Morgunblaðið - 14.05.1998, Síða 2
I
2 FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Svar dómsmálaráðuneytis til
Sigurðar Gizurarsonar sýslumanns
Flutningur
vægasta úrræðið
EKKI er útilokað að við áframhald-
andi meðferð á máli Þórðar Þ. Þórð-
arsonar verði tekin afstaða til emb-
ættisfærslna Sigurðar Gizurarsonar
sýslumanns á Akranesi. Þetta kem-
ur fram í svari dóms-og kirkjumála-
ráðuneytisins við beiðni Sigurðar
um röksemdafærslm- fyrir flutningi
hans i embætti sýslumanns á
Hólmavík.
I bréfí ráðuneytisins kemur
einnig fram að fjárhagshalli sýslu-
mannsembættisins á Aki-anesi hafí á
undanförnum árum aukist jafnt og
þétt og nemi nú 26 milljónum króna,
eða tæpum helmingi rekstrarvanda
allra sýslumannsembætta á landinu.
Grípa verði til raunhæfra aðhaldsað-
gerða og virkrar fjármálastjórnunar
til að koma rekstri embættisins í
viðunandi horf og fullreynt þyki að
Sigurði muni ekki takast það.
I bréfinu segir einnig að flutning-
ur Sigurðar í viðaminna embætti,
með minni fjárhagsleg og rekstrar-
leg umsvif, hafi verið talið vægasta
úrræðið. Þá er vísað til álits um-
boðsmanns Alþingis þess efnis að
embættismaður sem fluttur er til í
starfi skuli eiga raunhæft val um
það hvort hann taki við nýja starfinu
eða láti af störfum og fari á eftir-
laun. Sigurði er veittur frestur til 25.
maí nk. til að koma að andmælum.
0
Arni Sigfússon um nýja skoðanakönnun Gallups
Eigum góða von til sigurs þó að
mér sé fullljóst að naumt verði
„ÞESSU miðar í rétta átt og segir
okkur að náum við að kynna mál-
efni okkar og áherslur betur eigum
við góða von til sigurs þó að mér sé
fullljóst að naumt verði,“ segir
Árni Sigfússon, oddviti sjálfstæðis-
manna í Reykjavík um skoðana-
könnun Gallups sem birt var í gær
um fylgi flokkanna í Reykjavík.
„Eg verð að viðurkenna að ég
hef lengi beðið eftir því að við næð-
um að snúa stöðunni við og hef
reyndar undrast að það skyldi ekki
gerast fyrr miðað við þá vinnu og
kynningu sem við höfum lagt í mál
okkar en það er ánægjulegt að sjá
það gerast nú,“ segir Árni enn-
fremur. „Við höfum gagnrýnt það
sem við höfum talið fulla ástæðu til
að gagnrýna og komið með tillög-
ur. Við erum það framboð sem
leggur fram hugmyndir nú eins og
áður.“
Ámi taldi aðspurður að umræð-
ur um fjármál tveggja frambjóð-
enda R-listans hlytu að hafa áhrif
miðað við alvöru málsins. „Borgar-
búar eiga rétt á að vita hið sanna í
þvi máli og ef það er ekki lagt á
borðið fara þeir að móta sér sjálfir
skoðun, kannski á grundvelli
óljósra upplýsinga sem engum er
til góðs.“
Feluleikur bak við
hreinan skjöld
Árni segir Ijóst að Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri,
sé að reyna að fela einhverja á bak
við fólk með hreinan skjöld, með
tillögu sinni um að farið verði yfir
fjármálaferil 15 efstu manna á
báðum framboðslistum.
Tillaga borgarstjóra er fram
komin eftir tillögu sjálfstæðis-
manna um að hlutlaus aðili verði
fenginn til að kanna fjármál þeirra
Helga Hjörvar sem er í 1. sæti á
framboðslista Reykjavíkurlistans
og Hrannars B. Arnarssonar sem
er í 3. sæti listans. „Ef borgar-
stjóri telur að margir frambjóð-
endur hafi skilað röð gjaldþrota,
árangurslauss fjárnáms eða van-
skiladóma í einum fimm fyrirtækj-
um eða kennitölum, sem teygja
sig allt fram á síðasta ár, þá veit
hún meira en ég og þá er full þörf
á að kanna feril manna,“ sagði
Árni.
D-listi
fengi
43,4%
SAMKVÆMT nýrri skoðana-
könnun Gallup fengi R-listinn
55% atkvæða og 8 menn
kjöma í borgarstjómarkosn-
ingum ef kosið væri nú og D-
listinn 43,4% og 7 menn
kjörna. Miðað við fyrri kann-
anir hefur munur á fylgi list-
anna minnkað.
í könnuninni fékk L-listi
1,2% og H-listi 0,5%. Úrtakið
í könnuninni var 763 einstak-
lingar búsettir á Reykjavíkur-
svæðinu á aldrinum 18 ára og
eldri. Svarhlutfall var 70,5%
og óákveðnir reyndust 12,2%.
