Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FÓLK I' FRÉTTUM MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998 55 Sími: 561-7115 • Fax:561-7116 • Heimasiða: www.kompass.is/memdyr Nú tekur við tími nokkurra þokkalegra meðalmynda eins og Bye, Bye Bravermaa, (‘68)), Máfurinn - The Seagull, (‘71), Child’s Phiy, (72, The Offense, (‘73). Þær vöktu ekki mikla at- hygli, Lumet náði sér ekki aftur á flug fyrr en með Serpico, (‘73), fyrstu mynd hans um löggulíf í New York, með allri sinni spillingu, mútuþægni, of- beldi, valda- og peningagræðgi. A1 Pacino var óborganlegur sem síðhærður og hippalegur leynilögreglumaður sem þiggur ekki mútur en leysir málin á heiðarlegan hátt. Ein af mynd- um áratugarins.Aforð í Austur- landahraðlestinni - Murder on the Orient Express, (‘74), er ein besta mynd sem gerð hefur ver- ið um Hercule Poirot, sem Al- bert Finney leikur af sinni al- kunnu snilld, fremstur í stór- kostlegum leikhópi. Nú er skammt stórra högga á milli. Dog Day Afternoon, kem- ur ‘75; Network. ‘76; Equua ‘77. Önnur frábær New York löggu- og bófamynd, Prince of the City ‘81, eftir stutta lægð. 1983 kem- ur svo hin vel skrifaða (David Mamet), og leikna The Verdict, þar sem Paul Newman er óborganlegur sem drykkjusjúk- ur lögmaður sem tekur upp á því að hlýða kalli samviskunn- ar. Nú verða kaflaskipti. Lumet fer að missa taktinn. Garbo Talks, (84); The Morning After, (‘86); Family Business, (‘89); gera ekkert meira en að hanga í meðallaginu. Lumet minnir aftur á forna frægð með Runn- ing On Empty, (‘88), minnis- stæðri mynd með fjölskyldu- málin í sviðsljósinu, mjög óvenjuleg að vísu - fólk á ára- löngum flótta undan FBI. Gerir góða hluti í enn einni NY-mynd- inni, Q& A, ‘90. Tíundi áratugurinn hef- ur verið frekar lágsigld- ur. 1992 kemur Stranger Among Us, hans langversta, og sú eina sem ég bið fólk að var- ast af myndum leikstjórans. Night Falls on Manliattan, (‘97) var lagleg mynd en Lumet var ekki að gera neitt sem hann hafði ekki gert áður og betur. Kaii er ennþá í fínu formi og er önnum kafinn við að leikstýra endurgerð hinnar frábæru myndar Cassavetes, Gloria. Hann er alténd á heimavelli, en Lumet er New York-búi, með andúð á LA, líkt og svo margir austurstrandarmenn. Handritið býður upp á fína Lumet-þætti, spennu, spillingu, valdatafl - og fjölskyldubönd. Honum er treystandi til að fara í fötin hans Cassavetes, seljum hins- vegar spurningamerki við Sharon Stone. Mér er stórlega til efs að hún beri uppi kjólana hennar Gene Rowlands af nokkurri reisn. Hvað sem því viðvíkur, þá er búið að ákveða frumsýningardaginn á íslandi; hann verður 6. nóvember. SIDNEY LUMET PETER Finch í Network. AL PACINO og John Cazale sem örvinglaðir homm- ar og mislukkaðir bankaræningjar. KATHERINE Hepburn og Dean Stockwell í Long Day’s Joumey Into Night. Fjölskyldumálin eru ekki síð- ur í brennidepli í hinni snilldar- legu The Pawnbroker, (‘65), sem segir af örvæntingarfullum tilraunum veðmangara (Rod St- eiger) sem tapaði fólkinu sínu í Helförinni, til að ná til annarra einstaklinga að nýju. Með sorg- legum árangri. Ari síðar kemur enn ein uppáhaldsmynd, The HiII, þar sem Sean Connery fékk að spreyta sig í fyrsta sinn á bitastæðu hlutverki, og þeir Harry Andrews, Ian Bannen, Ian Hendry, Michael