Morgunblaðið - 13.05.1998, Qupperneq 64
rijs5 1 _ ir T Drögum næst
ÍSLANDSFLUG gorir ff&trum fært aö fifúga 570 8090 26.maí JHAPPDRÆTTI HÁSKÓLA (SLANDS
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3010, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Columbia Ventures eigandi Norðuráls
Skoða staði ytra
fyrir nýtt álver
COLUMBIA Ventures Corporation,
eigandi Norðuráls, skoðar þrjá staði
í Norðvesturríkjum Bandaríkjanna
og Kanada í tengslum við staðsetn-
ingu á nýju álveri fyrirtækisins.
Þessir staðir eru Boardman í
Oregon, Richland í Washington og
Trail í Bresku Kólumbíu. Fyrirtækið
hefur undirritað viljayfirlýsingar um
samstarf við hafnarstjórn Morr-
owhafnar í Oregon, við orkuveitu
Washingtonfylkis og við yfirvöld
Bresku Kólumbíu, að því er fram
kemur í frétt frá Columbia Ventures
Corporation.
Ken Peterson, eigandi fyrirtækis-
ins, segir að með þessu sé verið að
skoða framtíðarkosti í byggingu ál-
vera. „Þar sem nú hillir undir gang-
setningu Norðuráls á Islandi er
næsta markmið okkar að finna sam-
keppnishæfa staðsetningu á nýju ál-
veri í Norðvesturríkjunum eða
Kanada sem hentar viðkomandi
svæðum og hefði í för með sér ný at-
vinnutækifæri og efnahagslegan
ávinning. Viðbrögðin á öllum þremur
stöðunum hafa verið mjög upp-
örvandi og við finnum fyrir sterkum
stuðningi," segir Peterson.
Nærri 30 ár eru síðan nýtt álver
var reist á þessum slóðum og síðan
hafa markaðsskilyrði varðandi raf-
magn og umhverfisleyfi breyst veru-
lega. í fréttinni segir að Columbia
Ventures Corporation hafi valið of-
angreinda þrjá staði með hliðsjón af
því að þarna séu nauðsynlegar
skipulagsforsendur fyrir hendi og
næg orka.
„Við viljum velja þann stað sem
getur útvegað nauðsynleg leyfi og
gengið frá málum með sem greiðust-
um og árangursríkustum hætti,“
segir Jim Hensel, aðstoðarforstjóri
Columbia Ventures Corporation.
„Hver þessara þriggja staða hefur
sínar sterku hliðar og hver um sig
getur uppfyllt þarfir okkar en það er
of snemmt að segja til um hver
þeirra á bestu möguleikana. Nú ligg-
ur fyrir að ganga skrefinu lengra og
tryggja hráefni til álversins, samn-
inga um orkukaup og nauðsynleg
leyfi,“ segir Jim Hensel.
Wim Wenders við tökur á íslandi
ÞÝSKI leikstjórinn
Wim Wenders er
staddur hér á landi
ásamt á þriðja tug
breskra kvikmynda-
gerðarmanna til að
vinna að gerð auglýs-
ingamyndar fyrir
breskt bjórfyrirtæki.
Saga-Film framleiðir
auglýsinguna ásamt
bresku fyrirtæki.
Wenders kom hing-
að til lands á laugar-
daginn síðasta og
dvelst hérlendis ásamt
breska hópnum fram Wim Wenders
að næstu helgi. Alls
starfa um íjörutíu manns að gerð
auglýsingamyndarinnar hérlend-
is, þar á meðal ís-
lenskir og erlendir
leikarar. Kostnaður
við gerð auglýsingar-
innar er sambærileg-
ur við aðrar erlendar
auglýsingar sem
gerðar hafa verið
hérlendis á undan-
förnum misserum, um
eða yfír 100 milljónir
samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Upp-
tökur fara meðal ann-
ars fram við Skóga-
foss.
Wim Wenders er
einn þekktasti evr-
ópski leikstjóri samtímans og tal-
inn vera einn af forvígismönnum
endurreisnar þýskrar kvik-
myndagerðar á áttunda áratugn-
um ásamt Rainer Werner Fass-
binder og Werner Herzog. Mynd
hans, Ótti markvarðar við víta-
spyrnu, sem hann gerði 1972 eft-
ir sögu Peter Handke, vann hon-
um hylli á alþjóðavísu.
Wenders hefur verið í farar-
broddi framsækinna listrænna
leikstjóra í heiminum og hafa
myndir hans unnið til ótal viður-
kenninga og verðlauna. Þar á
meðal má nefna kvikmyndir á
borð við Ameríski vinurinn,
Hammett, París Texas, Himinn-
inn yfír Berlín og Svo fjarri, svo
nærri. Síðustu árin hefur hann
talsvert starfað í Bandaríkjun-
Sextán ára í
síbrotagæslu
LÖGREGLAN í Reykjavík stóð
sextán ára pilt að verki við innbrot í
Þingholtunum á sunnudag en hann
hefur verið ötull við slíka iðju að
undanförnu, að sögn lögreglu. Hér-
aðsdómur varð við kröfu um síbrota-
gæslu yfir piltinum í mánuð vegna
þessa máls og annarra sem eru í
rannsókn og ákærum.
