Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 15
Morgunblaðið/Ágúst
KEPPT var m.a. í handflökun í Neskaupstað á sjómannadaginn.
Fjórar konur heiðr-
aðar á Neskaupstað
Neskaupstað - Sjómannadagshátíð-
in var með hefðbundnum hætti í
frekar köldu veðri fyrstu tvo dag-
ana en ágætu veðri á sjálfan sjó-
mannadaginn.
Hátíðarhöldin hófust á fóstudag
með sjóstangaveiðimóti og þann
dag var miðbærinn skreyttur með
fánum. Mótið hélt svo áfram á laug-
ardag.
Hestamannafélagið Blær hélt
firmakeppni; þyrla Landhelgisgæsl-
unnar kom í heimsókn; dorgveiði-
keppni fyrir börn og keppt var í
handflökun og kappróðri.
A sjómannadaginn fóru skip og
bátar í hópsiglingu. Hátíðarmessa
var í Norðfjarðarkirkju og blóm-
sveigur lagður á leiði óþekkta sjó-
mannsins. Hátíðarhöldin við sund-
laugina hófust síðan um miðjan dag.
Ræðumaður dagsins var Steingrím-
ur J. Sigfússon alþingismaður. Síð-
an voru ýmis skemmtiatriði, s.s.
stakkasund, reiptog o.fl.
Fjórar konur hlutu heiðursmerki
sjómannadagsins að þessu sinni.
Þær Sigurbjörg Sigurjónsdóttir,
Björg Helgadóttir, Gíslína Sigur-
jónsdóttir og Sigríður Sigurðardótt-
ir Mýrdal. Þátttaka í hátíðarhöldun-
um var góð á sjómannadaginn en
minni hina dagana, enda veður kalt
og hráslagalegt þá.
Ljósmynda-
sýning opnuð
á vigtinni
Grundarfirði - Hátíðadagskrá
sjómannadagsins var með hefð-
bundnum hætti. Á laugardag-
inn var sigling um fjörðinn,
skemmtidagskrá við sundlaug-
ina fyrir krakkana, síðan fót-
bolti milli áhafnanna á togurun-
um.
Um kvöldið var sjómanna-
dagshófið í Samkomuhúsinu.
Skúli R. Skúlason matreiðslu-
meistari sá um hlaðborð. Að
loknu borðhaldi og skemmtiat-
riðum var dansleikur með
hljómsveitinni Pöpum frá Vest-
mannaeyjum.
Á sunnudeginum var gengið
frá höfninni til kirkju, sjó-
mannadagskórinn söng. Við
höfnina var hefðbundin dag-
skrá, reiptog, koddaslagur,
stakkasund o.fl. Hátiðaræðuna
að þessu sinni flutti Jóhannes
Ragnarsson. Um kafflsöluna sá
kvenfélagið Gleym-mér-ey í
samkomuhúsinu.
Elías Guðjónsson og Rósant
Egilsson á Hafnarvoginni opn-
uðu Ijósmyndasýningu á vigt-
inni á sjómannadaginn. Það eru
ljósmyndir af nær öllum skip-
stjórum mótorbáta sem gerðir
hafa verið út frá Grundarflrði í
ríflega hálfa öld.
Morgunblaðið/Guðlaugur
KODDASLAGUR í höfninni í Grundarfirði.
Mot'gunblaðið/Kari
Sjómannámessa við höfnina
Hvammstanga - Hátíðarhöld sjómannadagsins á ^ sveitin Káraborg annaðist aðra dagskrárliði dagsins
Hvammstanga hófust á guðsþjónustu við höfnina. og fylgdist fjöldi manns með og tók einnig þátt í sigl-
Predikunarstóll sóknarprestsins, Kristjáns Björnsson- ingu á smærri bátum. Veðurblíða var allan daginn og
ar, var Sigurborgin sem var í heimahöfn. Slysavarna- var það tilbreyting frá norðankulda liðinna vikna.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
BLÍÐSKAPARVEÐUR var á sjómannadaginn i Grindavík.
„Sjóarinn
síkáti“ í
Grindavík - Það var mikið um dýrðir
eins og alltaf á sjómannadaginn í
Grindavík. Mikil og vegleg dagskrá
var alla helgina með yfirskriftinni
„Sjóarinn síkáti“, en það er nafnið á
þessari hátíð sem hefur fest sig í
sessi í Grindavík. Mikill fjöldi fólks
var á röltinu, enda veðrið með besta
móti og vonandi komin hefð á það
líka. Greinilegt er að. „Sjóarinn
síkáti" er að festa sig í sessi í
skemmtanalífi landsmanna því mikið
var af gestum í bænum alla helgina.
Sjómannadagurinn
Hátíðarhöld með
hefðbundnum hætti
Hornafirði - Hátíðarhöld sjómanna-
dagsins á Homafirði fóru fram með
hefðbundnum hætti á laugardag og
sunnudag.
Á laugardaginn voru ýmsai' uppá-
komur við höfnina sem lauk með hóp-
siglingu báta út fyrir Hornafjarðarós.
Dagskráin á sunnudaginn hófst með
sjómannamessu í Hafnarkirkju þar
sem sóknarpresturinn, Sigurður Kr.
Sigurðsson, predikaði og Halldóra B.
Jónsdóttir, formaður útvegsmannafé-
lags HornaQarðar, flutti hugvekju.
Hátíðardagskrá var að venju á
hóteltúninu. Ræðu dagsins flutti
Björn Traustason verksmiðjustjóri
og Sólveig Edda Bjamadóttir og
böm hennar voru heiðruð.
Sértilboð
iM Parísar
30. júní
Irá kr. 17.052
Heimferðir selja nú síðustu sætin
til Parísar 30. júní og 7. júlí á
hreint ótrúlegum kjörum. Nú get-
ur þú komist til þessarar mest heillandi borgar Evrópu á ótrúlegu
verði og valið um hvort sem þér hentar að kaupa eingöngu flug-
sæti, flug og bíl eða flug og hótel og valið um eitthvert af af-
bragðsgóðum hótelum Heimsferða í heimsborginni.
íslenskur fararstjóri Heimsferða í París.
Verð kr.
17.052
M.v. hjón með 2 bom, 2-11 ára, flug-
sæti.
Verð kr.
19.980
Flugsæti fyrir fullorðinn með sköttum.
Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600