.félagsins,Grandag.14 Versl. Slysav.félagsins,Grandag.14 Útilíf, Álfheimum 74, Rvík Hagkaup, Skeifunni, Rvík Hagkaup, Kringunni, Rvík G.A. Pétursson, Faxafeni 7, Rvík 2.968 2.690 2.695 1.990 1.995 2.598 3.134 1.995 2.570 2.860 2.350 2.550 2.890 2.495 2.495 2.990 49-55 cm 49-55cm/52-57 cm 49-55cm/52-57 cm 52-57 cm 49-55cm/52-57cm/54-60 cm 49-55cm/52-57 cm 49-55cm/52-57 cm 49-55cm/52-57cm/54-60cm/57-64 cm 49-55cm/52-57cm/54-60cm/57-64cm 49-55cm/52-57cm/54-60cm/57-64cm 49-55cm/52-57cm 54-60 cm 49-55cm/52-57cm/54-60cm/57-64 cm 49-55cm/52-57cm/54-60cm/57-64 cm 52-57 cm 49-55cm/52-57 cm ATLAS Hot shot Svíþjóð Bykó, Kópavogi og Hafnarfirði Hjá Ása, Bæjarhrauni 22, Hafnarf. Leikbær, Firðinum, Hafnarfirði Húsasmiðjan, Hafnarfirði Húsasmiðjan, Skútuvogi 3-5, Rvík Útilíf, Álfheimum 74, Rvík Byggt og búið, Kringlunni, Rvík Esso, Gagnvegi, Stórahjalla og Skógarseli Esso, Ægisíðu 102, Rvík G.Á. Pétursson, Faxafeni 7, Rvík Intersport, Bíldshöfða 20, Rvík Versl. Slysav.félagsins Grandag.14 Hagkaup, Skeifunni, Rvík *) Haqkaup, Kringlunni, Rvík 2.790 2.950 1.995 2.772 3.134 3.090 2.790 2.745 2.570 2.994 3.580 2.550 2.495 2.695 52-58cm/54-60 cm 52-58cm/54-60 cm 52-58 cm 52-58 cm 52-58cm/54-60 cm 52-58cm/54-60 cm 52-58cm/54-60 cm 52-58cm/54-60 cm 52-58cm/54-60 cm 52-58cm/54-60 cm 52-58cm/54-60 cm 52-58 cm 52-58cm/54-60 cm 54-60 cm BARRACUDA Eurobell Frakkland Esso, Gagnvegi, Rvik 1.997 50-53cm/53-60 cm BELL Frakkland G.Á. Pétursson, Faxafeni 7, Rvík 1.990 46-50cm/50-53cm/53-56 cm BELL Disney BELL Premier G.Á. Pétursson, Faxafeni 7, Rvík G.Á. Pétursson, Faxafeni 7, Rvík 2.949 1.990 46-50cm/50-53cm/53-56 cm unglingahjálmar S/M-M/L BELL Triumph G.Á. Pétursson, Faxafeni 7, Rvík G.Á. Pétursson, Faxafeni 7, Rvík 2.912 9.514 53-57 cm BELL Evo 56-58cm/59-61 cm BELL Bike Star U.S.A. Esso, Gaqnveqi, Rvfk 1.997 46-50cm/50-53cm/53-56 cm BRANCALE Meteor Italía Hjá Asa, Bæjarhrauni 22, Hafnarf. 3.400 52-60 cm Markið, Ármúla 40, Rvík 2.900 2.900 52-60 cm BRANCALE Commander Hjá Ása, Bæjarhrauni 22, Hafnarf. 50-56 cm Markið, Ármúla 40, Rvík Hjá Ása, Bæjarhrauni 22, Hafnarf. 2.600 50-56 cm BRANCALE Ventus 2.900 54-64 cm BRANCALE Futura Markiö, Ármúla 40, Rvík 2.900 54-64 cm Hjá Ása, Bæjarhrauni 22, Hafnarf. 2.600 48-54 cm Markið, Ármúla 40, Rvík Hjá Ása, Bæjarhrauni 22, Hafnarf. 