Morgunblaðið - 13.05.1998, Síða 6
6 MII)VIKl' 1)A(}UR lk MAÍ1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
*
ASI leggur áherslu á heildstætt réttindakerfí foreldra á vinnumarkaði
Fæðingarorlof taki
mið af heildarlaunum
__ Morgunblaðið/Porkell
FRA ráðstefnu um fjölskyldustefnu ASÍ í gær
ALÞÝÐUSAMBAND íslands legg-
ur áherslu á heildstætt réttindakerfi
foreldra á vinnumarkaði sem endur-
speglar áherslu verkalýðshreyfing-
arinnar á rétt og möguleika launa-
fólks til að samræma atvinnuþátt-
töku og fjölskyldulíf. Þetta felur
meðal annars í sér rétt til töku færð-
ingarorlofs í samanlagt 28 vikur og
foreldraorlofs í samanlagt 26 vikur,
sem skal ljúka áður en barn hefur
náð átta ára aldri. Þá er lagt til að
greiðslur taki mið af heildarlaunum
viðkomandi síðustu tólf mánuði,
þannig að í fæðingarorlofi taki þær
mið af fullum viðmiðunartekjum, en
gi'eiðslur í foreldraorlofi verði að
lágmarki 85% af viðmiðunartekjum.
Þetta kom meðal annars fram á
ráðstefnu um fjölskyldustefnu Al-
þýðusambandsins í gær. Halldór
Grönvold, skrifstofustjóri ASÍ, fjall-
aði á ráðstefnunni um áherslm- í
þessum efnum á vinnumarkaði hér á
landi og á Norðuriöndunum. Fram
kom að verkalýðshreyfingin væri
með sífellt heildstæðari stefnu að
þessu leyti og það hefði sett svip sinn
á baráttu evrópskrar verkalýðs-
hreyfingar hvað varðaði vinnutíma
og hvað varðaði réttarstöðu foreldra
með foreldraorlofssamningunum
sem gerðir hefðu verið. Sama gilti
um samninga sem verið hefðu í burð-
arliðnum varðandi réttarstöðu fólks í
hlutastörfum. Halldór vísaði einnig
til nýafstaðinna átaka í Danmörku
og þeirra áherslna sem norska
verkalýðshreyfmgin væri að setja í
sínum samningum.
Halldór fjallaði síðan sérstaklega
um samninga um foreldraorlof og
benti á að fyrsti evrópski kjarasamn-
ingurinn sem gerður hefði verið
hefði verið gerður um fjölskyldupóli-
tík. Fram kom að íslendingar hefðu
átt að gildistaka hann 3. júní ár, en
ríkisstjórnin hefði nýtt sér ákvæði í
samningnum um að heimilt væri að
fresta gildistöku hans um eitt ár frá
þeim tíma.
Aðspurður um hvað gildistaka
samningsins þýddi fyrir fólk hér á
landi, sagði hann að samningurinn
fæli í sér rétt foreldra til foreldraor-
lofs að viðbættu fæðingarorlofi. Or-
lofið væri þrír mánuðir að lágmarki
fyrir hvort foreldri vegna hvers
barns og væri mögulegt að dreifa
töku orlofsins allt til átta ára aldurs
barnsins. Einnig væri í samningnum
að finna ákvæði um rétt foreldra tO
að víkja tafarlaust af vinnustað af
fjölskylduástæðum, ef til dæmis væri
um að ræða veikindi einhvers ná-
komins. Hins vegar væri í samningn-
um ekki að finna ákvæði um greiðsl-
ur vegna þessara réttinda.
Halldór sagði foreldraorlof væri
þekkt með einum eða öðrum hætti í
öllum þeim Evrópulöndum sem aðild
ættu að Evrópska efnahagssvæðinu
nema írlandi, Luxemburg, Bretlandi
og íslandi. í þessum löndum hefðu
þessi réttindi verið fjármögnuð með
einhvers konar launasköttum eða
tryggingargjaldi, sem væri lögbund-
ið og byggði á ákvörðunum stjórn-
valda.