Könnunin var gerð á tímabil-
inu 3.-12. maí og kom ekki
fram munur eftir einstökum
dögum í könnuninni.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um minnkandi fylgi R-lista
Hvergi bangin við
þessa skoðanakönnun
„ÉG ER hvergi bangin við þessa
könnun, það hlaut að koma að því
að fylgið hætti að fara upp á við
og að eitthvað hrykki til baka. Ég
hef verið að bíða eftir því frá því í
febrúar að þetta gæti gerst,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, borgarstjóri og oddviti
Reykjavíkurlistans, aðspurð, um
nýja skoðanakönnun sem birt var
í gær um fylgi flokkanna í
Reykjavík.
I þeirri Gallup-könnun varð
niðurstaðan sú að R-Iistinn myndi
fá 8 borgarfulltrúa og Sjálfstæðis-
flokkurinn 7 en hinir tveir flokk-
arnir, sem bjóða fram í Reykja-
vík, fengju engan mann kjörinn.
Segir könnunina
sigur kjósenda
„Þegar fylgið mælist svo mikið
í könnunum eins og var orðið hjá
R-listanum er eiginlega ekki
nema ein leið, niður á við, og það
er alltaf glíma þeirra flokka sem
fara hátt, að þeir eru alltaf að
tapa miðað við könnun þegar þeir
stóðu hæst. En við erum yfir
kjörfylgi okkar, 12% yfir Sjálf-
stæðisflokknum, og ég er ekki
ósátt við þessa niðurstöðu."
Borgarstjóri taldi ekki að um-
ræða síðustu daga um fjármál
frambjóðenda R-listans í fyrsta
og þriðja sæti hefði haft áhrif hér.
„Ef hægt er að tala um sigur ein-
hvers í þessari könnun þá er það
sigur kjósenda vegna þess að eina
ferðina enn hafa þeir sýnt og
sannað að þeir láta ekki ófræging-
arherferð á hendur einstaklingum
hafa áhrif á sig í kosningabaráttu
heldur taka afstöðu tO þeirra
verka og þeirrar stefnu sem þeir
standa fyrir. Það er kannski
ánægjulegast í þessu öllu saman.
En það er sótt að okkur úr öllum
áttum, bæði L- og H-listi eru að
taka af okkur nærri 2% og miðað
við það allt eru þetta engin von-
brigði.“
Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson
Litlir kropp-
ar á Litla-
Kroppi
Reykliolti. Morgunblaðið.
HRAFNINN verpir með allra
fyrstu fuglum á vorin. Á kletta-
stalli fyrir ofan bæinn á Litla-
Kroppi er laupur og í honum sex
hrafnsungar og eitt fúlegg. Ekki
er algengt að hrafninn verpi fleiri
en sex eggjum í sama laupinn.
Laupurinn var verklegur, gadda-
vír, tijálurkar, bein, niðursuðudós
og fóðraður með ull.
I þjóðsögum segir um hrafna að
„á vorþingum semja þeir um
hvernig þeir skulu haga sér á
sumrin, en á haustþingum skipta
þeir sér niður á bæina og er það
kallað að seíjast niður. Eftir það
eru hrafnarnir kallaðir bæjar-
hrafnar eða heimahrafnar".
♦ ♦♦
Spurt og svar-
að á Netinu
NOTENDUM Kosningavefjar
Morgunblaðsins á Netinu gefst kost-
ur á að senda umsjónarmanni vefjar-
ins í tölvupósti spurningai' til fram-
boðslista í einstökum sveitarfélögum
um allt land. Spurningunum er kom-
ið áfram til framboðanna og svörin
birt á Kosningavefnum jafnskjótt og
þau berast.
Forsenda þess að hægt sé að veita
þessa þjónustu er að viðkomandi
framboð hafi búnað til að taka við
spurningunum og svara þeim í tölvu-
pósti. Forsvarsmenn framboðslista
eru hvattir til að senda Kosninga-
vefnum upplýsingar um netfang sitt.
Netfang Kosningavefjarins er kosn-
ing@mbl.is.
Netnotendur, sem senda vilja
íramboðslistum fyrirspurn, velja síð-
una „Spurt og svarað" á Kosninga-
vefnum, smella á hnappinn „Ert þú
með spurningu?" og fylla út fyrir-
spurnarfom, sem þá birtist á tölvu-
skjánum. Kosningavefnum má tengj-
ast frá Fréttavef Morgunblaðsins
eða með því að slá inn slóðina
http://www.mbl.is/kosningar.
Sérblöð í dag
- |ÉM||
VIÐSiaPn AIVINNULÍF
VEXTIR
Skráning
á Reibor
Reglur um milli-
bankaviðskipti/BI
KONNUN
Vinsæl
fyrirtæki
Vilja vinna hjá
Erfðagreiningu/B4
TVÍEFLDIR
BYGGINGADAGAR '98
Islendingar gerðu jafntefli
gegn Saudi-Aröbum/C3
Chelsea Evrópubikar-
meistari í knattspyrnu/C4
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is