Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Húsasmiðjan opn- ar búð á Selfossi Selfossi - Síðastliðinn laugardag opnaði Húsasmiðjan 2000 m2 verslun og timbursölu á Eyrar- vegi 37 á Selfossi, þar sem áður var SG Búðin. Húsasmiðjan mun reka tvær verslanir á Suðurlandi, eina á Sel- fossi og eina á Hvolsvelli. „Nú geta menn fengið allt það vöruúr- val á Selfossi sem þeir hafa áður þurft að sækja til Reykjavíkur," segir Steinar Árnason, verslunar- stjóri á Selfossi. Asamt hefð- bundnum byggingavörum eru einnig til sölu í nýju versluninni búsáhöld, raftæki, innréttingar, reiðhjól, fatnaður og ýmsar sum- arvörur. AIls starfa um 30 manns hjá Húsasmiðjunni á Selfossi og er fyrirtækið því einn stærsti vinnu- veitandinn á svæðinu. Morgunblaðið/Sig. Fannar NY verslun Húsasmiðjunnar var opnuð á Selfossi á laugardag. Morgunblaðið/Kristjana Ágústsdóttir FRÁ kaffisamsætinu sem haldið var Magnúsi Gestssyni fyrrum safnverði við Byggðasafn Dalamanna til heiðurs. Magnús Gestsson heiðraður Búðardal - Sunnudaginn 26. apríl sl. var haldið hóf á Silfurtúni, heim- ili aldraðra í Búðardal. Hófíð var til heiðurs Magnúsi Gestssyni, safn- verði við Byggðasafn Dalamanna á Laugum. Magnús lætur nú af störf- um eftir áratuga ómetanlegt starf að safnamálum í Dalasýslu. Héraðsnefnd Dalasýslu færði Magnúsi skrautritað skjal í fagur- lega útskornum ramma og þakkaði honum störf hans í þágu byggðar- lagsins. Það má sérstakt þykja í dag þeg- ar allt er metið til peninga að Magnús hefur aldrei viljað þiggja laun fyrir störf sín við Byggðasafn- ið og verða það viðbrigði fyrir ráðamenn í sýslunni þegar nú þarf að ráða starfsmann að safninu. Byggðasafn Dalamanna var opn- að fyrir rúmum 20 árum. Frum- kvöðull að söfnun gamalla muna var Magnús Skóg Rögnvaldsson, fyrrum vegaverksljóri í Búðardal. Magnús Gestsson fór síðan að starfa að safnamálum og byggði safnið upp og skipulagði það. Magnús er mjög fróður og kann margar sögur af mönnum og mál- efnum, en hann gaf út bókina Mannlíf og mórar í Dölum fyrir mörgum árum. Þar segir hann margar skondnar sögur af Dala- mönnum. Magnús er vel ern og les gleraugnalaust en hann er nú kom- inn á mræðisaldur en hefur séð um byggðasafnið allt fram á þennan dag. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason ÞINGFULLTRÚAR á fyrsta þingi Matvís, á tröppum Hótel Stykkishólms. Matvís þingar í Stykkishólmi Stór- menni í heim- sókn Eyrarbakki - Föstudaginn 15. maí næstkomandi er von á Margréti Þórhildi II Dana- drottningu og Hinriki prins í heimsókn til Eyrarbakka, ásamt fleiri stórmennum. Drottningin verður hér á landi í nokkra daga í boði for- setahjónanna Ólafs Ragnars Grímssonar og frú Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur í til- efni þess að á Listahátíð í Reykjavík verður haldin sýning á kirkjulistaverkum eftir Mar- gréti Þórhildi. I Eyrarbakkakirkju er altar- istafla sem Louise drottning Kristjáns konungs IX málaði og gaf til kirkjunnar þegar hún var í byggingu 1890. Louise var langalangamma Margrétar. Boðið til kvöldverðar Þegar forsetinn heimsótti Eyrarbakka á 100 ára afmæli Eyrarbakkahrepps í fyrra, hafði hann á orði að gaman væri að koma með afkomendur Louise til Eyrarbakka að sjá hið ágæta listaverk formóður- innar. Nú er tækifærið komið. Forsætisráðherra og frú bjóða drottningarhjónunum, forseta- hjónunum og fleiri gestum til kvöldverðar í Húsinu á Eyrar- bakka í tilefni heimsóknarinn- ar. Stykkishólmi - Matvís, matvæla- og veitingasamband íslands, hélt þing sitt í Stykkishólmi dagana 6.