Morgunblaðið - 05.06.1998, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998 39
AÐSENDAR GREINAR
erlendis, ef námsmaður
er verulega fatlaðm-,
getur sannanlega ekki
stundað nám sitt hér á
landi að óbreyttum að-
stæðum og sérstakar
ástæður mæla með
undanþágu.
Allar miða þessar
breytingar að því að
koma til móts við þá,
sem vilja afla sér
menntunar og eru í
samræmi við það meg-
inmarkmið Lánasjóðs
íslenskra námsmanna
að stuðla að jafnrétti til
náms.
Námslán en ekki laun
Hér hef ég lýst þeim sjónarmið-
um, sem lágu til grundvallar þegar
teknar voru ákvarðanir um úthlut-
unaireglur LIN á næsta skólaári. I
samræmi við þær má gera ráð fyr-
ir, að ráðstöfunarfé námsmanns í
leiguhúsnæði verði nálægt 74.000
krónum á mánuði. Sambærileg tala
fyrir hjón með eitt barn, sem bæði
em í námi og hvort um sig með
meðaltekjur, er með barnabótum
um 186.000 krónur á mánuði. Þess-
ar tölur sýna glögglega, að ekki er
unnt að skoða hækkanir á náms-
lánum með sama hætti og launa-
hækkanir. Hjá lánasjóðnum er tek-
ið tillit til stöðu hvers lántaka og
hún metin. Þeir, sem skoða tölurn-
ar, geta ekki heldur af neinni sann-
girni fullyrt, að illa sé gert við
námsmenn á Islandi.
í lögum um Lánasjóð íslenskra
námsmanna er þess hvergi getið,
að líta beri á lán til námsmanna
sem laun. Þegai- hugað er að næstu
breytingum á úthlutunarreglum
sjóðsins koma ýmis álitaefni til
skoðunar. Til dæmis hefm’ verið
rætt um sérstakan lánaflokk handa
þeim, sem búa við háan
húsnæðiskostnað. Þá
hefur því verið hreyft,
að skapa mætti svig-
rúm til að hækka
grunnframfærslu nem-
enda með því að miða
upphæð námsláns til
hvers og eins aðeins
við þá daga, sem hann
stundar nám í skóla
sínum, en ekki við níu
mánuði eins og nú er
gert. Athygli hefur
veríð vakin á því sjón-
armiði, að óeðlilegt sé
að miða framfærslu-
grunn námslána við
framreiknaða
neyslukönnun frá árinu 1974, gera
þurfi nýja könnun til að hafa hald-
betri viðmiðun. Bent hefur verið á,
að skynsamlegt sé að halda frí-
tekjumarki lántakenda óbreyttu en
minnka skerðingu lána vegna eigin
tekjuöflunar námsmanns. Loks
hefur sú hugmynd komið fram í
fjölmiðlaumræðum um úthlutunar-
reglurnar á þessu vori, að Lána-
sjóður íslenskra námsmanna verði
lagður niður í núverandi mynd og
bönkum falið að veita námslán, ífk-
ið semji við banka um lánakjör og
niðurgreiði vexti til að tryggja
námsmönnum óbreytt lánskjör.
Ailar þessar hugmyndir er vert
að skoða nánar. Að lokum vil ég
árétta, að við setningu úthlutunar-
reglna á þessu vori, var stigið skref
til móts við marga hópa náms-
manna. Var eðlilegt að leggja
áherslu á það við endurskoðun
reglnanna að þessu sinni. Þetta er í
góðu samræmi við það höfuðmark-
mið sjóðsins að auðvelda sem flest-
um lántakendum að stunda fjöl-
breytt nám.
Höfundur er menntamálaráðherra.
Björn
Bjarnason
Hlutverk tölvustuddrar
hönnunar
Starfsumhverfi tæknimanna hef-
ur gjörbreyst á síðastliðnum 15 ár-
um og veldur tölvutæknin þar
mestu um. Bylting hefur orðið í
miðlun upplýsinga og tölvustudd
hönnun (CAD) er orðin veigamikill
þáttur í störfum allflestra tækni-
manna. Hönnun hefur færst af
teikniborðinu, frá teiknivél og tús-
spennum, yfir í teiknihugbúnað í
tölvum. I tölvustuddri hönnun eru
verkefnin sett fram myndrænt í
tvívídd eða þrívídd þannig að við-
skiptavinurinn sjái fyrh- sér verk-
efnið sem næst raunveruleikanum.
