Morgunblaðið - 12.05.1998, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998
Móðir með unga dóttur
í læknismeðferð í Svíþjóð
Mynd- og talsam-
band við fjölskyld-
una á Islandi
BÖRNIN vildu fá að vita hvenær
mamma kæmi heim með litlu syst-
ur, þegar þau áttu myndsímafund
með henni í gærmorgun með að-
stoð tölvu. Arnbjörg Ingólfsdóttir,
einstæð fímm barna móðir, er með
Sigurbjörgu, fjögurra ára dóttur
sína, á Huddinge-sjúkrahúsinu við
Stokkhólm þar sem Sigurbjörg
gekkst undir beinmergsskiptaað-
gerð fyrir um það bil tveimur mán-
uðum. Fyrir milligöngu Styrktarfé-
lags krabbameinssjúkra barna
(SKB) og með aðstoð forsvars-
manna Flugleiða í Sviþjóð og fleiri
góðra manna komst í gær á tal- og
myndsamband milli mæðgnanna í
Svíþjóð og fjölskyldu þeirra hór á
Islandi.
Dr. Eduardo Pérez-Bercoff, sem
gegnir rannsóknarstöðu við upplýs-
ingatæknideild konunglega tækni-
háskólans í Kista í Sviþjóð, er frum-
kvöðull verkefnisins. Hann setti sig
í samband við SKB fyrir fimm árum
og bauð því þátttöku. Til skamms
túna strandaði málið á því að sú
samskiptatækni sem SKB valdi að
nota, ISDN-kerfíð, gat ekki „talað
við“ sænska kerfið, sem byggir á
venjulegu mótalds-sambandi.
Dr. Pérez-Bercoff brá þá á það
ráð að flytja hingað allan þann bún-
að sem til þurfti, sambærilegan
þeim sænska, og láta á það reyna
hvort ekki væri hægt að koma á
tal- og myndsambandi milli Iand-
anna. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að Flugleiðir í
Svíþjóð hefðu m.a. gert það mögu-
legt með því að rukka ekki krónu
vegna þeirra 30 kílóa sem hann
hafði í yfirvigt þegar hann kom til
landsins.
Aldrei áður sam-
band milli landa
Dr. Pérez-Bercoff segir að oft
hafi verið komið á sambærilegu
sambandi á milli tveggja sjúkra-
húsa i sama landi eða milli sjúkra-
húss og skóla en hann fullyrðir að
aldrei áður hafí sjúklingur náð
sambandi við fjölskyldu sína í öðru
landi á þennan hátt.
Dr. Pérez-Bercoff á sjálfur bam
sem fékk hvítblæði fyrir tæpum
áratug en náði bata og fyrir það er
hann svo þakklátur að hann vill
leggja sitt af mörkum til að aðstoða
aðrar íjölskyldur sem beijast við
sjúkdóminn.
Arnbjörg á fimm böra og búa tvö
þeirra ly'á systur Arnbjargar, Sig-
MÖRGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
SIGURLAUG Ingólfsdóttir með börn sín og systurbörn við tölvuna í gærmorgun þegar tal- og myndsamband
náðist við Arnbjörgu og Sigurbjörgu á Huddinge-sjúkrahúsinu við Stokkhólm. Frá vinstri eru Mikael 6 ára,
Melissa 12 ára, Alexandra 8 ára og fremstur stendur Krisfján 7 ára.
urlaugu. Telpa á þriðja ári og fimm
ára drengur eru hjá öðrum ættingj-
um. Sigurlaug, börnin hennar tvö
og börn Arnbjargar áttu fjörlega
stund við tölvuna í gærmorgun
þegar þau spjölluðu við Arnbjörgu
og Sigurbjörgu. Krakkarnir vildu
fá að vita hvort það væri gaman á
spitalanum og hvenær þær kæmu
heim.
Ef allt gengur að óskum verður
það eftir einn til einn og hálfan
mánuð. Þangað til geta Sigurlaug
og frændsystkinin „hitt“ mæðgurn-
ar við tölvuna í stutta stund á
hveijum degi.
Gefur SKB tækin
Kostnaður við sambandið er að
sögn dr. Pérez-Bercoffs eins og við
venjulegt millilandasúntal á milli
íslands og Svíþjóðar. Hann hefúr
aflað styrkja hjá fyrirtækjum í Sví-
þjóð til að standa straum af kostn-
aði við verkefnið, sem hann segir
að nemi nú um 16.000 sænskum eða
um 150 þúsund íslenskum krónum.
Þegar hann kom með búnaðinn til
íslands var ekki vitað hvort sam-
band næðist en það tókst og hann
hefur því ákveðið að gefa Styrktar-
félagi krabbameinssjúkra barna
tækin.
Þorsteinn Ólafsson, formaður fé-
lagsins, segir að tollyfirvöld hafí
verið ákaflega liðleg þegar tækin
komu til landsins þar sem þá var
óvíst hvort þau færu utan aftur eða
ekki. Nú þegar ljóst er að þau
verða hér áfram á eftir að komast
að samkomulagi við yfírvöld um
tollafgreiðslu þeirra.
