Morgunblaðið - 12.05.1998, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 31
Burtfarar-
tónleikar
Grétu Þóru
BURTFARARTONLEIKAR
Grétu Þórisdóttur söngkonu
verða haldnir í sal Tónlistar-
skóla FÍH að
Rauðagerði
27, þriðju-
daginn 12.
maí kl. 21.
Þóra Gréta
hefur stund-
að söngnám í
Tónlistar-
skóla FÍH
síðan haustið
1992 m.a. undir handleiðslu
Tenu Palmer, Jóhönnu Linnet
og Sigurðar Flosasonar og er
hún fyrsti söngnemandinn sem
útskrifast frá jazzdeild skólans.
Meðleikarar Þóru Grétu á
tónleikunum verða Kjartan
Valdemarsson píanó, Bjarni
Sveinbjörnsson bassi og
Matthías M.D. Hemstock
trommur.
A efnisskránni verða lög eft-
ir Miles Davis, A.C. Jobim, Du-
ke Ellington, Steve Coleman,
Richie Beirach og fl.
Aðgangur er ókeypis.
Vortónleikar
Tónlistarskóla
Garðabæjar
SJÖUNDU og áttundu vortón-
leikar Tónlistarskóla Garða-
bæjar verða miðvikudaginn 13.
maí.
Fyrri tónleikarnir verða kl.
18.00, krýndir af strengjasveit
skólans og öðrum strengjaleik,
og þeir síðari og áttundu kl.
20.00 en þá munu m.a. syngja
nemendur Margrétar Oðins-
dóttur, en nemendur á ýmis
hljóðfæri koma þá einnig fram.
Níundu og síðustu vortón-
leikarnir verða tónleikar for-
skóladeilda laugardaginn 16.
maí þar sem yngstu nemend-
urnir fá tækifæri til að sýna
hvað í þeim býr.
í lok mánaðarins verður
óperan Brúðkaup Fígarós flutt
af nemendum Snæbjargar
Snæbjarnardóttur og nokkrum
kennurum skólans, en það
verður auglýst nánar síðar.
Gluggasýning
í Sneglu
NÚ STENDUR yfir kynning á
verkum Emu Guðmarsdóttur í
Sneglu, listhúsi, á horni Grett-
isgötu og Klapparstígs.
I glugganum em nýjar
myndir málaðar á silki. Erna
lauk námi frá Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1985 og
hefur haldið margar einkasýn-
ingar og tekið þátt í mörgum
samsýningum.
Listhúsið er opið alla virka
daga frá kl. 12-18 og laugar-
daga kl. 11-15. Sýningunni lýk-
ur 24. maí.
Síðasta sýning
ALLRA síðasta tækifærið til
að sjá Sálir Jónanna ganga aft-
ur, nýjasta sköpunarverk Hug-
leiks, er í kvöld, þriðjudags-
kvöld.
Sýnt er í Möguleikhúsinu við
Hlemm.
Sýningu að
ljúka
YFIRLITSSÝNINGU á verk-
um Huldu Hákon sem nú
stendur yfir í Menningannið-
stöðinni Gerðubergi í tengslum
við Sjónþing Gerðubergs er nú
senn að ljúka en sýningin
stendur yfir til fóstudagsins 15.
maí nk.
LISTIR
Tæknin dregur
ekki úr gildi
leikhússins
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
FRÁ ÁRSÞINGI Bandalags íslenskra leikfólaga í Stykkishólmi.
Stykkishólmur. Morgunblaðið.
TÆKNIBYLTING þessarar aldar,
kvikmynd, sjónvarp, tölvur, videó
og allt annað sem fólk hefur til af-
þreyingar í dag, er ekki líkleg til að
draga úr gildi leikhússins og kem-
ur aldrei í staðinn fyrir bein tengsl
á milli leikarans á sviði og áhorf-
andans í salnum.
Þetta var meginniðurstaða fjög-
urra daga málþings á 47. þingi
Bandalags íslenskra leikfélaga,
sem haldið var í Stykkishólmi um
mánaðamótin. Þingið sóttu um 100
manns. A málþinginu leituðu menn
svara við spumingunni: „Hvar
stöndum við í leiklist um aldamót?"
Framsögu höfðu Sigrún Valbergs-
dóttir, Hávar Sigurjónsson og Ein-
ar Rafn Haraldsson.
Á þinginu voru sýndir 7 einþátt-
ungar frá 6 félögum. Hér er um
nýjan lið að ræða í þingstörfum. Að
loknum sýningum vom einþáttung-
amir gagnrýndir, leikritin og flutn-
ingur leikara.