2.300 2.390 44-50cm/48-54 cm BRANCALE Lyn J 50-58 cm Markið, Ármúla 40, Rvík 2.900 3.500 50-58 cm BRANCALE Concept BRANCALE Cross Markiö, Ármúla 40, Rvík 50-56 cm Markið, Ármúla 40, Rvík 3.500 52-60 cm BRANCALE Blizzard Markið, Ármúla 40, Rvík 4.400 52-60 cm BRANCALE Astro Markið, Ármúla 40, Rvík 5.300 52-60 cm CRATONI Þýskaland Hvellur hf., Smiðjuvegi 4c, Kópav. 8.990 allar stærðir CRATONI Fox Hvellur hf„ Smiðjuvegi 4c, Kópav. 4.123 47-52 cm DISNEY Holland Fálkinn, Suðurlandsbraut 8, Rvík 2.990 47-52cm/53-57 cm ETTO Noregur Fálkinn, Suðurlandsbraut 8, Rvík Fálkinn, Suðurlandsbraut 8, Rvík 3.550 2.550 54-59 cm 50-54cm/54-57 cm EUR01 Finnland Olís. Ánanaustum. Rvík 1.390 46-50 cm GARY FISHER GARY FISHER Disney's U.S.A. Olís, Ánanaustum og Álfabakka Olís, Álfheimum, Rvík Olís, Álfheimum, Rvík 2.990 2.990 1.390 50-53cm/53-56cm/56-59cm/59-62 cm 53-56cm/56-59cm/59-62 cm 50-53cm/53-56 cm HAMAX Noregur Markið, Ármúla 40, Rvík 2.990 45-50cm/49-53cm/53-58 cm LAZER Þýskaland Fálkinn, Suðurlandsbraut 8, Rvík 2.755 56-60 cm PRORIDE USA Kína Hvellur hf„ Smiðjuvegi 4c, Kópav. Hvellur hf„ Smiðjuvegi 4c, Kópav. Hvellur hf„ Smiðiuveqi 4c, Kópav. 2.890 3.290 3.990 52-56 cm 54-58 cm 58-62 cm REX Svíbióð Fálkinn, Suðurlandsbraut 8, Rvík 2.690 52-58 cm RHINO R-700 “1 Taiwan Leikbær.Faxafeni oa Þönqlabakka 995 46-50cm/50-54cm/54-58cm/58-62 cm SNELLR700 Noreaur Leikbær, Firðinum, Hafnarfiröi 990 46-50cm/50-54cm/54-58cm/58-62 cm SYDEWYNDER ? Intersport, Bíldshöfða 20, Rvík 1.990 50-56cm/52-62 cm THH Taiwan Hvellur hf„ Smiðiuveai 4c, Kópav. 1.900 56-58 cm TREK U.S.A. Örninn, Skeifunni 11, Rvík 3.150 47-50cm/51-54cm/50-53cm/53-56 cm TREK Vapor Öminn, Skeifunni 11, Rvík 3.424 3.450 53-56cm/56-59cm/59-62 cm Shell, Suðurfelli 4, Rvík 56-59cm/59-62 cm Shell, Bústaðavegi v/Öskjuhl.Rvík 3.450 3.450 53-56cm/56-59cm/59-62 cm Shell, Laugavegi 180, Rvík 53-56cm/56-59 cm Shell, Laugavegi 180, Rvík Shellmarkaður, Suðurlandsbr.4, R 3.424 2.435 | 59-62 cm i 50-53cm/53-56cm/59-62 cm TREK Inertia TREK Tempest Örninn, Skeifunni 11, Rvík Örninn, Skeifunni 11, Rvík 4.607 6.795 j 53-56cm/56-59cm/59-62 cm | 53-56cm/56-60cm/60-63 cm TREK Navigator Shell, Suðurfelli 4, Rvík Shell, Suðurfelli 4 og Laugavegi 3.450 3.150 3.150 3.450 2.435 50-53cm/53-56 cm 50-53 cm Shell, Bústaðavegi v/Öskjuhl.Rvík Shell, Laugavegi 180, Rvík Shellmarkaöur, Suðurlandsbr.4, R 50-53cm/53-56 cm 50-53 cm TREK Racinq j3-j6cm/ jG-59 cm Taiwan Hvellur hf„ Smiðjuvegi 4c, Kópav. 1.800 VOC 52-ob cm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.