Morgunblaðið - 05.06.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998 53 i
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
HESTAR á leið í Viðey.
Grillskálinn í Viðey
öllum opinn síðdegis
Landsþing
Lions á
Akureyri
LIONSHREYFINGIN á íslandi
heldur landsþing sitt dagana 5. og 6.
júní á Akureyri. Þingið sækja um
250 fulltrúar hvaðanæva af landinu.
Alls er gert ráð fyi-ir að um 450-500
Lionsfélagar, makar og börn tengist
þinginu nú um helgina.
Meðal verkefna þingsins er end-
urskoðun laga hreyfingarinnar,
skipulag líknarstarfa og fjármögnun
þess. Lionshreyfmgin er virk í bar-
áttunni við vímuefni og hefur kostað
gerð og kennslu námsefnisins
„Lions Quest“ í 7. og 8. bekk grunn-
skóla. Það námsefni hefur líka verið
kallað lífsleikni og mun þaðan komið
heitið á nýrri námsgi-ein sem á að
taka upp í öllum grunnskólum á
næstum árum enda verður Lions
Quest stór þáttur í faginu. Þá er að
fara í gang kennsla í nýju námsefni
fyrir elstu bekki grunnskóla þar
sem tekið er á ofbeldi og unglingum
kennt hvernig hægt er að vinna úr
tilfinningum og ágreiningsefnum á
jákvæðan hátt, segir í fréttatilkynn-
I ingu.
Fjöldi skóla og námsstefna eru
haldin í tengslum við þingið, fyrir
embættismenn og stjórnir Lions-
klúbba, en nýtt starfsár hefst hjá
hreyfmgunni 1. júlí nk. Fráfarandi
fjölumdæmisstjóri er Jón Gröndal.
Fráfarandi umdæmisstjórar eru
Halldór Kristjánsson og Sigurður
H. Þorsteinsson og verður annar
hvor þeirra nýr fjölumdæmisstjóri.
Nýir menn í forystu umdæmanna
■ eru Þór Steinarsson og Elías Rúnar
Elíasson.
-------♦—-------
1 Fjölskyldusjó-
ferðir um
Reykjavík-
urhöfn
| ÁHUGAFÓLK um fjölbreyttar sjó-
ferðir fyrir einstaklinga og fjöl-
skyldur stendur fyiir sjóferðum
| föstudag, laugardag og sunnudag ef
veður leyfir. Farið verður um
Sundahöfn/gömlu höfn og ytri-höfn.
í kvöld, fóstudagskvöld, verður
farið frá Klettavör í Sundahöfn (Við-
eyjarferjubryggju) kl. 20 með far-
þegabátnum Skúlaskeiði. Siglt verð-
ur meðfram skipum í höfninni og
hafnarmannvirkjum inn í Elliðavog
og út með Gufunesi, Viðey og
Langanesi til baka.
Á laugardag verður farið frá flot-
bryggjunni í Suðurbugt, við Ægis-
garð, í gömlu höfninni kl. 16 og
einnig með farþegabátnum Skúla-
skeiði og siglt meðfram skipum og
hafnarbökkum, þ. á m. franska
tundurspillinum Latouche-Tréville.
Tekin verður botndýragildra og
veiðin sett í sælífskerin á Miðbakka
eða henni sleppt.
Á sunnudag, sjómanndaginn,
gefst öllum kostur á að fara í stutta
siglingu með skemmtiskipinu Árnesi
| út á ytri-höfn.
Sjóferðirnar eru við allra hæfi,
ungra sem aldinna, gegn vægu
gjaldi, segir í fréttatilkynningu.
SUMARDAGSKRÁIN í Viðey
hófst um hvítasunnuna. Sam-
kvæmt henni verður farið í
gönguferð tvisvar í viku og stað-
arskoðun á sunnudögum, hesta-
leigan verður starfrækt og reið-
skóli sem Hestaleigan í Laxnesi
rekur. Til nýjunga telst að grill-
skálinn Viðeyjarnaust verður op-
inn öllum síðdegis í sumar og þar
verða leiktæki úti við. Einnig er
hægt að leigja reiðhjól gegn
vægu verði.
Það sem í boði er um komandi
helgi er tæplega tveggja stunda
gönguferð á laugardag kl. 14.15.
Farið verður um norðaustur-
eyna. Þar er fallegt landslag og
gott að ganga. Komið verður við
í skólahúsinu og ljósmyndasýn-
ingin þar skoðuð. Á sunnudag
verður staðarskoðun kl. 14.15.
