Morgunblaðið - 13.05.1998, Síða 26

Morgunblaðið - 13.05.1998, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR Í3. MAÍ 1998 LISTIR MORGUN BLADIÐ Burtfarar- tónleikar Snorra Sig- urðarsonar Snorri Sigrurðarson BURTFARARTONLEIKAR Snorra Sigurðarsonar tromp- etleikara verða haldnir í sal Tónlistar- skóla FÍH í Rauðagerði 27, fímmtu- daginn 14. maí kl. 20. Snorri stund- aði nám í trompetleik í Tónmennta- skóla Reykja- víkur frá 8 ára aldri. Hann hóf svo nám í djas- strompetleik árið 1991 í FÍH undir handleiðslu Eiríks Arnar Pálssonar og Sigurðar Flosa- sonar. Meðleikarar Snorra á tón- leikunum verða Jóel Pálsson saxófónn, Karl Olgeirsson pí- anó, Róbert Þórhallsson bassa og Jóhann Hjörleifsson trommur. Á efnisskránni verða lög eft- ir Woody Shawm Keith Jarrett, Kenny Wheeler, Don Grolnick, Wayne Shorter, Du- ke Ellington og Snorra sjálfan. Aðgangur er ókeypis. Sönglög í Digranes- kirkju TÓNLEIKAR verða haldnir í Digraneskirkju fimmudaginn 14. maí nk. kl. 20.30. Þar koma fram Þóra Einarsdóttir, sópransöngkona, og Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó- leikari. Á efnisskránni eru sönglög eftir Robert Schumann, Franc- is Poulenc og Jón Ásgeirsson. I kynningu segir: „Þóra hef- ur starfað á Islandi í vetur og sló í gegn í hlutverki Despínu í uppfærslu íslensku Óperunnar á Cosi fan tutte og nú síðast í hlutverki barnfóstrunnar Mar- íu í Söngvaseiði hjá Leikfélagi Akureyrar. Einnig hefur hún komið fram á fjölmörgum tón- leikum, þar á meðal með Sin- fóníuhljómsveit íslands. Helga Bryndís er búsett og starfar á Akureyri og notuðu þær stöllur tímann á milli æf- inga á Söngvaseiði til að vinna saman að tónleikum sem þær héldu á Húsavík, Dalvík og á Akureyri." Verð aðgöngumiða á tónleik- ana er 1.000 kr. Miðar verða seldir við innganginn. Robert Devri- endt sýnir í galleríi Gangi LISTAMAÐURINN Robert Devriendt sýnir olíumálverk sín í galleríi Gangi á Listahá- tíð. Hann segir að verk sín „séu um náttúruna, skynin á henni og um málverkið sjálft. Eins konar aðferð til að geta talað við áhorfandann. Mál- verkið er skýrsla mín og yfír- lýsing og breytist dag frá degi.“ Sýningin stendur út júní- mánuð og er opnuð milli kl. 17 og 19 hinn 15. maí. Hann sýnir röð smárra mál- verka af dauðum fuglum, físk- um og trjám. Sýningin kemur beint frá listasafninu í Genf, Belgíu. Bensínstöðin sett upp á Seyðisfirði Seyðisfjörður. Morgunblaðið. LEIKFÉLAG Seyðisíjarðar sýnir nú leikritið Bensínstöðina eftir Gildas Bourdet. Leikritið er gam- ansamt drama og gerist á bensín- stöð sem er við enda flugvallar. Aðallendingarbrautin hefur ver- ið lengd þannig að aðalveginum að stöðinni hefur verið lokað og umferð um hana því orðin lítil. Konan sem á bensínstöðina á þrjár frekar Iéttlyndar dætur. Eiginmaður konunnar hvarf fyr- ir 18 árum en birtist nú að nýju. Hann á skammt eftir ólifað og gerir nú tilkall til stöðu sinnar innan fjölskyklunnar. Höfundur Bensínstöðvarinnar skrifaði leik- ritið árið 1985 fyrir franskan leikhóp. Hann sýndi það svo víða við svo miklar vinsældir að opinberir að- ilar ákváðu að veita hópnum Qár- hagslegan stuðning til þess að stofna leikhús, sem nú er Sala- möndruleikhúsið í Lyon. Guðjón Sigvaldason leikstýrir verkinu og er Bensínstöðin ann- að leikrtiið sem sýnt er á þessu leikári. Að sýningunni koma um 25 manns, þar af eru tíu leikarar. Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson ATRIÐI úr bensínstöðinni eftir Gildas Bourdet sem Leikfélag Seyðisíjarðar sýnir um þessar mundir. í I l í L Sumar sögur til Þýskaiands VAKA-Helgafell hefur gengið frá samningi við Suhrkamp Verlag í Þýskalandi um útgáfu á smásagna- safninu Sumar sögur eftir Elínu Ebbu Gunnarsdótt- ur. Suhrkamp Ver- lag sem er eitt stærsta forlag Þýskalands hefur tiyggt sér útgáfu- rétt á bókinni á þýska málsvæðinu, ®lln Ebba a almennum mark- dóttir aði, í bókaklúbbum, kiljuformi og tO að semja um birt- ingu á einstökum sögum í blöðum, tímaritum og útvarpi. Sumar sögur eru fyrsta bók Elín- ar Ebbu en hún hlaut Bókmennta- verðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir hana í fyrra haust. Morgunblaðið/Kristjana Agústsdóttir FRÁ tónleikunum í Dalabúð. Afmælistónleikar í Dalabúð Búðardalur. Morgunblaðið. TÓNLEIKAR voru haldnir í Dala- búð í Búðardal í tilefni af 50 ára af- mæli söngfélagsins Vorboðans, 1. maí s.l. Aðalhvatamenn að stofnun kórsins voru hjónin Elísabet Guð- mundsdóttir og Magnús Rögnvalds- son í Búðardal. Einn stofnfélagi syngur ennþá með kómum, Guðbjörg Jónsdóttir frá Sámsstöðum og gat hún því rifj- að upp minningar frá íyrstu æfíng- um. Björn St. Guðmundsson tók saman og rakti sögu kórsins í stór- um dráttum. Söngfélagið Vorboðinn hefur ver- ið lyftistöng söngglaðs fólks í Lax- árdal gegnum árin og tekið þátt í skemmtanalífinu við flest tækifæri við góðan orðstír. Þá sá kórinn um söng í Hjarðarholtskirkju um 40 ára skeið. Kórfélagar buðu gestum á tón- leikunum upp á rjómapönnukökur og kaffi og konfekt í hléinu og er það frábrugðið því sem maður á að venjast við svona tækifæri. Nokkrir eldri félagar burtfluttir og heimamenn komu á afmælisfagn- aðinn. Kórinn söng alls 22 lög og var vel tekið. Núverandi stjórnandi er Halldór Þórðarson skólastjóri Tónlistarskóla Dalasýslu. Ein- söngvari er Ásgeir S. Jónsson og undirleikarar voru Haukur Guð- laugsson söngmálastjóri, Halldór Þórðarson, Sigvaldi Fjeldsted, Rík- harður Jóhannsson og María Ólafs- dóttir. Ný bók eftir John Irving Trúverðugleiki minninganna yfírþyrmandi TÝNDIR foreldrar og brotthlaupin börn eru enn einn aðalefniviður bandaríska rithöfundarins Johns Ir- vings, en nýjasta bók hans, „A Widow for One Year“ (Ekkja í eitt ár) er væntanleg síðar í mánuðin- um. Hún fjallar um konu, sem verð- ur þunglynd í kjölfar dauða tveggja sona hennar og hverfur í 37 ár. Þetta er níunda bók Irvings en flestar hafa þær náð metsölu og nokkrar verið kvikmyndaðar eða settar upp á leiksviði. í samtali við The New York Times segir Irving að líklega eigi engin bóka hans jafn djúpar rætur í hans eigin lífi og nú nýjasta. „Trúverðugleiki endur- minninganna getur orðið yfírþyrm- andi,“ segir Irving. Nýja bókin þykir minna um margt á þekktustu bók Irvings, „The World According to Garp“. Hún gerist á fjórum áratugum og fjallar um fjölskyldu rithöfunda. Ir- ving segir hana margfalda ástar- sögu, sem segi sögu fjögurra aðal- persóna: Marion Cole, giftrar konu sem á í ástarsambandi við 16 ára dreng, Eddie O’Hare, eiginmann Marion og dóttur hennar, sem verð- ur að endingu þungamiðja sögunn- ar. Irving segir að unglingurinn Eddie eigi ýmislegt sameiginlegt með sér en hann er í drengjaheima- vistarskóla í New Hampshire á sjötta áratugnum, dreymir um að verða rithöfundur og er uppfullur lostafullra langana. Leitað á mið fjölskyldunnar Irving hefur oft leitað í eigin reynslu og fjölskyldu sinnar þegar hann hefur skapað persónur sínar. Amma hans var til að mynda fyrir- myndin að Harriet Wheelwright í „A Prayer for Owen Meany“, sjálf- ur á hann ýmislegt sameiginlegt með glímukappanum og rithöfund- inum Garpi og saga stríðshetjunnar Wallys Worthingtons í „Cider Hou- se Rules“ er jafnframt saga föður Irvings, sem hann hefur aldrei hitt. Foreldrar Irvings skildu áður en hann fæddist og er hann var sex ára giftist móðir hans að nýju. Ber Irv- ing nafn stjúpföðurins og segist aldrei hafa fundið hjá sér hvöt til að leita fóður sinn uppi. „Hver sem hann er, get ég sagt honum til hróss að hann leitaði heldur ekki að mér.