Réttindakerfíð ónýtt
Halldór sagði að það væri almennt
viðurkennt að það réttindakerfi sem
væri í gildi hér á landi núna væri
ónýtt vegna þess hve rétturinn hér
væri skammur miðað við það sem
gilti í þeim löndum sem við bærum
okkur gjaman saman við. Greiðslur í
fæðingarorlofi, sérstaklega á al-
mennum vinnumarkaði, hefðu alltaf
verið lágar og aldrei eins og nú, þvi
þær hefðu setið eftir í launaþróun
undanfarinna ára. Áður hefðu þær
verið aðeins hærri en lægstu laun, en
í dag væri fæðingarorlof ásamt fæð-
ingarstyrk verulega undir lágmarks-
launum. Það hefði síðan gert það að
verkum að fólk kvartaði yfir því að
það hefði tæplega eða jafnvel ekki
fjárhagslegt bolmagn til þess að nýta
sér þennan takmarkaða rétt. Þá væri
kerfið hér á landi mjög ósveigjan-
legt. Til dæmis félli rétturinn niður
eftir sex mánuði ef fólk hefði ekki
nýtt sér hann. Þá væru réttindin
mismunandi eftir því hvort um væri
að ræða starfsmenn á almennum
vinnumarkaði, opinbera starfsmenn
eða bankamenn. I tengslum við gild-
istöku samningsins um foreldraorlof
væri þvi tækifæri til að endurbæta
og laga þetta kerfi í heild. „Spurn-
ingin er bara einfaldlega hvort menn
ætla að reyna að bæta enn þessa flík
eða reyna að byggja eitthvað upp frá
grunni og þá hvað menn ætla að hafa
þar að leiðarljósi," sagði Halldór í
samtali við Morgunblaðið.
Björgvinjarhátíðin
Bergljót
heldur
sínu striki
„MÍN áætlun hefur ekkert
breyst, opnunardagskráin verð-
ur eins og ég gerði ráð fyrir í
upphafi," sagði Bergljót Jóns-
dóttir, stjórnandi Listahátíðar-
innar í Björgvin, í samtali við
Morgunblaðið í gær en hún hef-
ur valdið miklu uppþoti í borg-
inni með þeirri ákvörðun sinni
að lag sem flutt hefur verið á
opnun hátíðarinnar síðastliðin
40 ár verði ekki flutt að þessu
sinni.
Borgarstjóri Björgvinjar
sendi stjórnarfoi-manni hátíðar-
innar bréf í gær þess efnis að
Bergljót endurskoðaði ákvörð-
un sína og leyfði flutning á um-
ræddu lagi, sem er óður til
borgarinnar og íbúum mjög
kært. „í bréfinu kveðst borgar-
stjórinn vera undir miklum
þrýstingi vegna þessa máls,“
sagði Bergljót, „en það hefur
hins vegar engin áhrif á okkar
dagskrá, þetta lag kemst ekki
fyrir í opnunardagskránni og
þar við situr.“
Bergljót sagði að málið yrði
ekki tekið upp á Stórþinginu
eins og komið hefur fram í frétt-
um. „Fjölmiðlamenn eru hins
vegar afskaplega duglegir við
að halda lífi í þessum þrætum.
Eg vil hins vegar fara að snúa
mér að því að klára undirbúning
fyrir hátíðina, en hún hefst 20.
maí.“
Bergljót sagðist ekki telja að
þessi neikvæða umræða skaðaði
hátíðina. „Miðasala hefur
reyndar frekar aukist en hitt og
er nú svipuð og hún var á sama
tíma síðasta ár.“
Morgunblaðið/Þorkell
Leikið í
Ljósheimunum
ÞAÐ er léttur svipur yfir smá- vætuspá næstu dagana og jafnvel
fólkinu þar sem það er að leik í fram yfír helgi hafa nein áhrif á
Ljósheimunum og það lætur ekki sig.
Hafrannsóknastofnun
Jakob Jakobsson
hættir í sumar
Refsivert að standa ekki
skil á vörslusköttum
JAKOB Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, hefur beðist
lausnar frá starfi sínu frá og með
fyrsta ágúst næstkomandi. Sjávar-
útvegsráðherra hefur ákveðið að
verða við beiðni Jakobs og verður
staðan auglýst laus til umsóknar síð-
ar.
Jakob hefur gegnt þessu starfi
mörg undanfarin ár, en hann var á
sínum tíma þekktastur fyrir sildar-
rannsóknir sínar og þátt sinn í síld-
arleitinni, er síldarævintýrið stóð yf-
ir fyrir rúmum þremur áratugum.
Hann hefur síðustu árin starfað sem
prófessor við Háskóla Islands sam-
hliða starfi sínu hjá Hafrannsókna-
stofnun.
Aðstoðarforstjóri Hafrannsókna-
stofnunar er Jóhann Sigurjónsson.
VORSLUSKATTAR hafa verið til
umræðu í fréttum fjölmiðla að und-
anförnu en ekki er víst að allir geri
sér grein fyrir um hvaða skatta er
að ræða. Samkvæmt upplýsingum
Sigurðar Skúla Bergssonar, for-
stöðumanns innheimtusviðs hjá
Tollstjóraembættinu, er með
vörslusköttum átt við virðisauka-
skatt, staðgreiðslu, sem vinnuveit-
andi dregur af launum starfsmanna
og skilar til innheimtumanns auk
þess sem tryggingagjald telst til
vörsluskatts. Vanskil eru refsiverð
og eru dæmi um að stjómarfor-
menn og framkvæmdastjórar fýrir-
tækja hafi fengið á sig dóm, fjár-
sektir, varðhald og fangelsi vegna
vangoldinna vörsluskatta.
