Morgunblaðið - 05.06.1998, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sverrir Hermannsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbank-
ans, og félagar hans héldu samráðsfund um framboð
„Við ræddum
hernaðarlistina“
Morgunblaðið/Theodór
FRÁ Grundartangahöfn þar sem m/s Strilberg liggur en það er fyrsta
SVERRIR Hermannsson, fyrr-
verandi bankastjóri, og félagar
hans undirbúa nú stofnun kosn-
ingasamtaka og ætla að bjóða
fram til Alþingis í öllum kjördæm-
um landsins á næsta ári. Haldinn
var samráðsfundur vegna fram-
boðsmálanna í gær. „Þama var
einvalalið og menn mjög á einu
máli en það er mikið starf
framundan í skipulagningu og við
mótun ramma um stefnu," segir
Sverrir.
„Við ræddum hernaðarlistina
alla saman,“ sagði Sverrir enn-
fremur um fundinn í gær. Að sögn
Sýning í
Sjó-
manna-
skólanum
SJÓMANNADAGSRÁÐ opnar
sýningu í Sjómannaskólanum á
sjómannadaginn í tilefni þess
að þá verður í 60. sinn haldið
upp á þennan dag.
Guðmundur Hallvarðsson,
formaður Sjómannadagsráðs,
hélt erindi og síðan var boðs-
gestum boðið að skoða sýning-
una. Sýningin verður opnuð
formlega fyrir almenning á
sjómannadag kl. 14. Hún verð-
ur opin fram til 20. júní.
Á sýningunni verða sýnd á
annað hundrað bátslíkön og
skipslfkön frá upphafi báta-
sóknar á íslandi til okkar
daga.
súrálsskipið sem kemur til Norðurálsverksmiðjunnar.
Fyrsta skipið
til Norðuráls
Borgarnesi
hans má búast við frekari fréttum
af málinu í næstu viku. „Það ei-u
vissar hugmyndir á lofti sem ég
get ekki rætt að svo komnu.“
Skriðufall
stuðningsmanna.
„Þetta lofar mjög góðu og hér
hefur ekki linnt hringingum fólks,
sem lýsir yfir stuðningi sínum, úr
öllum landsfjórðungum, hundruð-
um saman. Eg hefði aldrei getað
ímyndað mér annað eins skriðu-
fall. Allt er þetta vegna þess að
knýjandi nauðsyn er á að taka
fiskveiðistjórnina til endurskoð-
unar,“ sagði Sverrir. Hann bætti
einnig við að hálendismálið væri
af sömu rótum runnið. „Fólk finn-
ur að hér er sama yfirdrifna
frjálshyggjan á ferðinni,“ sagði
Sverrir.
Að sögn hans koma stuðnings-
menn framboðsins úr öllum
stjórnmálaflokkum. „Við leggjum
mjög mikið upp úr því að ná sem
mestu sambandi við ungt fólk.
Þeirra er framtíðin og það mun
takast. Það biður um að fá að vera
með, af báðum kynjum. Því verð-
ur heldur ekki gleymt í þetta
skiptið,“ sagði Sverrir að lokum.
FYRSTA flutningaskipið til að koma
til Norðuráls á Grundartanga er
þessa dagana að afferma um 17 þús-
und tonn af súráli í 50 metra háan
geymslutank Norðuráls á Grundar-
tanga. Skipið sem heitir m/s Stril-
berg er um 20 þúsund tonn, skráð í
Noregi með norskum skipstjóra og
yfirmönnum, en áhöfn er að öðru
leyti skipuð Pólverjum. Skipið er
jafnframt það fyrsta sem leggst að
nýja hafnargarðinum á Grundar-
tanga.
