Morgunblaðið - 13.05.1998, Side 14

Morgunblaðið - 13.05.1998, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Hæstiréttur 1 Tyrklandi vísar forræðismáli norskrar konu aftur til neðra dómstigs Gögn skortir um geðheilsu föðurins Bókasafn Garðabæjar í nýtt húsnæði BÓKASAFN Garðabæjar flutti fyrir skömmu í nýtt húsnæði á Garðatorgi 7, en safnið var áður til húsa í Garðaskóla. Stærð nýja húsnæðisins er 493 fm en gamla húsnæðið var 300 fm en það var á sinum tíma sérhannað fyrir safn- ið og tekið í notkun árið 1982. Safnið verður rekið sem al- menningsbókasafn en bókasöfn skólanna í Garðabæ tengjast því með tölvuneti auk þess sem safn- ið tengist öðrum söfnum með sameiginlegum gagnagrunni og netkerfi Garðabæjar. Ingimundur Sveinsson arkitekt hannaði nýja húsnæðið, Álftárós sá um bygginguna og innrétting- ar og búnaður eru frá Pennanum hf., Á. Guðmundsson ehf., Epal hf., Þjónustumistöð bókasafna og Ofnasmiðjunni hf. Kostnaður við nýja bókasafnið eru rúmar 70 milljónir króna. Bóka- og tímaritaeign safnsins er um 30.000 eintök auk geisla- diska og myndbanda og eru stöðugildi við safnið ljögur og hálft. Forstöðukona Bókasafns Garðabæjar, Erla Jónsdóttir bæj- arbókavörður, tók í tilefni flutn- inganna við lyklum að nýjum húsakynnum safnsins úr hendi Ingimundar Sigurpálssonar bæj- arstjóra Garðabæjar. HÆSTIRÉTTUR Tyrklands hefur vísað forræðismáli Mette Sollihagen Hauge, norskrar konu sem vann í nóvember sl. forræðismál fyrir tyrkneskum dómstól gegn fyrrver- andi eiginmanni sínum sem heldur dóttur þeirra í heimildarleysi, aftur til neðra dómstigs. Hæstiréttur tók ekki afstöðu í málinu vegna þess að hann taldi vanta gögn um mat tyrk- neskra geðlækna á geðheilsu mannsins. Hann er nú í felum með telpuna og gefur sífellt rangar upp- lýsingar um dvalarstað. Mette Sollihagen Hauge sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi frávísun hæstaréttar gæti tafið mál- ið um allt að heilt ár til viðbótar. Nú er liðið eitt ár og níu mánuðir frá því að fyrrverandi eiginmaður hennar rændi Selmu dóttur þeirra, þar sem hún var í heimsókn hjá honum í Tyrklandi, en hún er nú átta ára gömul. Dapurleg niðurstaða Dómstóll í Ankara dæmdi móður- inni forræði yfír dótturinni 27. nóv- ember 1997, faðirinn áfrýjaði til hæstaréttar, sem vísaði málinu eins og áður sagði aftur til dómstólsins í Ankara 14. apríl sl. vegna skorts á gögnum um geðheilsu mannsins og hæfni hans til að sjá um barnið. „Þetta er auðvitað mjög dapurleg niðurstaða, þar sem líkurnar á því að allt gengi að óskum í hæstarétti voru 99% og hættan á því að illa færi aðeins 1%,“ segir hún. Norska og tyrkneska geðlækna greinir á um geðheilsu mannsins. Sollihagen Hauge segir að skýrsla frá lækni og réttargeðlækni í Nor- egi staðfesti að hann sé ekki heill á geði en jafnvel þó að hann hafi ekki sætt geðrannsókn í Tyrklandi þá hafi hann fengið vottorð um að hann sé heilbrigður. „Nú verður vandamálið að finna hann og þvinga hann til geðlæknis," segir hún. Það getur þó orðið erfitt, þar sem hann er í felum með telpuna og gefur sífellt rangar upp- lýsingar um dvalarstað. Sollihagen Hauge