Morgunblaðið - 11.06.1998, Page 1

Morgunblaðið - 11.06.1998, Page 1
80 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 129. TBL. 86. ARG. FIMMTUDAGUR 11. JUNI1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ofbeldið f Kosovo aðalefni á fundi Tengslahópsins í Parfs Milosevic fái frest en aðgerðir ella Washington, París, Brussel. Reuters. BILL Clinton, forseti Bandaríkj- anna, frysti í gær allar eignir og fjárfestingar Júgóslava í samræmi við ákvörðun sem tekin var í síð- asta mánuði. Sagðist Clinton hrinda ákvörðuninni í framkvæmd nú vegna aðgerða Serbíuhers gegn Kosovo-Albönum en henni hafði verið frestað þegar Slobodan Milosevic, forseti Júgóslavíu, sam- þykkti viðræður við Ibrahim Ru- gova, leiðtoga Kosovo-Albana. Háttsettir fulltrúar Tengsla- hópsins svokallaða, sem Bandarík- in, Bretland, Italía, Þýskaland, Frakkland og Rússland eiga aðild að, lögðu í gær til, að Milosevic yrði veittur ákveðinn frestur til að binda enda á ofbeldið í Kosovo. Að öðrum kosti yrði gripið til harðra aðgerða, hugsanlega hernaðarað- gerða. Verður tillagan lögð fyrir fund utanríkisráðherra samstarfs- ríkjanna sex í London á morgun. Milosevic skilur aðeins valdbeitingu Jacques Blot, háttsettur emb- ættismaður í franska utanríkis- ráðuneytinu, sagði á fréttamanna- fundi, að samstaða hefði verið um tillögur, sem lagðar yrðu fyrir Milosevic og fulltrúa albanska minnihlutans í Kosovo og miðuðu að því að binda enda á óöldina. Sagði hann, að rétt væri að veita ákveðinn frest til að verða við þeim en yrði það ekki gert, skyldi brugð- ist við af fullri hörku. Blot vildi raunar ekki tala um „úrslitakosti" en sagði, að væntan- legur frestur yrði ekki langur. William Cohen, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær, að vonandi yrði unnt að komast hjá hernaðaríhlutun vestrænna ríkja í Kosovo en ekki væri samt hægt að útiloka hana. Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, tók í líkan streng er hann sagði á þingi, að eina leiðin til að hafa áhrif á Milos- evic Júgóslavíuforseta væri að hóta honum hernaðaraðgerðum. Kvað hann Breta vinna að því að afla stuðnings við slíkar aðgerðh- ef nauðsyn krefði. Þetta mál verður aðalumræðu- efnið á fundi varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna, sem hefst í Bras- sel í dag, en ekki verður um það að Reuters ALBANIR komu saman í Tírana, höfuðborg landsins, í gær til að lýsa stuðningi við Frelsisher Kosovo (KLA) sem berst fyrir sjálfstæði Kosovo. ræða, að herafli verði sendur til Kosovo. Líklegra er, að flugvélar verði sendar til árása inn yfir landamæri og NATO-herlið komi sér fyi-ir við landamærin í Albaníu. Gínubrúð- kaup London. Reuters. BRESK móðir, sem ekki komst í brúðkaup dóttur sinn- ar á afskekktri eyju í Atlants- hafi, fékk í staðinn lánaðar tvær gínur og hélt sýndar- brúðkaup í garðinum heima hjá sér. Hefði hún ella þurft að leggja í langt og strangt ferðalag til eyjunnar. Brúðkaupið fór fram á St. Helenueyju þar sem Napóle- on Bónaparte dó í útlegð, en í 9.650 km fjarlægð í bænum Middlesbrough á norðaustur Englandi jusu gestir gínurnar bréfsnifsum. Faðir brúðarinn- ar leiddi „dóttur“ sína hönd í hönd fram kirkjugólfið en hjúskaparheit hjónanna barst um síma utan af hafí. Móðirin kvaðst ekki hafa viljað missa af brúðkaupinu og var brúðurin hin ánægð- asta með þetta uppátæki. „Mamma sagði mér að það hefðu allir grátið af gleði þeg- ar þeir heyrðu okkur strengja hjúskaparheitin." GULH E SER SILEÍI iRASIL Reuters Hundruð Indverja farast í hvirfilbyl Ahmedabad. Reuters. HUNDRUÐ manna fórust í hvirfil- byl sem gekk yfir strandhérað í indverska ríkinu Gujarat í gær og fyrradag. Margra er enn saknað. Embættismenn í Gujarat sögðu að hvirfilbylurinn hefði kostað að minnsta kosti 411 lífið. Á meðal þeirra sem fórast vora 300 