Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 49
FRÉTTIR
Afsteypa af Sæmundi á
selnum afhjúpuð í Odda
AFSTEYPA af „Sæmundi á seln-
um“ verður afhjúpuð sunnudaginn
17. maí í Odda á Rangárvöllum. Eft-
ir hádegi sama dag verður Odda-
stefnan 1998 í „Hlíðarenda" á
i Hvolsvelli. A Oddastefnu verður
annars vegar fjallað um Sæmund
fróða og kristni og hins vegar um
Sæmund og Njáluslóð.
Um nokkurt skeið hefur, undir
forystu sr. Sigurðar Jónssonar í
Odda, verið aflað fjár til að standa
straum af kostnaði við afsteypu
styttu Ásmundar Sveinssonar.
Langflest framlög hafa komið úr
héraðinu, segir í fréttatilkynningu.
Hátíðardagskrá þessa sunnudags
( verður sem hér segir:
Messa í Odda á Rangárvöllum
hefst kl. 10.30. Par prédikar sr. Sig-
urður Sigurðarson, vígslubiskup í
Skáiholti. Síðan verður gengið út,
sr. Sváfnir Sveinbjarnarson pró-
fastur ávai-par söfnuðinn, segir af-
mælisdagskrá Rangæinga vegna
1000 ára afmælis kristnitökunnar
setta, og afhjúpar styttuna. Síðan
flytur ávarp staðgengill rektors Há-
skóla íslands, dr. Stefán Karlsson,
i forstöðumaður Ámastofnunar. Þá
segir formaður Oddafélagsins, dr.
Þór Jakobsson, örfá orð. Að svo
' búnu les ung stúlka úr sókninni
þjóðsöguna Sæmundur fær Odd-
ann, sem er uppspretta myndverks
Ásmundar Sveinssonar. Lokaorð
flytur sr. Sigurður Jónsson í Odda.
Áletrun er á steininum sem stytta
mun hvfla á. Steinn þessi er íslensk-
ur, brúnleitur og settur skófum hér
og hvar. Hann mun standa einn
metra upp úr jörð, og á honum
stendur síðan bronsafsteypan sjálf,
93 cm há, þannig að mannvirkið
stendur alls 193 cm upp úr jörð.
Oddastefnan 1998 hefst síðan kl.
14 í Hlíðarenda á Hvolsvelli að
loknu hádegishléi. Henni lýkur kl.
18. Ráðstefnugjald verður eitt til
tvö hundruð krónur fram yfir veit-
ingar í kaffihléi. Ráðstefnustjóri
verður Friðjón Guðröðarson sýslu-
maður. Dagskrá er nær fullmótuð.
Fyrst er meginerindi sem tíðum
hefur verið nefnt Oddastefnuer-
indi. Það flytur nú dr. Jón Hnefill
Aðalsteinsson prófessor. Erindið
nefnist Sæmundur og upphaf
kristni á Islandi; Þór Jakobsson les
óbirta ritgerð eftir Helga Hannes-
son frá Sumarliðabæ í Rangárþingi
(1896-1989) er nefnist Sæmundur
fróði var frumkvöðull Njálu; Helgi
Freysteinn Sigurðsson og Elsa G.
Vilhjálmsdóttir jarðfræðingar
flytja erindi er nefnist Náttúru-
mótun sögusviðs Njálu; Magnús
Finnsson frá Lágafelli verður með
hugleiðingar og vangaveltur um
Njáluslóð og Guðmundur Sæ-
mundsson, kennari í Skógum, flyt-
ur erindi er nefnist Njáluslóð á
tölvu. Að erindum loknum verða al-
mennar umræður.
(
I
I
Iþróttavorleikar
í Tennishöllinni
IAK (íþróttafélag aldraðra í Kópa-
vogi) efnir til íþróttavorleika í Tenn-
ishöllinni, Dalsmára 9-11, Kópavogi,
þriðjudaginn 19. maí. Allir íbúar
1 Kópavogs, 60 ára og eldri, eru vel-
l komnir og sérstaklega hvattir til að
, taka þátt.
