Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Þorkell Alþingi Stutt Eignarhald og nýting á auð- lindum í jörðu SAMKOMULAG náðist milli þing- flokka Alþingis um að ljúka annarri umræðu um stjórnarfrumvarp um eignarhald og nýtingu á auðlindum í jörðu í gær og lauk henni á átt- unda tímanum í gærkvöldi. Hafði hún þá staðið yfir í tvo daga. Enn hefur þó ekki náðst sátt milli þing- flokka Alþingis um þinglok í sumar. Þá var samþykkt samhljóða á Al- þingi í gær að vísa frumvarpi til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta til þriðju umræðu. í dag hefst hins vegar önnur umræða um stjórnarfrumvarp til laga um hús- næðismál. Alþingi Dagskrá ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 í dag. Eftirfarandi mál eru á dagskrá: 1. Eignarhald og nýting á auð- lindum í jörðu. Frh. 2. umr. (At- kvæðagr.) 2. Húsnæðismál. 2. umr. Þreytulegur þingheimur ÞAÐ er kannski ekki að undra að þingmenn eru sumir hverjir orðnir hálfþreytulegir, eins og mæðusvipur Gunnlaugs M. Sig- mundssonar, Jóns Kristjánsson- ar, Árna Mathiesen, Árna John- sen og Einars Odds Kristjáns- sonar gefur glöggt til kynna. Umræður hafa varað tímunum saman um hvert málið á fætur öðru og ekkert lát virðist ætla að verða á málþófi stjórnarand- stöðunnar, ef marka má um- mæli Jóhönnu Sigurðardóttur alþingismanns í gær, því þing- maðurinn sagðist vel treysta sér til þess að ræða húsnæðis- málafrumvarp félagsmálaráð- herra fram í mitt „laxveiðitíma- bil“. Viðskiptaráðherra um málefni Lindar hf. Svara að vænta í lok vikunnar FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð- herra vonast til þess að geta lagt fram skrifleg svör við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur alþingis- manns um málefni Landsbanka Is- lands og fjármögnunarfyrirtækis- ins Lindar hf. í lok þessarar viku. Þetta kom fram í máli ráðherra í upphafi þingfundar á Alþingi í gær eftir að Asta hafði kallað eftir upp- lýsingum um það hvenær vænta mætti svara við fyrirspurninni, sem hún hefði lagt fram á Alþingi 21. apríl sl. Viðskiptaráðherra kvaðst enn- fremur harma að það hefði dregist að svara fyrirspurninni. Tíminn til þess væri hins vegar stuttur miðað við það hve svörin væru viðamikil. „Nú er unnið að því að svara fyrir- spurninni og ég vonast til þess að í lok þessarar viku verði hægt að leggja svörin fram á Alþingi,“ sagði hann. Þingfjokksformenn um hugmyndir kjördæma- og kosningalaganefndar Mismunandi sjónarmið en áhersla á löggjöf fyrir kosningar MJÖG mismunandi áherslur koma fram í máli formanna þingflokkanna til þeiiTa hugmynda sem einkum hafa verið til umræðu í nefndinni sem forsætisráðherra skipaði til að endurskoða kjördæmaskipan lands- ins. Rannveig Guðmundsdóttir, for- maður þingflokks jafnaðarmanna, segir að sú yfirferð sem farin hefur verið í málinu sé ekki til þess fallin að vekja bjartsýni um að stigin verði stór skref í átt að breyttri kjördæmaskipan. „Þessar tillögur bera með sér hvað það eru ólík viðhorf innan þingsins," sagði Rannveig Guð- mundsdóttir, þegar leitað var við- horfa hennar til hugmyndar nefnd- arinnar sem forsætisráðherra skip- aði. Hún sagði að jafnaðarmenn hefðu lengi barist fyrir að hafa land- ið allt eitt kjördæmi. Um hugmynd- ir þær sem greint hefur verið frá að feli m.a. í sér að Vesturlandskjör- dæmi, Vestfjarðakjördæmi og Norðurlandskjördæmi vestra verði eitt kjördæmi sagði Rannveig að það yrði erfitt fyrir þingmenn að afla sér trausts hjá kjósendum áður en þeir verði valdir til trúnaðar- starfa í svo víðlendum kjördæmum. Hún sagðist heyra að þessar hug- myndir féllu víða ekki í góðan jarð- veg meðal þingmanna landsbyggð- arinnar. „Ég get ekki metið eftir þessa yf- irferð hvernig lendingu er hugsan- lega hægt að ná,“ sagði Rannveig. „En mér finnst ekki ástæða til mik- illar bjartsýni um að það verði stigið mjög stórt skref. En við verðum að sjálfsögðu að ná þeim áfanga að jafna atkvæði að marki.“ Rannveig sagði að jafnaðarmenn væru ekki búnir að taka afstöðu til tillagnanna. „Við höfum gefið okkar fulltrúa í nefndinni vegamesti til að vinna áfram á þeim vettvangi." Róttækar breytingar Valgerður Sverrisdóttir, formað- ur þingflokks Framsóknarflokksins, áréttaði í samtali við blaðamann að þær hugmyndir sem fram eru komnar hjá nefndinni væru hug- myndir; óvíst væri að nokkur þeirra yrði að veruleika. „Þetta er sett fram til að sýna að við stöndum frammi fyrir því að gera nokkuð róttækar breytingar ef við ætlum að taka á þessu og ef við ætlum að verða sammála um breytingarnar.