Morgunblaðið - 09.06.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1998 25
LISTIR
Heiðursstyrkir Menningar- og1 styrktarsjóðs SPRON
—
Ferðafélag Islands og
Caput fá hæstu styrkina
HEIÐURSSTYRKIR Mennihgar-
og styi-ktarsjóðs SPRON voru af-
hentir ellefu hópum og einstak-
lingum síðastliðinn laugardag. Sex
milljónir króna voru til ráðstöfun-
ar og að þessu sinni voru Ferðafé-
lag Islands og Caput-hópurinn
stærstu styrkþegarnir sem fengu
eina milljón króna hvor. Að auki
voru fímm 400 þúsund króna
styrkir veittir og fjórir 500 þúsund
króna styrkir.
Ferðafélagið
bætir aðstöðuna
Valgarð Egilsson, varaforseti
Ferðafélagsins, veitti styrk
SPRON viðtöku úr hendi Björns
Bjarnasonar menntamálaráðherra
í fjarveru Hauks Jóhannessonar
forseta. I samtali við Hauk kom
fram að styrkinn skyldi nota til að
lagfæra aðstöðuna í Esju og auka
möguleikana á frekari útivist í ná-
grenni höfuðborgarinnar. „Það
verður byrjað á því í sumar að laga
göngustigana þrjá í Esju og gera
þá örugga," sagði Haukur. Rök-
semd SPRON fyrir styi’kveiting-
unni var sú að Ferðafélagið hefði
staðið fyiir farsælu starfi að ferða-
málum í landinu í 70 ár og enn-
fremur að styrkurinn væri veittur
með hliðsjón af samstarfssamningi
Ferðafélagsins og SPRON frá í
maí síðastliðnum. „Samningurinn
er margþættur og felur í sér alls-
konar samvinnuverkefni og varðar
SPRON, okkur og Reykjavíkur-
borg,“ sagði Haukur. Samstarfs-
samningurinn gildir í fimm ár og
mun Ferðafélagið þar að lútandi
sjá um tvær gönguferðir fyi’ir
SPRON auk þess að sjá um árleg-
an Esjudag og útbúa göngukort af
náttúruperlum á Reykjavíkur-
svæðinu gegn styrk frá SPRON
meðal annars.
Caput-hópurinn
í hljóðveri
Fyrir hönd Caput-hópsins tók
Guðni Franzson klarínettuleikari
við styrknum, en röksemd SPRON
fyrir veitingunni var sú að Caput-
hópurinn hefði sýnt frumkvæði að
flutningi nýn-ar tónlistar og fram-
úrskarandi vandaðan hljóðfæra-
leik. Guðni Franzson sagði í sam-
tali að til stæði að nota milljónina
til að greiða fyrir upptökukostnað.
Caput-hópurinn hljóðritaði óper-
una Fjórða söng Guðrúnar eftir
Hauk Tómasson í fyrra og er hún
nýlega komin út á geislaplötu í
Svíþjóð. „Við munum nýta styrk-
inn til að greiða fyrir upptökur á
óperunni og einnig til að fjár-
magna áframhaldandi upptökur á
íslenskri tónlist eftir Hróðmar Sig-
urbjörnsson og íleiri,“ sagði Guðni.
Skemmtanaskattur afnuminn
Björn Bjarnason, menntamála-
ráðherra, sagði í ræðu við afhend-
inguna að nokkur umræða hefði
verið um hvort gera ætti ráðstaf-
anir í skattamálum til að hvetja
fyrirtæki til enn frekari stuðnings
við menningu, menntir, rannsóknir
og vísindi. Sagði ráðherra að þeirri
stefnu hefði verið íylgt af hálfu
ríkisstjórnarinnar að frekar bæri
að lækka skatthlutfallið en að veita
Morgunblaðið/Þorkell
VALGARÐ Egilsson og Guðni Franzson taka við styrkjum fyrir hönd
Ferðafélags Islands og Caput-hópsins. Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra afhenti þá, eina milljón króna hvorn. Fjórar milljónir skipt-
ust síðan á milli níu einstaklinga og hópa.
frekari undanþágur. Skemmtana-
skattur verður afnuminn frá og
með 1. júlí og gerði ráðherra hann
að umtalsefni. „Þessi skattur hefur
með sínum hætti lagst sérstaklega
á menningarstarfsemi og verið á
forræði menntamálaráðuneytisins.
Hann er hins vegar löngu orðinn
barn síns tíma og innheimta hans
hefur sætt vaxandi gagnrýni.
Skattui-inn er nú sögunni og hefði
átt að hverfa fyrir löngu,“ sagði
ráðherra.
