Morgunblaðið - 12.05.1998, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998 61
FOLK I FRETTUM
Að finna sinn
eiginn stíl
Trommarinn sagði engan fæðast fullmótað-
an tónlistarmann, þetta væri spurning um á
hvaða vettvangi maður kysi að þroska sig.
Hildur Loftsdóttir hitti þrjú ungmenni sem
halda brottfarartónleika sína í vikunni. Þau
veltu fyrir sér náminu og framtíðinni.
SNORRI, Þóra Gréta og; Hjörleifur
utskriftartónleikunum S °S Sanna á
DAGANA 12., 14. og 15. maí halda
Þóra Gréta Þórisdóttir söngkona,
Snorri Sigurðarson trompetleikari
og Hjörleifur Jónsson trommuleikari
brottfarartónleika sína í tónleikasal
PIH, þar sem þau hafa stundað
djasstónlistarnám síðustu ár. Skól-
inn er ungur og enn í mótun, og má
segja að kennarar og nemendur þrói
námsbrautirnar í sameiningu. Þóra
og Snorri eru t.d. þau fyrstu sem út-
skrifast sem trompetleikari og
söngvari.
Iljörleifur: Einhvern veginn þá
kemst maður upp með ótrúlega sér-
visku í þessum skóla, þá meina ég í
lagavali en ekki hijóðfæraleik. Þessi
skóli stendur eiginlega saman af ein-
tómum sérviskupúkum.
Þóra Gréta: Það er bara svo
margt ennþá í mótun, þess vegna er
allt frjálst og þannig verða ekki allir
steyptir í sama mót.
Snorri: Ég held að við Þóra höfum
eiginlega rutt brautina af því við
þurftum sjálf að fínna út hvemig við
vildum haga náminu. Núna vita
kennaramir hvemig á að fara að
þessu.
Þóra: Það var mjög gaman, þótt
það gæti verið erfitt stundum.
Rjörleifur: Mér finnst það í raun-
inni vera þannig með alla nemendur,
því hver og einn leggur gmnninn að
því hvað hann ætlar að gera í út-
skriftartónleikunum. Manni era
gefnar mjög frjálsar hendur og má
þess vegna spila Metallica.
Snorri: Maður velur sér samt eng-
un stíl í upphafi. Málið er að hlusta á
ógrynni af tónlist og reyna að spila
allt sem er dæmigert fyiár það sem
þú ert að hlusta á, svo pikkar maður
ósjálfrátt út það sem maður vill nota.
Persónulegur stfll kemur ekki fyrr
en seinna þegar maður er búinn að
spila meira.
Hjörleifur: Það fæðist enginn full-
mótaður tónlistarmaður og þetta er
spuming um á hvaða vettvangi mað-
ur kýs að þroska sig. Það er þess
vegna hægt að sitja heima, æfa sig
alla daga og vera sinn eigin kennari.
Skóli er ekki aðalatriðið.
Þóra Gréta: Það er náttúralega
misjafnt hvað hentar hverjum og
einum.
Hjörleifur: Já, einmitt og mér
finnst FÍH gefa hverjum nemanda
það frelsi sem til þarf til þess að
karakter hans skíni í gegn.
Nám í djasstónlist gengur að
miklu leyti út á að læra að snarstefja
eða „improvísera“ og þá er nauðsyn-
legt að hafa góða grannþekkingu á
hljóðfærið. Þetta er því framhalds-
nám og það hefur brannið við að það
vanti sérhæfða djasskennara. En er
það ekki einmitt framtíðarverkefni
fyrir útskriftarnemana?
Hjörleifur: Nei, mig langar alls
ekki til að kenna.
Snorri: Ég er nú reyndar í kenn-
aradeild skólans en það er eiginlega
til að fá að læra á öll hljóðfæri.
Þóra Gréta: Ég held að það sé
best að segja aldrei aldrei í sam-
bandi við kennslu.
Hjörleifur: Maður hugsar samt
alls ekki þegar maður er tíu ára:
Best að læra á trommur þá get ég
farið að kenna. Maður vill spila og
gera flotta tónlist.
Snorri: Það er best að komast í
tísku sem stúdíóspilari til að fá eitt-
hvað að gera hér á landi.
Þóra Gréta: Maður lifir náttúra-
lega ekki lengi á því að spila djass og
gera ekkert annað.
Snorri: Þegar við komumst á elli-
lífeyri getum við stofnað hljómsveit
saman og spilað djass.
