Morgunblaðið - 09.06.1998, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Að brjóta
skurðgoð
listinni
til dýrðar
STRANDKASERNEN, 1983/87, blönduð tækni.
----------------------------------------------- EIN af þeim teikningum sem Dieter Roth vann fyrir
DAGATAL með flettispjöldum fyrir Hörpu. Lesbók Morgunblaðsins og birtar voru árið 1964.
MÉR fmnst spennandi að
gera eitthvað sem heppnast
ekki,“ sagði Dieter Roth í
viðtali sem Ingólfur Margeirsson
átti við hann í Þjóðviljanum árið
1978. Erfitt er að staðsetja list Diet-
ers þar sem hún spannar óhemju
vítt svið er lýtur að myndlist, hönn-
un, kvikmyndagerð og tónlist. Segja
má að listsköpun hans hafi verið
eins konar leikur með ákveðinn
fjölda möguleika, - möguleika sem
voru sífellt opnir fyrir endurskoðun
og breytingum. Dieter hafði enda
ekki trú á einhverri endanlegri
lausn í myndlist frekar en í lífinu.
„Hann var í rauninni stöðugt að
brjóta skurðgoð listinni til dýrðar,"
er haft eftir myndlistarmanninum
Kristjáni Guðmundssyni í viðtali í
sýningarskrá sem gefin var út í til-
efni sýningar á Kjarvalsstöðum árið
1989 á verkum listamanna er til-
heyrðu SÚM-hópnum. Þekktastur
er Dieter Roth fyrir það frum-
kvöðlastarf sem hann vann á sviði
bókverkagerðar og með veru sinni
hér á landi hafði hann ómetanleg
áhrif á íslenska samtímamyndlist.
Dieter Roth var af þýsku og
svissnesku foreldri, fæddur 1930 í
Hannover í Þýskalandi. Frá 13 ára
aldri bjó hann í Sviss en þá voru þar
engir listaskólar svo Dieter hóf nám
í grafískri hönnun. Undirstöðuatriði
málaralistar kenndi hann sér sjálfur
auk þess að sækja námskeið í graf-
íklistum, m.a. hjá þekktum lista-
manni þess miðils, Eugen Jordi. Ar-
ið 1956 fer hann til Kaupmanna-
hafnar og hefur störf hjá stærstu
auglýsingastofu og hönnunarmið-
stöð þess tíma á Norðurlöndum, í
eigu Percy Halling-Knoch. í Dan-
mörku kynnist Dieter Sigríði
Bjömsdóttur og á árunum 1958-
1984 býr hann ýmist á Islandi, í
Sviss eða Þýskalandi.
Bókin sem hlutur
Fyrstu einkasýningu sína hélt Di-
eter á Mokka-kaffi 1958 og fyrstu
bókverkin gaf hann út í Reykjavík á
árunum 1957-1961. Þessi fyrstu
verk Dieters eru eins konar optísk
abstraktverk þar sem hver blaðsíða
grípur inn í aðra þegar bókinni er
flett. í öðrum bókum frá þessu
skeiði stendur Dieter nær konkret-
ljóðlist þar sem leikið er á mörkum
orða og forma. Hann vann hjá
Ragnari Kjartanssyni og með
Magnúsi Pálssyni og Manfreð Vil-
hjálmssyni í húsgagnagerðinni Kúl-
unni árið 1960 og um það leyti nálg-
ast hann hugmyndina um „ready-
made“ og leggur upp frá því megin-
áherslu á þykkt, stærð og síðufjölda
bókanna. Dieter umbylti þannig við-
teknum gildum og skilningi manna
á því hvað væri bók og sýndi fram á
að bók og texti þyrftu ekki endilega
að fara saman. Bókin væri hlutur í
sjálfu sér sem innihéldi ótakmarkað
rými og þar með tímahugtakið. Og
það væru því aldrei takmörk fyrir
því hvað hægt væri að gera innan
þessa „opna kerfis“. Með svokölluð-
um „bókarbjúgum" sem urðu 50
talsins verður ummyndun bókarinn-
ar algjör. Dagblaðapappír er soðinn
í pappamassa sem blandað er sam-
an við límefni, feiti og krydd og úr
því búið til bjúga.
Bókverk Dieters skipta hundruð-
um og vann hann einnig að gerð
ritsafna og ritraða, útgáfu póst-
kortasería og tímarita á borð við
„Tímarit fyrir allt“ sem hann stofn-
LYKTARORGELIÐ frá 1965.
aði til 1975 en þar var hægt að fá
allt útgefíð. Bandarískur listfræð-
ingur, Peter Frank, sem rannsakað
hefur sérstaklega bókagerð mynd-
listarmanna, fullyrðir að enginn nú-
tímalistamaður hafi lagt meira af
mörkum til þeirrar listgreinar en
Dieter Roth. Töluvert safn bóka
eftir Dieter er til hér á landi því
listamaðurinn gaf Nýlistasafninu
eintök af flestum bóka sinna og
raunar stórt safn verka sinna í
heild. Vill svo til að um næstu helgi
verður opnuð í safninu vinnusýning
á bókverkum Dieters Roths í um-
sjón og undir leiðsögn Ingólfs Arn-
arsonar, en sýningin verður aðeins
opin á virkurn dögum, nema mánu-
dögum, frá 14 til 18 næstu tvær vik-
umar.