Nútímahönnun gefur einnig kost á
hvort sem er kyrrmyndum eða
hreyfimyndum. Þessi nýja tækni
breytist og þróast mjög hratt og
gerir sífellt meiri ki'öfur til tækni-
manna.
Staða tölvustuddrar hönnunar
hérlendis er með því besta sem
gerist í heiminum í dag. Tækni-
fræðingafélag Islands og Verk-
fræðingafélag Islands hafa, eins og
fýrr var getið, fengið mörg af fram-
sæknustu fyrirtækjunum hér á
landi á þessu sviði til samstarfs um
viðamikla kynningu á tölvustuddri
hönnun í Perlunni 6.-7. júní nk.
Þar að auki hefur Nils Lykke lekt-
or frá Danmörku verið boðið hing-
að til lands. Hann er talinn vera í
fremstu röð í Evrópu á sviði töivu-
studdrar hönnunar.
A sýningunni verður beitt nýj-
ustu tækni við framsetningu kynn-
ingarefnis. M.a. verða mörg verk-
efni, stór og smá, sýnd á 13 fm sýn-
ingartjaldi. Verkefnin verða út-
skýrð af sérfróðum fagmönnum.
Þá má geta þess að hægt verður að
sjá og heyra alla fyi-irlestrana á
heimasíðum félaganna meðan á
sýningu stendur. Veffangið er
www.vortex.is/vfi eða www.vor-
tex.is/vfi/tif.
Fyrirlestur Nils
Lykke 9. júní
Nils Lykke gestafyrirlesari
mun halda sérstakan fyrirlestur á
vegum TFI og VFI þriðjudaginn
9. júní. Fyrirlesturinn er opinn öll-
um áhugamönnum um tölvustudda
hönnun. Skráning fer fram á skrif-
stofu félaganna í síma 568-8505,
netfang vt@vortex.is
Höfundur er formaður Tæknifræð-
ingafélags íslands.
Gleymum
Islenzkri erfða-
greiningu
... í bili, nú þegar frið-
ur hefur fengizt til að
ræða eitt stærsta mál,
sem rekið hefur á fjörur
íslenzkrar heilbrigðis-
þjónustu um ára bil,
frumvarp til laga um
gagnagrunna á heil-
brigðissviði. Frumvarp
þetta, ef að lögum verð-
ur, mun veita heilbrigð-
isráðherra heimild til að
safna öllum upplýsing-
um, sem til eru um
heilsufar íslendinga, í
einn gagnagrunn. Jafn-
framt er ráðherranum
heimilt að semja við
einhvern aðila t.d. utan
heilbrigðiskerfisins um að mynda
grunninn, vinna við hann og varð-
veita í tiltekinn tíma. Mun sá aðili fá
einkaleyfi til þess arna.
Læknum hefur verið
borin á brýn þröngsýni,
afturhald og öfund,
segir Sigurbjörn
Sveinsson, í umfjöllun
um gagnagrunnsfrum-
stuðning læknastéttar-
innar. Að fullnægðum
kröfum um trúnað er
vinna af því tagi, sem
nú er stunduð hjá Is-
lenzkri erfðagreiningu,
læknum alls ekki til
ama. Síður en svo.
Frumvarpið um
gagnagrunna á heil-
brigðissviði er annars
eðlis. Það varðar ekki
þær rannsóknir, sem
nú er unnið að hjá ís-
lenzkri erfðagreiningu.
Frumvarpið _ skiptir
ekki máli fyrir Islenzka
erfðagreiningu til að
uppfylla gerða samn-
inga við lyfjaiðnaðinn. Það hefur
forstjóri íslenzkrar eifðagreiningar
staðfest. Þetta frumvarp verður að
skoðast í miklu víðara samhengi.