I skýi'slu stjórnar kom fram að
mikil gróska er hjá áhugaleikfélög-
um um allt land. Aðildarfélög
Bandalagsins era 71 talsins. Eftir
því sem næst verður komist vora á
síðasta leikári starfandi 38 leikfé-
lög sem settu upp rúmlega 52 leik-
verk, þar af vora 33 íslensk verk og
19 erlend. Miklar umræður urðu
um drög sem lágu fyrir á þinginu
að samningi á milli Bandalagsins
og félags leikstjóra á íslandi. Hann
var ekki samþykktur, en vísað aft-
ur til stjórnar til nánari skoðunar.
Á þinginu tilkynnti fulltrúi Þjóð-
leikhússins um val á athyglisverð-
ustu áhugaleiksýningunni á leikár-
inu. Þar lenti í fyrsta sæti Frey-
vangsleikhúsið í Eyjafirði með leik-
ritið „Velkomin í villta vestrið“ eft-
ir Ingibjörgu Hjartardóttur. Að
launum er þeim boðið að sýna á
stóra sviði Þjóðleikhússins 7. júní
nk.
Stjóm Bandalags íslenskra leik-
félaga skipa: Einar Rafn Haralds-
son, Egilsstöðum, Guðrún Halla
Jónsdóttir, Selfossi, Jóna Sigur-
bjartsdóttir, Kirkjubæjarklaustri,
Hörður Sigurðarson, Súðavík og
Hulda Hákonardóttir, Reykjavík.
Háskóla-
fyrirlestur
MAYA Honda, prófessor í málvís-
indum við Wheelock College í
Bandaríkjunum, heldur fyrirlestur
á vegum íslenskuskorar Háskóla
Islands í samvinnu við Kennarahá-
skóla íslands í stofu 101 í Odda,
Háskóla íslands, miðvikudaginn
13. maí 1998 kl. 16.15.
„Fyrirlesturinn nefnist Langu-
age as an Object of Inquire in the
Seience Classroom og fjallar um
rannsóknir á því hvemig megi
þjálfa skólanemendur í vísindaleg-
um vinnubrögðum og aðferðum
með því að láta þá fást við athugan-
ir á mannlegu máli.
Wheelock College í Boston er
öðrum þræði kennaraháskóli og
fyrirlesturinn ætti að vera mjög
áhugaverður fyrir alla sem fást við
kennslu og menntamál, skipulag
kennslu, námskrárgerð og kennslu
kennaraefna, auk þeirra sem fást
við mál, málfræði og málvísindi,"
segir í kynningu.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku.
Síðasti fyrirlestur „Laxnessársins"íNorrcena húsinu á morgun £(l. 17:15:
o2 . VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR RÆÐIR UM KONUR f SKÁLDSÖGUM HALLDÓRS LAXNESS
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti íslands, heldur á morgun, miðvikudag, fyrirlestur um konur í skáldsögum HaHdórs Laxness á vegum Laxnessklúbbsins og Vöku-Helgafells. Erindið hefst klukkan 17:15, er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Vigdís Finnbogadóttir sagði um Halldór Laxness látinn meðal annars: „Hann skrifaði af meiri skilningi og snilld um konur en skáldbræður hans í heiminum. Allar persónur í skáldverkum Halldórs Kiljans eru minnisverðar en konurnar í skáldsögum sínum gerir hann að drottningum." Vigdís mun í fyrirlestri sínum ræða um þessar drottningar í verkum Nóbelsskáldsins.
I VKIRI.KSTUR í NORKÆNA HÚSINU í DAG KL. 17.15 VAKAHELGAFELL Laxnessklúbburinn
Umboðsaðildr:
Akureyri: Höldur, s: 461 5014 • Ákranes: Bíiyer, r,: 431 1985 * Ísaíjörður: Bílasala Jöels, s: 456 4712
Keílavik: B.G. Bilakringlan, s: 421 1200 • EyUsstaðir; Bíla.og Búvé.lasalan, s: 471 2011
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll - hannaður fyrir íslenskar aðstæður
Innifalið í verði bíisins
y" 2.01 4 strokka 16 ventla léttmáImsvél
/ Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
/ Rafdrifnar rúður og speglar
/ ABS bremsukerfi
/ Veghæð: 20,5 cm
/ Fjórhjóladrif
/ Samlæsingar
/ Ryðvörn og skráning
/ Útvarp og kassettutæki
/ Hjólhaf: 2.62 m
/ Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæð: 1.675m
Verð á götuna: 2.285.000,- meðABS
Sjálfskipting kostar 80.000,-
M
HONDA
Sími: 520 1100
í