Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 120 metra breið og allt að 10 metra djúp skriða féll úr Lómagnúp Morgunblaðið/Þorkell SKRIÐAN sem féll er innan við Hellisfláa vestan og austan við Stóragil á Lómagnúp. Alls nær skriðan um 200 metra fram á jafnsléttu og er hún rúmir 10 metrar þar sem hún er hæst. Morgunblaðið/Þorkell „MIKIÐ afl leystist þarna úr læðingi." Lárus Helgason bóndi á Kálfafelli II virðir fyrir sér skriðuna. í N s l i i ( i Fannst á jarð- skj álftamælum í 150 kílómetra flarlægð UPP úr hádegi á sunnudag féll stór skriða úr Lómagnúp vestan Skeið- arársands og fór hún yfir vegar- slóða þann sem liggur að Núps- staðarskógum. Einar Kjartansson, jarðskjálftafræðingur hjá Veður- stofu Islands, sagði að afl skrið- unnar hefði verið slíkt að hún hefði komið fram á jarðskjálftamælum á Hveravöllum sem eru í um 150 kílómetra fjarlægð. Að hans sögn kom hún einnig fram á mælum á Kálfafelli vestan Lómagnúps en þar mældist höggið 2 stig á Richterskvarða. Greinilegt er að mikið afl hefur leyst úr læðingi við þessar hamfar- ir en lengst nær skriðan um 200 metra út frá fjallinu. Skiptist hún í tvo hluta og er annar á hæðina en hinn á lengdina og líkja menn lykt- inni á staðnum við lykt af jökul- ruðningi. Hæst nær skriðan rúm- um 10 metrum en að jafnaði er hún um 4 metrar á hæð og um 70 til 120 metrar á breidd. Við fjallsrætumar er nokkuð djúp geil sem myndast hefur þegar skriðan kom á jafn- sléttu. í bland við bergið er jarð- vegur og birkihríslur sem skriðan ýtti á undan sér úr hlíðinni. Þegar blaðamaður og ljósmynd- ari Morgunblaðsins fóru á staðinn féllu enn litlar skriður úr fjallinu. Með þeim í fór var Lárus Helga- son, bóndi á Kálfafelli II, en hann þekkir vel aðstæður við Ló- magnúp. Hann telur skriðuna rúm- an hektara og vera að hluta svo- kallað gusthlaup. Náði miklum hraða „Fljótt á litið þá sýnist mér þetta vera um einn og hálfur hektari að stærð og miðað við hæð gætu þetta verið um 80.000 rúmmetrar. Það sést að skriðan hefur náð miklum hraða þar sem hún hefur náð að renna um 200 metra út frá fjallinu. Mér sýnist þó að þar hafi loftþrýst- ingur hjálpað til þar sem öldugang- ur er í skriðunni en slíkt kallast Tónleik ar KRISTINS SIGMl óperusöngvara ásamt JONASI þriðjudaginn 9. júní kl. 20.30 ÞJOÐLEIKHUSINU Miáasala í Þjóáleikkúsinu fiMKlMn úlu- jökull Framhlaupið sem féll á sunnudag Morgunblaðið/Þorkell MAÐURINN verður agnarsmár í samanburði við þau öfl sem þarna voru að verki. Jafnframt bergstáli og grjótmulningi fylgdi með mikið af trágróðri og moldaijarðvegi úr hiíðinni. held ég gusthlaup og er þekkt með snjóflóð. Þá er greinilegt að skrið- an hefur náð að ýta á undan sér miklu af þeim gróðri sem var í hlíð- inni undir berginu og era merki þess víða í jaðri skriðunnar." Láras telur skriðuna vera mun minni en þá sem féll í Lómagnúp árið 1789, og að nú sé ástæðan líka önnur. „Þessi skriða er aðeins brot af þeirri sem féll í júlí 1789 sem sumir telja að hafi orðið vegna jarðhrær- inga. Hún er miklu stærri á allan hátt, er nokkrum sinnum breiðari og lengri og þá féllu einnig mun stærri björg. Ekki eru heldur sömu ástæður fyrir þessum skrið- um. Nýja skriðan er líklega til kominn vegna þreytu í móbergs- lögum og líklega hefur sprangið meðfram bjargbrúninni sem opn- ast samfara frosti og leysingum." A þessari öld minnist Láras eins ann- ars framhlaups af þessari gerð. „Um 1962-63 féll fylla í Fossnúpi austan við Dverghamra. Henni svipar mjög til þessarar skriðu bæði að lengd og breidd.“ Rismik- ill fjalls- núpur LÓMAGNÚP er lýst svo í bókinni Landið þitt að hann sé rismikill fjallsnúpur, sem standi 688 m yfir sjávarmáli og gangi fram úr Birninum vestanvert við Skeiðarársand. Lómagnúpur er í röð hæstu standbjarga á íslandi. Undir lok átjándu aldar brotnaði stór spilda úr fjallinu og sjást björgin á víð og dréif um sandinn fram undan núpnum. Svæðið, sem hrapið þekur, er kallað Haugar og er talið að Lómagnúpur hafi áður náð í sjó fram. I bókinni er rifjað upp að frásögn Njáls sögu af draumi Flosa á Svínafelli er hann sá jötuninn ganga út úr núpnum sé fræg. Þá orti Jón Helgason svo í Áfóngum: Vötnin byltast að Brunasandi, bólgnar þar kvikan gljúp; landið ber sér á breiðum herðum bjartan og svalan hjúp; jötunninn stendur með járnstaf í hendi jafnan við Lómagnúp, kallar hann mig og kallar hann þig kuldaleg rödd og djúp. ! h
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.