Markmiðið með vorleikunum er
að kynna og auka fjölbreytni í
íþróttaiðkun, þannig að allir finni
eitthvað við sitt hæfi. I boði er m.a.
leikfimi, blöðru-blak, krokkett,
bandí, dansar, boccia, pílukast, pútt,
boltaspörk og -köst og ýmsir smá-
leikir.
Dagskráin hefst kl. 10 með inn-
1 marsi og setningu og lýkur kl. 15.
I Þátttökugjald er 800 kr. og er léttur
( hádegisverður innifalinn. Þátttaka
tilkynnist sem fyrst í félagsmiðstöð-
inni Gjábakka og Gullsmára.
Gengið með
ströndinni
HAFNAGÖNGUHÓPURINN
gengur með strönd Reykjavíkur-
borgar miðvikudaginn 13. maí og að
( skipshlið skipanna í höfninni. Farið
| verður frá Hafnarhúsinu, að austan-
verðu við akkerið, kl. 20 og út í
fræðslutorgið á Miðbakkanum, það-
an með höfninni út í Reykjanes í
Örfirisey og áfram með ströndinni
að fjörumörkum Reykjavíkurborgar
og Seltjarnamesbæjar. Til baka um
Landakotshæð og Arnarhólsholt,
Skólavörðuholt, niður að Sólfari við
Sæbraut og með ströndinni að Ing-
ólfsgarði og síðan höfninni á
I fræðslutorgið. Gönguferðinni lýkur
i við Hafnarhúsið. A leiðinni verður
farið um borð í langskipið Islending.
Myndakvöld
Ferðafélagsins
SÍÐASTA myndakvöld Ferðafélags
Islands fyrir sumarið verður haldið
í Ferðafélagssalnum, Mörkinni 6, í
kvöld, miðvikudag, kl. 20.30.
Myndakvöldið verður tileinkað há-
lendi Islands, en fyrir hlé mun
Bjöm Hróarsson jarðfræðingur
sýna fjölbreyttar myndir af nátt-
úruperlum á hálendinu og af svæði
nýju árbókarinnar: Fjallajarðir og
Framafréttur Biskupstungna. Eftir
hlé verða nokkrar sumarleyfisferðir
kynntar, auk hvítasunnuferða.
Hægt verður að skrá sig í Ferða-
félagið á myndakvöldinu og fá þar
nýju árbókina. Afmælistilboð á
ferðabók Konrads Maurers er
framlengt út þessa viku.
Helgarferðir um næstu helgi em
Þórsmörk - Langidalur og Eyja-
fjallajökull - Hátindaleið, skíða-
ganga. Gist verður í Skagfjörðs-
skála.
Vorí
Vesturbæ
EFNT verður til vorhátíðar í Fé-
lags- og þjónustumiðstöð aldraðra,
Aflagranda 40, Reykjavík, dagana
14., 15. og 16. maí.
Þessa daga verður margt til gam-
ans gert, m.a. bingó með góðum
vinningum, danssýning, harmoníku-
leikur og dansleikur. Þar munu
Hjördís Geirs og félagar sjá um
fjörið. Allir eru velkomnir í félags-
miðstöðina. Eldri borgarar eru
hvattir til að taka þá yngri með sér
og eiga með þeim notalega stund í
félagsmiðstöðinni. Kaffiveitingar
verða alla dagana.
Á VORLEIKUM ÍAK verður keppt í ýmsum íþróttum.
BJARTMAR Guðlaugsson ásamt Tómasi Tómassyni, James Olsen og
Friðþjófi Isfeld heldur tónleika á Fógetanum í kvöld.
Tónleikar á
Fógetanum
BJARTMAR Guðlaugsson heldur
tónleika á Fógetanum í kvöld, mið-
vikudag, kl. 22.
Þar mun hann mæta með gítarinn
og munnhörpuna og njóta aðstoðar
þeirra Tómasar Tómassonar gítar-
leikara, James Olsen trommuleik-
ara og Friðþjófs ísfeld bassaleik-
ara. Rúnar Júlíusson mun blanda
sér í hóp þeirra félaga og ætla þeir
Rúnar og Bjartmar að frumflytja
tvö lög sem þeir hafa nýlega samið.
