Morgunblaðið - 13.05.1998, Page 37

Morgunblaðið - 13.05.1998, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 37 AÐSENDAR GREINAR voru leikarar og starfsfólk við Berliner Ensemble leikhús Brechts á þvílíkum sultarlaunum að þeir gátu varla dregið fram lífið og kom fyrir að þeir hótuðu í ör- væntingu verkfalli, sem var auðvit- að stranglega bannað í Austur- Þýskalandi. En annars ætlaði ég aldrei að fara út í eitthvert pólítískt þref um þetta. Ég vildi helst að slíkt væri liðin tíð, nema sem sagnfræðileg upplýsing. Það verða engin stríðsglæparéttarhöld haldin yfir Ulbricht eða Brecht úr þessu. Allt þetta virðist Þorsteinn Þor- steinsson ekki hafa hugmynd um, en um samskipti Brechts við Ul- bricht er ijallað mikið af og til á um 150 bls. í þýsku útgáfunni (bls. 720-870) í bók Fuegis. Það virðist Þorsteini Þorsteinssyni með öllu ókunnugt um og opinberar þannig, svo ekki er um að villast, - já, ekki um að villast - að hann hefur enn aldrei lesið bók Fuegis sem hann er alltaf að skrifa um gegnum gler- augu annarra. Þetta finnst mér dapurlegt og vildi nú án allrar ögrunar eða stríðni bjóða honum að skreppa til mín í Fjölvakjallarann í Njörvasundi og fá hjá mér kaffi- bolla með Sigurlaugu, ásamt ókeypis eintaki af þýsku útgáfunni. Hann kemst hvort sem er ekki hjá því, ef hann ætlar að skrifa nokkuð frekar í framtíðinni um Brecht, að fá sér þessa ágætu bók, sem héðan í frá hlýtur að verða grunnheimild- in um allt sem við kemur Brecht og leikstarfsemi hans. Fyrir þónokkru frétti ég að Þjóðleikhúsið ætlaði að sýna leik- rit Brechts um Krítarhringinn (á 100 ára afmælinu), en því hefur eitthvað verið frestað. Ég bíð spenntur eftir því að hann verði sýndur og hverjir verða tilgreindir höfundar, því að það var eins með hringinn og önnur spilverk Brechts, að höfundar voru aðrir en hann sjálfur. Hvernig verða höf- undar nú kynntir í leikskrá? Verð- ur Þorsteinn Þorsteinsson kannski fenginn til að skrifa grein um Brecht í leikskrána og tilurð Krít- arhringsins? Ég held að upplýs- ingar Fuegis um það verði ekki sniðgengnar og Þjóðleikhúsið geti nú auk þess komist í bobba um greiðslu höfundarlauna. Ég býst nú ekki við að taka frekar til máls um þetta mál, öllu má ofgera, jafnvel þó að það hafi verið skemmtilegt að taka þátt í þessu. Höfundur er rithöfundur og bókaút- gefandi. cfii i»JM íll TJARNARGATA 44 (með rauða þakinu) á ísdegi Fáks á Tjörninni. TVEIR bflar uppi á gangstétt 23. febr. 1996. Tjarnarborg- - leik- skóli án bílastæða i „Hannes Hafstein lét reisa Tjarnargötu 33 árið 1909 og bjó þar um skeið. Lárus Fjeldsted hrl. eignaðist húsið 1927, en árið 1941 varð Barnavinafélagið Sumargjöf eigandi og rak þar barnaheimili. Uppeldisskóli Sumar- gjafar tók til starfa í þessu húsi árið 1946. Hann vár forveri Fósturskóla Islands. Reykjavíkurborg eign- aðist húsið árið 1965 og hefur bamaheimili, Tjarnarborg, verið rekið þar.“ Þessar upplýsingar eru úr bók Páls. II Bílafjöldi á íslandi árið 1941 var 2476 bílar, en árið 1990 voru þeir 134181. Til undantekninga mátti telja, að foreldrar kæmu á bifreið- um með böm sín að Tjarnarborg á fyrstu árum starfseminnar. For- eldrar gengu eða hjóluðu þangað. Var því ekkert ónæði að barna- heimilinu fyrir nágrannana. Nú þegar bílaeign landsmanna hefur 54-faldast á fimmtíu ámm, þá gef- ur auga leið, að mörg vandamál hafa skapast, þar sem flest húsin við Tjamargötu voru reist á fyrstu áratug- um aldarinnar. III Fyrir nokkrum ár- um var gerð mikil breyting á Tjarnar- götunni, frá nr. 10-40. Einstefna frá Skot- húsvegi að innkeyrslu Ráðhúss Reykjavíkur og ýmsar fleiri breyt- ingar, sérstaklega við