Morgunblaðið - 12.05.1998, Síða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Samráð í heilsugæslu
Alþjóðadagur hjúkr-
unarfræðinga, fæð-
ingardagur Florence
Nightingale, er að
þessu sinni helgaður
„Samráði í heilsu-
gæslu“ - heilbrigði er
allra hagur.
Florence Night-
ingale gerði sér þegar
í upphafi ljóst mikil-
vægi heilsuverndar.
Hreint loft, hreinlæti
“og góð næring var
það sem skipti máli
fyrir heilsu hermann-
anna í pestarbælinu í
Skútarí í Krímstríð-
inu. Andlegri heilsu-
vernd sinnti hún ekki síður. Þegar
hljótt var orðið á kvöldin gekk hún
á milli þeirra með lampann sinn til
að hlusta á þá, hvað þeir hugsuðu
og hvemig þeim leið, enda kölluð
„konan með lampann". Upphafið
að skipulagðri heilsuvernd á ís-
landi má rekja til ársins 1915, þeg-
ar Hjúkrunarfélagið Líkn var
stofnað.
Tilgangur félagsins var að beita
■ sér fyrir því að sjúklingar gætu
fengið faglega hjúkrun í heima-
húsum og vinna að bættu heilsu-
fari og heilsuvernd. Fyrsta ís-
lenska lærða heilsuverndarhjúkr-
unarkonan var Oddný Guðmunds-
dóttir. í upphafi starfaði hún hjá
Hjúkrunarfélagi Reykjavíkur,
sem stofnað var 1902 til að sinna
Bergljót
Lindal
Kristbjörg
Þórðardóttir
heimahjúkrun, síðar hjá Berkla-
varnarstöð Reykjavíkur, sem var
fyrsti vísir að heilsuverndarstöð á
landinu.
Af þessu má sjá að heilsuvernd
og heimahjúkrun á sér langa sögu
og hefur fylgt mönnum gegnum
tíðina með einum eða öðrum
hætti. Líkn annaðist heimahjúkr-
un frá upphafi, ung- og smábarna-
vernd frá 1927 og mæðravernd
frá 1928.
Bæjaryfirvöld gerðu sér grein
fyrir hve mikilvægt starf Líknar
var og skipaði nefnd til að gera
tillögur um fyrirkomulag „full-
kominnar heilsuverndarstöðvar í
Reykjavík“ eins og segir í fundar-
gerð.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
Brúðhjón
Allur borðbúnaður Glæsileg gjdfavara Briiðarhjóna lislar
fyðe/b&N&X-, VERSLUNIN
Langavegi 52, s. 562 4244.
Frábær fyrirtæki
1. TÍskuverslun miðsvæðis á Laugaveginum með mikið af góðum
umboðum m.a. umboð frá stórri verslunarkeðju sem vill opna
hérvinsæla verslun. Gott verð.
2. Lítil hverfisverslun full af vörum með um 4 millj. kr. mánveltu.
Gott starf fyrir einstakling eða hjón. Laus strax af sérstökum
ástæðum. Mjög gott verð.
3. Blóma- og gjafavöruverslun. Sér kæli- og skreytingaherbergi.
Frábær aðstaða til allra hluta. Með stærri blóma- og gjafavöru-
verslunum landsins. Miklir möguleikar og frábær staðsetning.
Mikil aukning í veltu frá einum mánuði til annars enda staðsett
á einum fjölmennasta stað landsins.
4. Rótgróinn söluturn miðsvæðis og mjög snyrtilegur. Stuttur opn-
unartími. Hagstæð húsaleiga. Mikil íssala á sumrin. Spilakassar
sem borga ríflega leiguna. Miklir möguleikar.
5. Smurbrauðsstaður sem selur eingöngu eftir pöntunum í veislur
og samkvæmi. Góð aðstaða en selstvegna veikinda. Mjög gott
verð.
6. Ein glæsilegasta sælgætisverslun landsins á frábærum stað.
Engin venjuleg búð. Mörgum klössum fyrir ofan hina. Húsnæðið
gæti einnig verið til sölu.
7. Heilsustúdíó sem er mjög í tísku í dag. Mikil aðsókn og mikil
vinna. Góð staðsetning og ódýr húsaleiga. Ný tæki.
8. Veitihgarstaður með matar- og kaffisölu. Staðsettur á vinnu-
svæði og búinn að vera þar lengi. Sæti fyrir yfir 60 manns. Lokað
kl. 17 á daginn, laugardaga og sunnudaga. Borðbúnaðarleiga.
Veislueldhús. Nokkuð sem margir eru búnir að vera lengi að
leita. Öll tæki sem þarf.
9. Leikföng — ritföng —- föndurvörur — bækur. Glæsileg verslun
með nýjum innréttingum og stöðugri aukningu. Sú eina sinnar
tegundar á stóru svæði. Mikið um uppákomur framundan. Frá-
bært tækifæri fyrir þá sem vilja skapa sér sjálfstæða og skemmti-
lega atvinnu.
