Morgunblaðið - 09.06.1998, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
Ný hafnarvog
á Suðureyri
Suðureyri. Morgunblaðið.
BYLTING hefur nú orðið í löndun-
ar- og vigtarþjónustu hjá Suður-
eyrarhöfn eftir að ný hafnarvog
var tekin í notkun fyrir skemmstu.
Um er að ræða 80 tonna bílavog
auk tveggja tonna karavogar. Þá
hefur verið bætt við þriðja lönd-
unnarkrananum. Þetta er stórt
framfaraspor frá því sem áður var,
þegar notast var við gám sem vigt-
arhús með einni karavog.
Þá hefur einnig verið innréttuð
glæsileg aðstaða í áhaldahúsi bæj-
arins fyrir hafnarverði og farand-
sjómenn. A efri hæð er björt og
góð skrifstofu- og vigtaraðstaða
fyrir hafnai-verði auk kaffístofu. Á
neðri hæð er salernis- og sturtuað-
staða fyrir sjómenn auk símasjálf-
sala, en þar verður opið f'yrir sjó-
menn allan sólarhringinn. Að sögn
Hermanns Skúlasonar hafnar-
stjóra þá var farið að bráðvanta
slíka þjónustu fyrir trillukarla sem
koma og róa yfír sumartímann frá
Suðureyri og búa þá gjarnan um
borð í bátum sínum við misjafnan
aðbúnað. En slíkum sjómönnum
hefur farið íjölgandi ár frá ári á
Suðureyri. Aðstaða hafnarvarð-
anna í áhaldahúsinu þar sem lesið
er af vogunum er í 150 metra fjar-
lægð frá vogunum. Það kemur þó
ekki að sök þar sem tæknin er nýtt
til þess að brúa það bil.
Fjarvigtun með tölvum
og myndavélum
Myndavélum hefur verið komið
íyrir yfír báðum vogunum og hefur
hafnarvörður því fulla yfírsýn yfir
allt það sem fram fer á skjá í að-
stöðu sinni. Þá hefur verið komið
fyrir talstöðvum í löndunartækjun-
um svo hægt er að hafa talsam-
band milli hafnarvarðar og löndun-
armanna. Þessi nýja aðstaða, auk
þriðja löndunarkranans, mun gera
alla löndun mun fljótvirkari og þar
með minnka iíkurnar á langri lönd-
unarbið eins og oft hefur viljað
myndast á sumrin þegar margir
bátar koma að landi á sama tíma.
Hinn 8. maí síðastliðinn var nýja
aðstaðan formlega opnuð og tekin í
notkun. Hafnarstjóm ísafjarðar-
Vöm gegn áhriíum
álags
streitu
► bætir meltinguna og
* kemur jafnvægi a hana
studlar að vellídan
í daglegu lífi verður fólk fyrir
ýmsum áreitum sem hafa
skaðleg áhrif á heilsuna. Þetta
eru þættir eins og vinnuálag,
streita, mengun og svefnleysi.
Afleiðingamar geta verið veikara
ónæmiskerfi og ójafnvægi í
meltingu.
LGG+ er styrkjandi
dagskammtur unninn úr
fitulausri mjólk og inniheldur
LGG-gerla auk annarra heilnæmra gerla og trefjacfna sem m.a.
bæta og koma jafnvægi á meltinguna.
LGG-gerlarnir eru þeir mjólkursýrugerlar sem hvað mest hafa
verið rannsakaðir í heiminum. Þeir búa yfir einna mestu
mótstöðuafli allra þekktra mjólkursýrugerla, hafa margþætta
vamarverkun sé þeirra neytt reglubundið, bæta meltinguna og
auka velliðan. LGG+ er náttúmleg vara sérsniðin að
nútímalífshátlum. Strangt gæðaeftirlit er með framleiðslu á
LGG+ og framleiðsluaðferðin tryggir að gerlamagnið sé alltaf
hæfilegt svo drykkurinn hafi tilætluð áhrif.
styrkjandi dagskammtur
ffrá
Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson
HER sér yfir nýju pallavogina á Suðureyrarhöfn ásamt löndunarkrön-
unum. Aðstaða hafnarvarðanna er í áhaldahúsinu sem er í baksýn.
bæjar og verktakinn Árni Amason
buðu þá til opnunarhófs öllum þeim
er unnu að verkinu og komu að því
á annan hátt, auk sjómanna og ým-
issa frammámanna. Þar voru flutt-
ar stuttar ræður og ávörp og fögn-
uðu menn þar merkum áfanga.