Ráðherrabústaðinn, nr. 32. Ibúar við Tjamargötu voru boðaðir á fund með skipulagsstjóra Þor- valdi S. Þorvaldssyni og bað hann um ábendingar og óskir frá íbú- um. M.a. hét hann því, að bíla- stæði yrðu látin fylgja ákveðnum húsum, þannig að þeir kæmust þar með bíla sína. Því miður hefur ekki orðið við neinum af óskum og ábendingum íbúanna og bréfum til borgarstjóra ekki verið ansað. Ríkir nú fullkomið öngþveiti við Tjarnarborg á vissum tímum dagsins, t.d. kl. 9, 12, 13 og 17, þegar komið er með börnin og þau sótt. Bílum er lagt upp á gang- stéttir fyrir framan glugga okkar nágrannanna, þeir hafðir í gangi og dioxíð leggur inn um opna glugga. Þau hörmulegu mistök áttu sér stað við endurhæfingu Tjarnargötunnar í einstefnugötu, að halli er rangur, þannig að í stórrigningum myndast stórir pollar við Tjarnargötu 33 og 34. Nefna íbúarnir stærri pollinn krúsapoll eftir þáverandi borgar- stjóra, en minni pollinn Valdatjörn eftir skipulagsstjóra. Hreinsunar- deild Reykjavíkurborgar hirðir aldrei um að hreinsa úr niðurföll- um, eða hreinsa úr rennusteinum, svo þetta er ákaflega ólystugt um- Nú gerum við Tj arnargötubúar þær kröfur, segir Leifur Sveinsson, að bflastæðismálum Tjarnarborgar verði komið í lag. hverfi, sem blessuðum börnunum er boðið upp á. Það er mannlegt að gera mistök. Skipulagsyfírvöld ættu því að gera gangskör að því, að koma fyrir bílastæðum fyrir neðan Ráðherrabrekkuna, t.d. á Tjarnarbakkanum fyrir framan húsin 28 og 30. Þar yrðu eingöngu stæði fyrir foreldra barna frá Tjarnarborg. Auðvitað án gjalds í stöðumæla. Lokað yrði þá bæði dyrum og hliði að vestan hjá Tjarnarborg, aðeins innkoma að austan. rv Lokaorð Mér þykir vænt um Tjarnar- borg. Omæld er sú ánægja sem ég og fjölskylda mín höfum haft af því að fylgjast með börnunum í leik og starfi. Báðar dætur mínar hafa verið á Tjarnarborg og líkað þar vel. Foreldrar bamanna mættu vera löghlýðnari og leggja bílum sínum þar sem það er leyft, en ekki ala böm sín upp í lögbrotum. Það er ógæfulegt. En nú líður senn að borgar- stjórnarkosningum og nú gerum við Tjarnargötubúar þær kröfur, að bílastæðismálum Tjarnarborg- ar verði komið í lag. Við annað verður ekki unað. Borgarverk- fræðingur hefur hundsað beiðni mína um hreinsun á rennistein- um. Gegni hann ekki skyldu sinni mun ég hreinsa rennusteininn sjálfur og gera Reykjavíkurborg reikning á taxta lögmanna og draga upphæðina frá fasteigna- gjöldum mínum v. Tjarnargötu 36. Höfundur er lögfræðingur í Keykja- vfk og býr í Tjamargötu 36. Leifur Sveinsson ir hann. íslendingar eru þar á meðal en íslensk stjórnvöld hafa frá upphafi stutt alþjóðlegt bann við jarðsprengjum. Enn er þó verk að vinna því ein- ungs átta ríki hafa staðfest sátt- málann en til þess að hann öðlist gildi þurfa fjörutíu ríki að stað- festa hann. Islenskir stjórnmála- menn geta því sýnt hug sinn í verki með því að staðfesta sáttmál- ann sem fýrst og hvetja önnur ríki til þess sama. Atburðir síðustu mánaða sýna að almenningur og stjórnvöld á ís- landi eiga samleið með Rauða krossinum í því að hjálpa fórnar- lömbum jarðsprengna og koma í veg fyrir að fleiri verði þessum voðavopnum að bráð. Það er ánægjulegt og ber að þakka. Höfundur er hjúkrunarfræðingur og skrifstofustjóri alþjóðadeildar Kauða kross íslands. FLÍSASKERAR OG FLÍSASAGIR Stórhöfða 17, við Guilinbrú, sími 567 4844 Girðingarefni í úrvali Túngirðingarnet, staurar, gaddavír og rafgirðingarefni og allt í rafgirðinguna Staurar fyrir allar girðingar V/ð leggjum rækt við ykkar hag MR búðin • Laugavegi 164 Símar: 551 1125« 552 4355* Fax: 552 4339

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.