Morgunblaðið - 13.05.1998, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 13.05.1998, Blaðsíða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ 1Í Dýraglens Grettir Tommi og Jenni Ferdinand ''WHO LEFT THE D00R OPEN?" THAT'5 MV NEW PHILOSOPHT.. |‘m 5l)RE IT LOILL BE A 6REAT 50URCE OF C0MF0RT DURIN6 TIME5 0F STRESS.. „Hver skildi dyrnar eftir opnar?“ Þetta eru nýju einkunnarorðin mfn... Ég er viss um að þau verða til mik- iilar huggunar í öllu stressinu... Ég sé að þú ert búinn með alla mjólkina einu sinni enn. Hver skildi dyrnar eftir opnar? BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Snúið út úr þjóðg'arðinum! Frá Jóhanni Jónssyni: VIÐ lestur greinar eftir Ai-na Bragason, forstjóra Náttúruvemd- ar ríldsins, í Morgunblaðinu 8. maí 1998, þar sem hann í lok greinar segir að Sigurjón Benediktsson og aðrir landsmenn séu velkomnir í þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum, langar mig til að upplýsa hann um heimsókn mína í þann tiltekna þjóðgarð fyrir nokkrum árum, sem breytti afstöðu minni til fyrirkomu- lags náttúruverndar og ríkisfyrir- hyggju. Þannig er mál með vexti að ég og bræður mínir tveir ei-um vanir að hittast um verslunarmannahelg- ina ásamt fjölskyldum okkar og njóta útiveru saman, í þetta skipti var ákveðið að bræður mínir kæmu frá Akranesi þar sem þeir búa til Akureyrar þar sem ég bý og við myndum fara í þjóðgarðinn í Jök- ulsárgljúfrum og ganga í Hólma- tungur, sem ég hafði áður farið. Ekki komst annar bróðir minn í það skipti þannig að við fórum tveir með fjölskyldur okkar, sam- tals átta manns. Allt gekk sam- kvæmt áætlun þar til við vorum komnir niður í Vesturdal um kl. 4 e.h. Þegar við komum inn á svæðið koma tveir landverðir hlaupandi á móti okkur og segja að tjaldsvæðið sé orðið fullt og við getum ekki tjaldað þar, en þar sem veðrið var mjög gott og við vissum ekki hvað við ættum að gera var ákveðið að ganga inn í Hljóðakletta og sögð- um við landvörðunum það og ókum síðan í áttina að bílastæðinu sem er næst Hljóðaklettum. Á leiðinni sá- um við að ekki var neitt óvenjulega mikið af tjöldum á svæðinu. Við gengum inn í Hljóðakletta og ræddum málin á leiðinni og vorum alls ekki sátt við ástand mála, ákváðum síðan að ég skyldi fara og tala við landverðina. Þegar ég kem að landvarðahúsinu eru landverð- irnir að ræða við tvo útlendinga sem höfðu komið á reiðhjólum á meðan við vorum í gönguferðinni. Eg sagði við landverðina að það væru næg tjaldstæði laus á svæð- inu og ég skildi ekki hvers vegna við mættum ekki tjalda. Sögðu þeir þá að þeir færu bara eftir reglu- gerð frá heilbrigðisfulltrúanum á Húsavík þar sem tiltekið væri hvað margir gestir ættu að vera um hvert salerni á svæðinu. Það skal viðurkennt að verulega var farið að fjúka í mig við þessar röksemdir og ég spurði hvar ég mætti þá tjalda og sögðu þeir að það væri fullt í Asbyrgi þannig að ég yrði þá að fara á næsta tjaldstæði, sem væri á Húsavík. Ég spurði þá hvort út- lendingamir sem væru hjólandi væru reknir af svæðinu en þeir sögðu það mjög erfítt þar sem þeir þyrftu að hjóla svo langt. Það skal viðurkennt að þessi umræða og röksemdirnar fyrir brottvísun okk- ar voru með þeim hætti að ég ákvað að láta betur reyna á þessi mál og óskaði eftir að fá að sjá þá reglugerð sem heimilaði þeim að vísa okkur brott af svæðinu. Fóru þau þá inn í landvarðahúsið og leit- uðu að þessari tilteknu reglugerð án árangurs. Þegar þeirri leit var lokið óskaði ég eftir að lögregla yrði tilkvödd til að færa okkur brott af svæðinu þannig að skýrsla yrði tekin og réttur minn til veru þar yrði staðfestur. Að því loknu tilkynnti ég þeim að við myndum tjalda þar stutt frá og þeir gætu annaðhvort rukkað okkur eða feng- ið okkur fjarlægð með lögreglu- valdi. Gerðist síðan ekkert meira í okkar málum fyrr en kl. 22 um kvöldið að áðurnefndir landverðir komu til þess að lægja þær ófriðar- öldur sem þeir höfðu skapað, og sögðu þá að þeir hefðu verið hræddir um að svæðið væri að fyll- ast af unglingum sem stefnt væri þangað. Eg sagði þeim að ég hefði ekki getað trúað svona nokkru og málinu væri ekki lokið af minni hálfu, ég hafði haldið að fjölskyldur sem komnar væru hundiuð kíló- metra til dvalar í þjóðgarði yrðu ekki reknar burtu eins og búfénað- ur. Fólkið sem var áður búið að tjalda þarna kom og spurði hvers vegna í ósköpunum hefði átt að vísa okkur í burtu, þannig að það voru ekki bara við sem voru hneyksluð á þessari framkomu. Eftirmál urðu þau að ég ritaði heil- brigðisfulltrúanum á Húsavík bréf og óskaði eftir skýringu á því að hann bannaði vei-u fólks í þjóðgarð- inum. Hann svaraði fljótt og vel og sagðist ekki hafa bannað einum eða neinum að gista í þjóðgarðinum en sendi mér reglugerð um fjölda gesta miðað við kamarfjölda á svæðinu. Þá hringdi ég í formann eða framkvæmdastjóra Náttúru- verndarráðs og skildist mér á því símtali að fólk ætti ekki að ferðast um óbyggðir fyrr en komin væru upp vatnssalemi með 10 km milli- bili. Niðurstaða mín er því sú að náttúruvernd á vegum Náttúru- vemdarráðs sé fólgin í því að fólk eigi helst ekki að vera á þeim svæðum þar sem landverðir sem „eigendur náttúru íslands“ hafa aðsetur. Afstaða mín til þessa máls gjörbreyttist við þessa upplifun í Vesturdal og ég varð ekkert hissa þegar ég las umfjöllum í Morgun- blaðinu um ráðstefnu hjá landvörð- um u.þ.b. ári seinna þar sem þeir vildu að landverðir fengju lög- regluvald. Þá fyrst hefði verið virkilega gaman að gista í sameign þjóðarinnar. Það er óþolandi að vera vísað burt úr þjóðgarði okkar allra, al- gjörlega að ástæðulausu, þar sem engin viðunandi rök vom fyrir hendi. Að lokum lýsi ég yfír fullum stuðningi við grein Sigurjóns Benediktssonar í Morgunblaðinu fyrir nokkm. JÓHANN JÓNSSON, Gmndargerði 3e, Akureyri Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.