Morgunblaðið - 05.06.1998, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hæstiréttur um reglur skaðabótalaganna um uppgjör minnihátt
ar örorkutjóna til ungmenna og tekjulítilla
Jafnræðisregla brotin
HÆSTIRETTUR kvað í gær upp
þann dóm að það fari í bága við
jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar
að greiða engar bætur vegna varan-
legs örorkutjóns til þeirra sem hafa
haft engar eða takmarkaðar'tekjur
á liðinni tíð, sé miskastig þeirra
metið minna en 10-15%, eins og
skaðabótalögin gera ráð fyrir.
Þetta var niðurstaðan í máli sem
höfðað var fyrir hönd stúlku sem
var nemandi í menntaskóla þegar
hún lenti í umferðarslysi árið 1994
og hlaut áverka sem metnir eru til
10% varanlegrar örorku. Hún fékk
greiddar bætur vegna þjáninga og
varanlegs miska en ekki fyrir annað
fjártjón. Það byggðist á þágildandi
ákvæði 8. greinar skaðabótalaganna
um að þeir sem nýta vinnugetu sína
þannig að þeir hafi litlar eða tak-
markaðar tekjur skuli ekki fá bætur
vegna örorkutjóns undir 15%. Það
hlutfall var lækkað niður í 10% árið
1996.
„Þeir tjónþolar, sem 8. gr. skaða-
bótalaga tekur einkum til, hafa eng-
ar eða takmarkaðar vinnutekjur
haft á liðinni tíð. Það jafngildir ekki
því, að þeir muni ekki verða fyrir
tekjutjóni í framtíðinni af völdum
varanlegrar örorku þótt miskastig
þeirra sé metið minna en 10 eða
15%,“ segir í dóminum.
Síðar segir á þá leið að staða tjón-
þola með miskastig vegna varan-
legrar örorku undir tilteknu lág-
marki sé augljóslega mismunandi
eftir því hvort þeir hafi haft tekjur
fyrir slysið eða ekki.
Mismunun fer í bága við
stj órnarsj krána
„Þá er og ljóst að bótaákvörðun-
um vegna fyrmefnda hópsins er
ætlað að styðjast við fjárhagslegt
örorkumat en hins síðamefnda við
læknisfræðilegt mat. Þessar mis-
munandi forsendur mega hins veg-
ar ekki leiða til þeirrar niðurstöðu,
að annar hópurinn undir tilteknu
örorkustigi fái líklegt tjón sitt bætt
en hinn eigi þess engan kost. Slík
mismunun fer í bága við 65. grein
stjómarskrárinnar, sbr. 72. gr. og
verður ekki réttlætt með því, að um
smávægilegt tjón sé að ræða, sem
erfítt sé að færa sönnur að,“ segir í
dóminum og er þar vísað til ákvæða
stjómarskrárinnar til vamar jafn-
ræði manna og eignarrétti en rétt-
urinn segir að í aflahæfí manna séu
fólgin eignarréttindi sem njóta
vemdar eignarréttarákvæðis
stjómarskrárinnar.
Því var Vátryggingafélag íslands
dæmt til að greiða stúlkunni 547
þúsund krónur til viðbótar þegar
greiddum bótum, auk 400 þúsund
króna í málskostnað sem renna í
ríkissjóð.
Fyrningar-
frestur ekki
útrunninn
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
þann dóm Héraðsdóms Reykjavíkur
að fymingarfrestur refsingar hafí
ekki verið liðinn þegar maður var
handtekinn 14. apríl sl. og færður til
afplánunar á 11 mánaða fangelsis-
vist. Um var að ræða vararefsingu
vegna 4,3 mkr. sektar, eftirstöðva á
5,5 mkr. sekt sem maðurinn var
dæmdur til að standa skil á.
Maðurinn taldi sök sína fyrnda en
ákvörðun dómsmálaráðuneytisins,
sem héraðsdómur og nú Hæstiréttur
hafa staðfest, byggðist á því að ekki
bæri að miða fyrningarfrestinn við
þann dag þegar dómur var kveðinn
upp heldur þann dag þegar frestur
mannsins til að greiða sektina rann
út. Samkvæmt því hefði málið verið
fymt hefði maðurinn verið handtek-
inn tveimur dögum síðar.
Fær ágætiseinkunn í tveimur skólum
Morgunblaðið/RAX
F engsælt undir Ölfusárbrú
GUÐLAUGUR Jónasson sjóbirt-
ingsveiðimaður og fastagestur á
veiðisvæðinu undir Ölfusárbrú
lyftir upp feng dagsins, Qögurra
punda sjóbirtingi, fyrir ljósmynd-
ara Morgunblaðsins sem var á
ferð um Suðurland nýlega. Guð-
laugur sagði vel fískast á þessum
slóðum. Guðlaugur sagði að
menn stefndu að því að landa
þarna og að takmarkið væri að
landa þarna 200 fiskum í sumar.
