Morgunblaðið - 12.05.1998, Síða 44

Morgunblaðið - 12.05.1998, Síða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Skuldir Reykjavíkurborgar (borgarsjóður, stofnanir, fyrirtæki og hlutafélög) 1990 -1998 (á verðlagi I árslok 1997) 20.000 18.000 16.000 14.000 12.000 k jc 5 10.000 j 8.000 6.000 4.000 2.000 0 18.200 Skuldir 1990 Skuldir1994 Skuldir 1998 (R-listínn tekur við) Staðreyndir um skuldir borgarinnar BORGARSTJÓRI og aðrir frambjóðend- ur R-listans hafa að undanfömu, meðal annars í tveimur sjón- varpsþáttum, reynt að telja borgarbúum trú um að skuldir borgar- innar hafi aukist óverulega á þessu kjörtímabili. Borgar- stjóri fullyrti að aukna ^ skuldasöfnun mætti aðallega skrifa á lán- tökur vegna fram- kvæmda við Nesja- vallavirkjun. Þessar fullyrðingar eru fjarri öllu sanni og allur sá blekkingarleikur sem borgarstjóri ástundar til að sýna ranga mynd af skuldasöfnun borgarinnar hefur vakið mikla athygli. Árið 1990 voru skuldir borgar- Skuldaaukning borgarinnar á þessu kjörtímabili, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, nemur 5,5 milljörðum króna að raungildi._____________ innar 6,9 milljarðar króna. f júní 1994 þegar R-listinn náði meiri- hluta í borgarstjórn fékk hann löggilta endurskoðendur til að gera úttekt á fjármál- um borgarinnar. Nið- urstaða þeirra var sú að skuldir borgarinnar yrðu í árslok 1994 12,7 milljarðar króna. Þessar tölur hafa verið færðar til sambæri- legs verðlags m.v. árs- lok 1997. I lok ársins 1998 verða skuldir borgarinnar 18,2 millj- arðar króna. Lántökur vegna framkvæmda við Nesjavallavirkjun eru ekki taldar með. Þrátt fyrir það aukast skuldir borgarinnar á þessu kjörtímabili um 5,5 milljarða króna að raungildi. Þessi mikla skuldasöfnun borg- arinnar síðustu fjögur árin á sér stað á sama tíma og auknar álög- ur sem R-listinn lagði á íbúa og fyrirtæki í borginni þegar hann tók við, færa borgarsjóði á kjör- tímabilinu 4,6 milljarða króna. Auk þess hafa útsvarstekjur hækkað verulega á tveimur síð- ustu árum í kjölfar aukins hag- vaxtar. Kosningaloforð R-listans um að greiða niður skuldir hefur því ver- ið efnt með því að auka skuldir borgarinnar um u.þ.b. 5,5 millj- arða króna á kjörtímabilinu þrátt fyrir nýjar og auknar álögur á borgarbúa. Þetta er lýsandi dæmi um orð og efndir R-listans. Höfundur er borgarfulltrúi. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson KOSNINGAR ‘98 Þjónusta við íbúa í Lindahverfi í Kópavogi ÞEGAR fólk flytur í hverfi, sem er í upp- byggingu fer það fljót- lega að velta íyrir sér ýmsum spumingum varðandi þjónustu. Hvemig þróast sam- göngumál hverfisins, hvenær verða leikskól- inn og grunnskóli hveifisins teknir í notk- un o.s.frv.? I Lindahveifi í Kópa- vogi hefur orðið mjög hröð uppbygging þannig að sumir íbúar hveifisins hafa haft áhyggjur af því að öll þjónusta verði ekki komin innan fárra ára. Halla Halldórsdóttir Strætisvagnasam- göngur Töluvert hefur verið kvartað yfir strætis- vagnasamgöngum við norðurhluta Linda- hverfis. Fólksfjölgun þar hefur orðið örari en AV (Almennings- vagnar) höfðu gert ráð fyrir. En nú hefur ver- ið ákveðið að strax næsta haust verði bætt við vagni í Lindahverfi. Verslun og þjónusta Skólar og leikskólar Lokið hefur verið við byggingu nýs leikskóla við Funalind og verð- ur hann vígður 11. maí. Arið 2001 er gert ráð fyrir að tekinn verði í notk- un nýr leikskóli rétt vestan við Lindaskóla. Fyrsti áfangi Linda- skóla verður teldnn í notkun í haust. Aætlað er að árlega þurfi að bæta við nýrri álmu, þangað til skólinn verður fullkláraður árið 2001. Bæj- arráð Kópavogs ákvað nýlega að láta útbúa íþróttaaðstöðu í Linda- skóla