Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 51
BRÉF TIL BLAÐSINS
Atvinnuleysi og hærri gjöld
Frá Maríu J. Sigurðardóttur:
FYRIR fjórum árum lofaði Ingi-
björg S. Gísladóttir að hér í Reykja-
vík yrði ekkert atvinnuleysi ef hún
næði kosningu sem borgarstjóri.
Ekki stóð hún við það, frekar en
annað. Langtímaatvinnuleysi
kvenna hefur fjórfaldast í Reykja-
vík. Hvers vegna flytur svona
margt fólk héðan, til útlanda eða út
á land?
Fyrir komandi borgarstjórnar-
kosningar vogar Ingibjörg S. Gísla-
dóttir sér að halda sama loforði um
atvinnu á lofti. Hver skyldi trúa því?
Þetta er bara endurtekning á fyrri
svikum.
Það þarf ekkert tólf kónga vit til
að skilja vinnubrögð R-listans, sem
samanstendur af fjónim, sauðalit-
um flokkum.
Ingibjörg S. Gísladóttir segir
stöðu borgarinnar mjög sterka
núna. Hún ætti þá ekki að níðast á
þeim sem minnst mega sín í borg-
inni, öryrkjum, eldri borgurum og
barnafjölskyldum, að ógleymdum
einstæðum mæðrum. Og börnum er
boðið upp á leikskóla eins og Lauf-
ásborg, sem er í stórlega heilsuspill-
andi húsnæði. Á sama tíma þarf að
greiða meira fyrir leikskólapláss en
á meðan Sjálfstæðisflokkurinn
stjórnaði borginni.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðið
góða lausn á miklum vanda, að gera
foreldrum og einstæðum mæðrum
kleift að vera heima með börnum
sínum og greiða þeim þá peninga
sem annars færu til að niðurgreiða
leikskólann. í stað átta tíma leik-
skólapláss yrðu greiddar 25 þúsund
krónur á mánuði til foreldra og
12.500 krónur í stað fjögurra tíma
vistunar. Það er öruggt að margir
fagna þessu og kjósa að vera meira
heima með börnunum.
Oryrkjar og eldri borgarar virð-
ast flækjast fyrir borgarstjóra. Þeg-
ar fasteignagjöld hækkuðu um
helming hjá þessu fólki skrifaði ég
Ingibjörgu S. Gísladóttur bréf og
bað um skýringar. Mánuði síðar
fékk ég loðin svör frá ritara hennar,
sem þéraði mig í hástert. Ég hélt að
vísu að flestir væru hættir þéring-
um, eins og hætt var að tala dönsku
á Akureyri, en ritarinn var líklega
að láta mig vita að það væri henni
ekki samboðið að svara mér.
Þessum R-lista er ekki sjálfrátt.
Aðstoðarkona Ingibjargar S. Gísla-
dóttur skrifar grein í DV 29. apríl
sl. þar sem hún boðar betri aðstæð-
ur fyrir hundaeigendur sem fara
með hunda sína á Geirsnef. Hún
segir borgaryfirvöld ekki hafa stað-
ið við gefin loforð um úrbætur þar,
en lofar nú að koma þarna fyrir
bekkjum, lýsingu og afdrepi fyrir
hundaeigendur. Hún ætlar, hvorki
meira né minna, að setja á laggimar
fimm manna nefnd til að ræða þetta
stórmál. Hvað skyldi það nú kosta?
Ég þekki fólk sem þarf að leigja
húsnæði hjá borginni og veit að það
hefur af engu að taka. Ef svo illa
færi að R-listinn næði aftur meiri-
hluta í borginni þá á þetta fólk von á
100% hækkun húsaleigu. Það á nú
þegar margar andvökunætur og
framkoman við það er ómannúðleg.
