Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
JON
FINNBOGASON
+ Jón Finnbogason
fæddist í Byggð-
arholti, Fáskrúðs-
firði, 21. desember
1915. Hann andaðist
á sjúkrahúsi Nes-
kaupstaðar 2. júní
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Auð-
björg Jónasdóttir, f.
13.2. 1888, dáin 24.9.
1951, og Finnbogi
Jónsson, f. 1.1. 1888,
dáinn 20.9. 1952. Jón
giftist Margréti
Þórðardóttur 23.10.
1937, f. 22.6. 1917,
dáin 24.9.1962.
Foreldrar: Auðbjörg Gunnars-
dóttir, fædd 17.6. 1886, dáin 22.6.
1943 og Þórður Brynjólfsson,
fæddur 27.12. 1883, dáinn 13.6.
1958. Jón átti þrjár systur. Helgu
og Önnu sem eru látnar og Guð-
nýju sem býr á Reyðarfirði. Börn
Jóns og Margrétar. Guðbjörg, f.
17.12. 1934, d. 2.6. 1973. Maki
Hörður Jakobsson, börn 3, bama-
böm 5. Þóra f. 9.11.
1936. Maki Margeir
Þórormsson, d. 5.5.
1985, börn 9 auk fóst-
ursonar, barnabörn
17, barnabamabörn
2. Finnbogi f. 19.8.
1938. Maki S. Gunn-
lúldur Stefánsdóttir,
börn 6, bamabörn 9.
Bjóla f. 30.7. 1947.
Maki Þorvaldur Jóns-
son, börn 4 barna-
börn 5. Jóna Björg f.
21.10. 1948. Maki
Ólafur Helgi Gunn-
arsson, böm 3,
barnabarn 1. Gunnar Jósep f. 6.5.
1951. Maki Bryndís Guðjónsdóttir,
börn 3. Aðalheiður f. 15.8. 1955.
Maki Einar Jóhann Gunnarsson,
börn 2, barnabarn 1. Auk þess
eignuðust Jón og Margrét 4 böm
sem létust í fæðingu.
títfór Jóns fer fram frá Fá-
skrúösfjarðarkirkju og hefst at-
höfnin klukkan 14.
4
Okkur langar í örfáum orðum til
að minnast tengdaföður okkar sem
lézt 2. þ.m. öllum að óvörum, þó að
—-.'hann hafi átt við vanheilsu að stríða
síðastliðin ár. Okkar fyrstu kynni af
Jóni voru ákaflega hlýleg og var
okkur strax tekið eins og öðrum í
fjölskyldunni, alltaf með bros á vör.
Líf Jóns var ekki alltaf dans á rós-
um. Bam að aldri fékk hann lömun-
arveikina, lamaðist og var fluttur
suður á Landakotsspítala, en náði þó
aftur bata. Um fermingu byrjaði Jón
að stunda sjóinn með Siggeiri Jóns-
syni fóðurbróður sínum og varð það
hans ævistarf upp frá því. Á tímabili
var hann í sinni eigin útgerð með
Agli Eyjólfssyni æskuvini sínum, síð-
ai- keyptu þeir bát ásamt Kristni
Sörensyni en lengst af reri hann á
Hafliða með Þorsteini Sigurðssyni
viðloðandi í 24 ár og var alla tíð mik-
ill kærleikur þeirra á milli. Síðustu
starfsárin átti hann sér litla trillu
MINNINGAR
sem hann stundaði á í fjörðinn sem
veitti honum mikla ánægju og oft og
tíðum voru bamabörnin með í fór.