í tengslum við sal skólans. Nú þegar er komin ein 11-11 matvöruverslun við Funalind og ekki er langt í að matvöruverslun komi í norðurhluta hverfisins (Lindir 2). Síðan er ekki langt að fara yfir að Smáratorgi þar sem em Rúmfatalagerinn, Elko og ýmsar smávömverslanir. Fljót- lega verður opnuð stór matvöru- verslun þar. Eftir 2 ár er gert ráð fyrir að Smáralind verði opnuð þar sem verður stærsti verslunar- kjarni sinnar tegundar á Islandi. Næsta haust verður opnuð ný heilsugæslustöð rétt vestan við Smáralind. Lokafrágangur nýju hverfanna Núverandi men-ihluti Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks hefur lagt mildnn metnað í að ljúka sem fyrst frágangi í nýju hverfúnum, þ.e. malbika götur og stíga og ganga frá grænum svæðum. Atakið í endur- gerð gömlu gatnanna hefúr tekið tii sín vel á annan milljarð króna, og Mikil uppsveifla hefur verið í Kópavogi síð- ustu ár. Halla Hall- dórsdóttir vonar að kjósendur séu ánægðir með verk núverandi meirihluta. hefúr það eðlilega seinkað frágangi í nýju hverfunum. Nú fer brátt að sjá fyrir endann á því átaki og þá er hægt að hefja átak í að ljúka frá- gangi í nýju hverfunum. Vona ég að Kópavogsbúar sýni að þeir séu ánægðir með verk núverandi meiri- hluta og setji X við D í komandi sveitarstjómarkosningum 23. maí. Höfundur er forseti bæjarstjórnar Kópavogs og skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins iKópavogi. „MENNTUN er ekki það sem við lærum held- ur það sem er eftir þeg- ar við höfum gleymt því sem við höfum lært“ (gömul speki). Nú er menntun barna okkar á ábyrgð sveitar- félaganna og getur því hvert sveitarfélag mótað sína skólastefnu. Það er því alveg ljóst að skóla- mál og skólastefna hvers sveitarfélags kem- ur til með að hafa heil- mikið að segja um hvar fólk vill búa og ala upp sín böm. Þrátt fyrir að í Mos- fellsbæ séu starfandi þrír góðir leikskólar, hver með sína uppeldisstefnu, er ástand leikskóla- mála slæmt. Fjöldi barna er á biðlista eftir leikskólavist og ekki fyrirsjáanlegar neinar úrbætur þar á. Einnig hefur verið erfitt að halda í þá leikskólakennara sem hafa komið til starfa við leikskólana vegna lé- legra launa. Við getum öll verið sam- mála um að skortur á menntuðu starfsfólki hefur hamlandi áhrif á innra starf leikskólanna. Þegar börnin okkar koma úr leikskólanum í grunnskólann verður mikil breyting á öllum aðbúnaði þeirra og um- hverfi. Nú er það aðeins einn kennari sem hefur umsjón með 20 - 30 nemendum. Það má því ekkert út af bera ef allir eiga að fá kennslu við hæfi. Því er mikilvægt að okkur takist að halda góðum kennuram við skólana og að þeir flýi ekki kennarastarfið vegna óánægju með kjör sín. Ef við ætlum að búa vel að mennt- un barna okkar þurfum við að móta heildarskólastefnu fyrir allt skóla- starf í Mosfellsbæ sem stenst kröfur þess samfélags sem við búum við í dag. Það er ekki nóg að leggja áherslu á að einsetja skólana til þess eins að fullnægja gildandi lagafyrir- Skólastefna hvers sveitaríelag's hefur, segir Alfa Jóhanns- dóttir, heilmikið að segja um það hvar fólk vill búa og ala upp börn sín. mælum, heldur verður skólastefna okkar að vera framsækin og áræðin og taka til allra skólastiga. Það er mikilvægt að tryggja að öll börn tveggja ára og eldri eigi kost á skólavist. Til þess að svo megi verða þarf að byggja nýjan fjögurra deilda leikskóla til viðbótar þeim sem fyrir eru. Ennfremur þarf að bæta kjör kennara og gera starf leik- og grannskólakennara í Mosfellsbæ eft- irsóknarvert. Með því verður auð- veldara að fá menntað og hæft starfsfólk til þess að fræða börnin okkar og byggja upp og framfylgja metnaðarfullri skólastefnu. Kæri