Laugardagskvöldið 16. maí verða
Bjartmar og félagar i Mosfellsbæn-
um í Álfafoss fót bezt, þar sem þeir
munu spila á miðnæturtónleikum. í
sumar er væntanleg hjá Spori hf.
hljómplata með 20 vinsælustu lög-
um og ljóðum Bjartmars.
Paul Welch
kynnir námskeið
í innri vinnu
KYNNINGARKVÖLD undir kjör-
orðinu „Lifum af ástríðu, opnum
hjartað og látum okkur annt um
hvert annað“,
verður haldið
fimmtudaginn 14.
maí kl. 20 í Lífs-
sýnarsalnum, Bol-
holti 4, 4. hæð. Þar
kynnir Paul Welch
námskeið sitt
„Living a Passion
Dancer’s Heart“.
Paui Weich Námskeiðið fer
fram 3.-7. júní á Reykhólum á
Barðaströnd. Þetta er fjögurra
daga innri vinna og andleg fræðsla
þar sem þátttakendur læra að fella
vinnuna með sjálfan sig inn í dag-
lega lífið, kyrra hugann og tengjast
æðri vitund, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Aðgangseyrir er 500 kr.
Hafnarfjörður
Framsóknar-
menn boða til
opins fundar
FRAMSÓKNARMENN í Hafnar-
firði efna til opins fundar fimmtu-
dagskvöldið 14. maí um fjölskyldu-
og heilbrigðismál í bænum. Fundur-
inn verður haldinn í Hraunholti,
Dalshrauni 15 og hefst kl. 20.30.
Yfirskriftin er „Bætum einstakling-
inn, fjölskylduna og bæjarfélagið“.
Frummælendur verða Halldór Ás-
grímsson utanrfldsráðherra, Þor-
steinn Njálsson heimilislæknir og
Guðrún Hjörleifsdóttir leiðbeinandi.
Þorsteinn skipar fyrsta sæti á B-
listanum en Guðrún annað sætið.
Pallborðsumræður verða á eftir
og stjómandi þess verður Jóhanna
Engilbertsdóttir fjármálastjóri og
formaður Landsambands fram-
sóknarkvenna.
Aþjóðaheilbrigð-
isráðstefna um
heilsu kvenna
ALÞJÓÐLEGA ráðstefnan Heilsa
kvenna: vinna, krabbamein og frjó-
semisheilbrigði verður haldin á
Hótel Loftleiðum dagana 14.-16.
maí og fer hún fram á ensku. For-
seti Islands, hr. Ólafur Ragnar
Grímsson, er verndari ráðstefn-
unnar.
Þekking á heilsufarsháttum í
vinnuumhverfi kvenna er takmörk-
uð, en um langa hríð hafa áhrif
vinnu á heilsufar karla verið við-
fangsefni rannsókna. Víða um lönd
er nú lögð sértök áhersla á að efla
rannsóknir á þessu sviði og má þar
nefna átaksverkefni hjá bandarísku
heilbrigðisstofnununum og Rann-
sóknarstofnun vinnuverndar í Sví-
þjóð.
Markmið ráðstefnunnar í Reykja-
vík er að draga saman nýjustu
þekkingu á þessu sviði og hvetja til
frekari rannsókna. Vísindamenn
hvaðanæva að úr heiminum munu
nú kynna rannsóknir sínar með
stuttum erindum og veggspjöldum.
Fjögur lengri lykilerindi verða flutt
af erlendum fyrirlesurum.
Fjölmargar erlendar stofnanir og
samtök styrkja ráðstefnuna, t.d.
Bandaríska krabbameinsstofnunin
og fleiri bandarískar heilbrigðis-
stofnanir, Alþjóðlega krabbameins-
stofnunin, Evrópubandalagið og
Rannsóknarstofnun vinnuverndar í
Svíþjóð. Meðal innlendra styrktar-
aðila má nefna félagsmálaráðuneyt-
ið, heilbrigðisráðuneytið, Reykja-
víkurborg og Vinnueftirlit ríkisins,
sem hafði forgöngu um að ráðstefn-
una.