Einnig vann Jón tilfallandi verka-
mannavinnu. I janúar 1967 varð
hann fyrir alvarlegu vinnuslysi í
gömlu síldarbræðslunni hér á staðn-
um, lá heima meðvitundarlaus í
nokkra sólarhringa áður en hann ar
fluttur á sjúkrahús í Reykjavík og
náði hann aldrei fullri heilsu eftir
það. Mörg áföll urðu í lífi Jóns. Mar-
gréti konu sína missir hann frá
mörgum börnum út frá fæðingu
yngsta barnsins 1962 sem einnig lést
og voru tvö barna þeirra innan við
fermingu. Var þetta algjört reiðar-
slag fyrir fjölskylduna. Reyndi mikið
á dætui' hans Jónu Björgu 14 ára og
Fjólu 15 ára en þær tóku við heimil-
inu en leituðu þær mikið til eldri
systra sinna sem fluttar voru að
heiman. Hélt Jón heimili áfram í
Auðsbergi þar til hann flytur með
yngstu dóttur sinni Aðalheiði þegai'
hún stomar sitt heimili 1978. Og bjó
þar þangað til hann flutti á Dvalai'-
heimili aldraða 1995. Fleiri stór áfóll
urðu í lífi Jóns er elsta dóttir hans
Guðbjörg lést eftir mikil veikindi árið
1973 aðeins 38 ára gömul. Eitt barna-
bama hans Guðjón Gunnarsson lést í
umferðarslysi 1993 tæplega 18 ára og
varð þetta honum mikill harmur en
alltaf hélt hann ró sinni. Fjölskyldan
var honum ætíð mikils virði, barna og
bamabamabömin hændust að hon-
um og vom honum til mikillar gleði.
Jón var alla tíð mjög iðjusamur sem
sýndi sig best síðustu árin. Var hann
þá gjarnan að moka snjó frá dyrum á
dvalarheimilinu og fór út á göngu
þegar stætt var þó heilsan væri farin
að bila. Við viljum að endingu þakka
tengdafóður okkar fyrir alla hans vin-
áttu og biðjum góðan Guð að blessa
minningu hans.
Ýms eru áranna kynni
sem einum mér kveða brag
ogvekm'ímínuminni,
svo margt um liðinn dag.
Minningar margar hlýjar
og myndir af ýmsri gerð,
sem eru mér ávallt nýjar
á ellinnar gönguferð.
(Friðbert Pétursson)
Hvíl þú í friði.
Þínar tengdadætur,
Gunnhildur og Bryndís.
Ég kveð þig afi með hafsjó af
minningum um dugnað og elju. Með-
an starfsþrek þitt leyfði varstu alltaf
að.
Sú minning er við lögðum daglega
kolanetin í fjörðinn, þar sem ég fékk
það hlutverk að selja aflan og sölu-
launin voru hærri en aflaverðmætið
lýsa lífshlaupi þínu. Þú hugsaðir
meh'a um að gefa og rétta öðrum
hjálparhönd en um eigin hag.
Lifandi er minning um mann sem
endaði allt tiltal við uppátækjasaman
dreng með því að segja „elskan mín“
til að undirstrika að allt væri vel
meint.
Með þökkum fyrir allar stundunar
í Auðsbergi og í kringum sjéttuna
þína þar sem alltaf var eitthvað við
að vera bið ég Guð að geyma þig.
Grétar Finnbogason.
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Érfidrykkjur
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
^ Sími 562 0200 ^
rrxxxxxxxxxxl
aílDMUA
JIÓTÍL ÍOK
iISTíyMlil • (flfí
Upplýsingar í s: 551 1247
1 (LjrficfryÁÁj ur
É VEISLUSALURINN SÓLTÚNI 3 AKOGESHÚSIÐ
1 sími 562-4822 Biynjar Eymundsson
1| matreiðslumeistari Guðbjörg Elsa Guðmundsdóttir smurbrauðsjómfrú 1 VEISLAN A
1
1 aTm VEITlNGAELDHtíS
1 Frábærar veitingar Sími: 561 2031 Fyrirrnyndar þjónusta
Sveitarstjóri
Vopnafjarðarhrepps
Starf sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps er laust
til umsóknar. Sveitarstjóri er framkvæmda-
stjóri sveitarfélagsins. Hann siturfundi sveitar-
stjórnar með málfrelsi og tillögurétt og hefur
á hendi framkvæmd þeirra ákvarðana sem
^•sveitarstjórn tekur. Hann er prókúruhafi sveit-
arsjóðs og er yfirmaður annars starfsliðs sveit-
arfélagsins
Umfangsmikil verkefni eru í gangi.
Áskilin er góð menntun, reynsla og þekking
á sveitarstjórnarmálum æskileg.
Starfskjör sveitarstjóra verða ákveðin í ráðn-
ingarsamningi. íbúðarhúsnæði ertil staðar
ef með þarf.
Ráðningartími sveitarstjóra er sá sami og kjör-
tímabil sveitarstjórnar, eða 4 ár.