segir að nú standi til að fá samþykktar bráða- birgðaráðstafanir þannig að hún fái að vera með Selmu og búa í Tyrk- landi þar til málið er til lykta leitt. Hún segir að lögmaður sinn hafi áð- ur reynt að fá ákvörðun um þessar ráðstafanir en aldrei fengið svar. I júlí á svo að láta reyna á umgengn- isrétt hennar við dótturina. „Ég vona að það gangi allt vel,“ segir móðirin bjartsýn. Afskipti ríkissaksóknara mikill stuðningur Mette Sollihagen Hauge og tyrk- neskur lögmaður hennar, Murat Bulat, greindu bæði frá því í samtöl- um við Morgunblaðið á síðasta ári að Ólafur Egilsson sendiherra hefði veitt þeim mikilsverða aðstoð og góð ráð en máli þeirra mæðgna svipar á margan hátt til máls Sophiu Hansen og dætra hennar, sem hann hefur unnið að. Solli- hagen Hauge kvaðst einnig hafa rætt við Ólaf í síma að loknum rétt- arhöldunum í hæstarétti í apríl sl. og sagði hún hann hafa stutt sig dyggilega. Hið sama hefur ekki verið hægt að segja um norsk stjórnvöld fram undir þetta, að hennar sögn. „Það eru tvö lönd sem hafa ekki kært sig um Selmu og öryggi hennar og það eru Noregur og Tyrkland. Þau eru bæði jafnslæm og hafa litið á málið eins og það væri mitt einkamál," segir hún. Nú fær hún hins vegar góðan stuðning norka sendiráðsins í Ankara og utanríkisráðuneytisins. Þá breytingu á afstöðu norskra yfir- valda rekur hún beint til ummæla norska ríkissaksóknarans. „Hann skrifaði mér persónulegt bréf í janúar þar sem hann tók und- ir gagnrýni mína á lögreglu og yfír- völd í Noregi. Þar stendur einnig að norsk stjórnvöld verði að endur- skoða vinnubrögð sín í tengslum við barnarán," segir hún og bætir við að þessi afskipti ríkissaksóknara hafi verið sér mikill stuðningur. Hún hefur hingað til fjármagnað allan málareksturinn sjálf og tekið til þess lán en nú hefur hún fengið fjárhagsaðstoð frá dómsmálaráðu- neytinu. Morgunblaðið/Þorkell Verndun hverfandi menning'ar verði forgangsverkefni LANDVERND hefur sent frá sér ályktun um verndun menningarum- hverfis og skorar á ríkisstjórnina að hefja nú þegar markvisst átak í þeim efnum. Landvemd tekur þar með undir samþykkt Norrænu ráð- herranefndarinnar frá árinu 1996 um framkvæmdaáætlun þess efnis. I ályktun Landvemdar segir að vaxandi skilnings hafi gætt á vemdun íslenskrar náttúra, gam- alla bygginga og annarra fomra minja, og flestir séu sammála um að auknu fjármagni til þeirra verk- efna sé vel varið. Takmarkaður skilningur hafi hins vegar ríkt á varðveislu mannlífs og lifandi menningar heilla byggðalaga og er skorað á stjórnvöld að bæta úr því nújjegar. I verndun menningarumhverfis felst verndun menningararfsins og er þar átt við „menningarminjar í landslagi, þ.e. söguminjar við ströndina (verbúðir, uppsátur, vita o.s.frv.), hefðbundinn landbúnað þeirrar tíðar, hlunnindabúskap og mannlífið sem aðlagaði sig aðstæð- um og lifði af landsins gæðum“. Varðveita þarf menninguna áður en hún hverfur Landvemd bendir í þessu sam- bandi sérstaklega á Ameshrepp á Ströndum, þar sé ennþá lifandi mannlíf, sem er forsenda fyrir varðveislu menningararfsins, en ljóst sé að engan tíma megi missa til að glata ekki tækifærinu til að fá íbúa byggðarlagsins til aðstoðar og samstarfs við það verkefni. Þar sýni atvinnuhættir lands og sjávar glögga mynd af lífsbaráttu geng- inna kynslóða og þar sé, auk hefð- bundins landbúnaðar, rekasæld fuglatekja, selveiði og fiskveiðar, þ.