Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nederlands Dans Teater á Listahátíð
Þar eru þroski
og kraftur ein-
kennismerki
Einn frægasti og virtasti dansflokkur
heims, Nederlands Dans Teater mun
---------7------------------
sækja okkur Islendinga heim á Listahátíð
nú í sumar. Ragna Sara Jónsdóttir segir
frá flokknum, sem heldur tvær sýningar
á stóra sviði Borgarleikhússins hinn 28.
og 29. maí næstkomandi og fer þar
fremstur í flokki tékkneski danshöfundur-
inn og listdansstjórinn Jirí Kylián.
NEDERLANDS Dans Teater
samanstendur af þremur dans-
flokkum, NDT 1, NDT 2 og NDT
3, og munum við fá að sjá tvo hina
síðast nefndu í Borgar-
leikhúsinu. Flokkurinn
hefur verið meðal
fremstu og eftirsótt-
ustu dansflokka heims
um árabil og því er
mikill heiður f'yrir ís-
lenska dansunnendur
að fá að sjá nútímaball-
ett hér á landi eins og
hann gerist bestur.
Flokkurinn hefur
hvarvetna fengið mikið
lof fyrir bæði frumleg
og framsækin verk
jafnt sem tæknilega,
kraftmikla og heillandi
túlkun. „Ballett sem er
hugmyndaríkur, djarf-
ur og alltaf frábær,“
segir í umfjöllun
bandaríska blaðsins
The New York Times
og the Gazette tekur í sama streng;
„Urval bestu dansara í heimi“.
Kraftmikið ungt
hæfileikafólk
NDT 1 er stærstur flokkanna
þriggja og hefur að geyma þrjátíu
dansara á aldrinum tuttugu og
tveggja til fertugs. Hann var stofn-
aður árið 1959 og mun því halda
upp á fertugsafmælið á næsta ári.
Með NDT 2 dansa hins vegar fjórt-
án dansarar sem eiga það sameig-
inlegt að vera ungir að árum, eða á
bilinu 17 til 21 árs. Þeir hafa fengið
mikið lof fyrir kraftmikinn og
tæknilegan dans enda dansarar
fullir af orku á þessum aldri. Daily
Telegraph hælir þeim í hástert:
„Fjörgandi blanda af nýstárlegum
verkum og kraftmiklu ungu hæfi-
leikafólki,“ og Sunday Telegraph
segir: „Það er virkilega gaman að
fylgjast með dönsur-
unum - hæfileikar
þeirra liggja á mörk-
um þess að vera
mögulegir."
Þegar þessir ungu
dansarar ná 22 ald-
ursárinu flytjast flest-
ir þeirra yfir í aðal-
flokkinn, en 70% með-
lima í NDT 1 hófu feril
sinn með yngsta
flokknum, sem var
stofnaður árið 1978.
Árið 1991 var NDT 3,
sem er elsti hópurinn
stofnaður, og eru
dansarar hans fjörutíu
ára og eldri. Þeir nýta
reynslu sína til að
skapa margslungna
uppHfun í leikhúsinu
þar sem klassískur
dans sameinast nútímadansi, lát-
bragði, sorgar- og gamanleik og
jafnvel söng. Það er alkunna að
eiginleikar og hæfileikar dansara
breytast með aldrinum og ólík ald-
ursskeið þeirra kristallast í flokk-
unum þremur. Á meðan þeir
yngstu hrífa mann með krafti og
snerpu, ná hinir eldri athygli
manns og aðdáun með þroskuðum
og fáguðum hreyfingum. Jirí KyH-
án segir að saman sýni flokkamir
þær þrjár víddir sem einkenni líf
dansHstamanns.
Það er til líf eftir fertugt
- fyrir dansara
í flokkunum eru allir jafnir og
þar eru hvorki útnefndir aðaldans-
Morgunblaðið/Joris Jan Bos
UR VERKINU Compass eftir Jirí Kylián sem elsti flokkur Nederlands
Dans Teater mun flytja á Listahátíð, en dansararnir eru allir yfir fer-
tugt og gæða hlutverk sfn lífi með þroskuðum og fáguðum hreyfingum.
YNGSTU dansaramir flytja
verkið Un Ballo með tilþrifum,
en kraftur þeirra og dansgleði
hafa víða hrifið fólk.
arar, sólódansarar né hópdansarar.
Verkin eru samblanda af klassísk-
um ballett, nútímaballett og dans-
leikhúsi, enda ólíkir höfundar að
þeim öllum þó Jirí Kylián sé þar í
fararbroddi. Aðrir danshöfundar
sem hlotið hafa þann heiður að
semja fyrir flokkinn eru til dæmis
Mats Ek, Paul Lightfoot, Ohad
Naharin, Niklas Ek, Nacho Duato
og Johan Inger.
Á efnisskrá Listahátíðar í
Reykjavík verður boðið upp á fjög-
ur verk. Kvöldið hefst með verkinu
Un Ballo eftir Jirí Kylián sem
NDT 2 dansar. Þetta er fyrsta
verkið sem hann samdi sérstaklega
fyrir þessa ungu og kraftmiklu
dansara og ber verkið keim af því.