Greiddur á tveggja
mánaða fresti
Virðisaukaskattur er yfirleitt
greiddur á tveggja mánaða fresti
en það getur verið mismunandi eft-
ir fyrirtækjum og er sumum gert
að gera skil einu sinni í viku. Greitt
er samkvæmt skýrslum, sem aðilar
senda til skattstjóra og er skattur-
inn lagður á samkvæmt þeim og
miðast greiðslan við veltu. „Þeir
sem reka fyrirtæki leggja virðis-
aukaskatt á þjónustuna og þeim
virðisauka á að skila til ríkissjóðs,"
sagði Sigurður Skúli. „Skýrslunum
er skilað til skattstjóra en ekki inn-
heimtumanns en skattstjóri kemur
þeim inn í tölvukerfi innheimtu-
manns þangað sem gi’eiðslunum er
skilað.“
Samkvæmt lögum er heimilt að
stöðva atvinnurekstur þeirra, sem
ekki hafa staðið skil á vörsluskött-
um. „Þá er jafnframt gripið til fjár-
námsaðgerða og ef til vill eftirfar-
andi uppboðsaðgerða,“ sagði Sig-
urður Skúli. „Ef fjárnám eða inn-
heimta er árangurslaus þá er kraf-
ist gjaldþrotaskipta hjá viðkomandi
aðila. Þetta getur því verið langt
ferli.“ Mánaðarlega eru reiknaðir
vextir á öll vanskil en vörsluskattar
eru almenn krafa og hafa ekki for-
gang umfram aðrar kröfur þegar
kemur til gjaldþrotaskipta.
Samkvæmt lögum er refsivert að
standa ekki skil á vörslusköttum.
„Það eru dæmi um að stjómarfor-
menn og framkvæmdastjórar hafi
fengið á sig dóma,“ sagði Sigurður
Skúli. „Það geta bæði verið íjár-
sektir, fangelsi og varðhald."
Sagði hann nokkuð mismunandi
hversu lengi væri hægt að komast
upp með að skulda vörsluskatta. í
sumum tilvikum væri ekki hægt að
koma við stöðvun atvinnurekstrar
t.d. ef um væri að ræða sjálfstætt
starfandi iðnaðarmenn, einyrkja
eða aðra, sem ekki hefðu sérstaka
starfsstöð, sem hægt væri að inn-
sigla eins og gert er þegar um
verslunarrekstur væri að ræða.
Sex til átta
ára skuldir
Sagði hann að dæmi væm til um
að atvinnurekstur hafi verið stöðv-
aður og að skuldin hafi ekki verið
greidd 6-8 áram síðar en skuldin
væri ekki afskrifuð. Hún safnar
vöxtum áfram og eru þeir reiknaðir
mánaðarlega á höfuðstól. „Verið
getur að skuld viðkomandi aðila sé
komin til gjaldþrotaskipta fyrir ein-
hverjum áram og þá er skuldin
alltaf til staðar í innheimtukerfinu,"
sagði hann.
Sigurður Skúli sagði það grund-
vallarreglu að embættið samþykkti
ekki nauðasamninga þegar um
vörsluskatta væri að ræða. Um þá
væri ekki samið en samkvæmt lög-
um um gjaldþrotaskipti þá er það
ákveðinn hluti kröfuhafa sem ræð-
ur um hvað er samið. „Þannig að þó
svo ríkissjóður greiði atkvæði gegn
nauðasamningi þá getur hann kom-
ist á samt sem áður, t.d. ef aðrir
kröfuhafar og stærri samþykkja
samninginn þá er hann bindandi,“
sagði hann. Nauðasamningar geta
verið mismunandi en í þeim öllum
er ákvæði um gjalddaga eða gjald-
frest.
Ný símaskrá
væntanleg
NY símaskrá er væntanleg í lok
mánaðarins og verður henni
dreift á pósthúsum til símnot-
enda í Reykjavík dagana 25.-27.
maí nk. Nýja skráin tekur gildi
28. maí.
Að sögn Hrefnu Ingólfsdótt-
ur, upplýsingafulltrúa Lands-
símans, verða tilkynningar um
símaskrána ekki sendar út til
notenda að þessu sinni. Þess í
stað er ætlast til að símaskráin
verði sótt á pósthúsin eða þjón-
ustumiðstöðvar Landssímans.
Ef þess er óskað verður hægt
að fá fleiri en eina skrá ef um
fleiri en einn síma er að ræða.