10. Ert þú að leita að góðu tækifæri? Heildverslun og framleiðsla
á sérstakri vöru sem ekki þarfnast sérþekkingar en tengist smíði
og sölumennsku. Nýlegar vélar sem gefa mikil tækifæri til aukn-
ingar og fjölbreytni. Hafið samband, þú sérð ekki eftir því.
Ath. Höfum góða kaupendur að heildverslunum og
framleiðslufyrirtækjum.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
SUÐURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRlMSSON.
tók til starfa í desember 1953, tók
við starfsemi Líknar jafnframt
því sem hún færði út kvíarnar.
A Heilsuverndarstöðinni var
sinnt heilsuvernd og heimahjúkr-
un og færustu sérfræðingar ráðn-
ir til starfa á hverju sviði. En
hugsunarhátturinn breyttist, farið
var að leggja megináherslu á fjöl-
skylduna og alhliða þjónustu og
að heimilislæknar og hjúkrunar-
fræðingar ynnu saman. Það var
fyrst og fremst með þetta í huga
að sett voru lög um heilsugæslu-
stöðvar og tóku þau gildi 1. janúar
1974.
Heilsugæslan skyldi vera horn-
steinn heilbrigðisþjónustunnar,
vera fyrsti tengiliður við heil-
brigðiskerfið og hafa yfirsýn yfir
þarfír fólksins á starfssvæði henn-
ar. A heilsugæslustöð á m.a. að
veita almenna læknisþjónustu,
hjúkrunarþjónustu, sjúkraþjálf-
un, iðjuþjálfun, heimahjúkrun og
heilsuvernd, en aðalgreinar
heilsuverndar eru m.a. mæðra-
vernd, ung- og smábarnavernd,
heilsugæsla í skólum, bólusetn-
Hugsunarhátturinn
breyttist, segja
Bergljót Líndal
og Kristbjörg Þórðar-
dóttir. Farið var að
leggja megináherslu
á fjölskylduna og
alhliða þjónustu.
ingar, heilsuvernd aldraðra o.fl.
En hvernig hefur til tekist?
Landsmenn eru almennt
ánægðir með heilsugæsluna og
má segja að hún hafi náð þeim
sessi sem henni var ætlaður. í
Reykjavík er málið þó flóknara,
m.a. vegna þess að þar er fram-
boð á heilbrigðisþjónustu mest,
heilsugæslustöðvarnar margar,
ásamt Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur, stofnanir ýmiss konar og
sérfræðingar.
Heilsuverndin er þungamiðja
heilsugæslunnar, og eitt megin-
hlutverk hjúkrunarfræðinga. Þar
sem hún er hljóðlát þjónusta og
lítt áþreifanleg er nauðsynlegt að
samræma hana að vissu marki.
Heilsugæslan þarf að hafa samráð
um þá þjónustu sem hún veitir.
En fyrst og fremst þarf að hafa
samráð við íbúana sjálfa og gera
þá virka þátttakendur. Alþjóða-
dagur hjúkrunarfræðinga, sem
helgaður er þessu efni, veitir okk-
ur því kærkomið tækifæri til að
vekja fólk til umhugsunar um
hlutverk heilsugæslunnar og
bjóða landsmenn velkomna á
heilsugæslustöðvarnar.
Bergljót Líndal er hjúkrunarfor-
stjóri á Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur. Kristbjörg Þórðardóttir er
hjúkrunarforstjóri á Heilsugæslu-
stöð Miðbæjar.
Sæmundur fróði afhjúp-
aður - Oddastefna 1998
SUNNUDAGINN 17.
mai næstkomandi verð-
ur stytta af Sæmundi
fróða Sigfússyni (1056-
1133) afhjúpuð í Odda á
Rangárvöllum. Styttan
er afsteypa af styttu Ás-
mundar Sveinssonar,
„Sæmundi á selnum“,
sem blasir við bersvæð-
is á skeifublettinum fyr-
ir framan aðalbyggingu
Háskóla íslands. Sæ-
mundur var svo lærður
maður að undrum sætti
og mynduðust um hann
þjóðsögur sem lifðu með
þjóðinni í aldir. Stytta
Asmundar minnir á
þjóðsöguna um sundreið Sæmundar
á kölska í selslíki, á leið heim úr
Svartaskóla.
Sæmundur er einn merkasti mað-
ur Islandssögunnar. Hann stofnaði í
Odda einn fyrsta skólann á landinu
og varð þar mikið fræðasetur hátt á
aðra öld. Hann býr ásamt örfáum
samtímamönnum í haginn fyrir
gullöld fræðaþorsta og ritgleði með
þjóðinni sem nær hátindi næstu öld
að honum gengnum. Sköpun er í al-
gleymingi og hinn dásamlegi þjóð-
ararfur verður til þessar aldir.
Ugglaust hafa foreldrar Sæ-
mundar, þau Sigfús og Þórey í
Odda, kvatt drenginn sinn með
kvíða í brjósti, er þau senda hann
yfir hafið til náms út í hinn stóra
heim. Það var nær einsdæmi. En
hinum gáfaða syni þeirra var ætlað
mikið hlutverk þegar heim kæmi að
námi loknu. Nýjar menntir sem
breiddust út með kristninni var
honum ætlað að sækja, bæði endur-
nýjaða speki fyrri tíma og nýjar
kenningar lærðra manna á megin-
landinu.
