Morgunblaðið - 13.05.1998, Síða 44

Morgunblaðið - 13.05.1998, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 MINNINGAR MORGUNBLADIÐ + Ástkaer sambýlismaöur minn, faðir okkar tengdafaðir og afi, KRISTINN VALBERG GAMALÍELSSON, Þórustöðum II, Ölfusi, sem andaðist föstudaginn 8. maí sl., verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 16. maíkl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Kristín Emma Finnbogadóttir, og börn, Aðalheiður Björg Kristinsdóttir, Jóhann Bessi Ólafsson, Guðríður Bjarney Kristinsdóttir, Lýður Pálsson, Sæunn Ósk Kristinsdóttir, Pétur Björnsson, Gunnar Kristófer Kristinsson og barnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ERIK KONDRUP, áður til heimilis að Hvannavöllum 2, Akureyri, lést á hjúkrunaheimilinu Seli, Akureyri, daginn 9. maí. Útförin fer fram frá Höfðakapellu á fi föstudaginn 15. maí kl. 13.30. Víking Eiríksson, Ellen S. Svavarsdóttir, Sigmar Eiríksson, Hanna Fjóla Eiríksdóttir, Jón M. Brynleifsson, Sif K. Eiríksdóttir, Sigurður Thorlacius, Gunnar J. Eiriksson, Sólveig H. Sverrisdóttir, afabörn og langafabarn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tenda- faðir, afi og langafi, INGIMAR BALDVINSSON bifreiðastjóri, Suðurgötu 47, Siglufirði, varð bráðkvaddur sunnudaginn 10. maí. Jarðsett verður frá Siglufjarðarkirkju laugar- daginn 16. maí kl. 14.00. Vilborg Jónsdóttir, María Ingimarsdóttir, Eiður Helgi Sigurjónsson, Birgir Ingimarsson, Birna Dís Benediktsdóttir, Jón Helgi Ingimarsson, Agnes Þóra Björnsdóttir, Baldvin Ingimarsson, Hrefna Katrín Svavarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á Landspítalanum sunriudaginn 10 maí. Jarðarförin auglýst síðar. Gísli ívar Jóhannesson, Agnar Sigurbjörnsson, Jórunn Dóra Valsdóttir, Páll Sigurbjörnsson, Lísa Dóra Sigurðardóttir, Helgi Þór Sigurbjörnsson, Árdís Hrönn Jónsdóttir og barnabörn. + Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, BERGUR LÁRUSSON frá Kirkjubæjarklaustri, sem lést þriðjudaginn 5. maí, verður jarðsung- inn frá Prestbakkakirkju á Síðu laugardaginn 16. maíkl. 14.00. Jarðsett verður á Kirkjubæjarklaustri. Sætaferðir verða frá B.S.Í kl. 9.30. Elín Bergsdóttir, Brynja Bergsdóttir, Kristín J. Harðardóttir, Sigurður Konráðsson, Hörður Á. Harðarson og barnabörn. + Sólveig Guð- mundsdóttir fæddist á Breiðaból- stað á Skógarströnd 7. september 1911. Hún lést á hjúkrun- ardeild Hrafnistu 5. maf síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur Halldórsson, f. 26. febrúar 1871, d. 23. apríl 1945, bóndi á Breiðabólstað, á Kljá og í Ólafsey og síðar verkamaður í Reykjavík, og Mar- grét Björnsdóttir, f. 3. ágúst 1888, d. 7. nóvember 1962, hús- móðir. Systkini Sólveigar eru: Sólveig Guðmundsdóttir móður- systir eða Veiga frænka eins og við öll frændsystkinin kölluðum hana fæddist á Breiðabólstað á Skógar- strönd. Foreldrar hennar voru Margrét Bjömsdóttir og Guð- mundur Halldórsson sem lengi vel var ráðsmaður hjá bróður sínum séra Lárusi Halldórssyni á Breiða- bólstað. Veiga var næstelst níu systkina auk þess að eiga eina hálfsystur. Hún giftist aldrei en hélt lengst af heimili með móður sinni og síðan Gunnari bróður sínum. Þótt langt sé um liðið síðan hún stundaði nokkra atvinnu, þá þótti hún listagóð saumakona hér áður fyrr, sótti námskeið 1 þeim fræðum og tók að sér heimaverkefni fyrir verslun Haraldar Arnasonar og Andrés Andrésson klæðskera. Síðustu árin átti Veiga við mikla vanheilsu að stríða og naut hún þá góðrar aðstoðar systra sinna og ber sérstaklega að þakka Unni. Að