Morgunblaðið - 13.05.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 23
Hætta á vígbúnað-
arkapphlaupi í Asíu
LISTIR
Morgunblaðið/Sig. Fannar
LISTAMENNIRNIR ungu við verk sín.
Unglist á Selfossi
Selfoss. Morgunblaðið.
ÞEGAR landskjálftunum af völd-
um kjamorkusprenginga Indverja
lauk á mánudag hófust pólitískir eft-
irskjálftar út um allan heim sem ekki
sér fyrir endann á. Stjómarerind-
rekar og sérfræðingar í málefnum
Asíu óttast að kjamorkutilraunirnar
valdi vígbúnaðarkapphlaupi milli
Indverja, Pakistana og Kinverja.
Indland og Pakistan hafa þrisvar
sinnum háð stríð sín á milli frá því
löndin fengu sjálfstæði frá Bretlandi
fyrir rúmri hálfri öld og Indverjar og
Kinverjar áttu í skammvinnu
landamærastríði árið 1962.
Gohar Ayub Kahn, utanríkisráð-
herra Pakistans, sagði að Pakistan-
ar hefðu verið dregnir í nýtt víg-
búnaðarkapphlaup og gaf til kynna
að þeir væru tilbúnir að fara að
dæmi Indverja og sprengja
kjarnorkusprengjur í tö-
raunaskyni.
Meðal stjórnmálamanna í
Pakistan er nær algjör sam-
staða um að Pakistanar
þurfi að hefja kjamorkutil-
raunir sem fyrst. Benazir
Bhutto, fyrrverandi forsæt-
isráðherra, lagði til að þær
hæfust innan mánaðar.
Indverjar neituðu að und-
irrita alþjóðlegan samning
um bann við útbreiðslu
kjarnavopna árið 1994 og
höfnuðu samningi um bann
við kjarnorkusprengingum í
tilraunaskyni á liðnu ári.
Indveijar líta svo á að
samningarnir mismuni ríkj-
um, séu kjarnorkuveldunum
í hag en komi í veg fyrir að
önnur ríki geti eignast
kjarnavopn. Hingað til hafa
Pakistanar sagt að þeir geti
framleitt kjarnavopn en hafi
ákveðið að gera það ekki og
vilji ekki undirrita samningana
nema Indverjar geri það einnig.
Óttast hernaðarmátt Kína
Kínverjar rufu þögn sína um
kjamorkutilraunir Indverja í gær
með því að lýsa því yfir að þær
stefndu „friði og stöðugleika í Suð-
ur-Asíu í hættu“. Stjómarerindrek-
ar í Peking sögðu að því væri enn
ósvarað hvort Kínverjar hygðust
fara að dæmi Indveija og hefja
kjamorkutilraunir að nýju.
Kína er eitt af fimm yfirlýstum
kjarnorkuveldum heims, ásamt
Bandaríkjunum, Rússlandi, Bret-
landi og Frakklandi, og varð síðast
þeirra til að hætta kjamorkutilraun-
um. Kínverjar sprengdu kjamorku-
sprengju í tilraunaskyni 29. júlí 1996
og lýstu því þá yfir að þetta væri síð-
asta kjamorkutilraun þeirra. Þeir
undirrituðu síðan samninginn um
bann við kjamorkusprengingum í
tilraunaskyni í september sama ár.
Stjórnarerindrekar í Peking
sögðu að þótt enn væri óljóst hvort
Kínveijar myndu hefja kjamorkutil-
raunir að nýju léki enginn vafi á því
að samskipti þeirra við Indverja
myndu versna.
Blikur hafa verið á lofti í sam-
skiptum ríkjanna að undaníomu og í
vikunni sem leið gagnrýndi kín-
verska stjómin vamarmálaráðherra
Indiands, George Femandes, sem
sagði að Indveijar hefðu of lengi
einbh'nt á hættuna sem þeim stafaði
af Pakistönum og hunsað hernaðar-
mátt Kínveija, sem hann sagði
stefna öryggi Indlands í jafnmikla
hættu.
Nokkrir fréttaskýrendur töldu þá
að varnarmálaráðherrann væri einn
um þessa skoðun í indversku stjóm-
inni en kjamorkusprengingamar á
mánudag benda til þess að Femand-
es hafi talað fyrir munn fleiri ráð-
herra og að áhyggjur Kínverja af
nágrannaríkinu séu ekki ástæðu-
lausar.