Nú segir Ingibjörg S. Gísladóttir
að eldri borgurum og öryrkjum
verði boðið upp á heimaþjónustu,
svo þetta fólk geti dvaiið sem lengst
heima hjá sér. Hvað ætlar hún að
láta þetta fátæka fólk borga fyrir
þessa þjónustu? Þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn stjórnaði þurfti ekkert
að greiða, en það breyttist þegar R-
listinn tók við. Kona, sem býr í ein-
staklingsíbúð og fær smá aðstoð,
tvisvar sinnum í mánuði, við að ryk-
suga og þrífa eldhúsblett, þarf að
greiða á þriðja þúsund á mánuði.
Þetta er ótrúlegt, en satt.
Sunnudaginn 3. maí fylgist ég
með útsendingu Ríkissjónvarpsins,
sem fólki er skylt að greiða af hvort
sem það kærir sig um eða ekki.
Klukkan tvö hófst útsending kosn-
ingavöku, með fjórum þátttakend-
um. Þar kom m.a. fram að Ingibjörg
S. Gísladóttir er ekki hrædd við að
fara með ósannindi. Hún var spurð
um 100% hækkun á húsaleigu hjá
þeim sem leigja hjá borginni og
þrætti fyrir það, án þess að blikna
eða skammast sín fyrir að segja
ósatt. Klapplið R-listans var greini-
lega mætt á staðinn.
Málefnalega fannst mér Árni Sig-
fússon standa sig best. Eitt er víst,
að loforðum hans er hægt að
treysta. En í þessum umræðum
fannst mér Árna haldið til baka,
hann fékk ekki mikinn tíma til að
tjá sig.
Geldinganes er fallegur staður til
að byggja heimili sitt á og ég styð
þá skoðun Sjálfstæðimanna heils
hugar. Ingibjörg S. Gísladóttir vill
nýta þennan stað undir iðnaðarhús-
næði og hafa þar gámasvæði. Þvílík
sóun á fógrum stað.
Vonandi eru Reykvíkingar farnir
að átta sig á að Árni Sigfússon er
besta borgarstjóraefni sem við eig-
um völ á. Hann segir sannleikann
og stendur við orð sín. Hann er
heiðarlegur og betri maður í starfið
finnst ekki. Þá eru allir þeir, sem
eru með honum á framboðslista,
mjög traustvekjandi.
MARÍA J. SIGURÐARDÓTTIR
Suðurhólum 14, Reykjavík.
Osómi Landsbréfa
Frá Einari Baldvinssyni og
Markúsi Eiríkssyni:
ÖÐRU tímabili í Verðbréfaleik
Landsbréfa er nýlokið. Undirritað-
ir voru þátttakendur í leiknum og
síðustu vikuna vorum við í 5. sæti.
Við áttum þá einungis eftir að gera
ein viðskipti í leiknum og með því
móti hefðum við farið í 1. sæti. Það
var afar mikilvægt fyrir okkur að
gera þessi viðskipti á lokadegi
leiksins. Þar sem upplýsingar á
heimasíðu Landsbréfa um hvenær
tímabilinu átti að ljúka voru afar
óljósar höfðum við samband við
umsjónarmann leiksins, Sigurð
Ragnarsson, símleiðis til að fá upp-
lýsingar um lok leiksins. Hann full-
yrti að hann myndi enda á miðnætti
aðfaranótt páskadags. Daginn fyrir
skírdag höfðum við aftur samband
við Sigurð þar sem hann ítrekaði
við okkur að leikurinn myndi enda
á miðnætti aðfaranótt páskadags.
Þetta voru einu upplýsingamar
sem við höfðum um lok leiksins og
þar sem við fengum þær frá sjálf-
um umsjónarmanni leiksins, töld-
um við að við gætum treyst þeim.
