Morgunblaðið - 12.05.1998, Qupperneq 68
Atvinnutryggingar
þær að þínu
-^r. fyrirtæki.
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 6691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Skoðun á Boeing 737 með yfír 50 þúsund flugtíma
Skipt um raflagnir í
~tveimur Atlanta-þotum
TVÆR Boeing 737 þotur Atlanta
flugfélagsins, sem verið hafa í frakt-
flugi fyrir þýska flugfélagið Luft-
hansa, voru stöðvaðar á sunnudag í
Köln og í Manchester meðan raf-
magnsvírar í eldsneytistönkum
þeirra voru athugaðir í framhaldi af
fyrirmælum bandarískra flugmála-
yfirvalda þar að lútandi. I ljós kom
að skipta þurfti um vírana og var
gert ráð fyrir að því verkefni lyki í
gærkveldi og vélamar myndu aftur
hefja flug í nótt.
Bandaríska flugmálastjómin
-«*FAA) gaf um helgina út fyrirmæli
um tafarlausa skoðun á raflögnum
við eldsneytisgeyma í vængjum
Boeing 737 flugvéla sem flogið hefði
verið meira en 50 þúsund flugtíma.
Þá voru einnig gefin fyrirmæli um
að Boeing 737 vélar sem flogið hefði
verið meira en 40 þúsund flugtíma
yrði að skoða innan 14 daga. Fyrir-
Flugvél Islands-
flugs verður skoðuð
innan 14 daga
mæli FAA, sem gefin em út í fram-
haldi af slysi á þotu af umræddri
gerð, ná ekki til þeirra fimm B737
flugvéla sem Flugleiðir nota í
rekstri sínum en þær hafa að með-
altali um 23 þúsund flugtíma að
baki. Era fjórar þoturnar af gerð-
unum 737-400 og ein fraktvél af
gerðinni 737-300.
Atlanta hefur þrjár 737 þotur í
rekstri og vora tvær þeirra, sem
hafa 63.500 og 64.400 flugtíma að
baki, skoðaðar en ekki þarf að skoða
þá þriðju sem flogið hefur verið í
um 27 þúsund tíma. Hafþór Haf-
steinsson, flugrekstrarstjóri Atl-
anta, sagði að um væri að ræða raf-
magnsvíra fyrir eldsneytisdælu í
eldsneytisgeymum. Flughæfistil-
mælin kvæðu á um það að vírarnir
yrðu teknir úr, einangrun þeirra
skoðuð og skipt um þá ef einangrun
væri orðin eydd að einhverju leyti.
Það hefði verið tilfellið og hefði ver-
ið unftið að því að skipta um þá í
gær. Væri gert ráð fyrir að vélamar
færa í loftið aftur í nótt.
Innan fjórtán daga
íslandsflug rekur eina B737-200
þotu en henni hefur verið flogið inn-
an við 50 þúsund tíma og þarf því að
skoða hana innan fjórtán daga. Ell-
ert Eggertsson, deildarstjóri tækni-
deildar, sagði að ekki væri enn Ijóst
hvort athugun á vélinni færi fram
hér á landi eða í Englandi, en hún
myndi fara fram fyrr en seinna.
Slitskemmdir/22
Morgunblaðið/Kristinn
Erró sýnir 200 verk
MYNDLISTARMAÐURINN Erró
kom til Islands um helgina og
vinnur nú að undirbúningi og
uppsetningu þriggja sýninga á
verkum sínum; á Listahátíð í
Reykjavík og í grunnskólanum í
Ólafsvík.
'C-'* Síðdegis í gær var Erró staddur
á Kjarvaisstöðum þar sem hann
undirritaði 150 sérprentuð eintök
af veggspjaldinu sem hann hann-
aði fyrir Listahátíð 1998. Mynd-
imar verða til sölu í miðasölu há-
tíðarinnar.
Fæst verkanna á sýningunum
þremur hafa komið fyrir sjónir al-
‘íiennings hér á landi áður. I
Hafnarhúsinu reiknast Erró til að
verk sín verði um 96, í Galleríi
Sævars Karls verða 70 vasamynd-
ir svokailaðar, andiit tekin upp
úr óiíkum teiknimyndaseríum, og
í Ólafsvík verða til sýnis 30 verk
úr Errósafni Listasafns Reykja-
víkur.
„Þetta eru allt myndir af kon-
um,“ segir Erró um sýningarnar
tvær á Listahátíð. Myndimar kom
hann margar með frá París, sum-
ar eru allt að tveir til þrír metrar
að stærð, aðrar minni. „Ég skil
einhverjar eftir hér heima fyrir
Errósafnið en aðrar flýg ég með
út aftur.“
Triila tveggja ís-
lendinga sigld niður
Morgunblaðið. Kaupmannahöfn.
TRILLA með tveimur íslendingum
innanborðs var sigld niður undir
miðnætti á laugardagskvöld af
þýsku flutningaskipi. Mennirnir,
sem eru búsettir í Hirtshals,
komust báðir um borð í þýska skip-
ið og vora síðan sóttir af björgunar-
skipi frá Hanstholm, en trillan
sökk.