á m. hákarlaveiði. Landvernd ályktar að bregðast þurfi skjótt við ef takast á að koma í veg fyrir algjöra eyðingu byggðar- innar, og fari svo muni sú menning sem þar hefur dafnað hverfa og aldrei verða endurvakin. I greinargerð sem fylgir ályktun- inni segir: „Ríkisvaldið, undir for- ystu umhverfisráðuneytisins, þarf nú að láta hendur standa fram úr ermum þegar í stað til að vinna að þessu verkefni. I því skyni verði skipuð fámenn framkvæmdanefnd fulltrúa ríkisvalds og íbúanna, sem fái það veganesti, að viðkomandi ríkisstofnanir skuli veita henni lið við úttekt og aðgerðir í einstökum málaflokkum." Hugmynd Land- verndar byggist á því að litið verði á varðveislu menningar í Arnes- hreppi sem tilraunaverkefni, en ekki leið til að koma upp lifandi safni, enda væri slíkt fyrirfram dauðadæmt, heldur til að viðhalda frjóu og lifandi mannlífi. Fossvogs- bakkar friðlýstir BORGARRÁÐ hefur samþykkt til- lögu um að friðlýsa svæði við Foss- vogsbakka. Tillagan gerir ráð fyrir að jarðmyndanir á svæðinu verði varðveittar í núverandi mynd og að hverskonar mannvirkjagerð eða jarðrask, sem breytt geti útliti eða eðli svæðisins verði háð leyfi Nátt- úraverndar ríkisins. I reglunum er tekið fram að óheimilt sé að losa rusl eða sorp á svæðinu en fólki er heimil för um svæðið enda sé gætt góðrar um- gengni. Umhverfismálaráð hefur umsjón og eftirlit með svæðinu í umboði Náttúruvemdar ríkisins og borgarstjórnar. Gert er ráð fyrir að borgarstjórn muni að höfðu samráði við Náttúruvernd ríkisins, sjá um nauðsynlegar aðgerðir til að al- Eldur í timbur- húsi í Eyjum Vestmannaeyjum - Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað út um miðjan dag á sunnudag vegna elds í einbýlishúsinu Búhamri 25. Að sögn Elíasar Baldvinssonar slökkviliðsstjóra höfðu börn kveikt eld í lagnakjallara sem er undir húsinu. Húsið er timburhús og í því er trégólf og sagði Elías að litlu hefði mátt muna að illa færi. Eldur var kominn í ein- angrun en slökkviliðinu tókst fljótlega að ráða niðurlögum hans. Sagði hann að ef slökkvilið- ið hefði ekki verið svo fljótt á vettvang, sem raun bar vitni, hefði trúlega farið illa. Það hefði einungis verið spurning um mín- útur þar til eldurinn hefði náð að magnast og breiðast út. Eli'as sagði að litlar skemmdir hefðu orðið af völdum eldsins en talsverðar reykskemmdir. menningur geti notið svæðisins, svo sem með lagningu göngustígs og uppsetningu fræðsluskilta. I bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins í borgarráði segir að ástæðulaust sé að friðlýsa svæðið samkvæmt náttúraverndarlögum og fela þannig Náttúravernd ríkis- ins umráð yfir svæðinu og stjórnun. Til að vemda svæðið hefði verið skynsamlegt að um það gilti stað- fest borgarvend og að borgin hefði umráð yfir því en ekki nefnd á veg- um ríkisins. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.