Morgunblaðið - 05.06.1998, Page 56
K 56 FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
RU
BORGARBÓKASAFN
REYKJAVÍKUR
Aðalsafn
Þingholtsstræti 2$a verður opið á
laugardögum í júní
og júlí frá kl. 13-15.
Aðaisafn er steinsnar frá TjSminni
og Laugaveginum og því upplagt að
heimsækja það um leið ogskroppið
erí bæinn.
Safnið hefur upp á margt að bjóða fyrir
alla aldurshópa.
Verið velkomin.
Starfsfólk Borgarbókasafns
Þingholtsstræti 298.
í DAG
VELVAKAMK
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Athugasemd
við grein
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi:
„Eg vil gera athugasemd
við greinina „Boðin sömu
laun og lækna- og hjúkrun-
aiTÍtunim" sem birtist í
Morgunblaðinu sl. laugar-
dag, 30. maí. Greinin er
samantekt islenskra hjúki'-
unai-fræðinga og eru þær
að bera sig saman við
læknaritara. Það væri fróð-
legt að vita hvaðan þær fá
þessai' tölur, 114 þús. í
mánaðarlaun, vegna þess
að á Borgarspítalanum hafa
hjúkrunarritarar byi'junai'-
laun 71.026 kr. og í efsta
þrepi eru launin 87.427 kr.
eftir 18 ára starf. Þessar
tölur miðast við 100% starf.
Þess ber að geta að flestar
eru í hálfri til sjötiu og
fímm prósent stöðu.
Hjúkrunarritari.
Þakkir fyrir
góða þætti
MIG langar að þakka
Þresti Haraldssyni fyrir
þættina Vikulokin á laug-
ardögum. Þessir þættir
eru búnir að vera í 3 ár og
vil þakka stjórnanda fyrir
þennan frábæra þátt.
Einnig þakka ég fyrir þátt-
inn Samfélagið í nærmynd
sem er alla virka daga á
Rás 1. Þessir þættir eru
báðir frábærir.
Sigríður Ásta.
Áhugi á notuðum
frímerkjum
WILL Dunne, sem býr í
Ástralíu, hefur mikinn
áhuga á að komast í sam-
band við fólk sem hefur
áhuga á notuðum frímerkj-
um. Heimilisfangið hjá
honum er:
Will Dunne,
6 Orona Crescent,
Brentwood 6153,
Perth, Australia.
Tapað/fundið
Fila-skór teknir
í misgripum
FILA-skór, hvítir nr. 36,
voru teknir í misgripum í
Árbæjarsundlaug á annan
í hvitasunnu. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
566 8456 eða skili þeim til
Árbæj arlaugar.
Hálsmen týndist
HÁLSMEN, sem er járn-
stjarna í sveru bandi,
týndist á fimmtudag í síð-
ustu viku. Þeir sem hafa
orðið varir við hálsmenið
hafi samband í síma
554 3188.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU í hulstri
merkt Titanium, með sól-
hlíf, fundust í Lautasmára
sl. laugardag. Upplýsingai'
í síma 564 3745.
Sólgleraugu og næla
1 óskilum
SKILIN voru eftir tvenn
sólgleraugu í Gróðrarstöð-
inni Mörk og fundist hefur
ein silfurbrjóstnæla. Upp-
lýsingar í síma 581 4288.
Þessi köttur er týndur
ÞESSI köttur hvarf frá
heimili sínu við Dalsel
laugardaginn 30. maí um
hádegisbil. Hann er svart-
ur og hvítur með rauða
hálsól og merki í eyra.
Hann er mjög heimakær.
Við óttumst að hann hafi
lokast einhvers staðar inni.
Við biðjumn fólk vinsam-
lega að líta í kjallara og
geymslur og láta vita í
síma 557 3461.
Svartur fress týndist
í Hafnarfírði
SVARTUR fress, með
hvíta doppu undir hökunni
og bleika ól, 5 mánaða,
týndist úr Stuðlabergi 42,
Hafnarfirði, 7. mai. Þeir
sem hafa orðið varir við
kisa hafi samband í síma
555 4089.
Kettlingar
Níu vikna kassavanii- kett-
lingar fást gefms. Upplýs-
ingar í síma 554-0902.
Köttur fannst
SVARTUR og hvitur
högni fannst í miðbænum
sl. laugardag. Eigendur
geta haft samband í síma
552 3842.
Simmi er týndur
SÍAMSKÖTTUR, fress,
hvítur og brúnsvartur
hvarf frá Hrauntungu í
Hafnarfirði fyrir rúmlega
viku. Hann er ekki með ól
en eyrnamerktur. Þeir
sem hafa orðið hans varir
hafi samband í síma
555 1636.
Kettlingar fást gefins
FIMM kettlingar fást gef-
ins. Kassavanir og 9 vikna.
Upplýsingar í síma
554 0798.
SKAK
llinsjón Margeir
Pélurs.son
Staðan kom upp á alþjóð-
legu móti í Aberdeen í
Skotlandi í vor í viðureign
tveggja heimamanna. Jon-
athan Rowson (2.485)
hafði hvítt og átti leik gegn
Jonathan Grant (2.275).
26. Bxh6!! - gxh6 27.
Hxf7+ - Kxf7 28. Dg6+ -
Kf8 29. Dxh6+ - Kg8 30.