í undirbúnings- og vísindanefnd
hafa setið: Hólmfríður K. Gunnars-
dóttir og Vilhjálmur Rafnsson frá
atvinnusjúkdómadeild Vinnueftir-
lits ríkisins, Shelia Hoar Zahm frá
bandarísku krabbameinsstofnun-
inni í Lyon í Frakklandi, Kristina
Kjærheim frá Krabbameinsskránni
í Noregi og Lucy Carpenter frá
Bretlandi, sem mú er við störf í Ug-
anda í Afríku.
Fjölmargir vísindamenn
hvaðanæva að úr heiminum hafa
lagt ráðstefnunni lið með því að
sitja í vísindanefnd, sem ásamt með
fyrrgreindum aðilum undirbúnings-
og vísindaenfndar hafa lagt dóm á
aðsent efni fræðimanna.
Hal’naríjörður
Eldri borgarar
funda með fram-
bjóðendum
FRAMBOÐSFUNDUR verður
haldinn í félagsheimili Félags eldri
borgara í Ilafnarfirði, Reykjavíkur-
vegi 50, fimmtudaginn 14. maí kl.
14.
Fulltrúar allra framboðslista til
bæjarstjómar munu gera grein fyr-
ir stefnumálum sínum og svara fyr-
irspurnum.
Fyrirlestur um
nýju trygginga-
lögin
FORELDRAFÉLAG misþroska
barna heldur fyrirlestur um trygg-
ingamál og nýju tryggingalögin í
Safnaðarheimili Háteigskirkju í
dag, miðvikudag kl. 20.30, gengið
inn frá bflastæði bak við kirkjuna,
Fræðslufulltrúi Tryggingastofn-
unar ríkisins, Sæmundur Stefáns-
son, kynnir félagsfólki nýju trygg-
ingalögin, einkum með tilliti til
þessa hóps barna.
Aðgangur er ókeypis.
Jóga undir Jökli
GRUNNNÁMSKIÐ í Hatha-jóga
verður haldið í Brekkubæ, Hellnum -
á Snæfellsnesi, dagana 15.-17. maí.
Á námskeiðinu verða kenndar
grunnlíkamsstöður jóga, önd-
unaræfingar og slökun. Auk þess
verða gefnar upplýsingar um
mataræði, föstur, hreinsanir og far-
ið lauslega í jógaheimspekina.
Gisting og fæði er innilfalið í
verði auk þess eru kvöldvökur og
gönguferðir skipulagðar.
LEIÐRÉTT
„Rétt“ féll niður
MORGUNBLAÐIÐ birti grein eftir
Gunnstein Gunnarsson lækni
fimmtudaginn 7. maí, sem fjallaði
um Haneshjónin. I niðurlagi grein-
arinnar, raunar síðustu setningu
hennar, féll niður eitt orð og er beð-
izt velvirðingar á því. Setningin átti
að vera svona: „Reynum að fá úr því
skorið hvort bandaríska réttarkerf/
ið hafi réttað rétt í máli þeirra." /
Ártölin skoluðust til
Halla Halldórsdóttir, forseti bæj-
arstjórnar Kópavogs og skipar 3.
sæti Sjálfstæðisflokksins í Kópa-
vogi, bað Morgunblaðið að koma á
framfæri eftirfarandi leiðréttingu
við grein hennar um þjónustu við
íbúa í Lindahverfi í Kópavogi:
„Nýr leikskóli rétt vestan við
Lindaskóla (við Núpalind) verður
tekinn í notkun árið 1999 en ekki ár-
ið 2001, eins og sagt var í greininni.
En leikskóli í Salahverfi verður tek-
inn í notkun árið 2001.
Halla Halldórsdóttir."
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
í Ármúlaskóla
í frétt um utankjörfundarkosn-
ingar i blaðinu í gær, er sagt að í
Ármúlaskóli sé einungis opinn virka
daga frá kl. 10-12, 14-18 og 20-22.
Rétt er að hann er opinn alla daga
fram að kosningum og á uppstign-
ingardag 22. maí.
Beðist er velvirðingar á þessum,
mistökum.
+
Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur hlýhug og velvild við
andlát og útför sambýlismanns míns, föður og afa,
LÝÐS KR. JÓNSSONAR,
Blikahólum 4.
Kristin Vigfúsdóttir,
Vigfús Lýðsson,
Kristinn Lýður Vigfússon.