„Samskipti Kína og Indlands eru
Óttast er að kjarn-
orkutilraunir Ind-
verja leiði til víg-
búnaðarkapphlaups
milli Kína, Pakist-
ans og Indlands og
mikillar spennu í
þessum heimshluta.
ekki eins góð og margir hafa talið
og þau eiga eftir að versna,“ sagði
einn stjórnarerindrekanna. „Kín-
verjar em mjög tortryggnir í garð
Indverja."
Fernades sagði einnig að Kín-
verjar hefðu reist hátækninjósna-
stöð á Coco-eyjum í Búrma, en því
neituðu þarlend stjórnvöld. Hann
hélt því einnig fram að Kunverjar
væra að stækka flugvelli í Tíbet
fyrir hljóðfráar herþotur sem gætu
gert árásir á Indland.
Indverjar hafa einnig granað
Kínverja um að hafa stutt her
Pakistans á laun. Femdandes sak-
aði Kínverja um að hafa aðstoðað
Pakistana við smíði eldflauga eftir
að Pakistanar lýstu því yfir að þeir
hefðu lokið tilraunum á langdræg-
ustu eldflaugum sínum, sem hægt
væri að nota til árása á Indland.
Kínverjar sögðu ekkert hæft í
þeirri ásökun.
Stefna Bandaríkjastjórnar
endurskoðuð
Bandarískir embættismenn og
fréttaskýrendur sögðu að Banda-
ríkjastjóm þyrfti nú að endurskoða
nánast alla þætti stefnu sinnar í
málefnum Indlands og Pakistans
vegna kjarnorkutilraunanna á
mánudag og hættunnar á vígbún-
aðarkapphlaupi.
Þeir sögðu að Bandaríkjastjórn
gæti ekki lengur litið framhjá því
að Indverjar gætu framleitt
kjarnavopn og þyrfti að leggja
áherslu á að koma í veg fyrir að
Pakistanar hæfu kjarnorkutilraun-
ir.
Embættismennirnir era þó ekki
bjartsýnir á að Bandaríkjamönnum
takist það. „Pakistanar vildu ekki
verða fyrstir til að hefja kjarnorku-
tilraunir... núna neyðast þeir til
þess vegna almenningsálitsins,"
sagði einn þeirra.
Bandaríkjastjórn hefur reynt að
fá Indverja til að framleiða ekki
kjarnavopn með því að auka efna-
hagslega og pólitíska samvinnu
ríkjanna en ljóst er að þær tilraun-
ir hafa mistekist. Samkvæmt
bandarískum lögum á stjórnin
einskis annars úrkosti en að grípa
til refsiaðgerða sem gætu skaðað
tengsl Bandaríkjanna og Indlands
í mörg ár.
Undirbúningurinn hófst á valda-
tíma fyrri stjórnar
Indverjar sprengdu kjarnorku-
sprengjurnar tæpum tveim mán-
uðum eftir að flokkur þjóðernis-
sinnaðra hindúa, Bharatiya
Janata, komst til valda á Indlandi.
Nýju valdhafarnir hafa tekið upp
herskárri stefnu í utanríkismálum
en fyrri stjórnir og lýstu því strax
yfir eftir valdatökuna að hún
áskildi sér rétt til að framleiða
kjarnavopn.
Inder Kumar Gujral, sem var
forsætisráðherra Indlands í ellefu
mánuði þar til Bharatiya Janata
tók við völdunum, sagði að undir-
búningur kjamorkutilraun-
anna hefði hafist fyrir
stjórnarskiptin, enda væri
ekki hægt að undirbúa slík-
ar sprengingar á tveim
mánuðum.
Gujral sagði að stjórn sín
hefði viljað bíða með kjarn-
orkutilraunirnar til að
ganga úr skugga um hvort
hægt væri að komast hjá
þeim. Hann kvaðst hafa
rætt málið við leiðtoga er-
lendra ríkja, sem heimsóttu
Indverja, m.a. Jacques
Chirac Frakklandsforseta,
sem var á Indlandi í janúar.
Gujral kvaðst hafa reynt
að fá kjarnorkuveldin til að
fallast á að afsala sér
kjarnavopnum en svör leið-
toga þeirra, m.a. Bills Clint-
ons Bandaríkjaforseta,
hefðu alltaf verið „loðin og
ósannfærandi".
