Morgunblaðið - 12.05.1998, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 41
AÐSENDAR GREINAR
Um samskipti okkar Gunn-
laugs M. Sigmundssonar
MER hafa borist þau
tíðindi hingað til Svíþjóð-
ar að nafn mitt hafi
óverðskuldað verið dreg-
ið inn í unu-æður öllu
meiri og merkilegri
manna en vesalings míns.
Háttvirtur þingmaður
Vestfirðinga, Gunnlaugur
Sigmundsson, mun í bréfi
til Alþingis hafa gert mig
sérstaklega ábyi'gan fyr-
ir því að ekki mun allt
með felldu varðandi eign-
arhlut hans og fjölskyldu
í varnarverktakafyrir-
tækinu Kögun hf.
Og ekki nóg með það,
ekki er annað að skilja en
ég beri sérstaka ábyrgð á því að valin-
kunnur sæmdarmaður, Sverrir Her-
mannsson, fer að bera þingmanninn
sökum sem að Gunnlaugs mati hefðu
betur mátt liggja í þagnargildi.
Það er nú svo að þetta blessaða
nafn mitt er kannski það eina sem ég
á um þessar mundir og mér er dálítið
annt um það, ekki svo mjög sjálfs mín
vegna heldur þeirra sem ég fékk það
frá. I minni ætt hefur það nefnilega
ætíð verið litið alvarlegum augum að
vera kallaður ósannindamaður, aliar
götur frá frænda okkar, Ara fróða
Þorgilssyni.
Af þessum sökum bið ég ritstjóra
Morgunblaðsins að fá að hreinsa nafn
mitt af þeim auri sem Gunnlaugur M.
Sigmundsson hefur einhverra hluta
vegna talið sér ávinning í að ata það
með.
í „tíma og ótíma“
Alvarlegasta ásökun þingmannsins
sem varðar mig persónulega er sú að
ég hafi í „tíma og ótíma“
áreitt hann með símtöl-
um og persónulegum
ónotum. Sannleikurinn
er sá að ég hringdi í
hann aðeins einu sinni!
Hann hafði reyndar
sjálfur frumkvæði að því
að hringja í mig. Sagðist
þá hafa frétt að ég héldi
uppi fyrirspurnum um
hann og að ég hefði í
hyggju að skrifa um
hann einhverja grein.
Síðan bauðst hann til
að svara þeim spurning-
um sem ég hefði fram að
færa en bar við tíma-
skorti er ég hafði tekið
boðinu fegins hendi og hugðist byrja
að spyrja hann. Hann bað mig þess í
stað að hringja seinna. í þessu sam-
tali voru engin ónot hvorki af hans
hálfu og enn síður minni.
Næsta samtal varð lengra (og það
vfll svo tii að ég á það uppskrifað). I
því fóru heldur engin ónot fram okk-
ar í millum, þvert á móti. Það er hins
vegar önnur saga að hann gat fá svör
gefið sem hönd var á festandi, síst af
öllu um eignarhlut hans og fjölskyld-
unnar í Kögun hf. I þeim efnum vís-
aði hann á fyrirtækið Talnakönnun
sem er meðal margra smárra hlut-
hafa í Kögun og fyrirtæki sem birtir
tölulegar upplýsingar af ýmsu tagi
um íslensk fyrirtæki, m.a. um hluta-
fé.
Er ég sneri mér til Talnakönnunar
fékk ég síðan að heyra að af einhverj-
um ástæðum væru þessar upplýsing-
ar nú týndar hjá þeim. Starfsmaður-
inn þar sagði að erfiðlega hefði geng-
ið að fá þessar upplýsingar en þær
hefðu samt komið áður en þeir gáfu
út umfjöllun sína um Kögun. Þær
voru hins vegar ekki birtar því eftir
sem hann hafði heyrt þá voru sumir
hluthafa viðkvæmir fyrir því að þesar
upplýsingar yrðu birtar. Og hvernig
sem á því stæði þá fyndist þetta ekki
lengur hjá Talnakönnun.
Vildi fá mig í
Framsóknarflokkinn
En aftur að símtölunum. Þetta síð-
ara símtal við hann var það eina sem
ég átti frumkvæði að og það fór svo
*
Itrekuðum tilraunum
mínum til að fá Gunn-
laug og stuðningsmenn
hans til að benda á ein-
hverja rangfærslu
í þessari grein minni,
segir Vigfús Geirdal,
hefur aldrei verið
svarað.
vel á með okkur að hann spurði hvort
ég vildi ekki ganga í Framsóknar-
flokkinn! Jafnframt lýsti hann yfir
vilja sínum til að hafa frekara sam-
band við mig og stuttu síðar hafði
hann samband aftur og bað mig sem
starfsmann Fræðsluskrifstofu að
setja sig inn í skólamál, einkum á
Vestfjörðum. Eg varð við þessari ósk
hans, sendi honum ýmis gögn ásamt
greinargerð sem ég hafði tekið saman.