Að sögn Gene Caudill forstjóra
Norðuráls kemur skipið með hráefn-
ið frá Irlandi og er þetta eina skipið
sem mun koma til Grundartanga
með sjálflosunarbúnaði. Þegar
næsta súrálsskip kemur þá verður
búið að reisa um 40 metra háan af-
fermingartum á bryggjunni sem
mun tengjast losunarbúnaði og
dælukerfi að súrálsgeymslutanki
Norðuráls. Sagði forstjórinn að
framleiðsluferlið væri að komast í
gang hjá verksmiðjunni og fram-
leiðslan. hæfist nk. mánudag. Búið
væri að selja framleiðsluna töluvert
fram í tímann og hún færi öll á Evr-
ópumarkað. Aðspurður sagði for-
stjórinn að ekki væri ennþá búið að
ákveða hvort framleiðslunni yrði til
að byrja með ekið frá verksmiðjunni
til annarrar hafnar eða flutt sjóleið-
ina frá Grundartangahöfn, því þó að
nýi hafnargarðurinn væri langt kom-
inn þá væri enn eftir að steypa þar
þekjuna.
-----------------
Fékk flogakast
undir stýri
ÖKUMAÐUR missti stjórn á bifreið
sinni og lenti á tveimur kyrrstæðum
bílum á Skúlagötu í gærmorgun.
Að sögn lögreglu er talið að mað-
urinn hafi fengið flogakast og misst
stjóm á bílnum af þeim sökum.
Hann var fluttur á slysadeild til at-
hugunar. Svipað atvik varð sl. mánu-
dag, þegar annar ökumaður fékk
flogakast og lenti á húsvegg á
Snorrabraut.
Morgunblaðið/Þorkell
GRÍMUR Karlsson (t.v.), sem hefur smíðað um 60 líkön sem eru á sýningunni, og Hannes Hafstein, fyrrver-
andi forseti Slysavarnafélags íslands, við líkön af skútu sem smíðuð var í Englandi árið 1874. Hún kom til ís-
lands 1887 og hlaut nafnið Helga EA 2.
I
I
I
\
Formaður Tölvunefndar segir samstarfslækna ÍE eiga að safna persónuupplýsingum
Aðskilnaðurinn verð-
ur að vera bæði form-
legur og efnislegur
ÞORGEIR Örlygsson, formaður
Tölvunefndar, segir að í bréfi Tölvu-
nefndar til íslenskrar erfðagreining-
ar felist ekki að starfsemi Þjónustu-
miðstöðvai’ rannsóknarverkefna í
Nóatúni verði lokað. Á blaðamanna-
fundi, sem haldinn var í fyrradag
kom fram að forsvarsmönnum IE
hefði komið verulega á óvart að
Tölvunefnd hefði gripið til þess ráðs
að loka starfsemi Þjónustumiðstöðv-
arinnar sl. föstudag.
Haft var samband við Þorgeir, þar
sem hann er staddur erlendis, og
sagðist hann hafa átt fund með Kára
Stefánssyni, framkvæmdastjóra ÍE,
í Kaupmannahöfn þar sem rætt var
um ýmsar leiðir til að leysa þann
vanda, sem upp er kominn um nafn-
leynd og trúnað um persónugreindar
upplýsingar sjúklinga, sem ÍE og
samstarfslæknar hennar hjá Þjón-
ustumiðstöðinni vinna með. Sagði
Þorgeir að Tölvunefnd hefði ekkert
við það að athuga að ÍE legði sam-
starfslæknum til húsnæði í Nóatúni
eins og nú er gert en Ijóst sé að þeim
persónuupplýsingum, sem safnað er
í Þjónustumiðstöðinni eigi sam-
starfslæknar að safna. ÍE eigi ekki
að hafa aðgang að upplýsingum um
hvaða einstaklingar eru þar að baki.
„Við erum að tala um að aðskilnaður-
inn eigi ekki eingöngu að vera á
pappírunum heldur einnig í raun
bæði form- og efnislega," sagði hann.