-8. maí. Landssambandið var stofnað árið 1996 af Bakarafélagi íslands, Félagi framleiðslunema, Félagi matreiðslu- manna og Félagi íslenskra kjötiðn- aðarmanna. Innan sambandsins eru 1.300 félagar um allt land. Matvis er stéttarfélag. Það gerir kjarasamn- inga fyrir sína félagsmenn við at- vinnurekendur og reyndi á það í fyrsta sinn á síðasta ári. Þá lætur Matvís menntunarmál mjög til sín taka. Sambandið rekur Matreiðslu- skólann okkar og þar stendur fé- lagsmönnum til boða fjölbreytt end- Uppræta ber alla svarta atvinnu- starfsemi urmenntun þar sem bæði erlendir og innlendir fyrirlesarar og leiðbein- endur miðla af þekkingu sinni. Þing sambandsins eru haldin annað hvert ár og er þetta fyrsta þingið í sögu sambandsins. Þingið tókst í alla staði mjög vel, enda eru góð aðstaða á Hótelinu í Stykkishólmi. Þingstörf gengu vel fyrir sig og voru mörg mál afgreidd sem skipta miklu máli fyrir félags- mennina. í ályktun þingsins kemur m.a. fram að Matvís krefst þess að stjómvöld vinni af fullri hörku við að uppræta svarta atvinnustarf- semi í landinu. Heiðarlega rekin fyrirtæki eiga litla möguleika í samkeppni við skattsvikara sem virðast komast upp með lögbrot ár- um saman án markvissra aðgerða af hálfu hins opinbera. Brýnt er að stórauka skattrannsókn og eftirlit. Miðstjórn Matvæla- og veitinga- sambands íslands skipa: Níels S. Olgeirsson formaður og með hon- um í stjórn eru Þorsteinn Gunnars- son, Kolbeinn Gunnarsson, Þor- steinn Þórhallsson og Heimir Magni Hannesson. Fólks- fækkun í Gufu- dalssveit Reykhólum - Ungu hjónin á Skála- nesi í Gufudalssveit eru að hætta bú- skap, en samkvæmt samtali við fréttaritara er það vegna skólamála, en skólaselið var lagt niður þar og skólahúsið selt. Akstursleiðin er um 60 km eða 120 km báðar leiðir og fínnst þeim hjón- um leiðin of löng fyrir ung böm að fara. Sérstaklega þegar veður eru vond og leiðin yfir Hjallaháls er stundum erfið. Gufudalssveit var um alda raðir velmegandi hreppur, en á síðari tím- um hefir býlum fækkað þar og eru aðeins sex býli eftir í byggð. Eftir því sem býlum fækkar í sveitinni verður erfiðara fyrir þá sem eftir eru að sjá um haustleitir, en Gufudalssveitin er með betri sauðfjársveitum þessa lands. Hjónin á Skálanesi eru bæði búfræðingar. Hannyrðasýning aldraðra í Barmahlið Sunnudaginn 10. maí var hann- yrðasýning aldraðra í Barmahlíð, og einnig var þar kaffisala. Sr. Bragi Benediktsson sóknarprestur hélt ræðu og talaði um starf brautryðj- endanna sem varð að veruleika með byggingu dvalarheimilisins. Síðan vék han að Jóni Thoroddsen skáldi, en hann var fæddur á Reykhólum. Að lokum las hann upp þulu eftir Theodóm Thoroddsen. Dvalarheimili aldraðra er rekið sem stórt heimili og eru aldraðir ánægðir með vistina þar. Bleytt í toppunum Borgarnesi - Slegið var á létta strengi í Iþróttamiðstöðinni í Borgarnesi á sumardaginn fyrsta. Eftir að séra Þorbjörn Hlynur Árnason hafði blessað nýju sundlaugarmannvirkin var brugðið á Ieik í útisundlauginni og vatnsrennibrautunum. Fyrst fóru efstu menn á fram- boðslistunum þremur í kapp í vatnsrennibrautunum sem eru mislangar en í réttum pólitískum Iitum miðað við framboðin. Þá var efnt til boðsunds í útilauginni þar sem frambjóðendur kepptu saman gegn foreldrum sunddeild- arbarna, starfsmönnum fþrótta- miðstöðvarinnar og starfsmönn- um Loftorku sem var aðalverk- taki sundlaugarmannvirkjanna. Á myndinni má sjá frambjóð- endurna Andrés Konráðsson, Ola Jón Gunnarsson bæjarstjóra og Guðmund Guðmarsson, forseta bæjarstjórnar, bíða þess að röðin komi að þeim i boðsundinu. Morgunblaðið/Theodór
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.