FlugTimferðarstjórum úr-
skurðaður verkfallsréttur
FÉLAGSDÓMUR hefur tekið til
greina kröfur Félags íslenskra flug-
umferðarstjóra á hendur ríkinu um
að það nægi að 32 flugumferðar-
stjórar séu við vinnu til að fullnægja
nauðsynlegustu öryggisgæslu með-
an aðrir eru í verkfalli. Fram til
þessa hafa allir flugumferðarstjórar
verið á skrá fjármálaráðuneytisins
yfir þá sem ekki mega fara í verk-
fall. Ríkið var auk þess dæmt til að
greiða félaginu 1.794.000 kr. í máls-
kostnað. Loftur Jóhannesson, for-
maður Félags íslenskra flugumferð-
arstjóra, segir að þetta séu merk
tímamót fyrir flugumferðarstjóra.
„Við erum loks komnir með sömu
lýðréttindi og önnur stéttarfélög hjá
ríkinu," sagði Loftur.
Arið 1987 boðuðu flugumferðar-
stjórar verkfall. Stjórnvöld stefndu
þeim fyrir félagsdóm sem felldi
þann úrskurð að verkfallið væri
ólöglegt þar sem allir flugumferðar-
stjórar féllu undir lagagrein um
réttindi og skyldur opinberra starfs-
manna og þyrftu allir að sinna nauð-
synlegustu öryggisþjónustu.
1995 höfðaði Félag íslenskra flug-
umferðarstjóra mál gegn fjármála-
ráðherra og krafðist þess að skrá yf-
ir þá aðila sem mega ekki fara í
verkfall yrði ógild. Skráin er gefin
út árlega. Allir flugumferðarstjórar
hafa verið á skránni allt frá 1987.
Flugumferðarstjórar töpuðu málinu
og í kjölfarið sögðu flestir flugum-
ferðarstjórar upp störfum.
Félag flugumferðarstjóra höfðaði
að nýju mál í fyrra til að mótmæla
lista fjármálaráðherra. Félagsdóm-
ur vísaði málinu frá og áfrýjuðu
flugumferðarstjórar málinu til
Hæstaréttar. Hæstiréttur staðfesti
frávísun félagsdóms. Flugumferðar-
stjórar stefndu fjármálaráðherra
aftur fyrir félagsdóm 23. júní 1997
sem vísaði málinu að nýju frá.
32 flugumferðarstjórar á skrá
samkvæmt matsgerð
Aftur áfrýjuðu flugumferðarstjór-
ar til Hæstaréttar sem felldi þann
úrskurð 11. september 1997 að fé-
lagsdómur skyldi taka fyrir vara-
kröfu flugumferðarstjóra en stað-
festi frávísunina hvað varðaði aðal-
kröfuna, sem snerist um að allir
flugumferðarstjórar yrðu teknir út
af skrá fjármálaráðherra. Vara-
krafan var sú að 32 flugumferðar-
stjórar yrðu á skránni í samræmi
við matsgerð sem félagið lét gera.
Flugumferðarstjórar eru nú alls 96
talsins.
Félag íslenski-a flugumferðar-
stjóra lagði íyrir félagsdóm mats-
gerð dómkvaddra manna sem mátu
hve marga flugumferðarstjóra
þyrfti í vinnu meðan aðrir væru í
verkfalli til þess að fullnægja nauð-
synlegustu öryggisgæslu. Niður-
staða matsgerðarinnar var sú að 32
fiugumferðarstjórar gætu sinnt
nauðsynlegustu öryggisgæslu. A
þetta féllst félagsdómur.
Málið dæmdu Auður Þorbergs-
dóttir, Gylfi Knudsen, Ingibjörg
Benediktsdóttir, Guðmundur
Skaftason og Sveinn Sveinsson.
Morgunblaðið/RAX
Kanínur
viðraðar
á milli
skúra
ÞEIR þurfa ekki að vera háir í
loftinu, eða aldnir að árum, til
þess að geta hafíð kanínubú-
skap. Þessi ungi kanínubóndi
sem ljósmyndari hitti í Safamýr-
inni í Reykjavík í gær notaði
tækifærið á milli skúra og
skaust út til að viðra kanínurn-
ar sínar fímm. Róbert Rafn Óð-
insson heitir pilturinn en ekki
fylgdi sögunni hvað kam'nurnar
heita. Eitt er þó nokkuð víst;
þeim hefur sjálfsagt líkað vel að
komast sem snöggvast út undir
bert loft - vonandi hefur Róberti
tekist að koma þeim í húsaskjól
áður en flóðgáttir himinsins
opnuðust á ný.