Á Vopnafirði búa um 850 íbúar. Atvinnulíf er
fjölbreytt og góð félagsleg þjónusta fyrir unga
sem aldna. Menningarlíf með miklum blóma
,rog veðursæld mikil eins og alþekkt er.
Nánari upplýsingar um starfið veita Vilmundur
Gíslason, sveitarstjóri, hs. 473 1113, vs.
473 1300, ÓlafurÁrmannsson, hs. 473 1330,
vs. 473 1333, Ólafur Sigmarsson, hs. 473 1414,
vs. 473 1200.
Umsóknarfrestur er til 18. júní nk.
Umsóknir berist á skrifstofu Vopnafjarðar-
hrepps, Hamrahlíð 15, 690 Vopnafirði, merktar:
„Sveitarstjóri".
Heildverslun
Röskur maður óskast til starfa í heildverslun
við sölu-, lager- og skrifstofustörf.
Umsóknir um starfið sendist afgreiðslu Mbl.
>merktar: „H — 4981" fyrir 18. júní.
Forstjóri
Hafrannsókna-
stofnunarinnar
Sjávarútvegsráðuneytið auglýsir lausttil um-
sóknar embætti forstjóra Hafrannsóknastofn-
unarinnar. Sjávarútvegsráðherra skipar for-
stjóra stofnunarinnarfrá og með 1. ágúst 1998,
til fimm ára í senn.
Umsækjendurskulu uppfylla skilyrði 13. gr.
laga nr. 64/1965 um rannsóknir í þágu atvinnu-
veganna.
Umsóknir skulu sendar sjávarútvegsráðuneyt-
inu fyrir 18. júní nk. Nánari upplýsingarfást
hjá sjávarútvegsráðuneytinu.
Sjávarútvegsráðu neytið,
9. júní 1998.
Leikskólar Árborgar
Leikskólakennarar
Leikskólastjóri óskast í leikskólann Æskukot,
Stokkseyri, frá 1. september nk. Leikskóla-
kennaramenntun er áskilin. í leikskólanum eru
18 börn samtímis ýmist í heilsdags- eða hálfs-
dagsdvöl.
Umsóknarfrestur er til 29. júní.
Nánari upplýsingargefa Þorlákur Helgason
fræðslustjóri og Heiðdís Gunnarsdóttir, leik-
skólafulltrúi í síma 482 1977, Ráðhúsinu, Aust-
urvegi 2, Selfossi.
Leikskólafulltrúi Árborgar.
„Au pair" — Osló
íslensk „au pair" óskast til að gæta tveggja
barna, 3ja og 4ra ára og vinna heimilisstörf
á heimili í miðborg Óslóar og á sumrin í sum-
arhúsi út við ströndina. Þarf að geta byrjað
1. ágúst nk. og vera í eitt ár. Mikilvægt er að
viðkomandi geti talað norsku eða dönsku.
Vinsamlega sendið umsóknirtil afgreiðslu Mbl.
merktar: „Osló — au pair — 8/98".
Kennara vantar í
Grunnskóla
Grindavíkur
Um er að ræða kennslu á unglingastigi,
byrjendakennslu og íþróttir stúlkna og
drengja.
Upplýsingar veita skólastjóri vs. 426 8020, hs.
551 3663 og aðstoðarskólastjóri vs. 426 8020,
hs. 426 8363.
Grindavík er blómlegt bæjarfélag með 2200 íbúa í aðeins 55 km fjar-
lægð frá Reykjavík. Nemendur eru um 370 11.—10. bekk. í skólanum
er unnið framsækið starf með áhugasömu starfsliði. Viðbygging
við skólann stendur yfir og verður skólinn einsetinn að framkvæmdum
loknum. Grindavíkurbær greiðir staðaruppbót til kennara sem eiga
lögheimili á staðnum.
MÚLAKAFFI
Smurbrauðsdama
óskast
Múlakaffi/Veisluréttir óska eftir að ráða smur-
brauðsdömu.
Upplýsingar gefnar á staðnum.
Leikskólakennarar
Leikskólinn Krakkakot í Bessastaðahreppi óskar
eftir leikskólakennara til starfa.
Um er að ræða 50% starf eftir hádegi.
Upplýsingar gefur Erla Thomsen leikskólastjóri
í síma 565 1388 eftir hádegi virka daga.