Trillan var sautján sjómílur íyrir
utan Hanstholm er óhappið varð.
Klukkan 23.30 barst neyðarkall frá
trillunni og tilkynnt að leki hefði
komið að henni vegna árekstrar.
Mennirnir voru teknir um borð í
þýska flutningaskipið sem sigldi á
trilluna. Kallað var á þyrlu strand-
gæslunnar og beðið um aðstoð við
að dæla sjó úr trillunni, en þegar
þyrlan kom á staðinn var þegar
kominn of mikill sjór í trilluna til að
hægt væri að gera nokkuð. Hún
sökk skömmu síðar.
Björgunarskip frá Hanstholm
kom á staðinn og sótti íslendingana
tvo. Að sögn strandgæslunnar var
siglt með mennina til Hanstholm og
þangað komu þeir undir morgun.
Þeir voru eftir atvikum vel á sig
komnir.
Morgunblaðið/RAX
Vætutíð
fram yfir
helgi
SLAGVIÐRIÐ gerði óþægilega
vart við sig í gær eftir
tilþrifalítið veður síðustu
vikurnar og ekki er lítlit fyrir
annað en sunnanáttir verði
áfram ríkjandi um sunnan- og
vestanvert landið næstu daga
með tilheyrandi vætutíð.
Veðurstofan spáir suðlægum
áttum fram yfír helgi, einkum
um landið sunnan- og
vestanvert en veður verður
milt.
Hugmynd kjördæma- og kosningalaganefndar
Landinu skipt í sex
kjördæmi í stað átta
ÞÆR hugmyndir sem einkum hafa
verið til umræðu í nefnd þeirri sem
Davíð Oddsson forsætisráðherra
skipaði hinn 8. september sl. til að
endurskoða kjördæmaskipan gera
ráð fyrir þremur til fjórum lands-
byggðarkjördæmum og að höfuð-
borgarsvæðinu verði skipt í þrjú
kjördæmi. Þingflokkar Alþingis
ræddu hugmyndir kjördæma- og
kosningalaganefndar á fundum sín-
um í gær, en í henni eiga sæti full-
trúar allra þingflokka. Formaður
nefndarinnar, Friðrik Sophusson
alþingismaður, segir að í þeim um-
ræðum hafi komið fram að skiptar
skoðanir séu um hugmyndir nefnd-
arinnar. Engar ákvarðanir liggi
fyrir en þó sé ljóst að ekki sé leng-
ur spuming um það hvort gera
verði breytingar á kjördæmaskip-
aninni heldur hvenær.
Nefndin hefur haldið 16 bókaða
fundi frá því hún var skipuð og hef-
ur unnið að þeim meginmarkmið-
um að gera kosningakerfið einfalt
og auðskiljanlegt öllum almenningi
sem og að jafna vægi atkvæða. Þá
hefur hún það að markmiði að hafa
fjölda þingmanna í hverju kjör-
dæmi sem jafnastan, til dæmis á
bilinu fimm til tíu, og að áfram
verði sem mestur jöfnuður á milli
þingflokka á landsvísu til að fjöldi
þingmanna hvers flokks sé í sem
bestu hlutfalli við kjósendatöluna.
Nýtt fyrirkomulag árið 2003?
Samkvæmt núverandi kosninga-
kerfi era kjördæmin átta en í nefnd-
inni hafa verið uppi hugmyndir um
að sldpta landinu í sex kjördæmi. Sú
hugmynd sem margir virðast geta
fellt sig við gerir til dæmis ráð fyrir
því að Vesturland, Vestfirðir og
Norðurland vestra verði eitt kjör-
dæmi, Norðurland eystra og Múla-
sýslur verði annað, A-Skaftafells-
sýsla, Suðurland og Suðumes hið
þriðja, Reylqanes án Suðumesja
það fjórða og að lokum að Reykjavík
verði skipt í tvö kjördæmi.
Friðrik segir að starf kjördæma-
og kosningalaganefndar haldi
áfram í sumar og að gert sé ráð
fyrir því að hún skili áliti sínu til
forsætisráðherra síðar á þessu ári.
Hann segir ennfremur að stefnt sé
að því að leggja fram framvarp til
laga um breytingar á stjórnar-
skránni á næsta þingi og að það
verði afgreitt frá Alþingi fyrir al-
þingiskosningar á næsta ári.
Þannig verði hægt að kjósa sam-
kvæmt nýju fyrirkomulagi í alþing-
iskosningunum árið 2003.
Friðrik ítrekar að síðustu að
kjördæmanefnd sé í raun enn á
byrjunarreit og að hún hafi skoðað
margar hugmyndir. „Það má segja
að eini árangur nefndarinnar hing-
að til sé sá að öllum alþingismönn-
um sé nú ljóst að gera verði breyt-
ingar á kjördæmaskipaninni. Ekki
er því lengur spurning um hvort
slíkar breytingar verði, heldur
hvenær," segir hann.