sögn las afi alltaf húslestur, er við hæfi að kveðja Veigu með einum slíkum: Hver dagur, vika, ár og öld sér á að lokum síðast kvöld. Að settri tölu á sömu lund vor svo mun koma dauðastund. Oss unn þá, Jesú, - ég þess bið - með öruggt geð að skiljumst við. Stefanía. Elsku Veiga frænka. Nú ert þú horfín á braut, burtu frá þínum stóra frændgarði. Þegar við hugs- um til baka koma margar góðar minningar upp í hugann. Sam- heldni ykkar systkinanna var al- veg einstök. Þú varst alltaf svo hlý og góð og nærvera þín vakti ávallt með okkur ró og gleði. Með Veigu frænku er gengin ljúf og hógvær manneskja. Veiga ólst upp í foreldrahúsum vestur í Breiðafírði. Hún var næstelst systkina sinna og kom það því í hennar hlut, öðrum fremur, að hjálpa til á heimilinu, bæði við bú- störfín sem og við að gæta og ala önn fyrir yngri systkinum sínum. Veiga var mikil handavinnukona og jafnframt því að hjálpa til á heimilinu prjónaði hún mikið og saumaði bæði á systkini sín og skyldmenni. Árið 1935 fluttist hún til Reykjavíkur þar sem hún bjó með foreldrum sínum og ól önn fyrir þeim er heilsu þeirra fór að | “Wmblómaverkstæði i I IJlNNA I Gunnar Þórarinn, f. 1909, Halldór, f. 1913, d. 1994, Björn Valdimar, f. 1914, d. 1948, Sigríður, f. 1917, Lárus, f. 1919, d. 1992, Elín, f. 1923, Unnur, f 1925, og Þóra f. 1928. Hún átti eina hálfsystur, Aðalheiði Guð- mundsdóttur, f. 1899, d. 1984. Sólveig var ógift og varð ekki barna auðið. Utför Sólveigar fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. hraka. Hún stundaði hannyrðir heima við og saumaði m.a. fyrir verslun Haralds Árnasonar. Þá vann hún einnig við saumaskap hjá Andrési klæðskera. Eftir að móðir hennar féll frá bjó Veiga með Gunnari bróður sínum í Hvassa- leitinu, þar sem þau áttu hlýlegt heimili. Veiga var heimakær og naut þess mest að sitja við sauma og hannyrðir. Veiga var alltaf boð- in og búin að rétta okkur hjálpar- hönd. Reyndist hún móður okkar oft vel því barnahópurinn var stór og um margt að hugsa. Eftir að heilsu hennar fór að hraka svo að hún þurfti stöðugrar umönnunar við var hún flutt á Landakot og síðar á hjúkrunarheimilið Hrafn- istu. Þegar komið er að leiðarlokum á löngum lífsferli þínum viljum við systkinin færa þér okkar bestu þakkir fyrir allar samverustund- irnar. Kæra frænka, megi ljós drottins lýsa þér á æðri vegum. Blessuð sé minning þín. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgarþraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. (V. Briem) Margrét Gunnarsdóttir og systkini. Nú er hún Sólveig móðursystir mín eða Veiga frænka horfm úr þessu jarðlífi. Hún var sérstaklega prúð og hlédræg manneskja sem lifði einföldu og fábrotnu lífi. Og var sæl með sitt. Veigu einkenndi einstök þjónustulund og góðsemi við sína nánustu. Hún hafði unun af því að hjálpa til og vera þeim innan handar þegar þörf var á. Veiga hélt fyrst heimili með móður sinni og eldri bróður Gunnari. Þau Gunnar voru bæði ógift og barn- laus og héldu heimili saman allt til síðustu ára er heilsuleysi fór að gera vart við sig. Veiga reyndist yngri systrum sínum ómetanleg aðstoð þegar börn þeirra voru lítil og saumaði meðal annars föt á þau og aðra. Hún var mikil listasauma- kona og virðist í raun hafa verið al- ger snillingur á því sviði því hún var algjörlega ómenntuð í faginu. Veiga vann á sínum yngri árum við saumaskap og var gjarnan sett í flókin og vandasöm verkefni svo sem að sauma kjólföt, smókinga og annað er krafðist vandvirkni og þekkingar. Veiga var hvers manns hugljúfí og