Morgunblaðið - 13.05.1998, Page 56
56 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998__________________________
FÓLK í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Aðdráttarafl
hj ólhýsabyggða
„HJÓLHÝSASTEMMNINGIN
heillar mig en henni kynntist ég
vel í Sibbarp Camping í Svíþjóð
síðasta sumar. Þar var til dæmis
Pólveiji í hjólhýsi við hliðina á
mér. Tælensk kona og sænskur
maður með Sheffer-hunda í öðru.
Sumt af þessu fólki býr þarna allt
árið og er með gervihnattadisk og
þvott úti um allt,“ sagði Áslaug
Snorradóttir ljósmyndari um
ástæðu þess að hún gerði sér ferð
að Laugarvatni í leit að áhuga-
verðu mannlífi.
„Það vildi svo skemmtilega til
að það var Eurovision-kvöld þegar
ég kom í heimsókn á Laugarvatn
og allir með gasgrill fyrir utan. Á
boðstólum voru hvítlauksinariner-
aðar svínakótelettur, lambakótel-
ettur, paprikuskrúfur, súkkulað-
irúsínur, bjór og romm í hverju
hýsi. Þetta var virkilega skemmti-
legt og mér var tekið opnum örm-
um alls staðar.
Það er mikil stemmning þarna.
Allir svo vinalegir, glaðir og ró-
legir, hafa skilið stressið eftir í
Reykjavík. Sitja í lopapeysunum
og láta fara vel um sig.
Það var forvitnin sem rak mig í
þessa heimsókn á Laugarvatn.
Fólk býr þarna jafnvel í margar
vikur í senn og byggir palla í
kringum hjólhýsin sem eru með
flestum nútímaþægindum. Þetta
er lúxusbyggð og af allt öðrum
toga en margar hjólhýsabyggðir
erlendis þar sem efnaminna fólk
hefur komið sér fyrir í neyð.
Það er hægt að koma sér mjög
vel fyrir í hjólhýsi. Mér fínnst
ekkert ólíklegt að ég kaupi mér
sjálf hjólhýsi en þó með þeim
möguleika að geta fært það um
landið. Jafnvel sett risadekk und-
ir hýsið ef ég ætla upp á hálend-
ið. _
Ég hitti mann sem hefur eytt
mörgum sumrum á Laugarvatni
sem sagði: „Að koma í hjólhýsi um
hveija helgi er eins og að horfa á
sömu bíómyndina aftur og aftur.“
Kona á sama stað sagði þennan
Iífsmáta vera mjög þægilegan þvi
viðhaldskostnaður væri enginn,
hjólhýsið væri bara bónað eins
bíll.“
—----"ts-T-—
I
—
|
j
I
WUm—waB