Afleiðing af stefnu
kjarnorkuveldanna?
Þótt kjarnorkutilraunir Indverja
hafi víðast hvar verið fordæmdar
líta þeir svo á að þær séu af hinu
góða fyrir ríki í þriðja heiminum,
sem hafa barist gegn einokun
kjarnorkuveldanna fimm á kjarna-
vopnum. Vestrænar hreyfingar,
sem hafa beitt sér fyrir kjarnorku-
afvopnun í heiminum, segja að
kjarnorkuveldin beri að hluta
ábyrgð á kjarnorkutilraunum Ind-
verja.
„Þetta er bein afleiðing af því að
kjarnorkuveldin hafa ekki viljað
halda afvopnuninni áfram,“ sagði
Dan Plesch, framkvæmdastjóri
bresk-bandarísku afvopnunar-
hreyfíngarinnar SIC. „Hversu
lengi getum við ríghaldið í kjarna-
vopnin okkar og reynt á sama tíma
að hindra að aðrir geti eignast þau?
Annaðhvort segjum við að fæling-
arstefnan sé góð fyrir alla eða sam-
þykkjum raunhæfa áætlun um
bann við kjamavopnum."
Kjarnorkuveldin fimm hafa lofað
að beita sér fyrir kjamorkuafvopn-
un, bæði í samningnum um bann við
kjarnorkutilraunum og samningn-
um um bann við útbreiðslu kjama-
vopna. Menn greinir þó á um hvort
kjamorkuveldin hafi staðið við þau
loforð.
Terence Taylor ofursti, hjá Al-
þjóðaherfræðistofnuninni (IISS) í
London, segir að það geti reynst
hættulegt að hraða kjamorkuaf-
vopnuninni vegna óstöðugleika í
heiminum eftir lok kalda stríðsins
og tæknilegra örðugleika við að
eyða geislavirkum efnum í kjama-
vopn. „Bandaríkin, Rússland, Bret-
land og Frakkland hafa tekið mjög
stór skref í afvopnun, eftir samning-
inn um eyðingu meðaldrægra kjam-
orkueldflauga á síðasta áratug og af-
vopnunarsamninga Bandaríkjanna
og Rússlands,“ sagði Taylor. „Ef af-
vopnuninni verður hraðað myndi
það skapa mikla hættu, einkum í
sovétlýðveldunum fyrrverandi.“
ÞESSA dagana stendur yfir
ljóða- og myndlistarsýning í
Kaffi krús á Selfossi. Það eru
krakkar í 9. bekk Sandvíkur-
skóla sem eiga verk á sýning-
unni.
Myndirnar eru unnar með
bleki og tússpennum. Ljóðin eru
flest í stutt og iátlaus, en sam-
tenging ljóða og mynda er skýr
FORSVARSMENN Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands og Listahátíðar vísa á
bug gagnrýni Tónskáldafélags Is-
lands fyrir sinnuleysi í garð íslenskr-
ar samtímatónlistar eins og sett var
fram í ályktunum aðalfundar félags-
ins sem stofnununum vora sendar og
fram kom í viðtali við Kjartan Ólafs-
son, nýjan formann Tónskáldafélags-
ins.
Runólfur Bii’gir Leifsson fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar
íslands segir mjög eðlilegt að íslensk
tónskáld reyni að knýja á um að spil-
að sé sem mest af þeirra tónlist.
Hann er hins vegar þeirrar skoðunar
að Sinfóníuhljómsveitin sinni ís-
lenskum tónskáldum talsvert vel.
„Það er alltaf spuming hvenær má
gera meira og hvenær er komið
nóg.“
Varðandi tilmæli aðalfundarinns
um að hljómsveitin nýti sér ákvæði í
lögum sínum til að ráða tónskáld að
hljómsveitinni segir Runólfur Birgir
að eftir því hafi verið leitað hjá
menntamálaráðuneytinu síðustu ár
en fjárveiting til þess hafi ekki feng-
ist.
„Við höfum haft töluvert af ís-
lenskri tónlist til skoðunar hjá verk-
efnisvalsnefnd hljómsveitarinnar þar
sem tónskáld eiga sinn fulltrúa.
