Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 60
60 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
~7>
r
HASKOLABIO
HASKOLABIO
Hagatorgi, simi 552 2140
■PV'CM
W.® TTHA.S COSK & 30E.L COEN
HINN MIKLI
LEBOWSKI
Gegn
framifisun
aðgöngumiða
ns fæst 25%
atslattur i
LEBOWSKI
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. b.i. m.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
www.dee
Sýnd kl. 11. Næstsíðustu sýningar
swBtffl*i awrttfWíi mnimi JWiRtBBH *&&& WiffAfflBH
iTOWIMY LE.E JONES WESLEY SNIPES
ROBERT DOWNEY JR.
-LLLMARSHILS
ANNAR
FLÓTTANtAÐUR
ER í FELUR/l
li AÐEtNS EENN
| MAÐUR GETUR
NÁÐ HONUNI
A - A \ x
rar-f
AT MBL
OG ERU
tlNA
CETUR
BJARGAÐ
Eddie
Rabbitt
látinn
► TÓNLISTARMAÐURINN Eddie
Rabbitt lést í síðustu viku aðeins 56
ára gamall. Banamein hans var
lungnakrabbamein sem kántrý- og
popptónlistarmaðurinn hafði barist
við í rúmt ár en í maí á síðasta ári
var fjarlægður hluti af öðru Iunga
hans.
Rabbitt fæddist í New York en
bjó um árabil í höfuðborg kán-
trýtónlistarinnar, Nashville. Hann
átti samtals 26 Iög sem náðu í efsta
sæti kántrývinsældalistans en er
líklega þekktastur fyrir lagið „I
Love Rainy Night.“ Önnur vinsæl
lög með Eddie Rabbitt eru „Drivin’
My Life Away“, „Every Which Way
But Loose“ úr hinni frægu kvik-
mynd Clint Eastwood um órangút-
an og „Someone Could Loose A He-
art Tonight."
Eddie Rabbitt hóf feril sinn sem
lagasmiður og fékk fyrsta alvöru
tækifærið þegar Elvis Presley söng
Iagið hans „Kentucky Rain“. Hann
hvarf frá tónlistinni um tíma þegar
ungur sonur hans greindist með
lifrarsjúkdóm og lést árið 1985
tæplega tveggja ára gamall.
Tfct Rabbitt lætur eftir sig eiginkonuna
Janine og tvö börn.
EDDIE Rabbitt var afkastamik-
ill lagasmiður en hápunkti fer-
ils síns náði hann með laginu „I
Love A Rainy Night“.
ÞRÁÐLAUSU
KALLTÆKIN
Kalltækjunum frá Hapé er stungið í tengil í 230 volt og
hægt er að tala og hlusta úr báðum tækjunum.
Tilvalið í sveitabæinn, fjárhúsið, stór hús og vinnustaði.
kr. 5.995 parið
SENDUM I POSKROFU
Glóey ehí.
Ármúla 19, sími 568 1620
Heimskur er
hattlaus maður
Nýstárleg
menningarstarfsemi
ÝMISLEGT er hægt að gera til að auka fjölbreyti-
leika og reisn mannlífs á hverju svæði en nýlega var
stofnað Hattafélag Þórshafnar og nágrennis sem ein-
setur sér að efla þá menningarstarfsemi sem í hatta-
burði felst. Á framhaldsaðalfundi félagsins var reisn
yfir stofnfélögum sem báru höfuðfót af fjölbreytilegri
gerð en í samþykktum félagsins, alls 10 greinum,
kveður á um að félagsmenn sýni frumleika við höfuð-
fatakaup og beri þau við sem flest möguleg og ómögu-
leg tækifæri.
I samþykktum félagsins kveður meðal annars á um
að íostudagar skuli vera sérstakh- hattadagar og er
félagsmönnum þá uppálagt að ganga með hatt. Sinni
þeir ekki um ákvæðið skapar það viðkomandi félaga
skömm og hneisu, sem skammari sér um að fram-
fylgja á næsta fundi eða atburði á vegum félagsins.
Stjórn félagsins skipa þrír félagar, formenni,
skammari og skrásetjari og skulu aðalfundir haldnir
þegar ástæða þykir til, þó eigi sjaldnar en á fimm ára
fresti.
Samþykktir félagsins eru stuttar og hnitmiðaðar og
má breyta þeim á aðalfundi - sé hann haldinn undir
fullu tungli og nægjanlega margir félagsmenn mættir
að mati formennis. Félagar geta allir þeir orðið, konur
og karlar, sem náð hafa lögaldri, búa á Islandi og vilja
gera markmið félagsins að menningar- og yndisauka
lífs síns, enda er kennisetning félagsins: „Heimskur er
hattlaus maður.“
Síðbúin góugleði
slysavarnafélaga
Dragdrottning björgunar-
sveitarinnar valin
BJÖRGUNARSVEITIN Hafliði og kvennadeild
SVFÍ á Þórshöfn héldu árshátíð sína fyrir skömmu
og var ýmislegt til skemmtunar, grín og gaman af
ýmsu tagi en auk þess ágæt söngatriði. Veislustjórinn
Stefán Már Guðmundsson hélt uppi fjöldasöng í anda
skátanna. Samkórinn á Þórshöfn kom fram undir
stjórn tónlistarkennaranna á staðnum en einnig
lögðu nýbúar á staðnum ft-am sinn skerf. Hin rúss-
neska Ásía Leskova söng einsöng við undirleik sam-
landa síns við frábærar undirtektir áheyrenda. Nokk-
uð margir útlendingar eru búsettir í plássinu og þyk-
ir mikilsvert að virkja alla í félagslífið.
Hápunktur samkomunnar var kosning dragdrottn-
ingar bjs. Hafliða og hreppti fyrrum gjaldkeri björg-
unarsveitarinnar, Reinhard Reynisson, þann eftir-
sótta titil. Verðlaun voru eðalkoníak ásamt kórónu og
borða. Alls voru fimm þátttakendur í keppninni, þar
sem einnig var valin vinsælasta „stúlkan", besta ljós-
myndafyrirsætan, fegurstu fótleggirnir og efnileg-
asta dragdrottningin.
Hljómsveitin Antik frá Raufarhöfn lék f'yrir dansi
fram á nótt og mun samkoman hafa skilað vel þegn-
um ágóða til björgunarsveitar og kvennadeildar, sem
huga bráðlega að endurbótum á húsnæði sínu, Haf-
liðabúð, auk annarra mála.
Morgunblaðið/Líney
STOFNFÉLAGAR í Hattafélagi Þórshafnar og
nágrennis, auðþekktir á því að allir bera virðu-
leg höfuðfót.
ÞEIR félagar sem ekki bera höfuðfat á hatta-
degi eru skammaðir af sérstökum skammara.
Morgunblaðið/Líney
DRAGDROTTNING Hafliða, Reinhard Reynis-
son, skartaði sínu fínasta í síðum rauðum kjól.
KEPPENDUR þurftu að sjálfsögðu að segja frá
sjálfum sér því persónuleiki keppenda skiptir
ekki síður máli en glæsileiki þeirra.