Þótt Sæmundi dveldist svo mjög
að gerð var að lokum út leit að hon-
um, fór svo að Sæmundur brást
ekki foreldrum sínum og kom heim
sprenglærður. Hann varð hinn fróði
Sæmundur, vitur og virtur áhrifa-
maður með þjóðinni. Oddi á Rang-
árvöllum varð um langan aldur
Þór Jakobsson
fræðasetur og afkom-
endur Sæmundar og
konu hans, Guðrúnar
Kolbeinsdóttur, Odda-
verjar, valdamikil ætt í
landinu.
Afhjúpun Sæmund-
arstyttu í Odda 17. maí
nk. markar upphaf
kristnitökuafmælis í
Rangárvallaprófasts-
dæmi.
Hvar lærði
Sæmundur?
Sæmundur hefur
löngum verið talinn hafa
lært í Svartaskóla í
París, en skóli sá mun
reyndar ekki hafa verið kominn til
sögunnar á dögum Sæmundar, nema
þar hafi verið kominn mjór vísir að
Afhjúpun Sæmundar-
styttu í Qdda 17. maí
nk., segir Þór Jakobs-
son, markar upphaf
kristnitökuafmælis í
Rangárvallaprófasts-
dæmi.
hinum fræga skóla sem síðar varð.
Hvað sem því líður, eru aðrir staðir
líklegri, þar sem verið hafa meiri
menntasetur á tímum Sæmundar en
París var orðin.
I bókinni „Um haf innan“ (Há-
skólaútgáfan, 1997) eftir Helga Guð-
mundsson prófessor eru rök færð
fyrir því að Sæmundur Sigfússon
hafi lært í Angers, höfuðstað Anjou í
Frakklandi. I Angers var á síðari
hluta 11. aldar frægur skóli, og
stunduðu þar t.d. að sögn Helga
margir Englendingar nám. Skóla-
meistari Sæmundar hefur þá verið
Marbod af Rennes (um 1035-1123),
en hann og röð lærifeðra á undan
honum mann fram af manni voru all-
ir víðfrægir lærdómsmenn.
Helgi segir síðan: „Þeir áttu mik-
inn þátt í því að leggja grundvöll
þeirrar menntunai-, sem varð síðar
endun-eisn 12. aldar í menningu
Evrópu. Sæmundur fróði hefur þá
verið í tengslum við hámenningu 11.
aldar. Það skýrir verk hans. Odda-
verjar hafa haldið áfram á sömu
braut. Margir hafa notið góðs af
þeirri rnenntun."
Njáluslóð á Oddastefnu 1998
Að lokinni messu hjá sr. Sigurði
Jónssyni í Odda og afhjúpun „Sæ-
mundar á selnum“ í Odda á Rangár-
völlum 17. maí nk. verður gert hlé á
mannfagnaði en að svo búnu hefst
árleg ráðstefna með erindaflutningi
á vegum Oddafélagsins, félags
áhugamanna um endurreisn fræða-
seturs í Odda, Oddastefna. Fjallað
verður um landslag og gróður á tím-
um Njáluatburða, um kristnitöku.
Staðkunnugir Rangæingar og nátt-
úrufræðingar, er rannsakað hafa
sögu lands og gróðurs í Rangárþingi,
munu bera saman bækur sínar. Að
þessu sinni verður Oddastefna hald-
in á Hvolsvelli.
Vel fer á að halda hátíð í Odda 17.
maí, þjóðhátíðardag Norðmanna, en
sögu Noregskonunga, Heimskringlu,
samdi sem kunnugt er Snora Sturlu-
son, fóstursonur Jóns Loftssonar í
Odda, dóttursonar Magnúsar ber-
fætts Noregskonungs. Gaman er til
þess að hugsa, að Sæmundur fróði
og Snorri hafi alist upp við sama hól-
inn. Heitir hann Gammabrekka.
Þess skal að lokum getið, að á
komandi Oddastefnu má að tillögu
undirbúningsnefndar, þeirra Guð-
mundar Sæmundssonai- kennara og
Þórðar Tómassonar safnstjóra í
Skógum og Oddgeirs Guðjónssonar
frá Tungu, vænta umræðu um upp-
haf samvinnu Oddafélagsins og
Byggðasafnsins í Skógum um heim-
ildir, rannsóknir og minjar seinni
alda í Rangárþingi.
Höfundur er veðurfræðingur og
formaður Oddafélagsins.
WICANDERS
GUMMIKORK wicanders
í metravís
• Besta undirlagið fyrir trégólf
og linoleum er hljóðdrepandi,
eykur teygjanleika gólfsins.
• Stenst hjólastólaprófanir.
• Fyrir þreytta fætur.
GUMMIK0RK róargólfin niður!
ÞP
&co
Þ. ÞORGRIMSSON & CO
ASMULA29 • PÓSTHOLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SIMI 553 8640 568 6100
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433