Redgrave og Roy Kinnear fóru allir á kostum. Að maður tali ekki um Ossie Davis, í þessu rafmagn- aða drama um menn undir óbærilegu álagi í breskum her- fangabúðum. Menn bera mikið lof á The Deadly Affair, (‘68), njósnamynd sem er ein sára- fárra Lumet mynda sem ég hef ekki séð. Með traustum leikur- um; James Mason, Harriet And- erson, Maximillian Schell og Simone Signoret, sem sagði að Lumet væri besti leikstjóri sem hún hefði unnið með. Samur er vitnisburður Connerys, og fjöl- margra annarra stórstjarna. HÚMAR HÆGT AÐ KVÖLDI - LONG DAYS JOURNEY INTO NIGHT (‘62) ■k-k-k-k Óaðfinnanleg kvikmyndgerð Lu- mets á einu fremsta verki banda- rískrar leikritunar ber þess vott, eins og fleiri myndir leikstjórans, að hann er hagvanur á fjölunum. Segir af einum degi í hnignandi lífi fjöl- skyldu á Nýja Englandi á öðrum áratug aldarinnar. Heimilisfaðirinn (Sir Ralph Richardson) er leikari og aurasál, tekinn að reskjast, kona hans (Katherine Hepburn) forfall- inn eiturlyfjaneitandi. Eldri bróðir- inn (Jason Robards) alki, sá yngiá, (Dean Stockwell), berklaveikur. Maður sér fjölskylduböndin rofna, eyðilegginguna ágerast eftir því sem á líður verkið, þó ekki niður- drepandi, texti O’Neill (sem er að lýsa eigin heimilishögum, hann er yngri bróðirinn), er jafn kaldhæðinn og hann er dramatískur. Leikurinn er stórkostlegur, Sir Ralph fremst- ur jafningja. Leikhúsverk hafa ekki verið flutt með betri árangri yfir á tjaldið DOG DAY AFTERNOON (1963) ★★★★ Grátbrosleg mynd um þrjá ólánsama homma (A1 Pacino, Chris Sarandon og John Cazale), sem eiga ekki fyi’ii' kynskiptiaðgerð á einum þeirra og gn'pa til örþrifaráða. Ræna banka, en er sjálfsagt flest betur gefið, og verða að fjölmiðla- fóðri. Lygileg en byggð á sönnum atburðum. Nokkur tímamótamynd í umræðunni um samkynhneigð, sem hún meðhöndlar af samúð. And- rúmsloftið er eftirminnilega tragikómískt, Pacino og Cazale óborganlegir, svo broslegir og um- komulausir í senn. Sæbjörn Valdimarsson pólitískar spennumyndir, lög- reglumyndir í efsta gæðaflokki eru honum hugleiknar, bæði spennandi og dramatískar, þar sem hann hefur tekið miskunn- arlaust á þeim hliðum sem illa þola dagsljósið. Hann kom við gamanmyndir og músíköl, en eftirlætisefni hans hefur jafnan verið fjölskyldan og hinar margbrotnu hliðar fjölskyldu- lífsins. Lumet fellur vel að aute- ur skilgreiningu Fransmanna; hann er kvikmyndaskáld, er yf- irleitt höfundur handrita mynda sinna og hefur a.m.k. fengið eina Óskarsverðlaunatil- nefningu á því sviði, fyrir hand- rit Prince of the City. Sjöundi áratugurinn hófst með smelli, kvikmyndagerð leikrits Tennessee Williams, Orpheus Descending, sem hlaut nafnið The Fugitive Kind, (‘60). Með Marlon Brando og Önnu Magnani, Joanne Woodward, og fleira góðu fólki. Þá var röðin SIDNEY Lumet. komin að Horft af Brúnni - A View From the Bridge, (61), eftir Arthur Miller, og sneri sér síðan að höfuðverki þriðja meistara bandarískra leikhús- bókmennta, Húmar að kveldi (‘62), eftir Eugene O’Neill. inSECT-OÍUTOR FLUGNABANAR OG Flugnabanar og öryggisplast- húðaðar perur, þar sem matvæli og flugnabanar fara saman. Græna Ijósið frá Insect-O-Cutor hefur 30-50% meira aðdráttarafl á flugur heldur en hið hefðbundna bláa Ijós. Flugnanet I0C er einföld lausn í glugga og dyr Sérfræðiráðgjöf