Hún tekur um þtjá stundarfjórð-
unga, er öllum auðveld og margt
ELLEFU flautunemendur koma
fram á tónleikum í Hafnarborg
föstudaginn 5. júní kl. 20. Á efnis-
skrá verða mörg helstu verk flautu-
bókmenntanna, en tónleikunum mun
ljúka með verkinu „Ra’s Dozen“ fyr-
ir 12 flautur eftir Þorkel Sigur-
athyglisvert að sjá og heyra, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Það sem er svo kannsi mesta
nýmælið er að nú geta allir nýtt
sér grillskálann á tímanum frá
kl. 13.30-16.30 alla daga. Þangað
geta menn komið með nestið sitt
til snæðings en einnig haft með
sér kol og olíu og grillað á einu
besta útigrilli Iandsins. Einnig er
hægt að fá þarna molakaffi og
svaladrykki á vægu verði.
Við skemmuna að baki Viðeyj-
arstofu er hestaleigan til húsa og
einnig hjólaleigan.
Veitingahúsið í Viðeyjarstofu
er opið og leggur áherslu á fjöl-
skylduvænar veitingar síðdegis,
bæði í verði og gæðum.
Bátsferðir úr Sundahöfn verða
á klst. fresti kl. 13-17 og á hálfa
tímanum í land aftur. Þess utan
eru kvöldferðir og hægt er að
panta aukaferðir eftir þörfum.
björnsson, sem Gunnsteinn Ólason
stjórnar. Undirleikari á tónleikunum
er Iwona Jagla.
Tónleikarnir eru lokaverkefni á
námskeiði sem Áshildur Hai'alds-
dóttir hefur staðið að.
Aðgangur er ókeypis.
FLAUTUNEMARNIR ásamt stjórnandanum Gunnsteini Ólasyni.
Ellefu flautunemar
í Hafnarborg
Sýning í Snorrastofu
-------------
Sj ómannadagur-
inn í Ólafsvík
SJÓMANNADAGSHELGIN í
| Ólafsvík hefst á föstudagkvöld með
barnadansleik kl. 20 í Klifi og síðan
tekur við unglingadansleikur kl.
22.30.
Á laugardeginum verður m.a.
kappróður og sjómannahóf verður
haldið í Klifi og hefst það kl. 19.30
með fjölbreyttum skemmtiatriðum
og dansleik á eftir. Á sunnudeginum
verður hátíðin sett kl. 13.30 í Sjó-
mannagarðinum, þar verða ræðu-
höld og skemmtiatriði. Messa verð-
ur kl. 14.30 og eftir messu verður
kaffisala Slysavarnadeildarinnar
Sumai'gjafar í safnaðarheimilinu.
SÝNING á myndverkum eftir
norska listamanninn Jarle Rosseland
verður opnuð í safnasal Reykholts-
kirkju á morgun, laugardag. Sýning-
in er myndröð með 19 myndum, sem
höfundur nefnir „Snorre-Suiten".
Myndefnið hefur skírskotun til ævi
og verka Snorra Sturlusonar og tjáir
skáldlega sýn á einkenni hins ís-
lenska landslags. Norska olíufélagið
Saga Petroleum gaf Snorrastofu
þessi myndverk á síðastliðnu ári.
Listamaðurinn kemur Noregi til að
opna sýninguna.
Athöfnin hefst með samkomu í
Reykholtskirkju kl. 14. Þar lesa
Jónína Eiríksdóttir og Ármann
Bjarnason úr verkum Snorra Sturlu-
sonar og Dagný Sigurðardóttir syng-
ur við undii-leik Steinunnar Ama-
dóttur.
Jarle Rosseland er mjög afkasta-
mikill og virkui' listamaðui'. Hann
hefur haldið meira en 200 sýningar
víða um heim. Hann er m,jög fjölhæf-
ur í list sinni og beitir margvíslegri
tækni. Eftir hann liggja margar
myndraðir og grafísk verk með stefj-
um úr norrænni sögu, náttúru og
menningu.
Snorrastofa sýnir einnig í mót-
tökusal yfirlit yfir sögu Reykholts og
tengsl hennar við landssöguna. Út-
gáfur á verkum Snorra Sturlusonar
og Ijósmyndir úr handritum eru jafn-
an til sýnis í safnaðarsal kirkjunnar.
Hatíðarblað Sjómanna-
dagsblaðsins komið út
SJOMANNADAGURINN í
Reykjavík og Hafnarfirði fagnar 60
ára afmæli sínu 7. júní og er þegar
tekið að minnast þess með margvís-
legu móti. Þar á meðal má nefna að
Sjómannadagsblaðið, sem nú kemur
út í 60. sinn, er sérlega veglegt í til-
efni af afmælinu.