Þar eru krafturinn og snerpan í
fyrirrúmi og líkamsgeta dansar-
anna nýtt til hins ýtrasta. Annað
verkið er dansað af eldri flokknum
og kallast The Old Man and Me.
Danshöfundur er Hans van Manen
en hann var listrænn stjórnandi
Nederlands Dans Teater á árunum
1961 til 1971 og átti stóran þátt í að
gera flokkinn að því „veldi“ sem
hann er nú. Verkið samdi van
Manen árið 1996 og hefur það
fengið frábæra dóma, en í því túlka
karl og kona samband sitt með
hreyfingum og látbragði. I gagn-
rýni um verkið segir að flokkurinn
sýni og sanni að það sé til líf fyrir
dansara eftir fertugt, og aðrir eru
hvattir til að feta í fótspor þeirra.
Þriðja verk kvöldsins er einnig
dansað af elsta flokknum og samið
af Jirí Kylián. Það heitir Compass,
er dansað af fjórum dönsurum og
veltir höfundurinn fyrir sér lögmál-
um og takmörkum hringsins.
Fjórða og síðasta verkið heitir
Mellantid, samið af Johan Inger og
dansað af NDT 2. Johan Inger er
sænskur danshöfundur sem dans-
aði með Konunglega sænska ball-
ettflokknum áður en hann gekk til
liðs við Nederlands Dans Teater.
Innblásinn af menningu
fjarlægra þjóða
Jirí Kylián tók við stjórn Neder-
lands Dans Teater árið 1975. Segja
má að hann hafi hlotið alþjóðlega
viðurkenningu og frægð árið 1978
þegar verk hans Sinfonietta sló í
gegn á Spoleto hátíðinni í Banda-
ríkjunum. Orðstír hans óx svo jafnt
og þétt í kjölfarið og nokkrum ár-
um síðar var hann orðinn einn virt-
asti danshöfundur heims. Innblást-
ur Kylián kom um tíma að miklu
leyti frá japanskri menningu og
menningu frumbyggja Ástralíu.
Undanfarið hefur stíll hans hallast
til þess að verða óhlutbundnari, og
lýsir Kylián til dæmis verkinu Un
Ballo sem „dans við hljómfall tón-
listar; ekkert meira.“
Un Ballo og Compass eru ekki
einu verkin sem við munum fá að
sjá á Listahátíð eftir Kylián því ís-
lenski dansflokkurinn mun einnig
dansa verkið Stoolgame eftir hann
í Borgarleikhúsinu hinn 4. og 5.
júní.
Börn skrifa
BÆKUR
Ljwð og sögur
NÁTTÚRUBÖRN,
ÆVINTÝRABÖRN OG
NÚTÍMABÖRN
eftir börn á ýmsum aldri. Útgefend-
ur: Samstarfshópur nokkurra al-
menningsbókasafna. 1998.
BÖRN yrkja ljóð og segja sögur
þótt sjaldan séu þau birt á prenti.
Mest er vitaskuld skrifað í skólum
en við og við standa einhverjir fyrir
samkeppni um ljóð og sögur og viti
menn. Állt fyllist af hugverkum. í til-
efni af alþjóðlegum degi bókarinnar
23. apríl stóðu nokkur almennings-
bókasöfn fyrir slíkri samkeppni sem
haldin var í minningu Halldórs Lax-
ness. Eftirtekjan var býsna góð því
að á annað þúsund verka bárust inn
á söfnin og það ótalmörg góð verk.
Það má allténd sjá í þremur heft-
um ljóða og sagna sem nú hafa verið
gefin út og nefnast Náttúrubörn,
Ævintýraböm og Nútímaböm. I
þau er valið eftir aldursskiptingu og
efni. Sex til níu ára böm eiga verk í
Náttúrbörnum, tíu til tólf ára í
Ævintýrabömum og þrettán til
sextán ára í Nútímabörnum.
Verkin era fjölbreytileg að efni og
formi. Sum Ijóðin einkennast af
knöppu formi, önnur era opin og
margorð. Örsögur era innan um
lengri smásögur og frásagnir, ævin-
týri, hryllingssögur og sögur um
vímuefni, geimverur og dauða.
í samkeppninni vora margir sig-
urvegarar. Bestu ljóðin að mati dóm-
nefndar áttu þau Unnur Helgadóttir,
Amhildur Hálfdánardóttir og Magn-
ús Sveinn Jónsson. Verðlaun fyrir
bestu smásögumar fengu þau Sjöfn
Hauksdóttir, Sigríður Soffía Níels-
dóttir og Aldís Asgeirsdóttir. En sig-
urvegararnir vora fleiri því að ótal-
mörg ljóðanna og sagnanna hitta í
mark. Það er vandasamt að taka ein-
hver verk fram yfir önnur úr þessum
fríða flokki. En merkileg þótti mér
verðlaunasaga Sigríðar Soffíu Níels-
dóttur sem fjallar um harðneskjuleg-
an dauðdaga stúlku sem treðst tO
bana undir hófum hesta. í ljósi þess
að höfundur er einungis 12 ára verð-
ur að segjast eins og er hér búa
óvenjulegir hæfileikar að baki.