Einkafyrirtæki
í kortaútgáfu
Mál og menning gefur út Islandskort
MÁL og menning hefur hafið út-
gáfu á nýjum kortaflokki af íslandi
sem inniheldur ferðakort af landinu
í heild og fjögur landshlutakort.
Mál og menning er fýrsta íslenska
einkafyrirtækið sem gefur út ferða-
og landshlutakort og markar
þannig tímamót í sögu íslenskrar
kortaútgáfu. Halldór Guðmundsson,
útgáfustjóri Máls og menningar,
segir að kortin miðist við þarfir
ferðamanna og þau séu sérteiknuð á
grunni landmælinga.
Mál og menning kaupir útlínur
kortanna af Landmælingum Is-
lands. Halldór segir að í dag komi
út ferðakort af íslandi í mælikvarð-
anum 1:600.000 og fjórðungskort yf-
ir Suðvesturland í mælikvarðanum
1:300.000 sem er nýjung á íslensk-
um kortamarkaði. Stefnt er að því
að kort yfir hina landshlutana þrjá
verði komin út nk. haust.
Kortin eru prentuð í náttúrulegum
litum og er sérstök áhersla lögð á
gróðurlendui- landsins og myndræna
skyggingu hálendisins. Kortin eru
unnin af Hans H. Hansen kortagerð-
armanni eftir nýjustu heimildum.
Með kortinu fylgir fylgir tafla
með upplýsingum um vegalengdir
milli helstu áfangastaða. Vegakerfið
miðast við sumarið 1998 og í vega-
lengdatöflu er því gert ráð fyrir nýj-
ustu samgöngumannvirkjum eins
og Hvalfjarðargöngum og Gilsfjarð-
arbrú.
Á bakhlið kortanna er að finna
lýsingar og litmyndir af helstu nátt-
úruperlum landsins, þar sem bent
er á ýmis einkenni viðkomandi
staða. Ljósmyndirnar eru eftir
nokkra af helstu ljósmyndurum
þjóðarinnar. Allur texti er á fjórum
tungumálum. Útsöluverð kortanna
er 690 kr.
MYRDALS.
Konurnar á
Grænlandsjökli
Komnar á
hábunguna
ÍSLENSKU konunum fjórum
sem eru á göngu yfir Græn-
landsjökul ásamt karlkyns
leiðsögumanni hefur miðað
vel áfram síðustu dagana og
hafa þau lagt yfir 20 kílómetra
að baki daglega. Á laugar-
dagskvöld var tjaldað á há-
bungu jökulsins í um 2.500
metra hæð en ferðin hófst í
um 1.200 metra hæð.
Leiðin liggur nú niður í
móti en fyrstu dagana verður
hæðarlækkunin þó óveruleg.
Ferðin gengur samkvæmt
áætlun þrátt fyrir snjókomu
fyrir nokkrum dögum og einn
óveðursdag þar sem leiðang-
urinn varð að bíða af sér veðr-
ið.
Dagbók leiðangursins er að
finna á alnetinu og er vef-
slóðin http://itn.is~salbjorg/-
greenland.html.
Nýkomnar vömr!
Skýjað velour-efni, níu grunnlitir. Verð 2.150 kr. m.
Satín-krepefni á 1.560 kr. m.
Dragtaefni með fiskbeinamynstri, þrír litir.
Verð 1.595 kr. m.
Stretch-rúskinn, starfsfólkið kallar það yndislega efnið.
Þrír nýir litir. Verð 1.520 kr. m.
^vrigUC1 -búðimar
Þrír með fímm rétta í Lottó
Tveir nákvæmlega
eins seðlar
ÞRÍR vinningshafar voru með fimm
rétta í Lottó 5/38 um helgina og var
vinningsupphæðin 1.360.830 á mann.
Tveir af vinningunum þremur voru
keyptir í versluninni Ný-ung í Kefla-
vík með sólarhrings millibili og við
nánari athugun á vinningsseðlunum
kom í ljós að þeir voru nákvæmlega
eins. Allar tölurnar á þessum tveim-
ur fimm raða seðlum voru eins og
voru þeir báðir handvaldir.
Bolli Valgarðsson, markaðsstjóri
íslenskrar getspár, sagði að mjög
líklega ætti einn eigandi báða mið-
ana: „Þetta er skemmtileg tilviljun
og hefur ekki hent áður í Lottó. Við
erum hins vegar nokkuð viss um að
það sé einn eigandi að báðum miðun-
um,“ sagði Bolli í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Hann sagði ennfremur að vitað
væri um þátttakendur í Lottó og
Víkingalottó sem spiluðu alltaf með
sömu tölumar. Einn þeirra hefði til
dæmis unnið bónusvinning í Vík-
ingalottói tvisvar sinnum í sama út-
drætti á sömu tölurnar, eða kenni-
tölu sína.
Enginn vinningshafanna þriggl3
hafði vitjað vinninga sinna til Is-
lenskrar getspár er rætt var við fyr-
irtækið í gær.