Öll þessi samskipti okkar voru í
rauninni svo vinsamleg að hann fann
sérstaka ástæðu til að heimsækja mig
á Fræðsluskrifstofuna strax eftir að
hann kom vestur til að hefja kosninga-
baráttuna. Um þetta getur þáverandi
samstarfskona mín vitnað, grandvör
kona og gegnumvönduð eins og aliir
ísfirðingar vita. Hún getur líka borið
því vitni að samtal okkar Gunnlaugs
þama á skrifstofunni fór fram í mesta
bróðemi.
Þetta voru samskipti okkar Gunn-
laugs M. Sigmundssonar áður en
grein mín um hann og vamarverk-
takafyrirtækið Kögun hf. birtist í
Vestfirska fréttablaðinu 8. mars 1995.
Eftir það höfum við nánast engin per-
sónuleg samskipti haft og aldrei að
mínu frumkvæði.
Sendisveinar hans í Framsóknar-
flokknum réðust á mig með persónu-
níði og sjálfur sá hann einhverjum
sinnum ástæðu til að ráðast að mér
með óhróðri í útvarpsviðtölum. ítrek-
uðum tilraunum mínum til að fá
Gunnlaug og stuðningsmenn hans til
að benda á svo mikið sem eina einustu
rangfærslu í þessari grein minni hefur
aldrei verið svarað.
Eru þeir ósannindamenn?
Ég hef bent á það áður og árétta
það enn að grein mín er aðallega unn-
in með því að fara í gegnum upplýs-
ingabanka Morgunblaðsins og
Strengs, skýrslur utanríkisráðherra
og Alþingistíðindi. Hún er að tölu-
verðu leyti beinar tilvitnanir í Gunn-
laug sjálfan, Steingrím Hermannsson
utanríkisráðherra og Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra.
Að auki var ég í sambandi við einn
margra smárra hluthafa í Kögun,
starfsmann Kögunar, fyrirtækið
Vigfús Geirdal
Talnakönnun og Þróunarfélagið. Ég
óska enn eftir því að Gunnlaugur
bendi á það hvar þessir heimildar-
menn mínir fara með rangt mál eða
hvar Morgunblaðið hefur haft rangt
eftir honum sjálfum
Gunnlaugur segir í bréfi sínu til
þingheims að þrisvar sinnum hafi ver-
ið á sig ráðist. Fyrst hafi það verið
Vigfus „nokkur" Geirdal, því næst
Helgar- eða Morgunpósturinn og að
síðustu Sverrir Hermannsson. Það
hentar háttvirtum þingmanninum að
segja að af þessum þremur árásum
hafi umfjöllun Morgunpóstsins verið
skárst.
Fór á bak við stjórn Þróunarfé-
lagsins og utanríkiráðuneytið
Hvað Morgunpóstinn varðar þá er _
umfjöllun hans í öllum aðalatriðum
byggð á grein minni með einni mikil-
vægri undantekningu. Þar er það
staðfest i viðtali við Pál Kr. Pálsson,
stjómarformann Þróunarélagsins, að
Gunnlaugur hafi farið á bak við stjóm
og eigendur Þróunarfélagsins þegar
hann seldi hlutabréf Þróunarfélagsins
í Kögun til Kögunar og af þeim sökum
verið tafarlaust látinn hætta hjá Þró-
unarfélaginu. Þetta er í rauninni al-
varlegasta ásökunin á hendur Gunn-
laugi M. Sigmundssyni.
Þetti gerði hann þrátt fyrir gildandi
samning milli utanríkisráðuneytisins
og Þróunarfélagsins um að gera Kög-
un hf. að almenningshlutafélagi.
Ég verð að segja það að mér þykir
dálítið leitt að vita að þessi framsókn- ''
arþingmaður skuli enn í dag burðast
með mig á heilanum. Hvorki fram-
sóknarforystan sem ábyrgð ber á
honum, tryggir framsóknarkjósend-
ur, né einu sinni hið háa Alþingi sáu
neitt athugavert við siðferði hans
þrátt fyrir allt. Mér finnst hann megi
vel við una.
Sjálfur hef ég ekkert á móti honum
persónulega; minnist hans meira að
segja í bænum mínum alitaf þegar ég
man eftir.
Höfundur er fyrrverandi kennslufull- f
trúi á Fræðsluskrifstofu Vestfjarða
RAÐAUGLVSINGAR
FUIMDIR/ MANNFAGNAÐUR
MENHTAFÉLA6 BYGGIHGARIÐHAflARIWS
Aðalfundur
Menntafélags byggingariðnaðarins
verður haldinn á Hallveigarstíg 1, þridju-
daginn 26. maí nk. kl. 17.00.