Ljóð Magnúsar Sveins Jónssonar
Um lífið og ástina er líka vert skoð-
unar. Þar segir m. a.:
Ástin
Eins og snjóbolti sem við bítum í.
Við þörfnumst hennar ekki,
þar til við finnum hana.
Þá getum við ekki hætt að borða hana.
En hún getur verið ansi köld.
Yngstu börnin eiga líka mörg fal-
leg ljóð og skemmtilegar sögur.
Verðlaunaljóðin eru öll góð. En þó
þóttu mér nokkur önnur ekkert síðri
og sum þeirra voru skemmtilega
skrítin. Þórir Garðarsson yrkir til að
mynda þannig um Káinn:
„Hann Káinn / er dáinn. / Hann
fór út í bláinn. / Sér hann ei smásjá-
inn.“ Við finnum jafnvel ungan
mann, Gylfa Sigríðarson, níu ára,
sem veldur því að yrkja meitlað ljóð
undir japönskum hækuhætti:
Uppi í fjalli,
fossinn í gljúfri djúpu,
snemma morgunsins.
Ég hygg að aðstandendur þessara
bóka geti vel við unað enda hafa þeir
náð því markmiði sínu að gefa okkur
sýn inn í skáldlegt hugarflug ungs
fólks nú á dögum.
Það fólk fæst greinilega ekki bara
við tölvuleiki og netsprang.
Skafti Þ. Halldórsson
Vortónleik-
ar Tónlist-
arskólans í
Keflavík
TÓNLEIKAR verða á fóstu-
dag, laugardag og sunnudag í
röð vortónleika Tónlistarskól-
ans í Keflavík.
Föstudaginn 15. maí verða
vortónleikar samspilshópa úr
Tónlistarskólanum. Fjölbreytt
efni verður flutt og meðal ann-
ars koma fram strengjasveit,
málmblásarakvintett, saxófón-
kvartett, gítarsamspil og yngri
kór skólans. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 20 og eru í Frumleikhús-
inu við Vesturbraut. Aðgangur
er ókeypis.
Laugardaginn 16. maí kl. 16
verða tónleikar Suzuki fiðlu-
nemenda úr báðum Tónlistar-
skólunum í Reykjanesbæ.
Þetta eru lokatónleikar þeirra
áður en þau fara í tónleikaferð
til Danmerkur 10. júní.
Sunnudaginn 17. maí munu
lúðrasveitir Tónlistarskólans
halda sína tónleika kl. 15 í
Frumleikhúsinu við Vestur-
braut. Auk Lúðrasveitar Tón-
listarskólans munu báðar yngri
lúðrasveitir skólans koma fram.
Aðgangur er ókeypis.
Vortónleikar
Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar
AÐRIR vortónleikar Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar verða
fimmtudaginn 14. maí; það era
tónleikar söngdeildarinnar og
verða þeir haldnir á torginu í
nýja skólanum og hefjast þeir
kl. 20.30.
Kammersveit skólans heldur
sína vortónleika laugardaginn
16. maí kl. 17 í Víðistaðakirkju.
Efnisskráin er fjölbreytt.
Stjórnandi er Óliver Kentish.
Mánudaginn 18. maí verða
vortónleikar granndeildarinnar
í Víðistaðakirkju kl. 18. Á tón-
leikunum koma fram margir
tónlistarnemendur og leika á
hin ýmsu hljóðfæri. Mánudag-
inn 18. maí verða einnig tón-
leikar framhaldsdeildarinnar í
Víðistaðakirkju og hefjast þeir
kl. 20.
ForskóHnn verður með vor-
tónleika miðvikudaginn 20. maí
í Víðistaðakirkju kl. 18 og era
þá um leið skólaslit forskólans.
Miðvikudaginn 20. maí eru
vortónleikar miðdeildar í Víði-
staðakirkju og hefjast þeir kl.
20.
Aðgangur er ókeypis á tón-
leikanna. Skólaslit Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar verða
föstudaginn 22. maí í Víðistaða-
kirkju og hefjast kl. 18.
„Skugginn“
í Óháða
söfnuðinum
LEIKÞÁTTURINN „Þá mun
enginn skuggi vera til“ eftir
Björgu Gísladóttur og Kol-
brúnu Emu Pétursdóttir verð-
ur sýndur föstudagskvöldið 15.
maí kl. 20.30. í kirkju Óháða
safnaðarins við Háteigsveg.
Leikstjóri er Hlín Agnarsdóttir.
Einleikurinn ijallar um sifja-
spell og afleiðingar þess. „Sýn-
ingar hafa legið niðri um tíma
en vegna fjölda áskorana hefur
verið ákveðið að efna til opinn-
ar sýningar á föstudagskvöld,"
segir í kynningu. Á undan sýn-
ingu mun Bryndís Petra
Bragadóttir leikkona flytja Ijóð
og eftir sýningu verður boðið
upp á umræður.
Miðasala fer fram í kirkju
Óháða safnaðarins á sýningar-
dag frá kl. 17. Miðaverð er
1.000 kr. Aðeins verður þessi
eina sýning.