fór vel með sitt. Það er í raun synd fyrir okkur yngstu systkina- börnin að hafa ekki kynnst Veigu fyrr því á síðari árum dró hún sig að sumu leyti nokkuð í hlé frá skarkala hins daglega lífs og varð því erfiðara að kynnast hennar innri manni, sem ég veit að hafði margt gott að geyma. Eg votta systkinum Veigu sam- úð mína en þó einkum Gunnari sem nú hefur misst lífsförunaut sinn og góðan vin. Blessuð sé minning Sólveigar. Ástríður M. Sigurðardóttir. Hinn 5. maí lést Solveig Guð- mundsdóttir á Hrafnistu í Reykja- vík. Solveig var fædd að Breiðaból- stað. Foreldrar hennar voru þau Margrét Björnsdóttir frá Emmu- bergi á Skógarströnd og Guð- mundur Halldórsson, bóndi á Mið- hrauni, Breiðabólstað, Ólafsey og víðar. Þau hjón fluttust síðar til Reykjavíkur. Solveig var önnur í röð níu alsystkina, Guðmundur átti dóttur frá fyrra hjónabandi en fyrri kona hans var Solveig Jónatansdóttir sem lést af veikind- um. í þessum stóra systkinahóp við uppeldis aðferðir sem lítið höfðu breyst frá landnámsöld, varð Solveig fljótt fullorðin og tók til hendinni við hin ýmsu verk sem til féllu á stóru heimili. Það var ekki spurt hvað langar þig að verða, en hún hefði vafalaust svarað lista- kona hefði hún verið spurð. Sol- veig var listakona í höndunum, hún gat breytt hvaða tusku sem var í dýrindis flík og þurfti ekki á sniði að halda svo að vel tækist til. En heimilið þurfti ekki á hirðklæðum að halda þannig að uppistaðan í saumaskapnum var að útbúa vinnufatnað á föður og bræður, kot, klukkur og kjóla á yngri syst- ur. Seinna meir vann Solveig á saumastofu í Reykjavík. Solveig var ógift og barnlaus en bjó í Hvassaleiti 46 með bróður sínum Gunnari. Síðustu árunum eyddi Solveig á Landakoti og síðan á Hrafnistu. Móðir mín naut góðs af því að eiga þessa ógiftu systur sem alltaf var hægt að leita til ef fjölgaði í fjölskyldunni eða fá eitt- hvað saumað í hvelli og alltaf brást hún vel við. Hún var róleg, yfir- veguð og hafði gott lag á okkur krökkunum og sagði okkur frá lið- inni tíð. Það var ekki alltaf létt lífið hennar, hún hafði fengið Akureyr- arveikina og náði sér aldrei til fulls eftir það. Þá lenti hún einnig í þeirri h'fsreynslu að standa við gluggann á heimili sínu í Skerja- firði þegar flugvél hrapaði á næsta hús, í dag væri vafalaust veitt áfallahjálp eftir svona reynslu en frænka mín lifði með þessari erfiðu minningu í hugskotinu og fékk lengi vel martraðir og þorði ekki að fljúga. Eitt minningarbrot að lokum en þá bjó ég í Hveragerði. Þær systur Aðalheiður og Solveig gistu hjá mér. Við höfðum átt ánægjulegan dag, Aðalheiður var kvöldsvæf og fór snemma í koju en við sátum eftir og spjölluðum. Það var komin mið nótt þegar Aðal- heiður vaknaði við skvaldrið í okk- ur og kom fram þá orðin úthvíld. Þær systur gengu út í garð. I næt- urkyrrðinni og gróðurilminum urðu þær eins og litlar stelpur, þær fóru að rifja upp jurtir og blóm bernskunnar. Síðan settust þær í grasið, fóru með þulur og ljóð, rifjuðu upp liðna tíð og flissuðu. Þegar ég frétti andlátið skein sól í heiði og í huga minn kom setning úr Davíðssálmi en þar segir: „Á grænni grundu lætur hann mig hvílast“, þá minntist ég Solveigar í garðinum í Hveragerði og það létti í huga mér við þetta fyrirheit. Far nú í friði, frænka mín kær. Foreldrar mínir vilja koma kveðjum og þakklæti til allra sem önnuðust um Solveigu síðustu árin. Margrét M. Ragnars. SÓLVEIG G UÐMUNDSDÓTTIR Skólavöröustíg 12. á horni Bergstafíastrætis, sími 551 9090 Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.