Itarlega er fjallað um menntunar-
mál sjómanna og eru málefni Sjó-
mannaskólahússins rædd og skýrt
frá stofnun og starfi Hollvinasam-
taka Sjómannaskóla Islands. Að
vanda er að finna í blaðinu viðtöl við
ýmsa eldri sjómenn. Má þar nefna
viðtal við einn skipverja af vélbátn-
um Ki'istjáni sem lenti í ótrúlegum
hrakningum árið 1940 og viðtöl við
skipstjórana Tryggva Blöndal, löng-
um skipstjóra hjá Ríkisskip og
Gunnar Auðunsson, togaraskip-
stjóra. Einnig má geta um frásögn
eftir Pétur K. Bjarnason frá Isafirði
um mb Richard og siglingar hans á
stríðsárunum. Formaður Sjó-
mannadagsráðs skýrir frá því sem
efst er á baugi á starfi Sjómanna-
dagsins í Reykjavík og Hafnarfirði
og Hrafnistuheimilin eru heimsótt.
Blaðið fæst m.a. á bensínstöðvum
Olíufélagsins hf. ESSO og á skrif-
stofu Sjómannadagsráðs Hrafnistu
í Laugarási.
Athygli er vakin á því að í tilefni
þessara merku tímamóta vai' í gær,
fimmtudaginn 4. júní, opnuð í hátíð-
arsal Sjómannaskóla íslands sýning
á líkönum nær 100 báta og skipa frá
FORSÍÐA Sjómanna-
dagsblaðsins.
fyrri tíð til okkar daga. Er þetta
einstök sögusýning sem verður öll-
um opin.
Síðast en ekki síst er vakin at-
hygli á að Fulltrúaráð Sjómanna-
dagsins býður ungum sem öldnum
að sjá hina frábæru heimildarmynd
Island þúsund ár sem fjallar um
sjósókn fyrri alda. Sýningar á
myndinni verða í Laugarásbíói --
laugardaginn 6. júní nk. og hefjast
kl. 15 og 16. Er hér um kjörið tæki-
færi að ræða fyrir foreldra sem
kynna vilja börnum sínum sögu ís-
lenski-ar sjósóknar, segir í fréttatil-
kynningu.
Harmonikulist
um landið
SAMBAND íslenskra harmoniku-
unnenda stendur fyrir tónleikum
og dansleikjum á sjö stöðum á land-
inu dagana 5.-13. júní með sænska
harmonikutríóinu „Nya Bröderna
Farm“.
Hljómsveitin „Brödema Fárm“
hefur verið starfandi í Svíþjóð í
rúmlega fimmtíu ár og eru hljóm-
plötur og diskar með hljómsveitinni
orðnar á þriðja tug. „Nya Brödema
Fárm“ er í raun annar og þriðji
ættliður sem heldur nafninu á lofti.
Þeir sem hingað koma að þessu
sinni em bræðurnir Arne og Börje
auk sonar Börje, Frederiks. Allir
leika þeir á harmonikur en Arne er
talinn einhver besti hljómaskreyt-
ingameistari á Norðurlöndum, seg-
ir í fréttatilkynningu.
I Islandsheimsókninni leika þeir
fyrst í Súlnasal Hótel Sögu föstu-
daginn 5. júní og síðan í Þingborg í
Flóa, þá á Isafirði, í Dölum,
Varmahlíð í Skagafirði, á Akureyri
og að lokum á Breiðumýri í
Reykjadal.
Sjómanna-
dagshelgin á
Eskifírði
SJÓMANNADAGSHELGIN verð-
ur haldin hátíðleg á Eskifirði og
hefst á fóstudagskvöldinu með ung-
lingadansleik í Valhöll með hljóm-
sveitinni Spur.
Á laugardag verður m.a. hópsigl-
ing, þyrluæfing Landhelgisgæsl-
unnar og kappróður í Móreyravík.
Á sunnudeginum verður messa í
Eskifjarðarkirkju kl. 10. Um kl. 14
hefst síðan skemmtidagskrá í og
við íþróttahúsið. Kaffisala Slysa-
varnadeildarinnar Hafrúnar hefst
síðan kl. 14.30 íValhöll. Um kvöldið
verður dansleikur í Valhöll með
hljómsveitinni Sixties.
LEIÐRÉTT
Naustkjallarinn og
Næturgalinn
I skemmtanarammanum a-ö í
gær duttu uppákomur í Naustkjall-
aranum út og mátti skilja að það
sem er um að vera um helgina á
Næturgalanum ætti við Naustkjall-
arann. í Naustkjallaranum um
helgina leikur Skugga-Baldur létta
og ljúfa tónlist fóstudags- og laug-
ardagskvöld til kl. 3. í Næturgalan-
um leikur Galabandið ásamt Önnu
Vilhjálms fóstudags- og laugardags-
kvöld. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
Útskrift Menntaskólans
við Sund
I blaðinu í gær misritaðist nafn
semidúx Menntaskólans við Sund.
Nafn hans er Reynir Freyr Braga-
son en í grein um útskrift úr
Menntaskólanum er hann nefndur
Ragnar Freyr Bragason. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Morgunblaðið/Bernhard
JARLE Rosseland, Geir Waage, Kari Flaata Halling og Bjarni Guð-
ráðsson, formaður Snorrastofu.