Sammála um misfellur
Þorgeir sagði að þeir Kári hefðu
verið fullkomlega sammála um að
misfellur væru á því starfi, sem fram
færi í Þjónustumiðstöðinni sam-
kvæmt skilmála Tölvunefndar. Þeir
hefðu einnig verið sammála um að
finna þyrfti lausn á málinu. Sagði
Þorgeir að í bréfi Tölvunefndar
fælist ekki að starfseminni hefði
verið lokað. „Bréfið felur í sér að
óheimilt sé að halda starfseminni
áfram óbreyttri og að þeir hafi frest
til að koma málunum í lag,“ sagði
hann. „Við höfum hugsað þetta
þannig að fundin yrði bráðabirgða-
lausn, sem myndi gilda þar til varan-
leg lausn væri fundin. Eg hef verið í
stöðugu sambandi við lögmann IE
til að finna þessar lausnir og ég veit
ekki til að starfsemi Þjónustumið-
stöðvarinnar hafi verið lokað enda
fólst það ekki í bréfinu. Mér finnst
þetta mál sýna að eftirlitskerfi
Tölvunefndar virkar ágætlega og að
nefndin hafi brugðist rétt við. Hún
hafi ekki átt neinna annarra kosta
völ eins og málum var háttað."
í bréfi Tölvunefndar til ÍE, sem
undirritað er af Sigrúnu Jóhannes-
dóttur framkvæmdastjóra, segir
orðrétt: „Er hér með veittur frestur
til 20. júní nk. til að gera úrbætur og
sjá til þess að í hvívetna verði farið
að þeim fyrirmælum sem Tölvu-
nefnd hefur sett um framkvæmd
umræddra rannsókna. Fram að
þeim tíma er öll frekari vinnsla
óheimil. Skal fyrir 20. júní nk.
tryggja virkan aðskilnað þeirra sem
nú vinna með hin persónugreindu (-
greinanlegu) gögn íslenskrar erfða-
greiningar hf. og eyða allri óvissu
um sjálfstæði þeirra gagnvart fyrir-
tækinu. Skulu engir aðrir koma að
vinnslu slíkra upplýsinga en sam-
starfslæknar eða menn sem vinna
samkvæmt skriflegu umboði þeirra
og lúta hvorki boðvaldi Islenskrar
erfðagreiningar hf. né nokkurra
óviðkomandi aðila.“
Sammála um
tilsjónarmenn
Á fundinum með blaðamönnum
kom fram hjá Kára Stefánssyni að
ÍE greiddi laun tilsjónarmanna
Tölvunefndar samkvæmt tilskipun
nefndarinnar og sagði hann það ekki
gott og að á því yrði tekið á rólegan
og yfirvegaðan hátt. Þorgeir sagði
að samkomulag væri milli Tölvu-
nefndar og ÍE um að ÍE greiddi
laun tilsjónarmanna. „Við höfum
hvorki starfsfólk né fjárveitingu til
að sinna eftirliti með þeiiri starf-
semi sem þarna fer fram,“ sagði
hann. „Okkur kom því saman um að
heppilegast væri að Tölvunefnd til-
nefndi sjálfstæða og hlutlausa eftir- |
litsaðila, og íyrirtækið bæri kostnað
af eftirlitinu. Tölvunefnd er ekki að J
þvinga skilmálum upp á ÍE. Menn
eru sammála um þetta fýrirkomu-
lag. Þetta er sama fyrirkomulag og
er hjá Hjartavernd og Krabba-
meinsfélaginu. Þar eru tiljónarmenn
Tölvunefndar með starfseminni rétt
eins og hjá EÍ og þessir aðilar
greiða fyrir þann kostnað."
Vegna ummæla samstarfslækn-
anna sjö vildi Þorgeir taka fram að |
Tölvunefndin liti ekki á það sem sitt
hlutverk að standa í vegi fyrir vís-
indarannsóknum. „Við lítum ekki
svo á og hegðum okkur ekki
þannig," sagði hann. „Það sem okk-
ur ber skylda til er að tryggja per-
sónuvernd við vísindarannsóknir og
ég held að þetta eftirlitskerfi hafi
sannað að það virkar.“
Þorgeir sagði að fyrir einhver
mistök hafi Reyni Árngrímssyni
lækni verið sent bréf Tölvunefndar, l
sem einum af samstarfslæknum, en
hann hafi dregið sig úr samstarfinu h
og biðst hann velvirðingar á þessum
mistökum Tölvunefndar.