Sumt af henni á erindi á efnisskrá
hljómsveitarinnar og annað ekki,“
segir Runólfur Birgir. „Á síðustu
tónleikum hljómsveitarinnar fram-
fluttum við fiðlukonsert eftir Pál
Pampichler Pálsson og á þremur
áskriftartónleikum fyrr í vetur flutt-
um við verk eftir Hafliða Hallgríms-
son, m.a. frumflutning, og þá frum-
fluttum við einnig Sinfóníu eftir Leif
Þórarinsson. Næsta vetur verðum
við með þrjú íslensk tónverk á efnis-
skránni, m.a. frumflutning á Sinfóníu
eftir Atla Heimi Sveinsson á áskrift-
artónleikum. Ég skil því ekki þá
gagnrýni að bæta þurfi hlut ís-
lenskra tónlistar á áskriftartónleik-
um sveitarinnar."
„RÚV ver tugum milljóna
í þennan málaflokk"
Vegna ályktunar Tónskáldafélags-
ins sem send var Markúsi Erni Ant-
onssyni útvarpsstjóra vill hann vekja
athygli á því að Ríkisútvarpið ver
því að ljóðin eru flest unnin út
frá hækuformi, sem er fornt jap-
anskt ljóðform.
Alls eru 16 Ijóð og 16 myndir á
sýningunni eftir krakkana, sem
eru á aldrinum 14-15 ára. Kenn-
arar krakkanna eru þær Þórunn
Jóna Hauksdóttir, móðurmáls-
kennari, og Dóra Kristín Hall-
dórsdóttir, myndlistarkennari.
tugum milljóna til flutnings og varð-
veislu íslenskrar samtímatónlistar.
„Það er ekki hægt að segja að við sé-
um að bregðast skyldu okkar,“ segir
Markús Örn.
„Tónlistardeild Ríkisútvarpsins
vinnur að hljóðritunum íslenskra
tónverka. Við greiðum jafnframt
styrki til Sinfóníuhljómsveitarinnar í
gegnum Menningarsjóð Utvarps-
stöðvanna, hljóðritum tónleika henn-
ar og flytjum í útvarpi. Um árabil
höfum við átt í samstarfi við íslensku
Tónverkamiðstöðina um útgáfu á
verkum íslenskra tónskálda og unnið
með ungum íslenskum tónskáldum
að upptökum verka þeirra. Þá er
lögð áhersla á að koma íslenskum
tónverkum á framfæri erlendis í
samvinnu við samtök evrópskra út-
varpsstöðva sem og norrænna og við
sendum fulltrúa á árlegt Tónskálda-
þing í París.
„Vísað er til þess í ályktuninni að
málum hafi verið ólíkt háttað áður en
ekki má gleyma því að aðstæður hafa
gjörbreyst. Það er mikil gróska í ís-
lensku tónlistarlífi um þessar mund-
ir og fjöldi íslenskra tónskálda mun
meiri en áður. Þar af leiðandi er ekki
jafn auðvelt að gera þessum málum
skil. Við leggjum þó áherslu á að
koma íslenskri samtímatónlist á
framfæri við hlustendur okkar, m.a.
með breyttum og bættum dagskrár-
tímum,“ segir Markús Örn. „Fjár-
magn okkar er takmarkað og senni-
lega tekst okkur seint eða aldrei að
uppfylla óskir allra.“
Stolt af því að gera vel
við islensk tónskáld
Þórunn Sigurðardóttir fram-
kvæmdastjóri Listahátíðar í Reykja-
vík segist afar stolt af því að þrjú ís-
lensk tónverk verði frumflutt á kom-
andi Listahátíð. Það sé augljóslega
mat hverju sinni hvernig listflutningi
á hátíðinni sé háttað. „Við teljum
okkur gera íslenskri samtímatónlist
mjög hátt undir höfði þar sem að
nýtt tónverk eftir Hauk Tómasson
verður frumflutt á hátíðartónleikum
til heiðurs Margréti Þórhildi Dana-
drottningu í Þjóðleikhúsinu og verða
tónleikamir sendir beint út í Ríkis-
sjónvarpinu og í útvarpi í Dan-
mörku,“ segir Þórann.
Reuters
GOHAR Ayub Kahn, utanríkisráðherra Pakistans,
ræðir við Nawaz Sharif, forsætisráðherra lands-
ins. Ayub sagði að kjamorkutilraunir Indverja
væru upphafið að vígvæðingarkapphlaupi í' Asíu.
Alyktanir Tónskáldafélagsins
„Alltaf spurn-
ing hvenær má
gera meira“