Mosfellingur. Með þínum stuðningi vilja frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins berjast fyrir betra skólastarfi á næsta kjörtímabili. Höfundur skipar 7. sæti á D-lista sjálfstæðisfólks í Mosfellsbæ. Það vantar skóla- stefnu í Mosfellsbæ Alfa Jóhannsdóttir Vafasamur ferill tveggja frambjóðenda GETUR verið að Reykvíkingar geri minni siðferðiskröfur til kjör- inna fulltrúa sinna í borgarstjórn heldur en gengur og gerist í lýð- ræðisríkjum? Mér er spurn vegna þess að þrátt fyrir að margir viti til þess að tveir af efstu mönnum R-listans eigi i vafasaman feril að baki í fjármálum, virðist sú umræða hvergi koma upp á yfirborðið. Samt hefur mér ekki sýnst skorta á áhuga fjölmiðla og almennings á því að taka hart á sam- bærilegum málum, hvort ^pólitík eða viðskiptum og Unnur Pótursdóttir sem er í ekki síst þegar þekktir einstak- lingar eiga í hlut. Mér er með öllu hulin ráðgáta hvers vegna íjölmiðlar hafa hingað til ekki skýrt almenningi frá því að þeir Helgi Hjörvar f 1. sæti R-list- ans og Hrannar B. Arn- arsson í 3. sæti eru langt því frá að hafa þá hæfni eða það fjármálalega traust sem ætlast verð- ur til af borgarfulltrú- um. Ég, sem kjósandi í Reykjavík, gæti sætt mig við þögnina ef þeir Helgi og Hrannar hefðu óviljandi lent í hringiðu fjármála- vandræða í eitt skipti. Slíkt hefur komið fyrir marga og það fólk er ekkert verra fyrir það. En þegar menn með langan feril fjármálaóreiðu og gjaldþrota bjóðast til að ráðstafa fjármunum okkar skattgreiðenda og virðist ætla að takast það, þá er mál að láta í sér heyra. Ástæðan er ekki minni í því Ijósi að þessir tveir menn hafa starfað ná- ið saman að þeim umsvifum sem hér um ræðh. Þar bera þeir sömu ábyrgð. Hér er ekki um dylgjur að ræða, heldur grjótharðar staðreyndir sem fram koma í opinberam skjölum. Þeir Helgi og Hrannar ráku fyrir- tæki sitt Arnasrson & Hjörvar sf. í gjaldþrot þannig að kröfuhafar töp- uðu 50 milljónum króna. Milljóna króna skattgreiðslur eru enn í van- * Eg sem kjósandi í Reykjavík, segir Unnur Pétursddttir, gæti sætt mig við þögnina, ef þeir Helgi og Hrannar hefðu óviljandi lent í hringiðu fiármálavand- ræða í eitt skipti. skilum. Þeir önnuðust ritstjórn og framkvæmdastjóm tímaritsins Þjóð- lífs ásamt öðrum. Þegar sá rekstur var kominn í þrot seldi Þjóðlíf áskriftainnheimtu til harðsvíraðra rukkara sem svifust einskis til að hafa fé af fólki - jafnvel þótt það hefði sagt áskriftinni upp eða greitt hana skilvíslega. Frá því Arnarsson & Hjörvar sf. varð gjaldþrota 1994 hefur Hrannar verið eigandi og forsvarsmaður tveggja fyrirtækja sem hafa orðið gjaldþrota og að auki komið að rekstri nokkurra annarra þar sem gert hefur verið árangurslaust fjár- nám vegna vangoldinna skulda. Síð- asta gjaldþrotabeiðni á hendur Hrannari er frá 29. júlí 1996. Kannanir benda til þess að R-list- inn fái meirihluta í kosningunum. Ef þeir Helgi og Hrannar verða kosnir í borgarstjórn Reykjavíkur fara þeir sjálfkrafa i borgarráð í krafti þess að vera efstu menn R- listans. Borgarráð tekur allar helstu ákvarðanfr um milljarða króna út- gjöld borgarinnar. Jafnframt blasir við að vinstri flokkarnir á Alþingi stefna að sameiginlegu framboði til Alþingiskosninga á næsta ári, jafn- vel undir forystu Ingibjargar Sól- rúnar. Þá mun hún hætta sem borg- arstjóri. Hver tekur þá við? Helgi Hjörv- ar, efsti maður á R-listanum? Lágmarkskrafa borgarbúa er að Helgi Hjörvar og Hrannar B. Arn- arsson sýni hvort þeir eru trausts- ins verðir áður en ákvörðun verður tekin um hæfni þeirra til að ráðstafa fjármunum Reykjavíkur. Höfundur er ráðgjafi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.