Fram kom að áætlaður kostnaður
við verkið sé um 8 milljónir króna
og var það unnið á þremur mánuð-
um. Það var Elísabet Gunnarsdótt-
ir arkitekt á ísafirði sem teiknaði
aðstöðuna en Árni Amason bygg-
ingarverktaki sá um verklegar
framkvæmdir.
Sú nýbreytni hefur verið tekin
upp hjá Suðureyrarhöfn að færa
allar aflatölur beint inn á alnetið
um leið og afli hefur borist á land.
Að sögn hafnarvarðanna er þetta
eina höfnin á landinu sem býður
upp á slíka þjónustu. Aðrar hafnir
sem færa aflatölur inn á alnetið
hafa gert það nokkru seinna, þ.e.
eftir að gögnin hafa farið um Fiski-
stofu. Þeim sem hafa áhuga á að
nálgast aflatölur frá Suðureyrar-
höfn er bent á slóðina www.Isa-
fjordur.is sem síðan vísar á hafn-
irnar.
Góð humar-
veiði sunn-
anlands
HUMARVEIÐAR undan Suður-
landi ganga vel á meðan þungt
hljóð er j sjómönnum austanlands.
Helgi Ágústsson, skipstjóri á
Danska Pétri VE, segir veiðina
miklu betri á vertíðini nú en í fyrra,
enda hafí tíðin verið mun betri nú í
upphafi vertíðar en þá.
„Við höfum einkum verið að toga
í Háfadýpi og suður af Vestmanna-
eyjum. Við höfum verið að fá allt
upp í 200 kíló af humri í hali en
veiðin hefur verið nokkra lakari
svona síðustu dag og farið allt nið-
ur í 30 kíló,“ sagði Helgi.
Hann sagði humarinn stóran og
góðan, einkum á syðstu svæðunum,
við Súlnasker og við Skerin eins og
kallað er.
Búið að taka á móti jafn
miklu og alla síðustu vertíð
Hjá Isfélagi Vestmannaeyja er
búið að taka á móti um 9 tonnum af
humri frá því að vertíðin hófst 15.
maí sl. en það er afli af aðeins ein-
um bát, Álsey VE.
Að sögn Einars Bjamasonar hjá
Isfélaginu er það jafn mikill afli og
tekið var á móti alla humarvertíð-
ina á síðasta ári. „Þetta er miklu
skáira en í íýrra, humarinn er mun
betri, einkum humarinn sem fæst á
svæðunum hér syðra.“ Einar segir
humarinn einkum unninn fyrir
Ameríkumarkað en einnig talsvert
íyrir Danmörku.
Hjá Borgey hf. á Hornafírði
fengust þær upplýsingar að búið
væri að taka á móti 26 tonnum af
humri sem sé ívið skárra en á sama
tíma á síðustu vertíð. Alls landa 6
bátar humri hjá Borgey og era þeir
allir með eitt troll. Humarinn þykir
smár líkt og í fyrra og fara um 74%
í fyrsta og annan flokk.
www.mbl.is
Erlend verðbréf
Strategic Global Themes Fund* Greater Europe Fund**
4/$6 3
SCUDDER 1
Global Opportunities I
Funds I
•fí
iW; 3
Greater Europe F\md og Strategic Global Themes Fund skarta hæstu £
einkunn hjá hinu virta matsfyrirtæki Momingstar eða fimm stjömum. |
«1
*Hjá Strategic Global Themes Fund var ávöxtun 25% 1997 'z
og hœkkun áfyrsta ársfjórðungi 1998 12%. |
g
**Ávöxtun hjá Greater Europe Fund var 41 % árið 1997 f
og hœkkun 26% áfyrsta ársfjórðungi 1998. I
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Kirkjusandi ■ Sími 560 89 00
Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is