He4 - Rf6 31. exf6 - Bxf6
32. Hg4+ og svartur gafst
upp._
Minningarmótið um
Freystein Þorbergsson
hefst í kvöld kl. 20 í félags-
heimili Skákfélags Hafnar-
fjarðar, Dverg, Suðurgötu
2. Mótið er helgarmót. Á
laugardag og sunnudag
eru umferðir kl. 11 og 16.1
kvöld eru tefldar þrjár at-
skákir, en fjórar kapp-
skákir hina dagana. Verð-
laun: 20 þús., 12 þús. og 8
þús.
HVÍTUR leikur
og vinnur
Víkverji skrifar...
Frétt Morgunblaðsins í gær þess
efnis að knattspyrnumaðurinn
Arnór Guðjohnsen væri á heimleið
eftir 20 ár í atvinnumennsku erlendis
var sérlega ánægjuleg. Þó Arnór
verði 37 ára síðar á þessu ári og ferill
hans sem leikmanns farinn að stytt-
ast í annan endann, má telja fullvíst
að hann eigi eftir að setja skemmti-
legan svip á deildarkeppnina í leikj-
um Valsliðsins.
xxx
að gerist ekki oft að bestu at-
vinnumenn Islands komi heim
og leiki hér áður en þeir leggja
skóna á hilluna, eftir glæsilegan feril
í útlandinu, en Víkverja er minnis-
stætt þegar Karl Þórðarson kom
heim á ný og lék með Skagamönnum
með góðum árangri og Atli Eðvalds-
son kom sömuleiðis heim og lék með
Val og síðar KR, eftir mörg góð ár
hjá erlendum félögum.
X X X
Arnór Guðjohnsen hefur þótt einn
allra besti leikmaðurinn i
sænsku deildarkeppninni siðustu ár-
in. Hann hefur sannað að lengi lifir í
gömlum glæðum. Víkverji man þeg-
ar Arnór lék hér heima með Víking-
um á sínum tíma, fór þá á kostum
ungur að árum. Eiður Smári sonur
hans kom síðan fram á sjónarsviðið
fyrir nokkrum árum með Val, hélt
svo í atvinnumennsku en meiðsli
hafa sett strik í reikning hans og
Eiður er á mála hjá KR í sumar. Því
er ljóst að knattspyrnuáhugamenn
bíða spenntir, ekki síst eftir síðari
leik KR og Vals, sem verður í tíundu
umferð, mánudagskvöldið 20. júlí. Þá
mætast þeir feðgar væntanlega í
fyrsti skipti á vellinum.
xxx
Vert er að vekja athygli á frábær-
um lestri Arnars Jónssonar leik-
ara á Sjálfstæðu fólki Halldórs Lax-
ness í þættinum Víðsjá á Rás 1 á
sjötta tímanum hvern virkan dag.
Gaman er að lesa bókina sjálfur en
ekki verra að fá Bjart og aðrar per-
sónur sögunnar leiklesnar á þann
hátt sem Arnar býður upp á.
xxx
Annar liður í dagskrá Rásar 1,
sem Víkverji missir helst aldrei
af, er djassþáttur Lönu Kolbrúnar
Eddudóttur, fimm fjórðu. Hann er ú
dagskrá eftir fréttirnar kl. 16 á
föstudögum, þegar Víkverji hefur
reyndar sjaldnast tíma til að sitja við
útvarpið, en annað tækifæri gefst;
þátturinn er sem betur fer endurtek-
inn strax eftir fréttir á miðnætti. Það
er ekki heppilegasti hlustunartími
sem hugsast getur, en mikið er
leggjandi á sig fyrir góðan þátt.
xxx
að er annars umhugsunarefni, að
mati Víkverja, hvort ekki sé
ástæða til að fjölga djassþáttum í
dagskrá Rásar 1. Og hvað með hinar
útvarpsstöðvamar? Unnendur klass-
ískrar tónlistar fá vænan skammt á
Rás 1 og stjanað er við þá á þeirri
góðu stöð Klassík FM, en er ekki full
ástæða tíl að þjóna djassgjeggurum
betur?
xxx
Ohætt er að mæla með kvik-
myndahátíðinni Vorvindum, sem
nú stendur yfir í Háskólabíói og
Regnboganum. Myndirnar eru hver
annarri betri og þær sem sýndar eru
þessa vikuna - Dauði í Grenada í Há-
skólabíói og Hin ljúfa eilífð í Rogn-
boganum - eru báðar mjög góðar.
Víkverja var bent á að aðdáendur
myndarinnar Bréfberinn (II Postino)
sem sýnd var hérlendis fyrir
nokkrum árum, ættu ekki að láta
Dauði í Grenada fram hjá sér fara.
Hún sé svipaðs eðlis og sú frábæra
mynd um Nóbelsskáldið Pablo
Neruda. Það eitt fannst Víkverja nóg
til að sjá myndina í Háskólabíói.
xxx
Einhverju sinni þegar kvikmynda-
gerðarmenn í Hollywood bar á
góma sagði Halldór heitinn Laxness
eitthvað á þessa leið: Guð hjálpi
aumingja mönnunum. Þeir halda að
þetta sé list! Og benti á að enn þann
dag í dag væri i raun verið að búa til
sömu myndina í Hollywood og fyrir
mörgum áratugum. Orð skáldsins
rifjast óneitanlega upp þegar horft
er á listagóðar myndir eins og þær
sem þessa dagana eru í boði á Vor-
vindum. Þá er sorglegt til þess að
hugsa hve mikið rusl úr smiðju
þeirra í Hollywood flæðir yfir heim-
inn.