“ Valgerður sagði að mismunandi áherslur flokkanna mótuðust af því að flokkarnir vildu eiga möguleika á fulltrúum í sem flestum kjördæm- um. Hugmyndirnar voru ræddar í þingílokkunum í fyrradag og sagði Valgerður að framsóknarmenn hefðu séð galla á öllum tillögunum en einnig kosti. Hún sagði að flokk- urinn hefði ekki hallast að einhverri ákveðinni útfærslu en sér hefði ver- ið veitt áframhaldandi umboð til ALÞINGI þess að vinna að málinu innan nefndarinnar og kvaðst búast við lagasetningu með áfanga í jöfnun kosningaréttar fyrir kosningar. Landsbyggðarmálin samhliða Svavar Gestsson, þingflokksfor- maður Alþýðubandalagsins og full- trúi þess í nefndinni, sagði að góðar umræður hefðu orðið um málið á þingflokksfundi á mánudag. „Til- gangur okkar með umræðum í þing- flokkunum var að átta okkur á því hver væri þeirra afstaða," sagði Svavar. Þingflokkur Alþýðubanda- lagsins hefði lagt áherslu á að jafn- hliða kjördæmamálinu þyrfti að ræða fleiri mál. „Það eru sérstak- lega þróunin á landsbyggðinni, sam- göngur, atvinnu- og efnahagsmál á landsbyggðinni. Jafnhliða breyting- um á kjördæmaskipan yrði gripið til aðgerða til þess að efla og treysta byggð og lögð áhersia á lagfæringar á stjórnkerfínu sjálfu til að gera það skilvirkara og öflugara en það er núna.“ „Ef þessi umræða um jöfnun at- kvæðisréttar snýst bara um það að flytja fimm þingmenn frá lands- byggðinni til Reykjavíkur og Reykjaness þá er umræðan of ein- Tvær hörku góðar eignir í Kópavogi Mánabrauf - glæný sérh. Til afhendingar strax 101 fm neðri sérhæð í nýju tvíbýli. Fullbúin í hólf og gólf með vönduðum innréttingum, parketi og flísum. Frábær staðsetning í vesturbæ Kópavogs. Áhv. 5,2 millj. í húsbr. Verð aðeins 8,8 millj. 2126. Lyngheiði - parhús ein hæð Gott 124 fm parhús á frábærum stað við opið svæði. 3 svefnh. Nýtt parket. Allt sér. Áhv. 5,5 millj. 25 ára lán. Verð 9,6 millj. Skipti á 2—3 herb. íb. 2018. Norðumnýri - Guðrúnargata Mjög góð mikið endurnýjuð 64 fm íbúð í kjallara (lítið niðurgrafin). Allt sér. Parket. Frábær staðsetning. Verð 5,4 millj. Valhöll , fasteignasala, Síðumúla 27, sími 588 4477. hliða og augljóst að um hana verður ekki mikil sátt í þinginu," sagði Svavar aðspurður hvers vegna flokkurinn vildi tengja umræður um atkvæðavægi miili landshluta byggðamálum. „Þess vegna viljum við stuðla að því að það verði jafn- vægi í umræðunni og ég heyri að það er vilji fyrir því í fleiri flokk- um.“ Svavar kvaðst þó eindregið eiga von á að lagabreytingar um málið yrðu afgreiddar á kjörtímabilinu en kvaðst ekkert geta sagt til um núna hvort það frumvarp yrði byggt á einróma niðurstöðu fulltrúa fiokk- anna í nefndinni. Rannsóknarverkefni um jafnrétti Guðný Guðbjörnsdóttir, formaður þingflokks Kvennalistans og fulltrúi hans í nefndinni, lagði áherslu á að hugmyndirnar væru hugsaðar til kynningar á þessu stigi. „Við eigum eftir að fara í gegnum umræðuna um persónukjör og hvernig það verður best tryggt að konur jafnt sem karlar skipi listana," sagði Guð- ný. Hún sagði það hluta af erindis- bréfi nefndarinnar að taka sérstak- lega mið af jafnrétti kynjanna. Með- al annars væri nú unnið að lögfræði- legu rannsóknarverkefni tengdu jafnrétti kynjanna í þessu sam- hengi. Niðurstaða í því ætti að liggja fyrir síðsumars en óljóst er hvort nefndin afgreiðir frá sér til- mæli eða tillögur að lagafrumvarpi um þann þátt málsins. Guðný sagði að Kvennalistinn stæði að tillögunum eins og þær líta út núna og sagði listann virða það að verið væri að reyna að ná fram samkomulagi um afgreiðslu máls- ins. „Ég hef lagt megináherslu á að kjördæmin séu sem stærst, það eru mestar líkur á að konur komist að við kosningar í slíkum kjördæm- um.“ Hún sagði að hins vegar væri ósamkomulag um ýmis tæknileg út- færsluatriði, en lagði áherslu á að afgreiða málið fyrir kosningar, sér- staklega að stigið yrði skref í átt til jöfnunar milli kjördæma fyrir lok kjörtímabilsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.