“ Irving segir að þegar hann hafí skilið við fyrri eiginkonu sína árið 1981, hafí móðir hans látið hann fá bunka af bréfum hennar og föður hans, og blaðaúrklippur um hetju- dáðir hans í heimsstyrjöldinni síð- ari. Með því hafi hún viljað sýna Ir- ving að hún hafi einnig gengið í gegnum erfíðan skilnað. Því lengri því betri Irving býr nú með seinni konu sinni, sem er umboðsmaður rithöf- unda, og sex ára syni þeirra á býli í Vermont-ríki í Bandaríkjunum. Iiv- ing hefur komið sér upp glæsilegum líkamsræktarsal þar sem hann æfir m.a. glímu. Lífíð hefur ekki alltaf farið jafn Fyrirlestr- | ar um forn- sögurnar THEODORE M. Andersson, pró- fessor í germönskum fræðum við Stanford-háskóla og Indina-háskóla í Bandaríkjunum og heiðursdoktor við Háskóla íslands, flytur opinber- an fyrirlestur í Norræna húsinu á vegum Bókaútgáfunnar Leifs Ei- ríkssonar og Stofnunar Sigurðar Nordals fimmtudaginn 14. maí kl. 17.00. Fyrirlesturinn nefnist „The Literary Isolation of Eríks saga rauða“ og fjallar um stöðu sögunnar í íslenskum bókmenntum á fyrri hluta 13. aldar. Föstudaginn 15. maí, kl. 16.15, flytur Theodore M. Andersson opin- beran fyrirlestur í boði heimspeki- deildar Háskóla íslands í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn nefnist „Ref- lections on Moridnskinna" og fjallar um boðskapinn í þessu mikla safni konungasagna. Prófessor Theodore M. Anders- son hefur um árabil verið í forystu þeiiTa fræðimanna sem fengist hafa við rannsóknir á íslenskum miðalda- bókmenntum. Hann hefur kennt ís- lensk fræði við helstu háskóla í Bandaríkjunum og ritað bækur og fjölda greina um rannsóknarsögu Islendingasagna, íslendingasögur sem bókmenntagrein, konungasög- ur og Eddukvæði. Þýðing Theodore M. Anderssons og William Ian Mill- ers á Ljósvetningasögu er í safni Is- lendingasagna á ensku sem Bókaút- gáfan Leifur Eiríksson hefur gefið út. Fyrirlestramir verða fluttir á ensku. mjúkum höndum um hann og nú. Þegar hann var barn þjáðist hann af lesblindu og gekk illa í skóla framan af. Síðar fékk hann námsstyrk og hélt til Vínar, þar sem hann skrifaði fyrstu bók sína, „Setting Free the Bears". Næstu tvær sögur fengu ágæta dóma en það var ekki fyrr en „Garp“ kom út, að Irving sló í gegn. Söguna skrifaði hann og las jafnóð- um upp fyrir hóp á rithöfundaráð- stefnu í Middlebury-háskólanum í Vermont, starfsfélögum sínum til óblandinnar ánægju. Og viðbrögðin létu ekki á sér standa, Irving varð til dæmis að skipta um númeraplötu á bflnum sínum, þar sem á henni stóð Garp. Irving er atorkusamur höfundur og hikar ekki við að endurskrifa bækur sínar. Segir skrifin að einum áttunda hluta hæfileika og að sjö/áttundu aga. Hann byrjar á end- inum, segist aldrei setjast niður við skriftir án þess að vita hvað verði. Það er mikið verk að endurskrifa bækumar hans þvf lengdin er aðals- merki þeirra flestra. Irving segist vera 19. aldar rithöfundur, líkari risaeðlu en módernista, og að því lengri sem bækur séu því betra. Fyrirmyndir hans em Charles Dic- kens og George Eliot, svo og Gúnther Grass, Robertson Davies, Gabriel Garcia Marques og Salman Rushdie. t/ b L L ! i-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.