- Er það þá bara eymdin ein sem
bíður ykkar eftir brottfarartónleik-
ana?
Þóra Gréta: Nei, alls ekki, nú fer
maður að spila og syngja tónlist að
eigin vali.
Hjörleifur: Ég vil reyna að starfa
sem mest við tónlist. Eg er að spila
með bandinu hennar Móu og við
munum fara víða. Málið er samt að
geta skapað einhverja tónlist en ekki
bara að vera góður spilari og bíða
eftir að einhver hringi í mann. Það
gerir það enginn.
Snorri: Ég ætla að nota þetta ár
til að þróa tónlistarsmekkinn og
finna mig sem spilara í stað þess að
vera alltaf að klára einhverja áfanga.
Það gæti eitthvað skemmtilegt
gerst.
Hjörleifur: Samt vantar alls ekki
áhuga hjá tónlistarmönnum til að
kenna. Það strandar allt á yfirvöld-
um sem eiga að borga, og margt í
eflingu tónlistarstarfsins er unnið í
sjálfboðavinnu af hugsjón. Eina sem
yfirvöld gera er að hreykja sér á
tyllidögum af öflugu tónlistarlífi í
landinu.
Þóra Gréta: Þetta er mjög áhuga-
verður skóli og mikill uppgangur í
honum. Það væri virkilega gaman að
sjá hann fá meðbyr.
Snorri: Maður getur lært allt í
honum því kennararnir era virkir
tónlistarmenn sem fylgjast með því
sem er að gerast, en ekki bara kenn-
arar.
- Hvað ætlið þið að spila á tónleik-
unum til að laða fólk að?
Snorri: Meirihlutinn af dag-
skránni er frekar ný tónlist. ECM
tónlist sem er mjög flæðandi djass-
tónlist. Menn eins og Keith Jarret,
Kenny Wheeler og fleiri tengjast
þessari stefnu.
Þóra Gréta: Dagskráin mín er
töluvert blönduð; Miles Davis, Steve
Coleman og Duke Ellington. Ég fer
svona víðar í tíma en Snorri. Svo
verður dagskráin líka að sýna á
manni sem flestar hliðar.
Hjörleifur: Ég er bara að spila
uppáhaldslögin mín, lög sem ég varð
ástfanginn af fyrst þegar ég heyrði
þau. A tónleikunum verð ég eigin-
lega að sýna hvað ég get, og sumt er
mjög mikið „sjó off‘ það verður að
viðurkennast.
- Skiptir það ykkur miklu máli að
margir komi á tónleikana?
Þóra Gréta: Það yrði mun
skemmtilegra.
Hjörleifur:Það vita náttúralega
mjög fáir hver við eram, og þess
vegna er mikilvægt upp á framtíðina
að fólk úr sem flestum áttum láti sjá
sig.
Snorri: Ég vona að eitthvert fólk
komi af því að það hefur áhuga á að
heyra mig spila, ekki bara af því að
það þekkir mig.
IljörIeifur:Ég vil bara fá sem
flesta. Það er ömurlegt að spila það
sem maður er búinn að undirbúa í
heilt ár fyrir fjöratíu manns.
- Er leiðinlegt að vera að skiíja við
skemmtilegan skóla?
Hjörleifur: Mér hefur aldrei á æv-
inni liðið jafnvel með nokkuð. Ég er
orðinn of vanur skólanum og það
hefur verið kyrrstaða hjá mér í tvö
ár. Maður vill að hlutirnir séu alltaf í
þróun og það er hollt að vera að fara
að gera eitthvað annað. Þetta er búið
að vera mjög fint.
Snorri: Framhaldið tekur við ...
Þóra Gréta: ...og við færam okkur
áfram.
Þaö sem gerir heimilið aö sælureit er notalegt umhverfi meö fallegum
húsgögnum þar sem öllum getur liðið vel og látiö fara vel um sig.
Viö í Húsgagnahöllinni leggjum mikiö upp úr því aö bjóöa alþjóðlegt
og fallegt úrval vandaöra húsgagna.
Hefðbundin húsgögn til þess nýjasta nýja og öll verðbreiddin.
Ví<í eruwi Hér í-yrír J>íg/
Fia sófasett
Fáanlegt í mörgum litum
V
HÚSGAGNAHÖLUN
Bíldshöföl 20-112 Rvfk - S:510 8000