um rétta staðsetningu fylgir öllum forvarnarbúnaði. Sérfræðiráðgjöf Búnðaður Sérfræðiþjónusta Meindýravarnir SBS * Professional pestcontrol SBS lceland FLUGNANET ; 1 _'-py Verð á tveim algengum perum, "U"25w kr. 3.055,- (blá) 18" 15w kr. 2.546,- (græn) Sígild myndbönd EIN af eftirlætismyndun- um er Húmar hægt að kveldi, eða Dagleiðin langa inní nótt, báðir eru þessir titlar úr leikhúsunum hinir ágætustu. Hún var sýnd í Hafnarbíói á sjöunda áratugn- um, ég sá hana fljótlega aftur og seinni árin hef ég átt þess kost að skoða hana af og til á myndbandi - jafnan til mikillar ánægju. Húmar hægt að kveldi - A Long Days Journey into Night, (‘62) vakti athygli mína á einum af úrvalsleiksfjórum samtíðarinnar, Sidney Lumet. Síðan hefur hann veitt kvik- myndahúsgestum ómældar ánægjustundir. Eftir fjölmarga leiksfjóra liggja tvær, þijár myndir sem komast í þann gæðaflokk sem telur þau verk sem ég fjalla sérstaklega um á þessum síðum. Öðru málir gegnir með Lumet. Utan Network, Long Days Journey Into Night og Dog Day Afternoon, sem skipa heiðurs- sætin, fá myndirnar 12 Angry Men og The Hill ★★★★. Þá fá þær allar ★★★% Serpico, The Pawnbroker og The Verdict. Litlu síðri eru Running on Empty, Prince of the City, Equus, Q & A„ og Murder on the Orient Express. Allt gæða- myndir sem óhætt er að mæla með fyrir hvern sem er. Slíkur afburða kvikmyndasmiður er Lumet. Hinn Qölhæfi Sidney Lumet er af gyðingaættum, fæddur 1924, sonur frægs leikara sem starfaði við Jiddíska leikhúsið í New York. Það lá því beint við að sonurinn byijaði á því sviði, og fimm ára var hann farinn að leika í útvarpsleikritum. Þaðan lá Ieiðin á Broadway en her- þjónusta tók við 1942. Þangað hélt hann aftur er stríðinu lauk og helgaði leikhúsinu krafta sína, einkum sem leiksijóri, næstu árin. Líkt og margir af hans kyn- slóð hlaut Lumet sína eldskírn og þroska sem kvikmyndaleik- sfjóri við gerð sjónvarpsmynda á sjötta áratugnum, meðan þær voru sendar beint í loftið; mis- tök hreinlega bönnuð. Þeir sem sluppu í gegnum þann harða skóla komust flestir í fremstu röð. Árangurinn lét ekki á sér standa eftir að hann sneri sér að hvíta tjaldinu. Strax með sinni annarri mynd, 12 Angry Men, (57), var hann kominn í hóp efnilegustu leiksfjóra Bandarikjanna og hlaut sína fyrstu Óskarsverðlaunatilnefn- ingu af mörgum. Sjöundi ára- tugurinn var samfelld sigur- ganga. Þessi ungi leiksfjóri sýndi að ekkert var honum of- viða, myndir hans voru af hin- um ólíklegasta toga. Vestrar, NETWORK (1976) irHrk Stórfengleg, meinhæðin ádeila á fjölmiðla, einkum sjónvai-pið. Hand- ritshöfundurinn Paddy Chayefsky gefur áhorfendum dæmalausa inn- sýn í allt það baktjaldamakk, spill- ingu, valdagræðgi og hið skítlega vinsældastríð sem þar er háð á hverjum degi í baráttunni um áhorf- ið. Ein besta mynd Lumets, hár- beitt og mögnuð satíra sem stendur ekki síður fyrir sínu í dag og gerir okkur, áhorfendurna, hálfvand- ræðalega, það erum við sem gónum á trakteringamar. Leikhópurinn er einn sá besti sem settur var saman á níunda áratugnum. Faye Dunaway, Peter Finch og Beatrice Straight fengu Óskarinn, þau Willi- am Holden, Robert Duvall og Ned Beatty gefa þeim ekkert eftir. Chayefsky vann einnig til Óskarsverðlauna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.