An þess að litið sé til markmiða
fiumvarpsins er það almennt viður-
kennt í vísindaheiminum, að sam-
eindarannsóknir á erfðamengi
mannsins velta upp mai’gvíslegum
spurningum, sem tengjast iögfræði-
legum, siðfræðilegum, félagslegum
og pólitískum úrlausnarefnum. Nú
þegar er umtalsverðum fjánnunum
veitt í rannsóknir á félagslegum af-
Sigurbjörn
Sveinsson
leiðingum eifðarannsókna. í Banda-
ríkjunum er jafnvirði milljarða
króna varið árlega til slíkra rann-
sókna, sem þó liggja utan ramma
raunvísindanna í ströngum skilningi
þess orðs. Mönnum er ljóst, að hag--- -
nýting þekkingarinnar á erfðaefn-
inu er vandasöm og krefst nýrrar
sýnar og endurmats á eldri gildum.
Hlutverk stjórnmálamanna er
veigamikið við alla löggjöf, sem vís-
ar til vegar í þessum efnum. Hún
gerir kröfur um yfirgripsmikla
þekkingarleit, sem ef til vill er þeim
framandi. Síðast en ekki sízt er
nauðsynlegt, að rödd almennings
nái eyrum stjórnmálamannanna og
að sjónarmið þeirra, sem í minni-
hluta eru, fái einnig að njóta sín.
í frumvarpi til laga um gagna- ^
grunna á heilbrigðissviði er gengið
lengra á þessu sviði en áður hefur
þekkzt. Engin þjóð hefur áður sett
slík lög. Þess vegna er nauðsynlegt,
að almenn umræða fari fram um
ýmis álitaefni, sem tengjast því,
sem að framan er getið. Það er
brýnt, að þeirri umræðu verði ekki
drepið á dreif með deilum um einka-
leyfi og hugsanlega hagnaðarvon
einkafyrirtækis. Látum þá umræðu
liggja á milli hluta, þar til vilji okkar
og ásetningur er ljós, hvað verkefn-
ið sjálft varðar. Hagsmunir ís-
lenzla-ar erfðagreiningar mega ekki
trufla þá umræðu. Skoðanaskiptum
við einstaklingana, sem að baki ís-
lenzkri erfðagreiningu standa, ber >--
hins vegar að fagna.
Umfram allt er mikilvægt, að
höfð sé að leiðarljósi sú staðreynd,
að ekki er allt gerandi í þágu vísind-
anna. Málssvarar þeiirar skoðunar
hafa verið fleiri en mannkynið hefur
þurft á að halda.
Höfundiir er læknir.
varpið.
Um tíma leit út fyrir, að ekki
gæfist ráðrúm til að ræða þetta
frumvarp frá öðru sjónarhorni en
sjónarhorni vísinda, ágóðavonar og
sérhyggju. Sem betur fer var komið
í veg fyrir það með þvingu skyn-
seminnar og hjálp raunsærra
stjórnmálamanna. Þáttur lækna var
stór í því máli sem og margra ann-
arra og frumkvæði Læknafélags Is-
lands verður ekki frá því tekið.
Læknum hefur verið borin á brýn
þröngsýni, afturhald og jafnvel öf-
und og þeir sakaðir um að tefja
framsókn vísindanna. Þeir hafa ver-
ið sagðir fylkja sér undir fána
skammsýninnar eins og bændur
forðum, sem riðu til Reykjavíkur
árla aldar til að mótmæla símanum.
Það er mín skoðun, að fullyrðing
þessi sé sett fram af fordómum og
takmörkuðum skilningi á því við-
fangsefni, sem til úrlausnar er.
Læknum eru fyllilegar Ijósar þær
tæknilegu forsendur, sem frum-
varpið gi-undvallast á. Þeim eru
Ijósir möguleikarnir, sem í erfða-
rannsóknum felast, hin hrífandi sýn
um ónumin lönd á vettvangi lækn-
inga, lönd, sem opnast með lykli
stökkbreyttra gena. Sú vinna, sem
forvitnir vísindamenn leggja af
mörkum við grunnrannsóknir undir
agaðri og viðurkenndri forsögn
hinnar vísindalegu aðferðar á fullan
Vestmannaeyja
er komið út og tæst
á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík:
Grandakaffi,
Grandagarði, Bókabúð
Árbæjar við Rofabæ,
Fljótt og gott,
Umferðarmiðstöðinni.
Hafnarfjörður:
Skeljungur, Kænan.
Sjómannadagsráð
Vestmannaeyja.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks í fasteignaleit
v'M
%J www.mbl.is/fasteignir
20%
afsláttur af sólgleraugum
dagana 4. til 7. júní
e