Þeir sem fengu styrk að upphæð
500 þúsund krónur voru Sigrún
Hjálmtýsdóttir, söngkona, bókaút-
gáfan Bjartur, Kammersveit
Reykjavíkur og Sumartónleikar í
Skálholti. 400 þúsund króna styrk
fengu Islenska óperan, myndlist-
arkonan Rúrí, Bergljót Ai’nalds,
rithöfundur og leikkona, Kristín
Jóhannesdóttir, kvikmyndahöf-
undur og leikstjóri og samtökin
Gróður fyrir fólk í Landnámi Ing-
ólfs.
Morgunblaðið/Gunnlaugur
FORSVARSMENN Gallerís Lunda: Kristborg Haraldsdóttir, Oddfríð-
ur Traustadóttir, Inguim Alda Gissurardóttir og Alma Diegó.
Gallerí opnað
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
I VETUR hittust nokkrir einstak-
lingar í Stykkishólmi sem áhuga
hafa á handverki. Var ákveðið að
stofna gallerí sem opið verður yfir
sumartímann, þar sem boðnir eru
til sölu handunnir munir. Um hvíta-
sunnuna var svo opnuð hand-
verksverslun sem hefur hlotið nafn-
ið Gallerí Lundi, en lundi er einn af
einkennisfuglum Breiðafjarðar.
Verslunin er til húsa í Freyjulundi,
húsi kvenfélagsins Hringsins, sem
er við Aðalgötuna. I Galleríi Lunda
í Hólminum
sýna 23 einstaklingar, allir búsettir
í Stykkishólmi, handunna hluti sem
þeir hafa framleitt sjálfir. A
boðstólum er mjög fjölbreytt fram-
leiðsla, sem sýnir að ótrúlega
margir hér í bæ fást við að skapa
listmuni og er það ánægjulegt.
Galleríið er opið í sumar fóstu-
daga og laugardaga frá kl 13-18 og
sunnudaga frá kl. 10-15. Upplýs-
ingamiðstöð ferðamanna í Stykkis-
hólmi getur útvegað annan opnun-
artíma, ef þess er óskað.
Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness
Dómnefnd lýkur
störfum
BÓKMENNTAVERÐLAUN Hall-
dórs Laxness, sem Vaka-Helgafell
stofnaði til í samráði við fjölskyldu
skáldsins, verða veitt í þriðja sinn í
haust. Efnt var til samkeppni um
besta handritið að skáldsögu eða
safni smásagna og var skilafrestur
til 1. maí sl. Dómnefnd um verðlaun-
in hefur nú lokið störfum. Ails bárust
um tuttugu handrit í keppnina og
voru þau merkt dulnefni en rétt nafn
höfundar látið fylgja með í lokuðu
umslagi. Úrslit verða tilkynnt í haust
og sama dag kemur verðlaunahand-
ritið út hjá Vöku-Helgafelli. Verð-
launin nema 500.000 kr. en venjuleg
höfundarlaun bætast við þá upphæð.
Þá fær höfundurinn verðlaunapen-
ing og skrautritað verðlaunaskjal.
Formaður dómnefndar var Pétur
Már Ólafsson, bókmenntafræðingur
og útgáfustjóri Vöku-Helgafells, en
með honum í nefndinni voru Þorleif-
ur Hauksson íslenskufræðingur og
Valgerðui’ Benediktsdóttir bók-
menntafræðingur.
Skúli Björn Gunnarsson hlaut
fyrstur Bókmenntaverðlaun Hall-
dórs Laxness árið 1996 fyrir smá-
sagnasafn Lífsklukkan tifar en það
var frumraun hans á rithöfundar-
sviði. I fyrra féllu verðlaunin í skaut
Eyvindi P. Ein'kssyni fyrir skáldsög-
una Landið handan fjarskans.
Megintilgangur Bókmenntaverð-
launa Halldórs Laxness er að efla ís-
lenskan sagnaskáldskap og stuðla
þannig að endurnýjun íslenski’ar frá-
sagnarlistar. Vaka-Helgafell leggur
fram verðlaunaféð. Verðlaunin eru
veitt fyrir nýja og áður óbirta ís-
lenska skáldsögu eða safn smásagna
að undangenginni samkeppni sem er
öllum opin.
ÆVINTYRALEGT INNGONGUTILBOÐ
1 "RHUH
Disneyklúbburinn - Bókaklúbbur
bamanna opnar ungu kynslóðinni
^ töfrandi œvintýraheim.
Mónaðarlega fœr barnið senda
'Sjm heim nýja og spennandi Disneybók
ósamt Góska, litprentuðu blaði
|f klúbbsins.
í Við inngöngu í klúbbinn fœrðu fyrstu
tvœr bœkurnar ó verði einnar, aðeins
925 krónur, og ef þú svarar innan tíu
daga fœrum við þér að auki skemmti-
lega Bangsímon-buddu að gjöf!
Tryggðu barninu þínu vandaðar bœkur
og góðar gjafir - bœkurnar eru ekki ó
boðstólum ó almennum markaði.