salt- vinnslumenn sem urðu fyrir flóð- bylgju af völdum bylsins. Hvirfilbylurinn var í rénun í Gu- jarat og færðist í átt að nágranna- ríkinu Rajasthan í gær og heimild- ir herma að 9 hafi farist þar. Embættismennimir sögðu að vegir hefðu skemmst af völdum flóða og það hefði hamlað björgun- arstarfinu. Herþyrlur aðstoðuðu björgunarsveitirnar og dreifðu matarpökkum á svæðum sem urðu verst úti. Hvirfilbylurinn olli mikl- um skemmdum á hafnarmann- virkjum og nokkur vöruhús gjör- eyðilögðust. Símasambandslaust var á mörgum stöðum og því erfitt að afla upplýsinga um tjónið. Mesti hiti í 42 ár Rúmlega 2.500 manns hafa dáið af völdum mikils hita á Indlandi frá því í maí. Hitinn hefur orðið allt að 49,5 stig í forsælu, sem er mesti hiti sem mælst hefúr í landinu frá 1956. Verð ávaxta og grænmetis hefur snarhækkað vegna aukinnar eftir- spurnar og minna framboðs og hitabylgjan hefur einnig valdið vatns- og orkuskorti í nokkram ríkjum. Beðið fyrir sigri við upphaf HM Brasilia, París. Reuters. Breckmann tryggir dönsku stjórnina MARILZA Guimaraes da Silva, sem er eldheitur aðdáandi brasilíska knattspyrnulands- Iiðsins, lét ekki sitt eftir liggja í gær er Brasilíumenn gerðu sig líklega til að leika við Skota í opnunarleik Heimsmeistara- mótsins í knattspyrnu í Frakk- landi. Hún skreytti gervallt hús sitt með þjóðfána Brasilíu, gullituð- um teppum, sængurverum, veggspjöldum og klæddist loks sjálf íþróttapeysu. Jafnframt kom hún fyrir hjá sér litlum minjagripum um átrúnaðargoð sín á leikvellinum. Að síðustu lagðist da Silva á bæn og varð líklega bænheyrð, því Brasilíu- menn sigruðu Skota 2-1 í fyrsta leiknum. Chirac setti hátíðina Opnunarhátíðin sem fram fór í París á undan leik Skota og Brasilíumanna þótti afar glæsi- leg og urðu 80 þúsund manns vitni að því þegar 32 fimleika- menn stungu sér fram af þaki knattspyrnuvallarins og léku listir sínar. Á eftir setti Jacques Chirac, forseti Frakklands, há- tíðina sem stendur yflr í rúman mánuð. í gærkvöld gerðu síðan Norðmenn jafntefli við Mar- okkó, hvort lið skoraði 2 mörk. ■ Samið við flugmenn/28 ■ Heimsmeistaramótið/Cl-C4 ANFINN Kallsberg, lögmaður Færeyja, kvaðst í gær ekki vilja ganga svo langt að segja að sam- komulag það, sem Danir og Færey- ingar náðu í fyrrinótt um bankamálið og greiðslu milljarðaskulda Færey- inga við danska ríkið, væri fyrsta skrefið í átt að sjálfstæði. Það væri hins vegar fyrsta skrefið í átt að því að gera eyjarnar efnahagslega sjálf- stæðar. Blekið vai' vart þornað á samningnum er Óli Breckmann, sem situr á danska þinginu fyrir Færey- inga, kvaðst myndu sitja hjá í at- kvæðagreiðslum um frumvörp dönsku stjórnarinnar og tryggði þar með framgang þeirra. Samkomulagið felur í sér að Færeyingar falla frá málsókn á hendur danska ríkinu vegna Færeyjabankamálsins, en fá þess í stað niðurfellingu skulda að andvirði um 9 milljarða ísl. kr., skuldbreyt- ingu lána að andvirði um 5 milljarða ísl. kr., vaxtalækkun sem nemur rúmum 7 milljörðum, auk þess sem framlag Dana tíl Færeyja hækkar um 1,5 milljarða næstu árin. Alls nemur þetta tæpum 23 milljörðum ísl. króna. Málsókn Færeyinga á hendur Den Danske Bank stendur hins vegar en Mogens Lykketoft, fjármálaráðherra Dana, kvaðst í gær vona að einnig yrði samið um lok þess máls án þess að það kæmi fyrir dómstóla. Peter Straarup, bankastjóri Den Danske Bank, er ekki trúaður á það og finnst hugsunin að baki sam- komulaginu einkennileg. I samtali við Jyllands-Posten í gær sagði hann að yrði dæmt í máli Færeyinga á hendur bankanum og honum yrði gert að greiða þeim bætur, myndu þær renna til danska ríkisins, og skuldir Færeyinga við Dani minnk- uðu sem því næmi. Því væri það danska ríkinu í hag að málið færi fyrir dóm. ■ Fyrsta skrefið/26

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.