Annað kom á daginn. Á laugardeg-
inum fyrir páska þegar við fórum á
Netið í þeim tilgangi að tryggja
okkur sigur í leiknum var búið að
loka honum. Við vomm gáttaðir á
þessu og afar ókátir því að við vor-
um búnir að leggja á okkur mikla
vinnu til að sigra í leiknum. Þama
urðum við fyrir tjóni því við fengum
ekki þær 150.000 krónur sem við
hefðum fengið fyrir sigurinn og við
urðum einnig af heiðrinum sem
sigrinum fylgdi. Eftir páska höfð-
um við samband við Landsbréf til
að fá leiðréttingu á þeirra mistök-
um því við áttum að geta treyst
orðum umsjónarmanns leiksins. Þá
var okku tilkynnt að hann væri
hættur hjá Landsbréfum og máli
okkar var vísað til markaðsstjóra
Landsbréfa, Kristjáns Guðmunds-
sonar. Við voram boðaðir á fund
Kristjáns Guðmundssonar miðviku-
daginn 21. apríl. Þar tjáði Kristján
Guðmundsson okkur að þeim fynd-
ist leitt hvernig fór fyrir okkur því
við treystum upplýsingum þeirra.
Við ítrekuðum við Kristján Guð-
mundsson að við vildum að þeir öxl-
uðu ábyrgð á þessum röngu upplýs-
ingagjöfum. Kristján sagði þá að
hann ætlaði að sjá til þess að allir
gæta staðið upp frá málinu upprétt-
ir. Síðan sagði hann okkur að
hringja í sig nk. fóstudag. Við gerð-
um það og þá var komið allt annað
hljóð í strokkinn og Kristján Guð-
mundsson sagði að þeir hygðust
hvorki lagfæra eitt eða neitt. Hann
sagði jafnframt að þetta væri bara
leikur og því þyrftu þeir ekki að
standa við orð sín. Það er okkar til-
finning að allan tímann hfai átt að
sópa ósómanum undir teppi og
geyma hann þar því óæskilegt væri
að hann sæist. Það sem eftir stend-
ur er að þeir í Landsbréfum bera
enga ábyrgð á sínum orðum og þeir
láta sín mistök bitna á öðram. Okk-
ur finnst á okkur brotið með því að
láta okkur gjalda fyrir þehTa mis-
tök. Það er öraggt að við munum
ekki eiga nein viðsldpti í framtíð-
inni við fyi'irtæki sem kemur fram
með þeim hætti sem Landsbréf
gerðu í þessu tilfelli því þeim er
ekki treystandi. Maður furðar sig á
að svona fyrirfinnist í íslensku við-
skiptalífi. Þetta var leiðinleg
reynsla og vonum við innilega að
aðrir lendi ekki í neinu sem svipar
til þessa á komandi tímabilum í
Verðbréfaleik Landsbréfa. Að lok-
um viljum við skora á starfsmenn
Landsbréfa að endurskoða þetta
mál.
EINAR BALDVINSSON,
Njálsgötu 73, Reykjavík.
MARKÚS EIRÍKSSON,
Látraseli 8, Reykjavík.
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
3. flokki 1992
2. flokki 1993
2. flokki 1994
3. flokki 1994
Innlausnardagur 15. maí 1998.
l.flokkur 1989: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 1.079.506 kr. 107.951 kr. 10.795 kr.
1. flokkur 1990: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 953.071 kr. 95.307 kr. 9.531 kr.
2. flokkur 1990: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.904.805 kr. 190.480 kr. 19.048 kr.
2. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.770.561 kr. 177.056 kr. 17.706 kr.
3. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 7.81.3.525 kr. 1.562.705 kr. 156.271 kr. 15.627 kr.
2. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 7.208.534 kr. 1.441.707 kr. 144.171 kr. 14.417 kr.
2. flokkur 1994: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.501.877 kr. 1.300.375 kr. 130.038 kr. 13.004 kr.
3. flokkur 1994: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.383.017 kr. 1.276.603 kr. 12t.660 kr. Ú.766 kr. I
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24. ,
[S] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRfFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • jíMI 561 6900
Tvíefldir byggingadagar í Laugardalshöll 16.-17. maí
byggingar
um
ina
*