Meðvituð hending í bland
við ofumákvæmni
Dieter Roth var mjög frumlegur í
listsköpun sinni og gerði m.a. til-
raunir með margvísleg efni í mynd-
verkum, eins og osta, súrmjólk,
súkkulaði og kjöt og hann blandaði
meðvitað saman faglegum og við-
vaningslegum vinnubrögðum. Að
mörgu leyti vann hann í anda Flux-
us-hreyfíngarinnar svonefndu og
átti marga vini innan hennar þó að
hann hafi, eins og Aðalsteinn Ing-
ólfsson bendir á, verið mjög á skjön
við allt hópefli í listsköpun. Á síðari
árum hafa verk hans stækkað í
nokkurs konar safnmyndir þar sem
vitnað er í eyðslu menningarsamfé-
lagsins og endurvinnslu verðmæta.
Dieter Roth hefur staðið fyrir
nokkrum mjög umfangsmiklum list-
framkvæmdum, sem sumar hverjar
hafa verið mörg ár í vinnslu. Hann
lét í tvígang taka litskyggnur af öll-
um húsum í Reykjavík, alls um
27.000 myndir, sem skiptast í tvö
sjálfstæð verk, hið fyrra er varð-
veitt í Þýskalandi og hið síðara er
gjöf hans til Nýlistasafnsins og er
nú unnið að því að koma verkinu til
varðveislu hjá Listasafni Reykja-
víkur. Auk bókverka, grafíkverka
og skúlptúra vann Dieter með tón-
list, oft í samvinnu við annað mynd-
listarfólk og hann starfaði með
myndlistarmönnum eins og Richard
Hamilton, Arnulf Rainer, Gerhard
Ruhm, Oswald Wiener og börnum
sínum Birni, Karli og Veru.
Á íslandsárum sínum kynntist
Dieter mörgum leiðandi íslenskum
listamönnum og veitti hingað til
lands straumi erlendra áhrifa auk
þess að greiða götur íslenski’a
myndlistamanna á sýningar erlend-
is. Hann hafði mikil áhrif á íslenska
listamenn, ekki síst þá sem til-
heyrðu SÚM-hópnum, og þar með
þróun íslenskrar samtímamyndlist-
ar á 7. og 8. áratugnum.
Hóflaust andhóf gegn
viðteknum hugmyndum
Aðalsteinn Ingólfsson listfræð-
ingur hefur unnið rannsóknarverk-
efni um veru og áhrif Dieters Roths
á Islandi. Hann segir Dieter án
vafa einn frumlegasta myndlista-
mann í seinni tíð og órjúfanlegan
hluta af nýlistasögu Islands.
„Það sem var afskaplega ríkt í
honum var það að sætta sig ekki við
nein takmörk," segir Aðalsteinn.
„Ef menn héldu því fram að listin
ætti að vera varanleg og eilíf þá bjó
hann til verk sem voru þvert á móti
skammlíf. Og ef viðtekið viðhorf var
að fara frá A til Ö þá var hann vís
með að snúa því við, fara frá Ö til A
og reyna þannig á þanþol lista og
hugmynda, bara til að vita hvað
kæmi út úr því. Og þrátt fyrir tóm-
hyggju sína og vantrú á sköpun var
Dieter hreint ótrúlega frjór mað-
ur.“
Aðalsteinn lýsir Dieter sem sér-
kennilegum og erfiðum persónu-
leika. „Hann var gróflega heiðar-
legur bæði gagnvart sjálfum sér og
öðrum, og hikaði ekki við að senda
myndlistheiminum langt nef sem
fals eitt og hljóm," segir Aðal-
steinn. „Og ég er í raun sannfærður
um það að hann hefði sömu stöðu
og Joseph Beuys í listheiminum í
dag hefði hann ekki verið svona
hornóttur.“
Einn af þessum stóru á öldinni
Myndlistarmaðurinn Kristján
Guðmundsson þekkti vel til Dieter
Roths og segir að það hafi skipt sig
sköpum að kynnast list hans og per-
sónu. „Hann ögraði alltaf sjálfum
sér og listinni með því sem hann var
að gera og hann var svo hæfur á
mörgum sviðum," segir Kristján.
„Dieter var mikill listamaður og ég
er ekki samur eftir að hafa kynnst
honum. Fyrir mér er hann einn af
þessum stóru á öldinni.“
Hollenski myndlistarmaðurinn
Jan Voss stóð Dieter nærri og segir
að hann hafi fyrst og fremst litið á
sig sem skáld. „I hans huga snerist
skáldskapur ekki bara um orð held-
ur ekki síður um myndir og tóna,“
segir Jan. „Hann gat engu að síður
unnið á mjög breiðu sviði og það
gerði hann allt fram á síðasta dag
og var sem fyrr gagntekinn af skrif-
um, söfnun, samsetningum og upp-
broti ólíkra hluta.“
Dieter Roth lést á föstudag í Basel
í Sviss.