Lýkur stúdents-
og einleikaraprófi
ÁLFHEIÐUR Hrönn
Hafsteinsdóttir hafði
ríka ástæðu til að
gleðjast í gær. Hún
útskrifaðist með
ágætiseinkunn frá
Menntaskólanum í
Reykjavík, var þriðja
hæst og hlaut fjölda
verðlauna. Álfheiður
er einnig nýútskrifuð
úr Tónlistarskóla
Reykjavíkur. Hún
lauk þaðan einleik-
araprófi í fiðluleik og
hlaut ágætiseinkunn.
Að sögn Álfheiðar
var veturinn stremb-
inn. „Þetta var mjög
erfitt sérstaklega þar
sem skólamir gera hvomgur ráð
fyrir að maður sé í öðm námi
með. Ég hef skipulagt námið
þannig í gegnum tíðina að ég hef
einbeitt mér að þeim skóla þar
sem meira er að gera hverju
sinni.“
Þrátt fyrir að stúdentsprófin
Álfheiður Hi-önn
Hafsteinsdóttir.
Mikil fjölgnn er-
lendra ferðamanna
Komur erlendra ferðamanna jan.-maí
FJÖLGUN erlendra ferðamanna er
um 8.800 fyi-stu 5 mánuði ársins
miðað við sama tíma í fyrra eða um
16%, samkvæmt upplýsingum frá
Ferðamálaráði.
I maímánuði sl. komu alls 18.852
erlendir ferðamenn til landsins, sem
er um 16% aukning miðað við sama
mánuð í fyrra, en þá komu alls
16.303. Flestir hinna erlendu gesta
komu frá Bandaríkjunum eða 4.044,
írá Bretlandi komu 2.525. Frá Dan-
mörku 2.277 og 1.918 frá Svíþjóð.
Frá Þýskalandi kom 1.851.
„Eins og áður hefur komið fram
hefur náðst verulegur árangur í
auknum umsvifum í ferðaþjónustu
utan hins hefðbundna ferðamanna-
tíma á undanfömum árum enda ver-
ið meginþáttur í allri markaðsvinnu.
Aldrei fyrr hafa jafnmargir erlendir
gestir komið hingað fyrstu mánuði
ársins og nú. Þessa fyrstu mánuði
ársins er einnig um að ræða athygl-
isverða breytingu í samsetningu
ferðamannahópsins með tilliti til
markaðssvæða," segir í frétt frá
Ferðamálaráði.
Ferðamenn frá
Svíþjóð
Bretlandi
Danmörku
Noregi
Bandaríkjunum
Þýskalandi
öðrum ríkjum
Samtals
Fjöldi 1997 1998
4.686 6.237
8.051 10.478
5.766 7.237
5.124 6.155
11.158 13.098
5.257 5.559
13.642 13.748
53.684 62.512
Aukning (%)
Norðurlöndin 3 15.574 19.629
33
20
17
16
26
væru yfirvofandi var
enn meira að gera í
Tónlistarskólanum
þar sem Álfheiður
hélt tvenna tónleika í
tengslum við einleik-
araprófíð. Fyrri tón-
leikarnir voru 28. jan-
úar en þá lék Álfheið-
ur með Sinfóníu-
hljómsveit Islands og
þeir síðari 16. apríl
þegar hún hélt ein-
leikaratónleika sína.
„Þannig að það má
segja að ég hafi ekki
haft tíma til að ein-
beita mér að Mennta-
skólanum fyrr en nú í
stúdentsprófunum,"
segir Álfheiður. „En ég lærði þó
alltaf fyrir skyndipróf."
Það virðist hafa dugað til því
lokaeinkunn Álfheiðar var 9,18 og
var hún þriðja hæst. Hún hlaut
verðlaun í dönsku, ensku,
frönsku, sögu og fyrir ágætisein-
kunnina. Álfheiður útskrifaðist úr
eðlisfræðideild II og segir uppá-
haldsgreinarnar vera sögu, eðlis-
og efnafræði og íslensku.
Þrátt fyrir að Álfheiður hafi
lagt námsbækurnar á hilluna í bili
verður ekki það sama sagt um
fiðluna. I sumar tekur hún þátt í
Sinfóníuhljómsveit ungs fólks á
Norðurlöndum, Orkester Norden.
„Það er enginn í nánustu fjöl-
skyldu sem spilaði á hljóðfæri."
I haust er stefnan svo tekin á
Bandarikin en Álflieiður hefur
fengið skólavist í Yale-háskólan-
um í Bandaríkjunum. „Ég verð
við nám í tónlistardeildinni þar en
ég get líka tekið bóklegar grein-
ar. Ég vil halda því opnu næstu
tvö árin hvað ég geri í framtíð-
inni.“
Nýstúdentar Ieiti/12
8SÍDUR
A FOSTUDOGUM
Faðmlög fyrir
stóra jafnt
sem smáa
Hvað segja
þjónar
réttvísinnar?
Hermann Hauksson til ís-
landsmeistara Njarðvíkur/C1
Monica Seles í úrslit á
Opna franska í tennis/C3
Boltinn
á Netinu