Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 23
ERLENT
Tsjernobylhvelfíngin styrkt
Kútsjma krefst
145 milljarða kr.
Kiev. Reuters.
EVROPSKI endurreisnarbankinn,
EBRD, undirritaði í gær samning
um átta milljarða ísl. kr. lán til við-
gerða á hvelfíngunni um fjórða
kjamakljúf Tsjemobylskjarnorku-
versins í Ukraínu. Leoníd Kútsjma,
forseti landsins, skoraði hins vegar á
vestræn ríki að útvega fjármagn til
smíði á tveimur nýjum kjamakljúf-
um annars staðar í landinu.
Kútsjma sagði á fundi með full-
trúum frá EBRD, að fjárútlát
Ukraínu vegna kjarnorkuslyssins í
Tsjemobyl 1986 næmu sexfoldum
fjárlögum landsins auk þess sem
hættan á nýrri og stórkostlegri
geislamengun ykist með ári hverju.
Gert er ráð fyrir, að á næstu sjö ár-
um verði hvelfingin utan um
kjamakljúfínn styrkt og næstu 10
ár verða notuð til að fjarlægja
kjarnorkueldsneytið í kljúfnum.
Úkraínustjórn hefur lofað vest-
rænum ríkjum að hætta alveg raf-
magnsframleiðslu í Tsjemobyl árið
2000 en nú hótar hún að reka einn
kjamakljúfinn áfram nema þau
fjármagni smíði tveggja nýrra
kljúfa annars staðar í landinu. Hef-
ur hún farið fram á 145 milljarða ísl.
kr. til þess verks og til að loka
Tsjemobyl endanlega. Fulltrúar
vestrænna ríkja hafa þó ekki ljáð
máls á þessu og hafa bent stjórninni
á að leita eftir fénu á venjulegum
fjármagnsmarkaði.
IMF setur skilyrði
Til stendur einnig, að IMF, AI-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn, aðstoði
Úkraínu en það er háð því, að
stjómvöld uppfylli ýmis skilyrði, í
92 liðum alls. í þeim er meðal ann-
ars kveðið á um minni fjárlagahalla,
hækkun á gas og rafmagni, endur-
skipulagningu kolaiðnaðarins og
umbætur í landbúnaði. Er búist við,
að stefna Úkraínustjórnar í efna-
hagsmálum skýrist í dag þegar Kút-
sjma heldur stefnuræðu sína.
Sinn Fein styður
friðarsamning
Dublin, London. Reuters, Daily Telegraph.
MO MOWLAM, N-írlandsmálaráð-
herra bresku ríkisstjórnarinnar,
hrósaði í gær Gerry Adams, leið-
toga Sinn Fein, fyrir að hafa tekist
að sannfæra félaga sína í Sinn Fein,
stjómmálaarmi Irska lýðveldishers-
ins (IRA), um að samþykkja friðar-
samkomulagið á N-írlandi á sér-
stöku flokksþingi í Dublin um helg-
ina. Jafnframt ákvað Sinn Fein að
breyta flokksreglum sínum þannig
að fulltrúar flokksins geti tekið þátt
í starfi þings sem komið verður á fót
verði friðarsamkomulagið sam-
þykkt. Mikill meirihluti þingfull-
trúa, eða um 95%, lýstu stuðningi
við samninginn.
Ákvörðunin er söguleg því Sinn
Fein hefur hingað til ekki viljað við-
urkenna bresk yfirráð á N-írlandi
og fulltrúar flokksins því hunsað
breska þingið og aðrar álíka stofn-
anir. Mowlam var í gær gagnrýnd
í nokkmm bresku dagblaðanna fyrir
þá ákvörðun sína að gefa sex IRA-
fóngum 36 klukkustunda lausn úr
fangelsi til að sækja þing Sinn Fein
en meðal þeirra sem sleppt var laus-
um vom meðlimir Balcombestrætis-
gengisins fræga sem handsamað var
1975 í Balcombestræti í London eft-
ir sex daga umsátur og dæmdir fyrir
2 morð, auk aðildar að sprengjuher-
ferðum.
hleðsluborvélar.
Sölustaðir
um allt land.
naust
Sími 535 9000
ÆL
t
l BYKO
4P
%
rs
cr
990,-
Áöur: 3.970,-
| Kolagrill á hjólum
BYGGINGAVÖRUTILBOÐ MÁNAÐARINS
Maí
1 Sólstóll úr plasti. (Hvítur) : 1 Gunnebo saumur. (5 og 10 kg) 21/2'og 3“ galv/svart. 6
20% afsl.
-inar
Verödæmi: 3" svart, 5 kg: 697,-Venjuiegt verö: 930,-
Pallaolía, (5 Itr.)
Brún, glær oggræn.
Huffy Storm
26“ fjallahjól karla og kvenna.
15.900,-
Hjólbórur - 100 Itr. börur. (galvaniseraö)
6.900,-
Aöur: 8.450,-
1 Blómaker úr plasti. (Hvítt, 1 ummál 38 cm) 4 Bosch hleösluborvél. (með tösku og 2 rafhlööum, 12 v.) 11
Blákorn (5 kg)
Áburöur S tún.^»»
399,-
Aöur: 499.-
Grenl panill. (12x95)
290,-
Áöur: 390,-
12.900,-
Pallaefni gagnvariö,
b-flokkur. (22X95)
EITT MESTA ÚRVAL RAFMAGNSHANDVERKFÆRA A ISLANDI
AFGREIÐSLUTIMI I BYKO
m
BOSCH #Metabo
7'nokitíL
Komdu og skoöaöu nýjar og glæsilegar deildir meö rafmagnshandverkfæri
í öllum verslunum BYKO. Vönduö verkfæri frá þekktum framleiöendum.
Virkirdagar | Laugard. Sunnud.
Breiddin-Verslun Sími: 515 4001 8-18 iai6 12-16
Brelddin-Timbursala 8-18 STmi: 513 4030 (Lokaö 12-13) 10-14
Brelddln-Hólf & Gólf STmi: 515 4030 8-18 10-16 12-16
Hringbraut Sími: 562 9400 8-18 iai6 11-15
Hafnarfjöróur STmi: 555 4411 8-18 ai3
Suöurnes STmi: 421 7000 8-18 ai3
Akureyrl Sími: 461 2780 8-18 iai4