Til aðalfundar eru boðuð öll félög og fyrirtæki
sem eru aðilar að Menntafélagi byggingariðn-
aðarins. í lögum MB segir m.a.: „Aðalfundur
er lögmætur ef löglega hefur verið til hans
boðað án tillits til fundarsóknar. Aðalfundur
hefur æðsta vald í málefnum Menntafélags
byggingariðnaðarins."
Á aðalfundi verða þessir dagskrárliðir:
1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
2. Gjaldkeri leggurfram til samþykktarendur-
skoðaða ársreikninga.
3. Tillaga stjórnar um fjárhagsáætlun fyrir
næsta starfsár.
4. Framkvæmdastjóri leggurfram fram-
kvæmdaáætlun næsta starfsárs.
5. Lagabreytingar enda séu þær kynntar í fund-
arboði.
6. Tilnefningar til stjórnar.
7. Kjörinn löggiltur endurskoðandi.
8. Önnur mál.
• Kjarnaskóli bygginga og mannvirkjagreina.
• Starfsgreinaráð.
Stjórnin.
Aðalfundur
MARKAÐURINN HF JmV
Aðalfundur Faxamarkaðarins hf. verður
haldinn á Gauká Stöng miðvikudaginn 20. maí
kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalafundarstörf, samkvæmt
samþykktum félagsins
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Aðalfundur
Norrænafélagið í Reykjavík heldur aðalfund
í Norræna húsinu þriðjudaginn 19. maí
kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagsmenn hvattirtil að mæta.
Stjórnin.
Aðalfundur
Aðalfundur Garðs ehf. verður haldinn miðviku-
daginn 20. maí 1998, kl. 16:00 á Lögmanns-
stofu Jónasar A. Aðalsteinssonar í Lágmúla
7, Reykjavík.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundastörf.
Stjórnin.
Breiðablik
— skíðadeild
Aðalfundur deildarinnar verður haldinn fimmtu-
daginn 14. maí kl. 20.00.
Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórnin.
Fundarboð
Aðalfundur Þroskaþjálfafélags íslands
verður haldinn á Grettisgötu 89, 4. hæð,
fimmtudaginn 14. maí 1998 kl. 20.00.
Dagskrá aðalfundar:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
AT VI NNUHÚSNÆÐI
Lagerhúsnæði 403 fm
Til leigu er lager- og iðnaðarhúsnæði í nýju
húsi í Smárahvammslandinu í Kópavogi. Sala
kemurtil greina. Flúsnæðið er nú laust.
Upplýsingar veitir Hanna Rúna á skrifstofutíma
í síma 515 5500.
Skrifstofuhúsnæði 54 fm
Til leigu og hugsanlega til sölu er innréttað
skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í Ármúla.
Húsnæðið getur verið laust fljótlega til afnota.
Upplýsingar veitir Hanna Rúna á skrifstofutíma
í síma 515 5500.
Verslunarhúsnæði 123 fm
Til leigu er vandað verslunarhúsnæði í Skip-
holti. Húsnæðið verður laust 1. júní.
Upplýsingar veitir Hanna Rúna á skrifstofutíma
í síma 515 5500.
Til leigu
Atvinnuhúsnæði í fallegu húsi í vesturbæ.
Góð aðkoma, og góð bílastæði.
130 fm á 2. hæð og 256 fm á 3. hæð.
Uppl. gefur Hrönn eða Steinar í s. 551 1570.
Sendiráðsstarfsmaður
íslenskur, einhleypur óskar eftir 3ja herb. íbúð
til leigu í vestur- eða austurbæ.
Vinsamlega sendið upplýsingar og tilboð,
merkt: „R — 777" til afgreiðslu Mbl. fyrir 25.
þessa mánaðar.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. Rb.1 ■ 1475127 - Lf.*
FERÐAFÉLAG
% ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 563-2533
Miðvikudagur 13. maí
kl. 20.30.
Myndakvöld að Mörkinni 6:
Hálendlð — Árbókarsvœðið
— Sumarleyfisferðakynning.
Myndakvöld i Ferðafélagssalnum
i Mörkinni 6 er tileinkað hálendi
íslands, en fyrir hlé mun Björn
Hróarsson, jarðfræðingur, sýna
□ EDDA 5998051219 I Lf. 1
fjölbreyttar myndir af náttúru-
perlum á hálendinu og af svæði
nýju árbókarinnar: Fjallajarðir og
Framafréttur Biskupstungna. Eftir ,
hlé verða nokkrar spennandi
sumarleyfisferðir kynntar, auk
hvítasunnuferða. Verð 500 kr.
Góðar kaffiveitingar í hléi. Allir
eru velkomnir. Gerist félagar og
eignist hina nýju og glæsilegu ár-
bók. Hægt er að skrá sig á mynd-
akvöldinu. Afmælistilboð á ferða-
bók Konrads Maurers er fram-
lengt út þessa viku, en bókin er
seld á skrifstofunni á 3.900 kr.