Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ SANYL ÞAKRENNUR Fást í flestum byggingavöruverslunum landsins. TlAJLFABORG? ' KNARRARVOGI 4 • g 568 6755 flöskur vekjo. ögnuð! FÓLK í FRÉTTUM Dauft danskvöld Rafmögnuð danstónlist átti laugardaginn á Popp í Reykjavík. Hildur Loftsdóttir ætl- aði að fá sér snúning en kom að daufum áheyrendum. LAUGARDAGUR var síðasti dagur- inn á þriggja daga tónlistarhátíðinni Popp í Reykjavík. Fyrri hluti tón- leikanna var haldinn í Loftkastalan- um og var helgaður raftónlist. Um kvöldið var hins vegar pakkað í skemmu Héðinshússins þar sem dansmenningin átti að taka öll völd. Sitjandi dans Það voru ekki margir áheyrendur að raftónlistinni, sem reyndar er veigamikill hluti poppmenningarinn- ar í Reykjavík. Tónlist þessi á sér ófáa aðdáendur en áhugaleysið gæti stafað af því hversu furðulegt er að láta þessa danstónlistarmenn koma fram á „sitjandi" tónleikum þar sem leikurinn er upphaflega gerður til þess að fá fólk til að hreyfa skankana. Ekki er framkoma tónlistarmann- anna neitt til að gleðja augað, þar sem hljómsveitir samanstanda oftast af einum til tveimur náungum sem grúfa sig yfír tölvurnar sínar. Hljóm- sveitin Plastic inniheldur einn með- lim sem var svo vinsamlegur að mæta með bangsasafnið áitt til að sýna hlustendum. Hann fræddi þá líka um það að bassatromman sendir frá sér alfabylgjur sem streyma um líkama áheyranda og á að skapa vellíðan hjá þeim. Það er þó eitthvað til að sækjast eftir. Þeir sem skemmtilegastir þóttu í Loftkastalanum, af viðbrögðunum að dæma, var hljómsveitin Slowblow. Hljómsveitaskipan þeirra er frekar klassísk og ólík hinum sveitunum; kassagítar, rafgítar og -bassi, tromm- ur og forláta orgel í ferðatösku. Það vai- gaman að því að meðlimh- Slowblow skiptust á að spila á hljóð- færin og virðast vera grúskarar eins og kollegar þeirra í tölvutónlistinni. Þeir voru samt mun meira heillandi í sviðsframkomu; látlausir og einlægir þegai' þeh' sungu skemmtilega texta með músarlegri röddu. Daníel Agúst söng seinasta lagið með þeim sem gestasöngvari og gerði það vel sem endranær. Hann er einstakur sviðs- maður sem er gjörsamlega tengdur áhorfendum sínum þótt hann sé ekki síblaðrandi. Virkilega flottur gæi sem bar líka af í hópi frekar tilgerðai'legra félaga sinna í Gusgus, sem voru samt bestir. Margir biðu með eftirvæntingu fyrstu tónieika Móu á Islandi. Hún DANÍEL Ágúst er frábær söngvari og sviðsmaður. spilar ansi skemmtilega blandaða tónlist með textatilvitnunum úr djassstandördum sem kemur vel út og eru mörg Iögin líkleg til vinsælda. Fólki virtist líka framlag hennar og sérstaklega smástúlkunum í fremstu röðum við sviðið sem ráku upp skræki á misjöfnum stöðum um leið og þær mændu á kvenlegu fyrir- myndina sína Móu ofurpæju. Því miður var þetta ekki gott kvöld hjá henni, raddleysi hrjáði hana og hún hefði mátt vera líflegri á sviði. Eitt af því skemmtilegi'a sem ég heyrði og sá var án efa rappdrottn- ingin Ragna í Subterranean. Hún er frábær rappari með flottar hreyfing- ar og fína rödd. Hún er tengiliður Ljósmynd/Sigurjón Ragnar MÓA lifir sig inn í nýja lagið sitt „Toy“. hljómsveitarinnar við áhorfendur, og gerði sitt til að hreyfa við þeim og fá þá með. Hún var áberandi frjálsleg- ust og eðlilegust bæði í framkomu og tónlistarflutningi. Virkilega heillandi stelpa sem vonandi treður sér áfram á poppbrautinni. Eg þarf greinilega að poppa mig eitthvað upp áður en ég mæti á næstu popptónlistarhátíð. Mér finnst áberandi skorta einlægni í fram- komu og það að tengjast áhorfend- um við tónlistai'flutninginn. Tónlistin er um margt ágæt og auðvitað smekksatriði út af fyrir sig. Kannski að einhvers konar samskiptafirring sé að þróast meðal tölvugi'úskar'anna þegar tilgerðin er að drepa hina. En á tónleikakvöldi sem var helgað danstónlist sást varla áheyrandi hreyfa sig, hvað þá kippast til óvart. Ég held að málið sé að fá Pál Oskar til að rassskella liðið. Á Fótboltavef Morgunblaðsins finnur þú alla réttu takkana Hverjir skora Nýjustu fréttir, innlendar og erlendar www.mbl.is/boltinn Beinar útsendingar Staðan og næstu leikir Fótboltavefur mbl Þar sem þú getur fylgst með boltanum í sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.